Körfubolti
145 146 147 148 149 150 151 152 153 … 217 ›
Helena með fimm stig í sigurleik í Meistaradeildinni Helena Sverrisdóttir og félagar í Good Angels Kosice unnu góðan 15 stiga útisigur á króatíska liðinu Gospic, 91-76, í Meistaradeild Evrópu í dag. Helena bætti stigaskor sitt frá því í fyrstu tveimur Euroleague-leikjum sínum. Körfubolti 26.10.2011 16:10
Haukur Helgi og Jón Arnór báðir stigalausir í dag Haukur Helgi Pálsson og Jón Arnór Stefánsson komust hvorugir á blað í leikjum sinna liða í spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta í dag og voru báðir íslensku landsliðsmennirnir í miklum villuvandræðum. Haukur Helgi og félagar í Assignia Manresa unnu góðan sigur en Jón Arnór og félagar í CAI Zaragoza þurftu að sætta sig við stórt tap. Körfubolti 23.10.2011 12:21
Helena lét lítið fyrir sér fara í sigurleik Helena Sverrisdóttir náði ekki að skora á þeim fjórtán mínútum sem hún spilaði er lið hennar, Good Angels Kosice frá Slóvakíu, vann góðan sigur á spænska liðinu Rivas Ecopolis í Evrópudeild kvenna, 81-63. Körfubolti 19.10.2011 19:36
Helena og félagar í beinni á FIBAtv.com á morgun Fyrsti heimaleikur Helenu Sverrisdóttur og félaga í Good Angels Kosice í Meistaradeildinni (Euroleague) á tímabilinu verður annað kvöld þegar liðið fær spænska liðið Rivas Ecopolis í heimsókn. Körfubolti 18.10.2011 13:24
Helena með tíu stig í 91 stigs sigri Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í Good Angels Kosice þurftu ekki að hafa mikið fyrir sigri á SK Moris Cassovia Kosice í slóvakísku deildinni um helgina. Good Angels vann leikinn 120-29 eða með 91 stigs mun. Körfubolti 17.10.2011 11:02
Frábær byrjun Hauks og félaga í Manresa - unnu aftur í kvöld Haukur Helgi Pálsson var aftur í byrjunarliði Manresa þegar liðið vann sex stiga útisigur á Baloncesto Fuenlabrada, 79-73, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Körfubolti 12.10.2011 20:36
Tap í fyrsta leik hjá Jóni Arnóri Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza töpuðu í fyrsta leik sínum á tímabilinu þegar liðið sótti Valencia heim í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Valenica vann leikinn 82-66 eftir að hafa verið 44-27 yfir í hálfleik. Körfubolti 12.10.2011 19:42
Tap í fyrsta leik í Euroleague hjá Helenu og félögum Helena Sverrisdóttir of félagar hennar í slóvakíska liðinu Good Angels Kosice töpuðu með sjö stigum á útivelli, 52-45, á móti pólska liðinu Wisla Can-Pack í fyrsta leik sínum í Euroleague-deildinni í dag. Körfubolti 12.10.2011 17:43
Helgi Már fagnaði sigri á móti Íslendingunum í Sundsvall Fjögur Íslendingalið voru í eldlínunni í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld og vakti þar mesta athygli sigur Helga Más Magnússonar og félaga í 08 Stockholm á sænsku meisturunum í Sundsvall Dragons. Körfubolti 11.10.2011 18:58
Finn það á æfingunum að alvaran er að byrja Helena Sverrisdóttir verður á morgun fyrsta íslenska körfuboltakonan sem spilar í Euroleague-deildinni, Meistaradeild kvennakörfuboltans, þegar hún og félagar hennar í slóvakíska liðinu Dobri Anjeli skella sér til Póllands. Körfubolti 10.10.2011 22:20
Minnesota Lynx WNBA-meistari í fyrsta skipti Minnesota Lynx vann á föstudagskvöld sinn fyrsta meistaratitil í NBA-deild kvenna. Liðið lagði Atlanta Dream í þriðja leik liðanna 73-67 fyrir framan tæplega 12 þúsund áhorfendur í Atlanta. Körfubolti 9.10.2011 13:32
