Ástin á götunni

Fréttamynd

van der Meyde til Everton

Everton hafa gengið frá fjögurra ára samningi við Hollendinginn Andy van der Meyde fyrrum leikmann Inter Milan. Lengi vel leit út fyrir að leikmaður kæmi ekki til Everton vegna meiðsla en hann fór í læknisskoðun hjá Everton í dag og gáfu læknar leikmanninum grænt ljós. Kaupverðið er ekki gefið upp.

Sport
Fréttamynd

Edman til Rennes

Franska liðið Rennes heldur því fram á heimasíðu sinni í morgun að það hafi gert þriggja ára samning við vinstri bakvörðinn Erik Edman hjá Tottenham, en hann er sænskur landsliðsmaður.

Sport
Fréttamynd

Poom til Arsenal

Eistneski markvörðurinn, Mart Poom er genginn til liðs við bikarmeistara Arsenal frá Sunderland. Jens Lehmann aðalmarkvörður Arsenal verður í banni fyrstu tvo leikina í Meistaradeild Evrópu. Poom er 33 ára.

Sport
Fréttamynd

Sabrosa til Liverpool

Vængmaðurinn Simao Sabrosa er genginn til lið við Liverpool frá portúgölsku meisturunum í Benfica fyrir 10 milljónir punda. Portúgalinn sem eitt sinn spilaði með Barcelona er núna staddur í Liverpool borg í læknisskoðun.

Sport
Fréttamynd

Þrír á síðasta séns

Þrír leikmenn A landsliðs karla í knattspyrnu eru á gulu spjaldi í undankeppni HM og fara í eins leiks bann ef þeir fá eitt gult spjald til viðbótar. Leikmenn þurfa aðeins að hljóta tvö gul spjöld til að fara bann. Fyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen, Hermann Hreiðarsson og Gylfi Einarsson hafa allir fengið eitt gult spjald í keppninni hingað til.

Sport
Fréttamynd

Aðgangur bannaður

Mikil spenna ríkir fyrir leik Tyrkja og Dana í undankeppni HM en liðin mætast í Istanbúl á laugardag.  Nú hefur Morten Olsen landsliðsþjálfari Dana ákveðið að enginn fái að fylgjast með æfingum danska landsliðsins.  Danskir íþróttafréttamenn þurfa að sætta sig við þessa ákörðun Olsens.

Sport
Fréttamynd

Beckham farinn að æfa

David Beckham er byrjaður að æfa á fullu með enska landsliðinu eftir að hafa fengið grænt ljós frá læknum, en Steven Gerrard er enn í meðferð hjá læknum og vonast eftir að verða klár í slaginn fyrir slaginn gegn Wales á laugardaginn.

Sport
Fréttamynd

Tottenham kaupir Jermaine Jenas

Tottenham Hotspur gekk í morgun frá kaupum enska landsliðsmanninum Jermaine Jenas frá Newcastle fyrir um 8 milljónir punda og þá hefur Suður-Kóreumaðurinn Lee Young-Pyo einnig bæst í hóp liðsins frá PSV Eindhoven, en hann á enn eftir að fá atvinnuleyfi.

Sport
Fréttamynd

Bouma til Villa

Enska úrvaldsdeildaliðið Aston Villa hefur fegnið varnarmanninn Wilfried Bouma frá PSV Eindhoven í Hollandi. Villa borgaði 3.5 milljónir punda fyrir Hollendinginn sem er 27 ára gamall landsliðsmaður. Bouma var hjartað í vörn PSV sem fór í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu á síðustu leiktíð.

Sport
Fréttamynd

Owen kýs Newcastle

Michael Owen samþykkti í morgun að ganga til liðs við Newcastle United og fer í læknisskoðun hjá liðinu í dag. Hann mun því væntanlega skrifa undir samning við norðanliðið fljótlega, en hann verður um leið dýrasti leikmaður í sögu félagsins.

