Ástin á götunni
312 313 314 315 316 317 318 319 320 … 334 ›
Arsenal er búið að vera Varnarmaðurinn William Gallas hjá Chelsea segir að tíð Arsenal sem topplið á Englandi sé liðin og að liðið sé búið að vera í baráttunni um meistaratitilinn. Sport 13.10.2005 19:44
David James með tvö markmið David James, markvörður Manchester City og enska landsliðsins, segist hafa sett sér tvö skýr markmið fyrir keppnistímabilið í vetur, að komast í Evrópukeppnina með Manchester City og að vinna sér fast sæti í enska landsliðinu á ný. Sport 13.10.2005 19:44
Fyrsti leikur Brynjars Björns Brynjar Björn Gunnarsson, landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu lék sinn fyrsta leik fyrir Reading í kvöld þegar hann kom inná í 3-1 sigri Reading á Swansea í framlengdum leik í ensku deildabikarkeppninni. Brynjar kom inná á 71. mínúnu og krækti sér í gult spjald á 73 mínútu. Sport 13.10.2005 19:44
Jóhannes Karl á skotskónum Jóhannes Karl Guðjónsson, leikmaður Leicester skoraði þriðja mark Leicester úr vítaspyrnu sem sigraði Bury 3-0 á útivelli í kvöld í ensku deildabikarkeppninni. Sjá úrslit leikja í deildabikarkeppninni.. Sport 13.10.2005 19:44
Man. City enn taplausir Manchester City sigraði Sunderland á útivelli í kvöld 2-1 í ensku úrvalsdeildinni og eru ósigraðir í deildinni eftir þrjá leiki með 7 stig. Middlesbrough gerði góða ferð til Birmingham og sigraði samnefnt lið 3-0. Aston Villa, sem einnig er úr Birminghamborg gerði jafntefli við Portsmouth á útivelli 1-1. Sjá markaskorara.. Sport 13.10.2005 19:44
Fowler vill spila gegn United Framherjinn Robbie Fowler hefur einsett sér að snúa aftur með liði Manchester City í grannaslagnum við Manchester United í næsta mánuði, en hann hefur verið í erfiðum meiðslum á síðustu vikum Sport 13.10.2005 19:44
Tiago til Lyon Frakklandsmeistarar Lyon í knattspyrnu hefur fest kaup á portúgalska landsliðsmanninum Tiago hjá Chelsea fyrir 6.5 miljónir punda og boðið honum 5 ára samning Sport 13.10.2005 19:44
Liverpool undir í hálfleik CSKA frá Soffíu er að vinna Liverpool 1-0 í hálfleik á Anfield í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Stuðningsmenn Liverpool geta þó andað léttar því liðið vann fyrri leik liðanna 3-1 í Soffíu. Sport 13.10.2005 19:44
Luque fer ekki til Newcastle Lið Deportivo la Corunia á Spáni hefur neitað lokatilboði Newcastle í sóknarmanninn Albert Luque og því er ljóst að ekkert verður af för hans til Englands eins og til stóð. Sport 13.10.2005 19:44
Vonar að Gerrard fái verðlaun Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segist vona að Steven Gerrard verði valinn verðmætasti leikmaðurinn af UEFA á næstu dögum, en hefur meiri áhyggjur af því að fyrirliðinn nái heilsu fyrir leikinn við CSKA Moskvu um titilinn meistarar meistaranna á föstudag. Sport 13.10.2005 19:44
Tilboð Aston Villa samþykkt Tilboði Aston Villa uppá 6.5 milljónir punda í tékkneska framherja Liverpool, Milan Baros hefur verið samþykkt og samkvæmt nýjustu fréttum hefur leikmaðurinn samið um kaup og kjör og á eingöngu eftir að standast í læknisskoðun. Sport 13.10.2005 19:44
Jarosik til Birmingham Tékkneski landsliðsmaðurinn Jiri Jarosik er genginn til liðs við Birmingham að láni frá Englandsmeisturum Chelsea. Jarosik, 27 ára, lék 20 leiki fyrir Chelsea á síðasta leiktímabili. Sport 13.10.2005 19:44
Vonbrigði í Ungverjalandi Eftir tvo sigra á Chile og Kongó í upphafi heimsmeistaramóts U-21 landsliða í Ungverjalandi hafa allir þrír leikir Íslands gegn stærri þjóðum tapast, nú síðast gegn Egyptum í gær, 30-25. Sport 13.10.2005 19:44
Robben er ekki í hundakofanum Jose Mourinho hefur gefið það út að þó Arjen Robben verði ekki í byrjunarliði Chelsea gegn West Brom á miðvikudaginn, sé það ekki vegna þess að hann sé í hundakofanum vegna yfirlýsinga í fjölmiðlum um helgina. Sport 13.10.2005 19:44
Marseille með augastað á Cisse Djibril Cisse, franski framherjinn hjá Liverpool, er undir smásjá Marseille í heimalandi sínu, en talið er að forráðamenn Liverpool séu reiðbúnir að selja leikmanninn fari svo að Michael Owen snúi aftur á heimaslóðir. Sport 13.10.2005 19:44
Ballack þarf að ákveða sig Uli Hönnes, knattspyrnustjóri Bayern Munchen, hefur gefið miðjumanni sínum Michael Ballack rúman einn mánuð til að ákveða hvort framtíð sín liggi hjá félaginu eða annarsstaðar. Sport 13.10.2005 19:44
Wenger æfur út af Arsene Wenger skammaði sína menn eftir tapið gegn Chelsea í gær og í fjölmiðlum sagðist hann hafa vitað að úrslit leiksins réðust á mistökum, eins og kom á daginn þegar Drogba skoraði með sköflungnum fram hjá Jens Lehmann. Sport 13.10.2005 19:44
