Ástin á götunni
328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Tvöföld skipting hjá FH og ÍA FHingar hafa gert tvær breytingar á liði sínu. Inná eru komnir Jónas Grani Garðarsson og Jón Þorgrímur Stefánsson og greinlegt að Ólafur Jóhannesson þjálfari ætlar sér að blása til sóknar til að freista þess að jafna leikinn, en það hafa verið Skagamenn sem hafa átt hvert dauðafærið á fætur öðru á síðustu mínútum. Sport 13.10.2005 19:31
Kominn hálfleikur í framlenginu FH-ingar hafa ágæt tök á leiknum gegn Skagamönnum eftir að Jón Þorgrímur Stefánsson kom þeim í 2-1 eftir aðeins 5 mínútna leik í framlenginunni. Það stefnir því í það að FH-ingar hafi sloppið með skrekkinn á heimavelli sínum í dag og séu komnir inn í undanúrslit VISA-bikars karla í knattspyrnu en gestirnir ofan af Skaga hafa 15 mínútur til að breyta því. Sport 13.10.2005 19:31
Jon Dahl Tomasson til Stuttgart Danski landsliðsmaðurinn, Jon Dahl Tomasson er genginn til liðs við þýska liðið Stuttgart frá A.C. Milan. Það hafa orðið miklar breytingar hjá Stuttgart í sumar því Matthias Sammer þjálfari liðsins á síðustu leiktíð er farinn og við starfi hans hefur tekið Giovanni Trappatoni. Sport 13.10.2005 19:31
Atli Viðar kemur FH í 5-1 Atli Viðar Björnsson er búinn að skora fjórða mark FH í framlengingunni og koma FH í 5-1 á 114. mínútu. Markið skoraði Atli Viðar eftir skyndisókn og sendingu Jónasar Grana Garðarssonar en þrír varamenn FH-liðsins eru búnir að skora í leiknum. Það er grátlegt að sjá Skagaliðið hrynja saman eftir frábæra frammistöðu í 90 mínútur. Sport 13.10.2005 19:31
Andri Júlíusson kemur ÍA yfir Andri Júlíusson er búinn að skora fyrir Skagamann eftir aðeins þrjár mínútur með skalla af markteig eftir skallasendingu Igors Pesic. Þetta var fyrsta marktilraun leiksins. Sport 13.10.2005 19:31
Skagamenn með stangarskot Skagamaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson átti rétt í þessu skot sem hafnaði í stönginni á marki FH-inga, en hann hefur verið mjög sprækur á vinstri vængnum í liði ÍA í dag. Staðan eftir rúmlega hálftíma leik er því enn 1-0, Skagamönnum í vil. Sport 13.10.2005 19:31
Landsliðið upp um sjö sæti Íslenska landsliðið í knattspyrnu er hástökkvari mánaðarins á nýjum styrkleikalista alþjóða knattspyrnusambandsins. Ísland er komið í 90.sæti eftir að hafa verið í 97. sæti en það var versta staða liðsins frá því styrkleikalisti alþjóða knattspyrnusambandsins var tekinn upp, í ágúst 1993. Sport 13.10.2005 19:31
Skagamenn í stórsókn Skagamenn hafa gert harða hríð að marki FH í upphafi síðari hálfleiks og áttu nú fyrir stundu þrjú bylmingsskot að marki heimamanna, en náðu ekki að koma knettinum yfir marklínuna. Staðan er því óbreytt í Kaplakrika, gestirnir hafa yfir 1-0. Sport 13.10.2005 19:31
FH hefur ekki slegið út ÍA í 25 ár FH hefur ekki náð að slá út ÍA í bikarkeppninni í 25 ár eða síðan að liðið vann 3-1 sigur í leik liðanna í 16 liða úrslitum keppninnar 1980. Skagamenn hafa unnið þrjár síðsutu bikarviðureignir liðanna og í tvö síðustu skiptin hafa þeir unnið bikarmeistaratitilinn eftir að hafa slegið út FH. Liðin mætast í Kaplakrika klukkan 16.00 í dag. Sport 13.10.2005 19:31
