Ítalski boltinn
124 125 126 127 128 129 130 131 132 … 198 ›
Stekelenburg samdi við Roma Hollenski markvörðurinn Marten Stekelenburg hefur gengið til liðs við ítalska félagið Roma frá Ajax í heimalandinu. Kaupverðið er sagt vera um 6,3 milljónir evra. Fótbolti 2.8.2011 11:35
Daily Mirror: Inter samþykkti tilboð United í Sneijder Breska götublaðið Daily Mirror staðhæfir í dag að ítalska félagið Inter hafi samþykkt tilboð Manchester United í Hollendinginn Wesley Sneijder. Enski boltinn 2.8.2011 10:32
Vucinic til Juventus Juventus hefur gengið frá kaupum á Mirko Vucinic frá Roma á 15 milljónir evra. Þessi 27 ára gamli framherji frá Svartfjallalandi skrifaði undir 4 ára samning við Juventus. Fótbolti 1.8.2011 19:26
Liverpool og Fiorentina komast að samkomulagi um Aquilani Umboðsmaður ítalska knattspyrnumannsins Alberto Aquilani leggur áherslu á að ekki sé frágengið að Aquilani gangi til liðs við Fiorentina. Að hans sögn hafa félögin komist að samkomulagi en Aquilani eigi þó enn eftir að semja við ítalska félagið. Enski boltinn 26.7.2011 11:55
Boateng bræður mætast í beinni í München í dag Heimamenn í Bayern München taka á móti ítölsku meisturunum AC Milan á Allianz-vellinum á Audi Cup síðdegis í dag. Í hinum leik keppninnar mætast Evrópumeistarar Barcelona og Suður-Ameríkumeistarar árið 2010 Internacional. Fótbolti 26.7.2011 11:29
Vidal kominn til Juventus Juventus hefur fest kaup á Arturo Vidal og það gleður þjálfara liðsins, Antonio Conte, afar mikið. Leikmaðurinn kemur frá Bayer Leverkusen á 12,5 milljónir evra. Fótbolti 23.7.2011 12:31
Buffon vill þjálfa landslið Bandaríkjanna eða Kína Hinn 33 ára markvörður Juventus, Gianluigi Buffon, hefur hug á því að fara út í þjálfun eftir að ferlinum lýkur og hann segist hafa áhuga á að þjálfa landslið Bandaríkjanna eða Kína. Fótbolti 23.7.2011 12:36
Bojan seldur til Roma en Barcelona fær hann aftur 2013 Spænski framherjinn Bojan Krkic er á leið til Roma og leikur í Serie A næstu tvö árin. Kaupsamningur Barcelona og Roma er í einkennilegri kantinum. Í honum er ákvæði þess efnis að Barcelona kaupi Bojan aftur til félagsins að tveimur árum liðnum. Fótbolti 22.7.2011 13:16
Lucio verður áfram hjá Inter Brasilíski varnarmaðurinn Lucio mun skrifa undir nýjan samning við ítalska liðið Inter á næstu dögum. Nýi samningurinn mun gilda til ársins 2014. Fótbolti 22.7.2011 10:14
Heinze á leiðinni til Roma Argentínski bakvörðurinn Gabriel Heinze er á leið til ítalska félagsins Roma. Hann mun koma til félagsins á frjálsri sölu frá Marseille. Þessi 33 ára bakvörður mun væntanlega skrifa undir eins árs samning við Roma. Fótbolti 21.7.2011 13:40
Melo á förum frá Juventus Brasilíski landsliðsmaðurinn Felipe Melo er á förum frá Juventus. Hann er ekki inn í áætlunum nýja þjálfarans, Antonio Conte, og fær því að róa á önnur mið. Fótbolti 20.7.2011 10:13
Inter gengur frá kaupum á brasilískum bakverði Brasilíski bakvörðurinn, Jonathan, hefur gengið til lið við ítalska félagið Inter Milan frá Santos. Fótbolti 16.7.2011 10:30
Inter og United komast að samkomulagi - Ferguson blæs á sögusagnir Enski vefmiðillinn Goal.com greinir frá því að Manchester United og Inter hafi komist að samkomulagi um kaupverðið á Wesley Sneijder. Kaupverðið er talið rúmar 35 milljónir punda eða sem nemur 6.6 milljörðum íslenskra króna. Sir Alex Ferguson neitar sögusögnum af Sneijder í bandarískum fjölmiðlum. Enski boltinn 14.7.2011 13:31
Ólafur Kristjáns: Elfar var settur í mjög erfiða stöðu Íslandsmeistarar Breiðabliks mæta norska liðinu Rosenborg í meistaradeildinni í kvöld. Leikið er á Lerkendal-vellinum í Þrándheimi. Það hefur varpað nokkrum skugga á undirbúning leiksins að varnarmaðurinn sterki, Elfar Freyr Helgason, verður ekki með í leiknum eins og samið var um. Fótbolti 12.7.2011 19:55
John Arne Riise í læknisskoðun hjá Fulham John Arne Riise fyrrverandi leikmaður Liverpool sem leikið hefur með Roma á Ítalíu undanfarin ár er í læknisskoðun hjá Fulham þessa stundina. Samkvæmt frétt á vef norska ríkisútvarpsins verður Riise kynntur sem nýr leikmaður félagsins síðar í dag. Enski boltinn 11.7.2011 12:22