Óttast um meiðsli Ljungberg Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segist hafa nokkrar áhyggjur af hnémeiðslum Svíans Freddie Ljungberg, sem hann hlaut í leiknum gegn Chelsea í gær. Sport 13.10.2005 19:44
Rúrik aftur til Charlton Rúrík Gíslason, leikmaður fyrstu deildarliðs HK fór í gær til reynslu hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Charlton Athletic í annað skipti. Hann mun æfa með aðalliði félagsins en fyrir hjá Charlton er Hermann Hreiðarsson, landsliðsmaður. Rúrik, 17 ára hefur leikið 11 deildaleiki í framlínu HK en á þó enn eftir að gera mark. Sport 13.10.2005 19:44
Beckham hrósað í hástert Hæstráðendur hjá spænska stórliðinu Real Madrid eru mjög ósáttir við leikmenn liðsins að David Beckham undanskildnum. " Leikmenn félagsins verða að læra að vera fulltrúar klúbbsins líkt og Beckham," sagði fjölmiðlafulltrúi félagsins. Sport 13.10.2005 19:44
Fylkissigur í Laugardalnum Fylkir sigraði Fram 2-1 í kvöld í Landsbankadeild karla. Öll mörkin í leiknum komu á lokamínútum leiksins. Með sigrinum eru Fylkismenn komnir í fimmta sætið en Fram er sem fyrr í sjöunda sæti. Sport 13.10.2005 19:44
Barcelona vann Konungsbikarinn Real Betis sigraði Barcelona með tveimur mörkum gegn einu í seinni leik liðanna um meistarabikarinn á Spáni. Barcelona vann fyrri leikinn 3-0 og því 4-2 samtals. Samuel Eto´o skoraði fyrsta markið á 15. mínútu en Dani skoraði síðan tvívegis á fimm mínútna kafla um miðjan hálfleikinn. Sport 13.10.2005 19:43
Byrjunarliðið gegn Hvít-Rússum Nú klukkan 14 hófst á Laugardalsvelli leikur Íslands og Hvíta Rússlands í undankeppni HM 2007 í knattspyrnu kvenna og hefur Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari, tilkynnt byrjunarlið Íslands en Ásthildur Helgadóttir er snúin til baka eftir erfið meiðsli og er hún fyrirliði liðsins í dag. Sport 13.10.2005 19:43
Carvalho skilinn eftir í stúkunni Portúgalski varnarmaðurinn Ricardo Carvalho var skilinn útundan og ekki hafður í 16 manna leikmannahópi Chelsea gegn Arsenal í dag. Jose Mourinho knattspyrnustjóri er ekki þekktur fyrir að taka hlutina neinum vettlingatökum og notaði tækifærið í dag og útskyrði fjarveru varnarmannsins í ræðu sinni fyrir leikinn í dag. Sport 13.10.2005 19:43
Eiður byrjar inni á gegn Arsenal Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Chelsea sem mætir Arsenal í dag kl. 15 og leikur hann á miðjunni ásamt Frank Lampard og Claude Makelele. Nýjasti leikmaður félagsins og sá dýrasti, Mickael Essien er á varamannabekknum en hann var í vikunni keyptur frá Lyon í Frakklandi fyrir 26 milljónir punda. Sport 13.10.2005 19:43
Auðveldur sigur á Hvít-Rússum Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann auðveldan 3-0 sigur á Hvít-Rússum á Laugardalsvelli í dag en þetta var fyrsti leikur liðsins í undankeppni HM2007. Dóra María Lárusdóttir skoraði tvívegis í dag og Margét Lára Viðarsdóttir eitt. Næsti leikur Íslands verður á sunnudaginn gegn Svíum ytra en þær eru taldar vera með sterkasta liðið í riðlinum. Sport 13.10.2005 19:43
Breiðablik og KS skildu jöfn Einn leikur var í gær í 1. deild karla í knattspyrnu. Breiðablik og KS gerðu 1-1 jafntefli. Hans Fróði Hansson skoraði mark Breiðabliks í fyrri hálfleik en Agnar Þór Sveinsson, fyrirliði KS, jafnaði metin í byrjun síðari hálfleiks. Breiðablik er með 39 stig í fyrsta sæti en KS er í tíunda og neðsta sæti með 12 stig. Sport 13.10.2005 19:43
Chelsea hafði sigur gegn Arsenal Chelsea vann Arsenal 1-0 í stórleik annarrar umferðar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og skoraði Didier Drogba sigurmarkið á 73. mínútu. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Chelsea í hlutverki miðjumanns en var skipt út af á 59. mínútu fyrir nýliðann Michael Essien sem þótti sýna mjög góðan leik. Sport 13.10.2005 19:43
Lyon efst í Frakklandi Olympique Lyon hefur forystu í frönsku 1. deildinni eftir 1-0 sigur á Nancy í gærkvöldi. Claudio Cacapa skoraði þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lyon er með 10 stig eftir fjórar umferðir en Lens, Bordeaux og Paris St. Germain eru með 9 stig. Parísarmenn hafa unnið alla þrjá leiki sína og mæta Troyes í kvöld og geta þá endurheimt fyrsta sætið. Sport 13.10.2005 19:43
Everton lagði Bolton Marcus Bent tryggði Everton 0-1 útisigur á Bolton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Sigurmarkið skoraði hann á 52. mínútu og dugði Everton til að næla í sín fyrstu stig í deildinni á tímabilinu en liðið er með 3 stig eftir tvo leiki. Kl. 15:00 hefst stórleikur Chelsea og Arsenal á Stamford Bridge í London. Sport 13.10.2005 19:43