Körfubolti
146 147 148 149 150 151 152 153 154 … 217 ›
Helena spilar í þröngum búningi í vetur og verður númer 24 Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í slóvakíska liðinu Dobri Anjeli Kosice hýsa æfingamót þessa dagana þar sem taka þátt lið frá Slóvakíu, Póllandi, Rúmeníu og Ungverjalandi. Þetta eru fyrstu leikir Helenu með liðinu og fyrstu leikir hennar sem atvinnumaður í körfubolta. Körfubolti 9.9.2011 13:24
Spánverjar fóru illa með Serba á EM í körfu Spánverjar unnu sannfærandi 25 stiga sigur á Serbíu, 84-59, í leik liðanna í dag í milliriðli EM í körfubolta í Litháen. Spánverjar unnu alla fjóra leikhlutana og voru með ellefu stiga forskot í hálfleik, 43-32. Körfubolti 9.9.2011 14:36
Rússar ekki í vandræðum með Finna Keppni á Evrópumeistaramótinu í körfubolta hélt áfram í dag en þá tryggðu Rússar og Makedónar sér sæti í fjórðungsúrslitum keppninnar. Körfubolti 8.9.2011 20:28
Frakkar enn ósigraðir - Finnar mæta Rússum í dag Frakkar héldu sigurgöngu sinni áfram á EM í körfubolta í Litháen í gær þegar þeir unnu 68-64 sigur á Tyrkjum. Frakkar hafa unnið alla sex leiki sína í keppninni til þessa og eru efstir í sínum milliriðli en keppni í hinum milliriðlinum hefst í dag. Körfubolti 8.9.2011 09:29
Þjóðverjar réðu ekki við Gasol-bræðurna í spænska landsliðinu Spánn vann níu stiga sigur á Þýskalandi, 77-68, í fyrsta leik liðanna í milliriðli á EM í körfubolta í dag. Spánverjar tryggðu sér sigurinn með því að vinna lokaleikhlutann 21-13 en spænska liðið var þremur stigum yfir í hálfleik, 36-33. Körfubolti 7.9.2011 14:39
Pau Gasol og Dirk Nowitzki mætast í dag á EM í körfu Keppni í milliriðlum á EM í körfubolta í Litháen hefst í dag og bíða margir spenntir eftir fyrsta leik dagsins þar sem mætast Evrópumeistarar Spánverjar og Þýskaland sem hefur innanborðs einn allra besta körfuboltamann heims. Körfubolti 7.9.2011 09:01
Finnland í milliriðla á EM Finnska landsliðið gerði sér lítið fyrir og tryggði sér í dag sæti í milliriðlakeppninni á EM í körfubolta sem fer nú fram í Litháen. Körfubolti 5.9.2011 20:05
Tyrkir fyrstir til að vinna Spánverja á EM Tyrkir rifu sig upp eftir óvænt tap á móti Póllandi í gær og unnu 65-57 sigur á Evrópumeisturum Spánverja í lokaleik sínum í riðlinum á EM í Litháen í körfubolta. Körfubolti 5.9.2011 17:55
Sex þjóðir komnar áfram í milliriðla á EM í körfu Evrópumeistarar Spánar eru eitt af sex liðum sem eru komin áfram í milliriðla á Evrópumótinu í körfubolta sem nú stendur yfir í Litháen. Hinar þjóðirnar sem eru komnar áfram eru Frakkland, Serbía, Þýskaland, Rússland og Slóvenía en allar þessar sex þjóðir nema Þýskaland hafa unnið alla fjóra leiki sína í keppninni til þessa. Körfubolti 5.9.2011 09:35
Spánn, Þýskaland og Frakkland á sigurbraut á EM í körfu Spánn, Þýskaland og Frakkaland héldu áfram sigurgöngu sinni á EM í körfubolta í Litháen en annar leikdagur mótsins fór fram í dag. Serbía, Grikkland, Rússland, Slóvenía og Litháen hafa líka unnið tvo fyrstu leiki sína en liðin spila í fjórum sex liða riðlum. Körfubolti 1.9.2011 22:15
