Ástin á götunni

Fréttamynd

Í beinni: Víkingur R. - Valur | Nadía snýr aftur í Foss­voginn

Hér fer fram bein textalýsing frá leik Víkings R. og Vals í 12.umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Leikurinn er merkilegur fyrir margra hluta sakir. Bæði lið hafa verið á góðri siglingu upp á síðkastið, Valur getur tyllt sér eitt á topp deildarinnar með sigri og varpað pressunni yfir á Breiðablik og þá snýr fyrrverandi fyrirliði Víkinga, Nadía Atladóttir, aftur á Víkingsvöllinn og í fyrsta sinn sem leikmaður Vals.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Miklar til­­finninga­­sveiflur sem tóku við“

Elín Klara Þor­kels­dóttir var valin í úr­vals­lið HM í hand­bolta fyrst ís­lenskra kvenna á dögunum eftir frá­bæra frammi­stöðu með undir tuttugu ára lands­liði Ís­lands sem náði besta árangri ís­lensks kvenna­lands­liðs á stórmóti með því að tryggja sér sjöunda sæti mótsins. Elín segir kjarnann sem myndaði lið Ís­lands á mótinu ein­stakan. Per­sónu­leg frammi­staða Elínar, sem er leik­maður Hauka, á HM mun án efa varpa kast­ljósinu á hana. Elín er hins vegar ekki á leið út í at­vinnu­mennsku alveg strax.

Handbolti
Fréttamynd

„Þurfum bara að dekka í svona leik­at­riðum“

„Það er ekki hægt að setja tölur á tilfinningar og það er bara svekkjandi að tapa. Þetta var 0-0 leikur og við bara klikkum á dekkningu undir lokin og Valur refsar,“ sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Þróttar, eftir grátlegt 1-0 tap gegn Valskonum á Hlíðarenda í 11. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Við Olla erum enn vin­konur, er það ekki?“

„Ég er bara alltaf kölluð Olla, af öllum einhvern veginn,“ sagði Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, framherji Breiðabliks og Harvard-háskólans í Bandaríkjunum, en hún sleit nýverið krossband í hné og verður frá það sem eftir lifir leiktíðar í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Telma ekki efst þrátt fyrir að fá varla á sig mark

Breiðablik hefur aðeins fengið á sig fjögur mörk í fyrstu 10 umferðum Bestu deildar kvenna. Þrátt fyrir það er aðalmarkvörður liðsins, Telma Ívarsdóttir, ekki í efst meðal jafningja þegar skoðað er hvaða markverðir hafa komið í veg fyrir flest mörk. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Við erum fullir sjálfs­trausts“

Steinar Þorsteinsson, leikmaður ÍA, gerði heldur betur mikilvægt mark fyrir ÍA þegar hann skoraði þriðja mark liðsins í 3-2 sigri gegn Val á Akranesi í kvöld. Sigurmarkið skoraði Steinar á 90. mínútu leiksins.

Sport
Fréttamynd

Gylfi Þór snið­genginn

Á vef í­þrótta­miðilsins Give Me Sport á dögunum birtist at­hyglis­verður listi yfir tíu bestu fót­bolta­menn Ís­lands frá upp­hafi. En fjar­vera eins leik­manns á listanum vekur þó mikla at­hygli. Nafn Gylfa Þórs Sigurðs­sonar er hvergi að finna á umræddum lista.

Fótbolti
Fréttamynd

Vestri stendur við fyrri yfir­lýsingu

Knattspyrnudeild Vestra stendur við fyrri yfirlýsingu sína, það er að leikmaður liðsins hafi orðið fyrir barðinu á kynþáttaníði í leik Vestra og Fylkis þann 18. júní. KSÍ staðfesti í gær, mánudag, að sambandið myndi ekki aðhafast frekar í málinu.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Fækkar um tvo í her­búðum KR

Leikmannahópur KR hefur minnkað talsvert en þeir Lúkas Magni Magnason og Moutaz Neffati spila ekki meira með liðinu á þessari leiktíð. KR greinir frá á samfélagsmiðlum sínum.

Íslenski boltinn