Íslendingarnir í aðalhlutverki hjá Sundsvall - Brynjar byrjaði vel Svíþjóðarmeistarar Sundsvall Dragons fóru vel af stað í sænska körfuboltanum í kvöld. Liðið lagði þá ecoÖrebro, 79-72, á heimavelli þar sem Íslendingarnir voru í aðalhlutverki hjá Sundsvall. Körfubolti 7.10.2011 18:54
Gasol-bræðurnir æfa með Barcelona Bræðurnir Pau og Marc Gasol munu æfa með körfuboltaliði Barcelona á meðan að verkbann leikmanna í NBA-deildinni stendur yfir. Körfubolti 4.10.2011 16:37
Helgi Már samdi við nýtt félag í Svíþjóð Landsliðsmaðurinn Helgi Már Magnússon er búinn að semja við nýtt lið í sænska körfuboltanum en hann mun spila með 08 Stockholm HR í vetur. Helgi Már lék í fyrra með Uppsala Basket en hafði áður spilað með Solna Vikings og er þetta því þriðja félagið hans í sænska körfuboltanum. Körfubolti 27.9.2011 11:45
Byggja 7 þúsund manna völl á flugmóðurskipi Fyrsti körfuboltaleikurinn á flugmóðurskipi verður leikinn 11. nóvember í San Diego í Bandaríkjunum. Forsvarsmenn bandaríska háskólakörfuboltans hafa, með leyfi bandaríska sjóhersins, ákveðið að byggja sjö þúsund manna völl á dekki flugmóðurskipsins USS Carl Vinson. Körfubolti 24.9.2011 21:32
Frakkar enduðu sigurgöngu Rússa og mæta Spánverjum í úrslitaleiknum Frakkar eru komnir í úrslitaleik Evrópumótsins í fyrsta sinn eftir átta stiga sigur á Rússum í kvöld, 79-71, í undanúrslitunum á EM í körfu í Litháen. Frakkar mæta Spánverjum í úrslitaleiknum á sunnudaginn en Rússar spila á undan um bronsið við Makedóníumenn. Rússar voru búnir að vinna alla níu leiki sína á mótinu fyrir leikinn í kvöld. Körfubolti 16.9.2011 19:49
Makedónar réðu ekkert við Navarro - Spánverjar í úrslitin á EM í körfu Evrópumeistarar Spánverja eru komnir í úrslitaleikinn á þriðja Evrópumótinu í röð eftir tólf stiga sigur á Makedóníu, 92-80, í undanúrslitunum á EM í körfu í Litháen. Spánverjar lentu í vandræðum í þessum leik á móti spútnikliði Makedóníu en fyrirliðinn Juan Carlos Navarro átti stórleik og var öðrum fremur maðurinn á bak við sigur Spánverja. Körfubolti 16.9.2011 16:02
Undanúrslitin klár á EM í körfu - Rússar unnu Serba Rússar héldu sigurgöngu sinni áfram á Evrópumótinu í körfubolta og tryggðu sér sæti í undanúrslitunum á EM í Litháen með því að vinna tíu stiga sigur á Serbum, 77-67, í átta liða úrslitunum í kvöld. Rússar mæta Frökkum í undanúrslitunum á morgun en í hinum leiknum mætast Spánverjar og Makedónar. Körfubolti 15.9.2011 22:48
Flottur endasprettur kom Frökkum í undanúrslitin á EM í körfu Frakkar tryggðu sér í dag sæti í undanúrslitum á Evrópumótinu í körfubolta þegar þeir unnu átta stiga sigur á Grikkjum, 64-56, í átta liða úrslitum á EM í Litháen. Körfubolti 15.9.2011 16:40
Makedónía sló óvænt út heimamenn í Litháen á EM í körfu Makedónía tryggði sér óvænt undanúrslitaleik á móti Evrópumeisturum Spánar á Evrópumótinu í körfubolta í Litháen eftir tveggja stiga dramatískan sigur á gestgjöfum Litháen, 67-65, í átta liða úrslitum keppninnar í kvöld. Makedónía hefur aldrei áður komist svona langt í úrslitakeppni EM í körfubolta. Körfubolti 14.9.2011 19:54