Pau Gasol hélt Spánverjum á floti í naumum sigri í fyrsta leik á EM Spánverjar hófu í dag titilvörn sína á Evrópumótinu í körfubolta í Litháen með því að vinna nauma fimm stiga sigur á Pólverjum. Pau Gasol, leikmaður Los Angeles Lakers, fór fyrir sínum mönnum með 29 stigum og 7 fráköstum. Körfubolti 31.8.2011 16:21
Jón Arnór vann Hauk Helga í æfingaleik Jón Arnór Stefánsson og Haukur Helgi Pálsson mættust í fyrsta sinn á Spáni í gærkvöldi þegar lið þeirra CAI Zaragoza og Manresa spiluðu æfingaleik á heimavelli Manresa. Zaragoza, lið Jóns Arnórs, hafði betur 75-63 eftir að hafa unnið fjórða leikhlutann 28-9. Liðin eru að undirbúa sig fyrir ACB-deildina sem hefst eftir sex vikur. Körfubolti 29.8.2011 14:56
Haukur Helgi hjálpar liðinu á mörgum stöðum Jón Arnór Stefánsson verður ekki eini Íslendingurinn í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í vetur því hinn nítján ára gamli Haukur Helgi Pálsson er búinn að semja við Assignia Manresa í Katalóníu. Jón Arnór samdi á dögunum við CAI Zaragoza. Körfubolti 21.8.2011 23:18
Haukur spilar á Spáni í vetur - verður í sömu deild og Jón Arnór Haukur Helgi Pálsson hefur samið við Manresa á Spáni og mun því spila í ACB-deildinni alveg eins og Jón Arnór Stefánsson sem samdi við CAI Zaragoza á dögunum. Þetta kemur fram á karfan.is Körfubolti 20.8.2011 21:15
Jón Arnór áfram í spænsku úrvalsdeildinni Jón Arnór Stefánsson hefur samið við spænska úrvalsdeildarfélagið CAI Zaragoza og leikur með því allt næsta tímabil. Hann lék áður með CB Granada í sömu deild undanfarin tvö ár. Körfubolti 3.8.2011 08:30
Haukur hættur hjá Maryland: Vill komast að hjá liði í Evrópu Haukur Helgi Pálsson, landsliðsmaður Íslands í körfuknattleik, hefur tekið þá ákvörðun að hætta að spila með Maryland-háskóla. Hann vonast til þess að komast að hjá félagi í Evrópu. Körfubolti 2.8.2011 22:59
Haukur Helgi hættur hjá Maryland - ætlar til Evrópu Haukur Helgi Pálsson, landsliðsmaður Íslands í körfuknattleik, er hættur að leika með Maryland-háskóla. Haukur, sem spilaði sína fyrstu A-landsleiki á Norðurlandamótinu í júlí, hefur hug á að spila í Evrópu á næsta tímabili. Körfubolti 2.8.2011 21:55
Sundsvall-strákarnir í sérflokki í stigaskorun Sundvall-mennirnir í íslenska karlalandsliðinu í körfubolta eru langstigahæstir eftir tvo fyrstu leiki liðsins á Norðurlandamótinu í Sundsvall. Íslenska liðið hefur tapað fyrir Svíum og Finnum í fyrstu tveimur leikjum sínum en mætir Dönum í kvöld. Körfubolti 25.7.2011 14:51
Nowitzki verður með Þjóðverjum á EM Dirk Nowitzki ætlar að spila með þýska landsliðinu á Evrópumótinu í sumar en Ólympíusæti eru undir á mótinu. "Fríið er búið að vera stutt hjá mér en ég vil hjálpa þessu unga þýska liði að komast á Ólympíuleikana," sagði Nowitzki sem vann NBA-meistaratitilinn með Dallas í ár. Körfubolti 23.7.2011 12:27
Marion Jones fær ekki nýjan samning hjá Shock Fyrrum Ólympíumeistarinn í spretthlaupum, Marion Jones, fær ekki nýjan samning hjá WNBA-liðinu Tulsa Shock og framtíð hennar í körfuboltanum er í óvissu. Körfubolti 22.7.2011 10:11
