Körfubolti
162 163 164 165 166 167 168 169 170 … 217 ›
Pavel útskrifaður af sjúkrahúsi Pavel Ermolinskij var í gær útskrifaður af sjúkrahúsi eftir að lunga hans féll saman á æfingu í síðustu viku. Körfubolti 4.10.2007 16:05
Rússar og Spánverjar leika til úrslita á EM í körfu Það verða Rússar og Spánverjar sem leika til úrslita á Evrópumóti landsliða í körfubolta. Þetta varð ljóst í kvöld eftir að Rússar unnu glæstan sigur á Litháum í undanúrslitum 86-74. Rússarnir höfðu yfirhöndina frá fyrstu mínútu leiksins og leika nú til úrslita á Evrópumóti í fyrsta sinn síðan árið 1993. Körfubolti 15.9.2007 22:39
Spánverjar í úrslit á EM Spánverjar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleik Evrópumóts landsliða í körfubolta þegar liðið lagði Grikki 82-77 í undanúrslitum. Pau Gasol og Javier Navarro skoruðu 23 stig fyrir Spán og Jose Calderon 18, en Vasileios Spanoulis var langbestur í liði Grikkja með 24 stig og 5 stoðsendingar. Spánverjar mæta Rússum eða Litháum í úrslitum á morgun. Körfubolti 15.9.2007 19:46
Króatar og Þjóðverjar í undankeppni ÓL 2008 Króatar og Þjóðverjar tryggðu sér í dag keppnisrétt í undankeppni Ólympíuleikanna í körfubolta þegar liðin unnu leiki sína í keppninni um 5-8. sætið á EM á Spáni. Króatar lögðu Frakka 86-69 og Slóvenar klúðruðu öðrum leik sínum í röð á lokasprettinum þegar þeir lágu 69-65 fyrir Þjóðverjum. Körfubolti 15.9.2007 19:20
Milicic sektaður fyrir reiðilestur sinn á EM Framherjinn Darko Milicic hjá serbneska landsliðinu hefur verið sektaður um 10,000 evrur vegna grófra ummæla sem hann lét falla um dómarana eftir að Serbar töpuðu fyrir Grikkjum í riðlakeppninni og féllu úr leik. Viðtalið hefur nú lekið í fjölmiðla og er ekki hafandi eftir. Körfubolti 7.9.2007 13:47
Gasol aðvarar félaga sína Framherjinn Pau Gasol hjá spænska landsliðinu segir að liðið verði að athuga sinn gang rækilega á Evrópumótinu ef það ætli sér að vinna sigur. 28 leikja sigurhrinu heimsmeistaranna lauk í gær þegar liðið tapaði fyrir spútnikliði Króata á heimavelli í gær, 85-84. Körfubolti 6.9.2007 12:02
Versti árangur Serba í 60 ár Serbar töpuðu í gær þriðja leik sínum í röð á Evrópumótinu í körfuknattleik sem fram fer á Spáni og því er ljóst að liðið situr eftir í riðlakeppninni. Þetta er versti árangur Serbar töpuðu í gær þriðja leik sínum í röð á Evrópumótinu í körfuknattleik sem fram fer á Spáni þegar þeir lágu fyrir Ísreelum og því er ljóst að liðið situr eftir í riðlakeppninni. Þetta er versti árangur liðsins á Evrópumóti í 60 ár, eða síðan liðið hafnaði í 13 sæti í sinni fyrstu keppni undir merkjum Júgóslavíu. Spánverjar töpuðu Króötum eftir að hafa unnið 28 landsleiki í röð. Körfubolti 6.9.2007 11:35
Parker tryggði Frökkum annan sigurinn í röð Evrópumeistaramótið í körfubolta stendur nú sem hæst á Spáni. Tony Parker fór fyrir liði Frakka þegar það vann annan sigur sinn í röð í D-riðli, nú gegn silfurliði Ítala frá Ólympíuleikunum 69-62. Þetta var annað tap Ítala í röð á mótinu. Parker skoraði 36 stig í leiknum. Körfubolti 5.9.2007 09:27
Bandaríkjamenn sigruðu í Ameríkukeppninni Landslið Bandaríkjanna tryggði sér í nótt auðveldan sigur í Ameríkukeppninni í körfubolta með því að kjöldraga Argentínumenn 118-81 í úrslitaleik mótsins. Úrslitaleikurinn hafði í sjálfu sér litla þýðingu þar sem bæði lið höfðu þegar tryggt sér sæti á Ólympíuleikunum í Peking á næsta ári. Körfubolti 3.9.2007 12:36
Bandaríska körfuboltaliðið á leið til Peking Bandarísku NBA-stjörnurnar voru ekki í neinum vandræðum með að tryggja sér farseðilinn á Ólympíuleikana í Peking sem fram fara næsta sumar. Bandaríkjamenn rúlluðu yfir Púertó Ríkó, 135-91, og tryggðu sér með því farseðilinn til Peking en þess má geta að Púertó Ríkó lagði Bandaríkin á Ólympíuleikunum í Aþenu í eftirminnilegum leik. Körfubolti 2.9.2007 22:05