Sport
Fréttamynd

Jafnt hjá Landskrona og Halmstad

Landskrona og Halmstad markalaust jafntefli í sænku úrvalsdeildinni í gær. Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék allan leikinn með Halmstad. Örgryte tapaði á heimavelli fyrir Gautaborg 2-1. Jóhann B. Guðmundsson var í liði Örgryte en Hjálmar Jónsson sat á varamannabekknum hjá Gautaborg. Kalmar sigraði Helsingborg 1-0 og Hammarby og Elfsborg gerðu markalaust jafntefli.

Sport
Fréttamynd

Rekinn eftir einn leik

Attilio Tesser komst ekki á spjöld sögunnar sem þjálfari Cagliari í ítölsku knattspyrnunni, því í gær var hann rekinn úr starfi sínu eftir að hafa stýrt liðinu í aðeins einum leik.

Sport
Fréttamynd

Meiðsli hjá enska landsliðinu

Sven-Göran Eriksson bíður nú milli vonar og ótta eftir því hvort þeir John Terry, Steven Gerrard og Shaun Wright-Phillips verði búnir að ná sér af meiðslum fyrir landsleik Englendinga og Wales um helgina.

Sport
Fréttamynd

Loksins sigur hjá Brann

Brann sigraði Fredrikstad með fjórum mörkum gegn engu í norsku úrvalsdeildinni í gær, en Brann vann síðast sigur í deildinni í byrjun júlí. Kristján Örn Sigurðsson lék allan leikinn með Brann sem er í sjöta sæti í deildinni með 29 stig.

Sport
Fréttamynd

Líkur Gylfa aukast hjá Leeds

Helsti keppinautur landsliðsmannsins Gylfa Einarssonar um stöðu miðjumanns hjá enska 1. deildarliðinu Leeds Utd, hinn norski Eirik Bakke er að öllum líkindum á förum til enska úrvalsdeildarliðsins Aston Villa. Þetta sagði Gylfi í viðtali í Fótboltavikunni á Talstöðinni í dag en Bakke hélt Gylfa á varamannabekknum þar til hann meiddist á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Grétar Rafn orðaður við AZ Alkmaar

Siglfirðingurinn Grétar Rafn Steinsson, landsliðsmaður í knattspyrnu er sterklega orðaður við AZ Alkmaar toppliðið í hollensku úrvalsdeildinni. Grétar Rafn sem er leikmaður Young Boys frá Sviss hefur hlotið verðskuldaða athygli að undanförnu í leikjum sínum með íslenska landsliðinu. Hann er nú staddur í Hollandi að skoða aðstæður.

Sport
Fréttamynd

Rúrik færist nær Charlton

Rúrik Gíslason, 17 ára leikmaður HK í 1.deild, er staddur í London í læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildaliðinu Charlton. Sóknarmaðurinn ungi hefur leikið 12 leiki með HK í 1.deild og gert eitt mark. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá Rúrik en standist hann læknisskoðun má búast við því að gengið verði frá samningi í dag.

Sport
Fréttamynd

Landsliðshópur Íslands

Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, landsliðsþjálfarar í knattspyrnu hafa valið landsliðshópinn sem mætir Króötum og Búlgaríu í næstu viku í undankeppni HM. Ekkert pláss er fyrir þá Bjarna Ólaf Eiríksson leikmann Vals og Harald Frey Guðmumndsson leikmann Álasunds.

Sport
Fréttamynd

Kuznetsova úr leik

Rússneska tennisstjarnan Svetlana Kuznetsova er úr leik á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis en hún er núverandi meistari. Það var landa hennar, Ekaterina Bychkova sem sigraði hana 6-3 og 6-2 en Bychkova er í 96. sæti heimslistans.

Sport
Fréttamynd

U21 hópurinn í knattspyrnu

Þrír nýliðar eru í U21 landsliðshópi Eyjólfs Sverrissonar fyrir leikina gegn Króatíu og Búlgaríu í undankeppni EM, þeir Ingvar Þór Kale, Andri Júlíusson og Andri Ólafsson. Framherjinn Hannes Þ. Sigurðsson, sem skorað hefur 6 af 7 mörkum Íslands í keppninni hingað til, er meiddur og getur ekki leikið.