Spánverjar komnir í undanúrslitin á EM í körfu - unnu Slóvena létt Evrópumeistarar Spánverja urðu í dag fyrsta liðið til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum á EM í körfubolta í Litháen eftir sannfærandi 22 stiga sigur á Slóvenum, 86-64, í átta liða úrslitunum. Spánverjar mæta sigurvegaranum úr leik Litháen og Makedóníu sem spila sinn leik seinna í kvöld. Körfubolti 14.9.2011 16:47
Helena hækkaði stigaskorið sitt í hverjum leik á æfingamótinu Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í Good Angels Kosice tryggðu sér öruggan sigur á æfingamóti sem fram fór á heimavelli liðsins um síðustu helgi. Kosice vann þrjá flotta sigra þar á meðal á ungverska liðinu Sopron sem mun spila í Euroleague í vetur eins og Kosice-liðið. Körfubolti 14.9.2011 12:38
Rússland eina taplausa liðið á EM í körfu Í gær kláraðist milliriðlakeppnin á EM í körfubolta sem nú fer fram í Litháen. Fjórðungsúrslitin hefjast á morgun en Finnar máttu bíta í það súra epli að falla úr leik á lokadegi milliriðlakeppninnar. Körfubolti 13.9.2011 10:55
Helena stigahæst þegar Dobri Anjeli vann úrslitaleik æfingamótsins Helena Sverrisdóttir byrjaði vel með Dobri Anjeli Kosice liðinu en hún var í aðalhlutverki þegar liðið tryggði sér sigur á æfingamóti sem fór fram á heimavelli liðsins um helgina. Körfubolti 12.9.2011 11:29
Litháar sendu Þjóðverja heim á EM í körfu Litháen varð í kvöld fjórða og síðasta liðið úr milliriðli eitt á Evrópumótinu í körfubolta í Litháen til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitunum. Litháar unnu þá níu stiga sigur á Þjóðverjum, 84-75, en Þjóðverjar gátu slegið gestgjafana út úr keppninni með sigri. Körfubolti 11.9.2011 22:42
Frakkar hvíldu bestu mennina sína í stórtapi á móti Spánverjum Evrópumeistarar Spánverja urðu fyrstir til að vinna Frakka á Evrópumótinu í körfubolta í dag þegar þeir unnu 27 stiga stórsigur, 96-69, í lokaleik liðanna í milliriðli eitt. Bæði lið voru búin að tryggja sér tvö efstu sætin í riðlinum sem og sæti í átta liða úrslitum keppninnar. Körfubolti 11.9.2011 19:25
Eiga Frakkar möguleika á að vinna fyrsta gullið sitt í körfunni? Franska landsliðið í körfubolta hélt sigurgöngu sinni áfram á EM í körfubolta á föstudaginn þegar liðið vann sex stiga sigur á heimamönnum í Litháen, 73-67. Frakkar hafa unnið alla sjö leiki sína í keppninni til þessa og gera frábæra hluti undir stjórn Vincent Collet. Körfubolti 10.9.2011 22:12
Rússar með sjöunda sigurinn í röð á EM í körfu Rússar héldu sigurgöngu sinni áfram á EM í körfubolta í Litháen í kvöld með því að vinna 16 stiga sigur á Grikkjum, 83-67. Grikkir eru samt þegar búnir að tryggja sér sæti í átta liða úrslitunum eftir að Slóvenar töpuðu í dag en Finnland og Slóvenía mætast í hreinum úrslitaleik um fjórða og síðasta sætið í lokaumferðinni. Körfubolti 10.9.2011 20:50
Finnar unnu flottan sigur á Georgíumönnum á EM Norðurlandameistarar Finna halda áfram að standa sig vel á EM í körfubolta í Litháen en þeir eiga enn möguleika á því að komast í átta liða úrslitin eftir fjórtán stiga sigur á Georgíu, 87-73, í dag. Körfubolti 10.9.2011 14:34
Þjóðverjar unnu Tyrki og héldu voninni á lífi Þjóðverjar eiga enn möguleika á því að komast í átta liða úrslitin á EM í körfubolta í Litháen eftir 73-67 sigur á Tyrkjum í æsispennandi leik í milliriðli eitt í dag. Annan leikinn í röð þurftu Tyrkir að sætta sig við að missa niður forskot en þýska liðið skoraði aðeins 6 stig í fyrsta leikhlutanum. Körfubolti 9.9.2011 16:58