Ítalski boltinn
195 196 197 198 199 ›
AC Milan enn efst AC Milan situr í toppsætinu í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir leiki helgarinnar, en Milan sigraði granna sína í Inter 1-0 í gærkvöld. Það var Kaká sem skoraði sigurmark Milan þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Milan er á toppnum með 57 stig, sama stigafjölda og Juventus sem er sæti neðar vegna lakari markamunar, en Juventus sigraði Siena 3-0. Sport 13.10.2005 18:50
Nedved illa meiddur Pavel Nedved hlaut slæm meiðsli í leik með liði sínu Juventus gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku. Sport 13.10.2005 18:50
Shevchenko frá fram yfir páska Nú er ljóst að AC Milan verður án úkraínsku markamaskínunnar Andriy Shevchenko næsta mánuðinn en það fékkst staðfest í dag þegar hann gekkst undir læknisaðgerð á Ítalíu. Settar voru málmplötur í andlit leikmannsins í aðgerðinni sem að sögn heppnaðist fullkomlega. Þessi tíðindi þýða að Milan verður án Shevchenko í báðum leikjum sínum gegn Man Utd í Meistaradeildinni og ekki von á honum í slaginn fyrr en í fyrsta lagi eftir páska. Sport 13.10.2005 18:48
AC Milan á toppnum AC Milan er á toppnum ítölsku 1. deildarinnar með 54 stig, rétt eins og Juventus sem er í öðru sæti með lakara markahlutfall. Inter vermir þriðja sæti með 43 stig og síðan koma Udinese og Sampdoria með 41. Sport 13.10.2005 18:48
Inter rúllaði Atalanta upp Í átta liða úrslitum bikarkeppninnar á Ítalíu í gær vann Inter Atalanta, 3-0, og 4-0 samanlagt. Á Spáni vann Atletico Madrid Numancia, 1-0, í síðari leik liðanna. Hearts sigraði Kilmarnock, 3-1, í 16-liða úrslitum skosku bikarkeppninnnar en Hjálmar Þórarinsson kom inn á sem varmaður í liði Hearts þegar sex mínútur voru til leiksloka. Sport 13.10.2005 18:47
AC Milan fylgir Juventus eftir AC Milan lagði Reggina að velli, 1-0, á útivelli í ítalska boltanum í gærkvöldi. Eina mark leiksins var sjálfsmark. AC Milan er tveimur stigum á eftir efsta liðinu Juventus en Juve lagði Udinese að velli 2-1 í gær. Sport 13.10.2005 18:47
Inter enn taplaust Á Ítalíu voru tveir leikir á dagskrá í gær. Lazio vann Atalanta með tveimur mörkum gegn einu og Inter sigraði Roma, 2-0. Sport 13.10.2005 18:46
Juventus aftur á beinu brautina Juventus komst í dag aftur á beinu brautina í ítölsku úrvalsdeildinni eftir tvo tapleiki í röð. Juve vann Udinese á heimavelli, 2-1, með mörkum frá Svíanum Zlatan Ibrahimovic og Mauro Camoranesi. David di Michele minnkaði muninn fyrir Udinese í blálok leiksins. Juve hefur því fimm stiga forystu á AC Milan, sem á leik til góða í kvöld. Sport 13.10.2005 18:46
Aftur tapar Juventus Óvænt úrslit urðu í ítölsku úrvalsdeildinni í gær þegar topplið Juventus tapaði öðrum leik sínum í röð, að þessu sinni gegn Palermo 1-0. Juventus hefur enn fimm stiga forskot á AC Milan sem á leik til góða gegn Lazio í dag. Sampdoria sigraði Fiorentina með 3 mörkum gegn engu. Fiorentina lék með aðeins níu leikmenn í 80 mínútur þar sem tveir leikmenn liðsins voru reknir af velli. Sport 13.10.2005 15:32
Milan dregur á Juventus Níu leikir fóru fram í ítölsku Seria A deildinni í knattspyrnu í kvöld. Sport 13.10.2005 18:45