Garnett fer ekki frá Minnesota Líklega hefur enginn leikmaður í NBA deildinni verið meira í slúðrinu í sumar en framherjinn Kevin Garnett hjá Minnesota, en talið var nánast öruggt að honum yrði skipt frá félaginu í kring um nýliðavalið á dögunum. Þetta hefur nú verið slegið út af borðinu af eiganda Minnesota, sem segir að Garnett vilji vera áfram með liði Timberwolves. Körfubolti 17.7.2007 14:51
Garbajosa í hópi Spánverja Framherjinn Jorge Garbajosa hjá Toronto Raptors hefur verið kallaður inn í 15 manna hóp Pepu Hernandez landsliðsþjálfara Spánverja sem eru nú að undirbúa sig fyrir EM í körfubolta sem fram fer í Madrid í september. Körfubolti 27.6.2007 16:10
James ætlar að spila með landsliðinu Körfuboltastjarnan LeBron James hjá Cleveland Cavaliers hefur nú tilkynnt að hann ætli að gefa kost á sér í að spila með bandaríska landsliðinu í komandi verkefnum, en hann hafði áður sagt að aðeins helmingslíkur væru á því að hann tæki þátt. Körfubolti 27.6.2007 14:23
Real Madrid Spánarmeistari í körfubolta Real Madrid tryggði sér í gærkvöld Spánarmeistaratitilinn í körfubolta með góðum útisigri á erkifjendunum í Barcelona 82-71. Real Madrid vann úrslitaeinvígið 3-1 og með því varð Joan Plaza aðeins þriðji þjálfarinn í sögu deildarinnar til að vinna titil á sínu fyrsta ári sem þjálfari. Það er því ekki ónýt stemming í Madrid þessa dagana eftir að körfuboltaliðið fetaði í fótspor knattspyrnuliðsins og tryggði sér titilinn. Körfubolti 25.6.2007 08:59
Ber ekki vitni gegn Iverson Rappstjarnan og sprelligosinn 50 Cent þarf ekki að bera vitni vegna ákæru á hendur Allen Iverson síðar í mánuðinum. Dómari kvað þennan úrskurð í gær en Iverson er gefið að sök að hafa lamið mann í andlitið með flösku. Sport 15.6.2007 19:53
Jón Arnór með 6 stig í tapleik Jón Arnór Stefánsson skoraði sex stig fyrir Lottomatica Roma gegn deildarmeisturunum í Montepaschi Siena. Jón Arnór og félagar töpuðu leiknum 76-84. Jón Arnór spilaði í 12 mínútur og skoraði sex stig, þar af tvö úr vítaskotum. Körfubolti 3.6.2007 14:13
Roma í undanúrslit Jón Arnór Stefánsson skoraði 12 stig fyrir lið sitt Lottomatica Roma í gær þegar liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum í ítölsku deildinni með 83-58 stórsigri á fyrrum félögum hans í Napoli. Roma vann einvígið 3-0 og mætir toppliði Siena í næstu umferð. Körfubolti 23.5.2007 14:27
Sigur í fyrsta leik hjá Roma Lottomatica Roma á Ítalíu spilaði í kvöld sinn fyrsta leik í 8-liða úrslitum úrvalsdeildiarinnar og þar báru Jón Arnór Stefánsson og félagar í Roma sigurorð af fyrrum félögum hans í Napoli 73-57. Jón Arnór spilaði 13 mínútur í leiknum og skoraði 3 stig. Næsti leikur í einvíginu fer fram í Napoli um helgina og liðið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í næstu umferð. Körfubolti 16.5.2007 22:23
Logi Gunnarsson til Spánar Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson sem leikið hefur með finnska körfuboltaliðinu ToPo í Helsinki í vetur, hefur skrifað undir samning við spænska liðið Gijon sem leikur í 1. deildinni þar í landi. Logi mætir á æfingu hjá liðinu annað kvöld og meiningin er að hann verði með liðinu í úrslitakeppninni strax á föstudag. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta í kvöld, en þar er einnig stutt viðtal við kappann. Körfubolti 18.4.2007 22:06
Florida háskólameistari annað árið í röð Florida-skólinn varð í gærkvöld háskólameistari í körfubolta annað árið í röð eftir sigur á Ohio State í úrslitaleik 84-75. Þetta var í fyrsta sinn síðan árið 1992 sem lið vinnur tvö ár í röð í keppninni og í fyrsta sinn í sögunni sem lið vinnur tvö ár í röð með sama byrjunarlið. Körfubolti 3.4.2007 13:29
