Ástin á götunni

Fréttamynd

Keane frá í 3 vikur

Roy Keane fyrirliði Manchester United verður frá næstu þrjár vikurnar vegna meiðsla aftan í læri. Keane verður því ekki með félögum sínum sem mæta Villareal í kvöld á Spáni í 1.umferð Meistaradeildar Evrópu. Keane, 34 ára missir þá einnig af leik United gegn erkifjendunum í Liverpool n.k. sunnudag.

Sport
Fréttamynd

Mourinho hrósaði Lampard

Jose Mourinho, knattspyrnustjór Chelsea, sá ástæðu til að hrósa miðjumanni sínum Frank Lampard í gær, eftir að Chelsea lagði Anderlecht í Meistaradeildinni 1-0, án þess að vera tiltölulega sannfærandi í leiknum.

Sport
Fréttamynd

Eiður á erfitt uppdráttar

Það er hörð samkeppni um að komast í liðið hjá Englandsmeisturum Chelsea og okkar maður Eiður Smári Guðjohnsen hefur ekki farið varhluta af því síðan að Ghana-maðurinn Michael Essien kom fyrir 24 milljónir punda frá franska liðinu Lyon 19. ágúst síðastliðinn.

Sport
Fréttamynd

Rio ráðleggur ungu leikmönnunum

Varnarjaxlinn Rio Ferdinand hjá Manchester United hefur góð ráð handa ungu leikmönnunum hjá liðinu og telur sig vita hvað liðið þarf að gera til að ná árangri í Meistaradeildinni.

Sport
Fréttamynd

Leikjunum lokið í Meistaradeild

Leikjunum átta í Meistaradeild Evrópu er lokið. Arsenal stal sigrinum gegn Thun á lokamínútunni, en það var Dennis Bergkamp sem skoraði hið mikilvæga mark heimamanna, sem léku allan síðari hálfleikinn manni færri. Ekkert mark var skoraði í leik Villareal og Manchester United, en þar var það Wayne Rooney sem var í sviðsljósinu.

Sport
Fréttamynd

Smith tekur stöðu Keane

Alex Ferguson hyggst tefla Alan Smith fram í stöðu fyrirliðans Roy Keane hjá Manchester United í leiknum gegn Villareal í Meistaradeildinni í kvöld, þar sem framherjinn knái Diego Forlan mætir sínum gömlu félögum.

Sport
Fréttamynd

Luque frá í tvo mánuði

Eftir að sóknarmaðurinn Albert Luque hjá Newcastle gekkst undir ítarlega læknisskoðun í morgun kom í ljós að hann verður frá keppni í að minnsta kosti tvo mánuði vegna meiðsla sem hann varð fyrir í jafnteflinu við Fulham um síðustu helgi.

Sport
Fréttamynd

Styrkleikalisti FIFA birtur í dag

Nýr styrkleikalisti FIFA var birtur í dag og þar hefur íslenska landsliðið farið upp um tvö sæti síðan í síðasta mánuði og situr nú í 92. sæti. Liðið hefur fallið um 22. sæti síðan þeir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson tóku við því árið 2003. Þá hefur enska landsliðið einnig fallið á listanum.

Sport
Fréttamynd

Hver er staðan, Baros?

Stuðningsmenn West Ham skemmtu sér konunglega í 4-0 stórsigri liðsins á Aston Villa í gærkvöldi og sérstaklega þótti þeim gaman að stríða Milan Baros hjá Villa, en hann kaus heldur að ganga til liðs við þá en að fara til West Ham á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Valsstúlkur í eldlínunni í Svíþjóð

Kvennalið Vals í knattspyrnu leikur fyrsta leik sinn 2. umferð Evrópukeppni félagsliða gegn sænsku meisturunum, Djurgården/Älvsjö, sem einnig eru gestgjafar riðilsins. Fyrirfram er sænska liðið talið það sterkasta í riðlinum.