Sport
Fréttamynd

Kuyt fer hvergi

Dirk Kuyt, framherjinn knái hjá Feyenoord, hefur ákveðið að vera um kyrrt hjá félaginu þrátt fyrir mikinn áhuga ýmissa knattspyrnufélaga á honum. Kuyt lék frábærlega með Feyenoord í fyrra og var talið líklegt að hann myndi fara til einhvers stórliðs í Evrópu en á endanum ákvað Kuyt að vera áfram í Hollandi.

Sport
Fréttamynd

Enn eitt áfallið fyrir Newcastle

Newcastle United á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir, enda situr liðið í fallsæti í byrjun tímabilsins og hefur aðeins hlotið eitt stig það sem af er. Um helgina þurfti Kieron Dyer svo að fara meiddur af leikvelli gegn Manchester United og talið er að hann verði frá í nokkurn tíma.

Sport
Fréttamynd

Pyo á leið til Tottenham

Suður-Kóreumaðurinn Lee-Young Pyo er á leið til Tottenham Hotspur frá PSV Eindhoven, ef marka má orð forráðamanna félagsins í morgun. Pyo hefur fyrir löngu sagt að hann vildi fara til Lundúnaliðsins, en fram að þessu hefur hollenska liðið ekki viljað láta hann fara.

Sport
Fréttamynd

Tudor ekki til Bolton?

Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, hefur að undanförnu unnið að því að öturlega að fá króatíska landsliðsmanninn Igor Tudor til liðs við sig en hann gerði garðinn frægan hjá Juventus á árum áður. Allardyce óttast að hann muni ekki fá Tudor þar sem hann hefur ekki gengið frá samningi ennþá.

Sport
Fréttamynd

Charlton gerir tilboð í Rúrik

Enska knattspyrnufélagið Charlton hyggts gera HK tilboð í unglingalandsliðsmanninn Rúrik Gíslason, en Rúrik sem aðeins er 17 ára hefur verið til reynslu hjá Charlton í tvígang á síðustu vikum.

Sport
Fréttamynd

David James gefst ekki upp

Markvörðurinn David James hjá Manchester City ætlar ekki að gefa upp alla von um að komast aftur í enska landsliðshópinn, þrátt fyrir að vera skilinn eftir úti í kuldanum af Sven-Göran Eriksson fyrir leiki Englands í undankeppni HM á næstu dögum.

Sport
Fréttamynd

Baros ætlar að skora grimmt

Tékkneski framherjinn Milan Baros hjá Aston Villa ætlar að vera iðinn við kolann í markaskorun fyrir nýja liðið sitt og segir að leikstíll liðsins muni hjálpa sér að skora miklu meira en hann gerði þegar hann var hjá Liverpool.

Sport
Fréttamynd

Stoke sigruðu Norwich 3-1

Fjöldi leikja fór fram í dag í ensku Championship deildinni í knattspyrnu. Hæst ber 3-1 sigur Stoke City á Norwich og 4-0 útisigur Preston á Ipswich. Sjá úrslit úr Championship deildinni.

Sport
Fréttamynd

Tudor óákveðinn

Króatíski varnarmaðurinn Igor Tudor hjá Juventus virðist hafa snúist hugur með að fara sem lánsmaður til Bolton í ensku úrvalsdeildinni, því Sam Allardyce, knattspyrnustjóri félagsins segist ekkert hafa heyrt eða séð af varnarmanninum sterka.

Sport
Fréttamynd

Tileinkaði Robson markið

Ruud van Nistelrooy, framherji Manchester United tileinkaði Bobby Robson, fyrrum knattspyrnustjóra hjá PSV Eindhoven og Newcastle markið sem hann skoraði gegn Newcastle í gær í 2-0 sigri rauðu djöflanna. " Ég hitti Robson á hóteli skömmu fyrir leikinn og lofaði honum að ég myndi gera mark fyrir hann."

Sport