Fiorentina eyðslusamir Fiorentina keypti í dag rúmenska undrabarnið Valeri Bojinov frá Lecce, en Bojinov þessi er aðeins átján ára og hefur skorað 11 mörk í ítölsku deildinni í vetur. Kaupverðið er um 9.3 milljónir punda og fer Jamie Andreas Valdes, miðjumaður frá Chile, til Lecce sem hluti af kaupverðinu. Sport 13.10.2005 15:30
Treyja Maldini hengd upp Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, hefur lýst því yfir að treyja númer 3 sem Paolo Maldini hefur leikið í hjá félaginu síðustu 20 ár verði ekki notuð aftur þegar hann leggur skóna á hilluna. Sport 13.10.2005 15:29
Parma sigraði Udinese Það voru tveir leikir á dagskrá í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í gær. Chievo sigraði Liveorno, 1-0, og Parma sigraði Udinese, 1-0. Í kvöld verður leikur Palermó og Inter sýndur beint á Sýn. Sport 13.10.2005 15:29
Juventus í 8 stiga forystu Juventus jók í dag forystu sína á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í 8 stig þegar liðið vann 1-2 útisigur á Atalanta. Á sama tíma töpuðu helstu keppinautar þeirra, AC Milan öðrum leik sínum í röð í deildinni, nú 0-1 fyrir Bologna, og það á heimavelli sínum San Siro. Ruben Olivera og Alessandro Del Piero skoruðu fyrir Juventus í dag. Sport 13.10.2005 15:29
Candela leitar nýs félags Franski varnarmaðurinn Vincent Candela hjá Roma virðist vera á leið frá félaginu ef marka má orð umboðsmans hans, Alexander Kristic. Hinn 31 árs gamli Candela hefur verið hjá Roma síðan hann kom frá franska liðinu Guingamp árið 1997, en hefur lítið fengið að spila eftir að Luigi Del Neri tók við liðinu af Rudi Völler fyrr á tímabilinu. Sport 13.10.2005 15:27
Juventus í 5 stiga forskot Juventus náði að auka forystu sína í 5 stig á toppi ítölsku 1. deildarinnar í knattspyrnu í dag eftir 2-0 sigur á Brescia því á sama tíma tapaði AC Milan óvænt á útivelli fyrir Livorno, 1-0. Udinese sem er í 3. sæti og 8 stigum á eftir Milan tapaði einnig óvænt á heimavelli fyrir Reggina, 0-2. Sport 13.10.2005 15:26
Maldini fór næstum til Chelsea Fyrirliði ítalska knattspyrnustórveldisins AC Milan, Paolo Maldini, hefur opinberað að hann hafi verið nálægt því að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Chelsea þegar Gianluca Vialli stýrði liðinu fyrir 5 árum. Maldini sagði í dag að þetta sé í eina skiptið á ferli sínum sem hann hafi svo mikið sem íhugað að yfirgefa Milan. Sport 13.10.2005 15:24
Enn eitt heimaleikjabannið á Roma Ítalska knattspyrnuliðið Roma hefur fengið á sig enn eitt heimaleikjabannið vegna slæmrar hegðunar stuðningsmanna liðsins, það þriðja á innan við ári. Liðið var í dag úrskurðað til að leika heimaleik sinn gegn Fiorentina í 8 liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar fyrir luktum dyrum. Stuðningsmenn liðsins létu öllum illum látum í leik gegn Siena í síðustu viku. Sport 13.10.2005 15:23
13. jafntefli Inter á leiktíðinni Tveir leikir voru í ítalska boltanum í gær. Brescia og Fiorentina gerðu 1-1 jafntefli. Reggina mætti Inter Milan á heimavelli og var niðurstaðan markalaust jafntefli. Þetta var þrettánda jafntefli Inter í nítján leikjum en liðið hefur enn ekki tapað leik. Sport 13.10.2005 15:23
Mutu semur við Juventus Rúmsneki landsliðsmaðurinn Adrian Mutu, sem rekinn var frá Chelsea í haust vegna kókaínsneyslu, skrifaði í gær undir fimm ára samning við Juventus á Ítalíu. Mutu, sem dæmdur var í sjö mánaða keppnisbann, verður löglegur með Juventus 18. maí. Sport 13.10.2005 15:21