Framlengt í Kaplakrika Leikur FH og ÍA í Kaplakrika fer í framlengingu eftir að staðan að loknum venjulegum leiktíma var jöfn 1-1. Leikurinn hefur verið hin besta skemmtun og nú er ljóst að úrslit leiksins ráðast ekki fyrr en í framlengingu. Sport 13.10.2005 19:31
Park mun setja pressu á Giggs Að sögn Alex Fergusonar, stjóra Man.Utd, mun Ryan Giggs fá harða samkeppni frá nýjasta liðsmanni félagsins á komandi leiktíð, S-Kóreumanninum Park Ji-Sung. Sport 13.10.2005 19:31
Viera verður okkur mikilvægur Fabio Capello, þjálfari Juventus, segir að Patrick Vieira verði algjör lykilmaður í liði sínu á næstu leiktíð og hlakkar til að sjá hann spila með liðinu. Sport 13.10.2005 19:31
Góður sigur Blika-úrslit kvöldsins Topplið Landsbankadeildar kvenna, Breiðablik, gerði góða ferð suður með sjó og sigraði Keflavík 1-0 og færast því enn nær Íslandsmeistaratitlinum. Valur sigraði lið Stjörnunnar 3 -0 í Garðabæ og KR lagði Skagastúlkur af velli 3-0 í Frostaskjóli. Einnig voru tveir leikir í 1.deild karla, HK og KS unnu mikilvæga sigra í botnabaráttunni. Sport 13.10.2005 19:31
Jensen til Fulham <font face="Helv"> Danski landsliðsmaðurinn Niclas Jensen er á leið til enska úrvalsdeildarfélagsins Fulham, en með því leikur Heiðar Helguson. Jensen hefur ekki verið fastamaður hjá Dortmund undanfarið ár, en vonast eftir að fá fleiri tækifæri hjá Fulham. </font><font face="Tms Rmn"> </font> Sport 13.10.2005 19:31
Tilboði Arsenal hafnað Tilboði bikarmeistara Arsenal í basilíska sóknarmanninn, Julio Baptista sem leikur með Sevilla á Spáni hefur verið hafnað. Arsenal bauð fyrr í dag 13,75 milljómnir punda í leikmanninn en forráðámenn spænska liðsins höfnuðu tilboðinu. Sport 13.10.2005 19:31
Man.Utd má ekki tapa einum leik Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Man.Utd, segir að lið sitt megi ekki tapa einum einsta leik á næsta tímabili, ætli liðið sér að eiga möguleika á enska meistaratitlinum. Sport 13.10.2005 19:31
Mourinho hrósar Eiði Smára José Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hrósaði Eiði Smára Guðjohnsen í hástert eftir fyrsta æfingaleik félagsins á tímabilinu gegn Wycombe Wanderers, en honum lauk með 5-1 sigri Chelsea. Sport 13.10.2005 19:31
Sao Paulo S-Ameríkumeistari Sao Paulo, frá Brasilíu, sigraði í gær í Suður Ameríku keppni félagsliða eða Copa Libertadores keppninni í knattspyrnu. Þeir sigruðu Atletico Parananense, sem einnig eru frá Brasilíu, 4-0 í seinni leik liðanna en Sao Paulo vann einnig fyrri leik liðanna. Markvörður Sao Paulo, Rogerio Ceni, skoraði enn eina ferðina.... Sport 13.10.2005 19:31
Ungur markvörður Stoke til Man Utd Ben Foster, 22 ára gamall varamarkvörður Stoke City, er genginn til lið við Manchester United. Kaupverðið á markverðinum stóra og stæðilega er talið nema rúmri einni milljón punda. Forster er annar markvörðurinn til að ganga til við United í sumar, því í júní mánuði fékk liðið holleska markvörðinn Edwin van der Saar. Sport 13.10.2005 19:31
Frétti af áhuga Newcastle hér Almir Cosic er úrvals knattspyrnumaður að sögn Vilbergs Jónassonar, þjálfara Leiknis á Fáskrúðsfirði sem leikur í þriðju deildinni á Íslandsmótinu. Það vakti furðu margra þegar greint var frá því í fjölmiðlum fyrr í sumar að Leiknir væri með mann innanborðs sem stuttu áður hefði verið metinn á um 300 milljónir króna. Sport 13.10.2005 19:31