Sport
Fréttamynd

Dick þjálfar Suður Kóreu

Hollendingurinn Dick Advocaat hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Suður-Kóreu í knattspyrnu. Liðið hefur þegar tryggt sér farseðilinn á HM á næsta ári í Þýskalandi.

Sport
Fréttamynd

Leikjum lokið í Meistaradeildinni

Leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu er lokið, en óhætt er að segja að það hafi verið Real Madrid frá Spáni sem stal senunni, því liðið steinlá fyrir Frakklandsmeisturum Lyon með þremur mörkum gegn engu og hafa þjálfarar liðsins í gegn um tíðina verið reknir fyrir minna en svona úrslit.

Sport
Fréttamynd

Liverpool komið í 2-0

Evrópumeistarar Liverpool byrja titilvörnina með tilþrifum í fyrsta leik riðlakeppninnar, en þeir hafa náð tveggja marka forystu eftir aðeins fimmtán mínútna leik gegn Betis á Spáni.

Sport
Fréttamynd

Eiður Smári veikur

Nú er búið að tilkynna byrjunarlið Chelsea sem tekur á móti Anderlecht í Meistaradeildinni í kvöld, en þar ber hæst að Eiður Smári er ekki í leikmannahóp Chelsea í kvöld vegna veikinda.

Sport
Fréttamynd

Henry frá í sex vikur?

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að eftir að hafa kynnt sér meiðsli Thierry Henry, sé hann þess fullviss að fyrirliðinn verði frá keppni í allt að sex vikur.

Sport
Fréttamynd

Töpuðu á marki í uppbótartíma

Valsstúlkur töpuðu fyrsta leik sínum í 2. umferð Evrópukeppni kvenna í fótbolta í kvöld fyrir sænsku meisturunum í Djurgården/Älvsjö, 1-2. Sænska liðið skoraði sigurmarkið þegar þrjár mínútur voru komnar fram í uppbótartíma og markið var mjög umdeilt. Laufey Ólafsdóttir skoraði mark Vals í fyrri hálfleik og jafnaði þá leikinn.

Sport
Fréttamynd

Real Madrid í bullandi vandræðum

Stórlið Real Madrid á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir og nú eykur enn á ógæfu liðsins, því það er komið undir 3-0 gegn frönsku meisturunum í Lyon. Það voru þeir John Carew, Juninho og Wiltord sem skoruðu fyrir franska liðið.

Sport
Fréttamynd

Meistaradeildin í dag

Nú klukkan 18:30 verður flautað til leiks í Meistaradeild Evrópu á Sýn og fyrsti leikurinn í beinni útsendingu verður viðureign Real Betis og Liverpool í G-riðli. Síðar um kvöldið, eða klukkan 21:20 fer í loftið leikur Chelsea og Anderlecht á Stamford Bridge.

Sport
Fréttamynd

Ronaldo í hóp United á ný

Portúgalski miðjumaðurinn Cristiano Ronaldo er kominn inn í leikmannahóp Manchester United á ný eftir fráfall föður hans á dögunum, en upphaflega var búist við að hann yrði í leyfi frá leiknum. United verður þó án fyrirliða síns Roy Keane, sem á við meiðsli að stríða.

Sport
Fréttamynd

Hert lyfjaeftirlit í Meistaradeild

Knattspyrnumenn sem leika í Meistaradeildinni geta átt von á því að fá starfsmenn lyfjaeftirlits Knattspyrnusambands Evrópu hvenær sem er í heimsókn. Félögin í Meistaradeildinni samþykktu þetta að sögn talsmanns UEFA fyrir þetta tímabil. Chelsea rak á sínum tíma Adrian Mutu frá félaginu eftir að hann féll á lyfjaprófi og varnarmaður Manchester United, Rio Ferdinand, var dæmdur í átta mánaða keppnisbann eftir að hafa gleymt að mæta í lyfjapróf.