Roma semur við eina skærustu stjörnu Argentínu Ítalska félagið AS Roma hefur gengið frá kaupum á argentínska táningnum Erik Lamela frá River Plate í Argentínu. Talið er að kaupverðið sé um 12 milljónir evra eða sem nemur tæpum tveimur milljörðum íslenskra króna. Fótbolti 9.7.2011 22:25
West Ham vill að Diamanti verði meinað að spila fótbolta Enska knattspyrnufélagið West Ham vilja að FIFA og ítalska knattspyrnusambandið komi í veg fyrir að Alessandro Diamanti fái að spila fótbolta. Diamanti gekk til liðs við Brescia frá West Ham á síðasta ári. Að sögn West Ham hefur Brescia ekki enn lokið við að greiða fyrir kaupin á leikmanninum. Enski boltinn 8.7.2011 22:37
Motta verður áfram hjá Inter Þrátt fyrir miklar vangaveltur síðustu vikur verður ekkert af því að Thiago Motta fari frá ítalska liðinu Inter. Leikmaðurinn vill ekki fara frá liðinu. Fótbolti 8.7.2011 12:16
Ítölsk lið fá aftur að kaupa tvo frá löndum utan Evrópusambandsins Félög í Serie A mega kaupa tvo leikmenn á ári frá löndum utan Evrópusambandsins í stað eins. Takmörkunin við einn leikmann var sett eftir slaka frammistöðu Ítala á HM 2010 í Suður-Afríku. Fótbolti 6.7.2011 16:10
City ætlar ekki að flýta sér að selja Tevez Forráðamenn Manchester City segjast ekki þurfa að flýta sér að selja Carlos Tevez. Argentínumaðurinn sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann óskaði eftir því að fara frá félaginu. Enski boltinn 5.7.2011 12:40
Hasan Salihamidzic til Wolfsburg Bosníumaðurinn Hasan Salihamidzic er genginn til liðs við þýska félagið Wolfsburg. Salihamidzic kemur til liðsins á frjálsri sölu en samningur hans við Juventus var ekki endurnýjaður. Fótbolti 5.7.2011 10:00
Hamsik vill fara til AC Milan Slóvakíski miðjumaðurinn Marek Hamsik gefur AC Milan hraustlega undir fótinn í dag. Hann segir að það væri jákvætt skref á sínum ferli að fara til félagsins en Hamsik leikur með Napoli. Fótbolti 2.7.2011 14:04
Inter heldur meistaratitlinum frá 2006 Ítalska knattspyrnuliðið Inter Milan mun halda meistaratitlinum frá því tímabilið 2005-2006. Ítalska knattspyrnusambandið hafnaði beiðni Juventus um að félagið fengi titilinn til sín á nýjan leik. Titillinn var tekinn af Juventus eftir Calciopoli hneykslismálið sem skók ítalska knattspyrnu árið 2006. Fótbolti 1.7.2011 16:22
Juventus kaupir svissneskan varnarmann Juventus er búið að kaupa svissneska varnarmanninn Stephan Lichtsteiner frá Lazio. Tilkynnt var um kaupin í dag en Juve greiðir 10 milljónir evra fyrir leikmanninn sem skrifaði undir fjögurra ára samning. Fótbolti 1.7.2011 14:13
Motta opinn fyrir því að fara til Roma Þó svo miðjumaðurinn Thiago Motta sé samningsbundinn Inter til ársins 2013 er óvissa með framtíð hans hjá félaginu. Fótbolti 1.7.2011 14:14
Berlusconi dreymir um að fá Iniesta Silvio Berlusconi, eigandi AC Milan, á sér þann draum heitastan að fá miðjumann Barcelona, Andres Iniesta, til félagsins. Fótbolti 1.7.2011 14:01
Maicon mun ekki yfirgefa Inter Umboðsmaður brasilíska bakvarðarins Maicon hjá Inter segir það ekki vera í spilunum að skjólstæðingur sinn fari til Spánar eins og fjölmiðlar hafa verið að gefa í skyn síðustu daga. Fótbolti 29.6.2011 09:54
Viviano til Inter eftir klúður hjá Bologna Ítalski landsliðsmarkvörðurinn Emiliano Viviano er orðinn leikmaður Inter. Þar til í gær var hann í sameiginlegri eigu Bologna og Inter. Ótrúleg mistök framkvæmdastjóra Bologna urðu til þess að félagið missti leikmanninn úr höndum sér. Fótbolti 25.6.2011 12:31
Zlatan snýr á heimaslóðir með AC Milan og hlakkar til Ítalíumeistarar AC Milan munu leika æfingaleik gegn Malmö FF þann 14. ágúst á Swedbank-vellinum í Malmö. Zlatan segist í skýjunum með að koma með Milan-liðinu í gamla bæinn sinn. Fótbolti 25.6.2011 11:31
Udinese vill fá meira en átta milljarða fyrir Sanchez Eigandi Udinese, Giampaolo Pozzo, segir í samtali við enska götublaðið The Sun að 44 milljónir punda, rúmlega átta milljarðar króna, sé síst of mikið fyrir sóknarmanninn Alexis Sanchez. Fótbolti 24.6.2011 11:28