Tilboði Chelsea í S.W.P. hafnað Tilboði Chelsea, ensku meistaranna í knattspyrnu, í sóknar-miðjumann Manchester City, Shaun Wright-Phillips sem hljóðaði upp á 20 milljónir punda hefur verið hafnað. Chelsea ætla þó ekki að gefast upp og búist er við því að þeir reyni aftur að klófesta kappann nú helgina. Sport 13.10.2005 19:31
Souness aðvarar Arsenal Graeme Souness, knattspyrnustjóri Newcastle, segir að forráðamenn Arsenal muni ekki hafa efni á að kaupa Jermaine Jenas af félaginu til að leysa af Patrick Vieira, sem í gær gekk í raðir Juventus á Ítalíu. Sport 13.10.2005 19:31
Gerrard hvíldur í vetur Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, verður hvíldur reglulega á komandi keppnistímabili til þess að hann verði ekki ofkeyrður fyrir heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi á næsta ári. Sport 13.10.2005 19:30
Sænska úrvalsdeildin Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði eina mark Halmstad þegar liðið tapaði fyrir Gais 2-1 í sænsku bikarkeppninni í gær. Ásthildur Helgadóttir lék í 75.mínútu þegar lið hennar malmö bar sigurorð af AIK 2-0 í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Malmö og Umea eru efst í deildinni með 25 stig. Sport 13.10.2005 19:30
Young Boys Skagamaðurinn fyrrverandi Grétar Rafn Steinsson lék allann leikinn með Youngs Boys þegar liðið vann Neuchatel Xamax 3-1 í fyrsta leik svissnesku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gær. Sport 13.10.2005 19:30
Toppliðin unnu í 1. deild Öll toppliðin þrjú unnu leiki sína í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld en þá fóru fram þrír leikir í 11. umferð. Topplið Breiðabliks vann nauman sigur á Haukum að Ásvöllum, 0-1 og það var dramatík á Fjölnisvelli þar sem annað efsta lið deildarinnar, Víkingur tryggði sér 1-2 sigur á Fjölni á lokamínútu leiksins. KA vann 0-1 útisigur á Völsungi. Sport 13.10.2005 19:31
Eyjamenn standa í ströngu gegn B36 Staðan er jöfn, 1-1, í leik ÍBV og B36 frá Færeyjum en nú stendur yfir fyrri leikur liðanna í 1. umferð Evrópukeppni félagsliða á Hásteinsvelli í Ejum. Leikurinn hófst kl. 18.00. Sport 13.10.2005 19:31
Keflavík yfir í hálfleik Keflvíkingar eru 0-1 yfir í hálfleik gegn Etzella frá Luxembourg í hálfleik en nú stendur yfir ytra fyrri leikur liðanna í 1. umferð Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Leikurinn hófst kl. 16.30. Hörður Sveinsson skoraði mark Keflavík strax á 10. mínútu leiksins. Eyjamenn leika gegn Færeyska liðinu B-36 klukkan 18.00. Sport 13.10.2005 19:31
Mourinho ætlar sér að fá Essien José Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er ekki búinn að gefast upp á því að reyna að fá Mikael Essien, landsliðsmann Ghana og miðjumann Lyon í Frakklandi, til Chelsea þrátt fyrir að síðasta boði í leikmanninn hafi verið neitað. Sport 13.10.2005 19:30
Pressa á Ferdinand Sir Alex Ferguson, framkvæmdarstjóri Manchester United, hefur sett meiri pressu á varnarmanninn Rio Ferdinand að skrifa undir nýjan samning við félagið. Pini Zahavi, umboðsmaður leikmannsins, hefur sagt að viðræður um nýjan samning gangi hægt. Sport 13.10.2005 19:30