Ólafur afhenti Rússum sigurverðlaunin Rússar fögnuðu sigri á Evrópumeistaramótinu í körfuknattleik kvenna en úrslitaleikurinn fór fram í gær. Rússar og Tyrkir áttust við í úrslitaleiknum og þar höfðu Rússar betur 59-42 og var sigur þeirra aldrei í hættu. Ólafur Rafnsson forseti FIBA Europe og forseti Íþrótta – og ólympíusambands Íslands afhenti sigurvegurunum verðlaunin í leikslok en mótið fór fram í Póllandi. Körfubolti 4.7.2011 19:05
Jakob Örn samdi við Sundsvall á ný Jakob Örn Sigurðarson hefur samið við sænska meistaraliðið Sundsvall til eins árs en hann var lykilmaður liðsins á síðustu leiktíð. Jakob hefur leikið með sænska liðinu undanfarin tvö tímabil en Hlynur Bæringsson varð meistari með liðinu á sínu fyrsta tímabili. Körfubolti 16.6.2011 16:47
Pistillinn: Ekkert stress, þetta er bara boltaleikur Ég hef mikið keppnisskap og sigurvilja. Stundum svo mikið að það mætti halda að það eina sem skipti máli í heiminum væri hvort ég og mitt lið ynnum næsta leik eða titil. Ég finn fyrir pressu að standa mig og vinna. Ef það tekst ekki er allt ómögulegt. Baráttan er svo mikilvæg að hún verður að vinnast. En stundum kynnist maður fólki sem setur hlutina í samhengi og kennir manni hvað alvöru barátta er. Körfubolti 18.5.2011 21:56
Jón Arnór með sjö stig í lokaleiknum Jón Arnór Stefánsson skoraði í dag sjö stig þegar að lið hans, CB Granada, tapaði fyrir Gran Canaria í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta, 93-69. Körfubolti 15.5.2011 19:20
Jakob valinn besti leikmaður sænsku deildarinnar Jakob Örn Sigurðarson, nýkrýndur sænskur meistari með Sundsvall, var áberandi þegar körfuboltavefurinn Eurobasket.com gerði upp tímabilið í sænsku úrvalsdeildinni. Jakob var valinn besti leikmaður deildarinnar auk þess að vera besti bakvörðurinn og besti Evrópumaðurinn. Körfubolti 12.5.2011 13:38
Fyrrum NBA leikmaður fannst látinn Robert Traylor, fyrrverandi NBA leikmaður, fannst látinn á heimili sínu aðeins 34 ára. Taylor lék í sjö ár í NBA-deildinni áður en hann flutti sig yfir til Púertó Ríkó þar sem hann lék með the Bayamon Cowboys fram að deginum í gær. Körfubolti 12.5.2011 10:10
Jón Arnór vill vera áfram á Spáni Jón Arnór Stefánsson segir í samtali við vefsíðuna karfan.is að hann vilji spila áfram í spænsku úrvalsdeildinni. Körfubolti 9.5.2011 15:53
Verður Real Madrid Evrópumeistari eftir allt saman? Knattspyrnuliði Real Madrid tókst ekki að endurheimta Evróubikarinn eftir langa bið þegar þeir duttu út fyrir Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í fótbolta í vikunni en körfuboltalið félagsins getur bætt úr því þegar úrslit Euroleague fara fram í Barcelona um helgina. Körfubolti 6.5.2011 10:16
Jakob sá eini sem spilaði alla leikina - lék í rúmar 1625 mínútur Jakob Sigurðarson var að spila sinn 51. leik á tímabilinu þegar hann og félagar hans í Sundsvall Dragons tryggðu sér sænska meistaratitilinn í gær. Jakob var eini leikmaður meistarana sem spilaði alla leiki tímabilsins. Körfubolti 6.5.2011 09:25
Trúðum því að við værum bestir Sundsvall Dragons, með þá Hlyn Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson innanborðs, varð í gær Svíþjóðarmeistari í körfubolta. Sundsvall vann sigur á Norrköping Dolphins, 102-83, í oddaleik í rimmu um titilinn í gær. Körfubolti 5.5.2011 22:34