Bilbao og Betis áfram í bikarnum Atletic Bilbao sigraði Lanzarote 3-1 í 16 liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær. Elche vann Numancia 1-0, Real Betis lagði Mirandes 3-1, Osasuna bar sigurorð af Getafe 2-0 og Atletico Madrid vann Lorca 3-1. Sport 13.10.2005 15:21
Inter og AC unnu á Ítalíu 4 leikir fóru fram í ítölsku bikarkeppninni í knattspyrnu í kvöld. Parma steinlá á heimavelli fyrir Fiorentina, 0-3, Inter Milan átti enn eina endurkomuna á lokamínútunum þegar liðið sigraði Bologna 1-3 á útivelli. Inter lenti undir í fyrri hálfleik en Obafemi Martins skoraði þrennu í síðari hálfleik. AC Milan lagði Palermo 2 - 0. Sport 13.10.2005 15:21
Eiður í byrjunarliðinu gegn Man U Eiður Smári er í byrjunarliði Chelsea sem tekur á móti Man Utd í undanúrslitum ensku deildarbikarkeppninnar í knattspyrnu. Þá eru 4 leikir á dagskrá ítölsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld og er tveimur þeirra lokið. Sport 13.10.2005 15:21
Ítalir vilja EM 2012 Ítalir ætla að sækja um að halda Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu 2012. Ákvörðun um hvar keppnin verður haldin það ár verður tekin í desember á næsta ári. Grikkir hafa þegar lýst því yfir að þeir ætli að sækjast eftir því að halda keppnina. Sport 13.10.2005 15:21
Skoruðu þrjú mörk í uppbótartíma Forysta Juventus er aftur kominn í fjögur stig í ítölsku deildinni eftir að Juve bar sigurorð af Livorno 4-2 en AC Milan gerði markalaust jafntefli á útivelli gegn Palermo. Inter tryggði sér sigur gegn Sampdoria með því að skora þrjú mörk í uppbótartíma. Sport 13.10.2005 15:20
Hátterni Di Canios rannsakað Ítalska lögreglan rannsakar hátterni Paolos Di Canios, leikmanns Lazio, eftir að hann skoraði gegn Roma í grannaslag síðastliðinn fimmtudag. Di Canio er gefið að sök að hafa fagnað markinu með fasistakveðju, með því að lyfta hægri handlegg. Lazio var á sínum tíma eftirlætislið Benitos Mussolinis, einræðisherra Ítalíu. Sport 13.10.2005 15:19
Milan vill kaupa Crespo AC Milan hafa hafið samningaviðræður við Chelsea um að tryggja sér krafta argentínska sóknarmannsins Hernan Crespo áfram, en Crespo er sem stendur á lánssamningi hjá ítalska liðinu. Talið er að Milan muni bjóða Chelsea georgíska bakvörðinn Khaka Kaladze og hinn íslenskættaða Dana, Jon Dahl Tomasson sem einhvern hluta af kaupverðinu. Sport 13.10.2005 15:19
Crespo með þrennu í sigri Milan Argentínumaðurinn Hernan Crespo skorað þrennu er AC Milan vann stórsigur á Lecce 5-2, en í dag byrjaði ítalska deildin aftur eftir vetrarfrí. Sport 13.10.2005 15:18
Lazio sigraði Roma Lazio sigraði Roma í síðasta leik dagsins í ítalska boltanum í miklum hitaleik á Stadio Olimpico. Paolo Di Canio kom Lazio yfir með laglegu marki á 29. mínútu, en Antonio Cassano jafnaði tuttugu mínútum fyrir leikslok. Rodriguez Aparecido Cesar kom Lazio aftur yfir á 74. mínútu og Tommaso Rocchi innsiglaði sigurinn fimm mínútum fyrir leikslok. Sport 13.10.2005 15:18
Berlusconi hættur hjá AC Milan Silvio Berlusconi sagði í dag af sér sem forseti ítalska stórliðsins AC Milan, en lög á Ítalíu banna mönnum sem gegna ráðherraembætti að reka eigið fyrirtæki á meðan þeir eru í starfi. Sport 13.10.2005 15:15