Sport
Fréttamynd

Forlan mætir gömlu félögunum

Manchester United mætir í kvöld spænska liðinu Villarreal í Meistaradeild Evrópu en Villarreal hefur aldrei áður komist svo langt í Evrópukeppni. Diego Forlan, sem lék með Manchester United áður en hann fór til Villarreal fyrir síðustu leiktíð, ætlar sér að sýna sínar bestu hliðar í kvöld en hann var markahæsti leikmaður spænsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð með 25 mörk.

Sport
Fréttamynd

Hálfleikur í Meistaradeildinni

Nú er hálfleikur í leikjunum átta sem eru á dagskrá í Meistaradeildinni í kvöld. Þar ber hæst að Liverpool er í góðri stöðu gegn Real Betis á Spáni og frönsku meistararnir Lyon eru að kjöldraga Real Madrid í Frakklandi.

Sport
Fréttamynd

Lampard spilar vel fyrir mig

Knattspyrnustjóri Chelsea, Portúgalinn José Mourinho hrósaði Frank Lampard miðjumanni sínum í viðtali við breska ríkissjónvarpið. Lampard hefur legið undir mikilli gagnrýni frá fjölmiðlum og fylgismönnum Chelsea í upphafi leiktíðar en Mourinho er ánægður með kappann.

Sport
Fréttamynd

Helgi Sigurðsson á leið heim

"Ég hef hug á því að koma heim," sagði Helgi Sigurðsson knattspyrnumaður í samtali við Fréttablaðið í gær. Helgi leikur nú með AGF í Danmörku en hefur undanfarin ellefu ár leikið með sex félögum í fimm Evrópulöndum.

Sport
Fréttamynd

Mido neitar að gefast upp

Egypski framherjinn Mido hjá Tottenham ætlar ekki að sætta sig við niðurstöður aganefndar enska knattspyrnusambandsins, sem dæmdi hann í þriggja leikja bann í kjölfar þess að hann var rekinn af velli gegn Chelsea á dögunum og fer fram á frekari réttarhöld í málinu.

Sport
Fréttamynd

Djurgården eitt á toppnum

Djurgården er með þriggja stiga forystu á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 2-0 sigur á Malmö FF í gærkvöldi. Kári Árnason lék allann tímann með Djurgården sem er með 43 stig, IFK Gautaborg er í öðru sæti eftir markalaust jafntefli gegn Sundsvall.

Sport
Fréttamynd

Heiðar fær sitt tækifæri

Chris Coleman hefur fullvissað Heiðar Helguson um að hann muni fá sitt tækifæri með liði Fulham áður en langt um líður, en sem stendur eru þeir Brian McBride og Tomasz Radzinski að leika vel og eiga fast sæti í liðinu.

Sport
Fréttamynd

Yakubu að finna fjölina sína

Framherjinn öflugi Yakubu hjá Middlesbrough er sannfærður um að hann sé nú búinn að vinna bug á markaleysinu sem hefur hrjáð hann að undanförnu og lofar að nú fari mörkin að koma.

Sport
Fréttamynd

Tevez sektaður fyrir klæðaburð

Carlos Tevez, framherji Corinthians í Brasilíu, hefur verið sektaður um sem samsvarar 20% mánaðarlauna sinna, fyrir að mæta á blaðamannafund liðs síns klæddur búningi Manchester United. Þetta þótti forráðamönnum liðsins vera mikil vanvirðing við klúbb sinn, en leikmaðurinn sjálfur skildi hvorki upp né niður í þessum hörðu viðbrögðum.

Sport
Fréttamynd

O´Leary æfur út í sína menn

David O´Leary, knattspyrnustjóri Aston Villa, vandaði leikmönnum sínum ekki kveðjurnar eftir tapið stóra gegn West Ham í úrvalsdeildinni í gærkvöldi og sagði að betra liðið hefði farið með sigur af hólmi.

Sport