Jón Arnór með 12 stig í sigri Roma Jón Arnór Stefánsson skoraði 12 stig fyrir ítalska liðið Lottomatica Roma í gær þegar liðið skellti Benetton Treviso 73-61 á útivelli í A-deildinni í gær. Roma er í fjórða sæti deildarinnar. Körfubolti 2.4.2007 12:24
Jón með 8 stig í tapleik Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma töpuðu í kvöld á útivelli fyrir Maccabi Tel Aviv í Meistaradeildinni í körfubolta 79-72. Jón skoraði 8 stig og gaf 2 stoðsendingar á 19 mínútum. Hann var öflugur á lokasprettinum þegar ítalska liðið tók góða rispu, en heimamenn náðu að halda sínu og sigruðu. Þetta var fimmta tap Roma í röð í keppninni eftir sigur í fyrsta leik. Körfubolti 22.3.2007 21:00
Myndband af tilþrifum vikunnar hjá Jóni Arnóri Jón Arnór Stefánsson þótti eiga tilþrif vikunnar í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta þegar hann tryggði liði sínu Roma sigur á toppliði Siena í vikunni 84-83. Frá þessu var greint á heimasíðu KKÍ. Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan til að sjá tilþrifin. Körfubolti 21.3.2007 20:06
Bandaríkjamenn heppnir með mótherja Landslið Bandaríkjanna í körfubolta sleppur við að leika með liði Ólympíumeistara Argentínu í riðli í Ameríkukeppninni sem fram fer í sumar, en dregið var í riðla í dag. Tvö af liðunum tíu sem taka þátt tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í Peking á næsta ári. Körfubolti 21.3.2007 21:02
Stjörnuleikur FIBA í beinni á netinu annað kvöld Árlegur Stjörnuleikur í Evrópukörfuboltanum fer fram í Lemesos á Kýpur annað kvöld og verður hann sýndur í beinni útsendingu á heimasíðu evrópska körfuknattleikssambandsins www.fibaeurope.com. Nokkrir áhugaverðir leikmenn verða þar á meðal keppenda og má þar nefna danska landsliðsmanninn Christian Drejer og Marc Gasol, bróðir Pau Gasol sem spilar í NBA deildinni. Körfubolti 19.3.2007 16:16
Jón Arnór skoraði sigurkörfu Roma Jón Arnór Stefánsson var hetja liðs síns Lottomatica Roma í gærkvöld þegar hann tryggði liði sínu sigurinn á Montepaschi Siena í framlengdum leik í ítölsku úrvalsdeildinni. Roma sigraði 84-82 með körfu Jóns í lok framlengingar, en hann skoraði aðeins 4 stig í leiknum. Körfubolti 19.3.2007 16:02
Ron Artest: Ég hef brugðist Fimm dögum eftir að hafa verið handtekinn vegna gruns um að hafa beitt eiginkonu sína ofbeldi hefur leikmaður Sacramento í NBA-deildinni, beðist afsökunar á framferði sínu. Artest segist hafa brugðist hlutverki sínu, sem eiginmaður, faðir og leikmaður Sacramento, og biður um fyrirgefningu. Körfubolti 11.3.2007 14:49
12. sigur San Antonio í röð San Antonio Spurs er á fljúgandi siglingu í NBA-deildinni um þessar mundir og í nótt vann liðið sinn 12. sigur í röð þegar það lagði New Jersey af velli á heimavelli, 93-77. Eins og svo oft áður var það liðsheildin sem skóp sigur San Antonio, en allir þeir 12 leikmenn sem voru á skýrslu liðsins náðu að skora stig í leiknum. Körfubolti 11.3.2007 10:17
Rasheed Wallace: Það þýðir ekkert að sekta mig Vandræðagemlingurinn Rasheed Wallace hjá Detroit Pistons hefur sent þau skilaboð til forráðamanna NBA-deildarinnar að það þýði ekkert að sekta sig eða setja sig í leikbann – hann muni ekki breyta leikstíl sínum. Wallace, sem er þekktur fyrir sorakjaft í leikjum Detroit, segist eiga nóg af peningum til að borga sínar sektir. Körfubolti 10.3.2007 17:42
Shaq stendur sig vel í fjarveru Wade Tröllið Shaquille O´Neal hjá Miami lék einn sinn besta leik á tímilinu í nótt þegar meistarar Miami lögðu Minnesota í NBA-deildinni í nótt, 105-91. O´Neal skoraði 32 stig, þar af 15 í fyrsta fjórðung, og hitti úr 13 af 16 skotum sínum í leiknum. Körfubolti 10.3.2007 12:47