Körfubolti
141 142 143 144 145 146 147 148 149 … 217 ›
Pavel og Jakob stigahæstir í sigurleikjum sinna liða Jakob Örn Sigurðarson og Pavel Ermolinskij voru í aðalhlutverkum í sigrum sinna liða í sænska körfuboltanum í kvöld. Norrköping Dolphins vann 96-79 heimasigur á Borås Basket og Sundsvall Dragons lenti ekki í miklum vandræðum í 106-78 sigri Jämtland Basket. Körfubolti 23.10.2012 19:07
CAI Zaragoza skoraði aðeins 50 stig Jón Arnór Stefánsson skoraði fjögur stig þegar að lið hans, CAI Zaragoza, tapaði fyrir Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Körfubolti 21.10.2012 18:51
Kevin Love úr leik hjá Timberwolves næstu 6-8 vikurnar Kevin Love, leikmaður NBA liðsins Minnesota Timberwolves, verður frá keppni í 6-8 vikur, og missir bandaríski landsliðsmaðurinn af allt að 22 fyrstu leikjum liðsins á næsta keppnistímabili. Love varð fyrir því óhappi að brjóta tvo fingur á hægri hönd, en hann var staddur í lyftingasal liðsins þegar atvikið átti sér stað. Körfubolti 18.10.2012 09:38
Pavel stigahæstur í tapleik Pavel Ermolinskij skoraði 18 stig fyrir Norrköping Dolphins í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta en það dugði ekki því liðið tapaði með tíu stigum á móti Stockholm Eagles á heimavelli, 69-79. Körfubolti 14.10.2012 16:32
Fyrsta tapið hjá Jóni Arnóri og félögum Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í CAI Zaragoza töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar þeir heimsóttu Valencia Basket í dag í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Valencia var líka búið að vinna tvo fyrstu leiki sína og vann leikinn 83-73. Haukur Helgi Pálsson og félagar í Assignia Manresa þurftu á sama tíma að sætta sig við þriðja tap sitt í röð. Körfubolti 14.10.2012 12:07
Sigrar hjá íslensku strákunum í danska körfuboltanum Íslendingaliðin BC Aarhus og Værlose unnu bæði leiki sína í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. BC Aarhus átti frábæran endasprett í sigri á Randers á heimavelli en Værloese vann sigur í framlengingu á útivelli. Körfubolti 13.10.2012 15:05
Jakob með stórleik í sigri Drekanna Sundsvall Dragons vann sinn annan leik í röð í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta, í þetta sinn gegn Stockholm Eagles á heimavelli, 94-71. Körfubolti 12.10.2012 19:10
Logi heitur í Frakklandi Logi Gunnarsson hefur byrjað tímabilið vel með Angers í Frakklandi en hann skoraði 23 stig í öruggum sigri liðsins í gær. Logi er með 20 stig að meðaltali í fyrstu þremur leikjunum og er eins og er stigahæsti leikmaður frönsku C-deildarinnar. Körfubolti 10.10.2012 09:03
Öruggur sigur drekanna í Sundsvall Hlynur Bæringsson skoraði 20 stig þegar að Sundsvall Dragons vann öruggan sigur á Örebro í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Körfubolti 9.10.2012 19:16
Enginn Jakob og Sundsvall tapaði fyrsta leik Peter Öqvist, landsliðsþjálfara Íslands, tókst ekki að stýra Sundsvall Dragons til sigurs í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta í kvöld. Sundsvall varð að sætta sig við sex stiga tap á heimavelli á móti Uppsala Basket, 74-80. Körfubolti 5.10.2012 18:51
Jón Arnór og félagar byrja vel CAI Zaragoza hafði betur gegn Caja Laboral í fyrstu umferð tímabilsins í spænsku úrvalsdeildinni í kröfubolta. Zaragoza vann, 88-75. Körfubolti 30.9.2012 19:06
Snæfellingar með fullt hús Einn leikur fór fram í Lengjubikar kvenna í körfubolta í kvöld. Snæfell hafði betur gegn Val, 63-57, í Stykkishólmi. Körfubolti 20.9.2012 22:41
Hrannar Hólm orðinn íþróttastjóri hjá KKÍ þeirra Dana - hættir með SISU í vor Hrannar Hólm hefur verið ráðinn íþróttastjóri hjá danska körfuboltasambandinu og með ráðningu Hrannars mun starfið breytast og stór hluti þess snúast um að finna og efla efnilegustu körfuboltamenn og konur Danmerkur. Þetta kemur fram á heimasíðu SISU. Körfubolti 17.9.2012 08:27
Leik lokið: Eistland - Ísland 80-58 | 22 stiga tap í lokaleiknum Íslenska körfuboltalandsliðið tapaði með 22 stiga mun fyrir Eistlandi í kvöld, 58-80, í lokaleik sínum í undankeppni EM í körfubolta. Íslenska liðið tapaði níu af tíu leikjum sínum í riðlinum og endaði í næstneðsta sætinu í riðlinum. Körfubolti 11.9.2012 14:16
Peter Öqvist: Elska þetta lið og elska þessa stráka Samningur landsliðsþjálfarans Peter Öqvist rennur út eftir núverandi undankeppni en hann sjálfur er jákvæður fyrir því að halda áfram í þessu starfi. Körfubolti 8.9.2012 18:56
Enginn Kolbeinn gegn Norðmönnum | Gunnar Heiðar valinn í hópinn Kolbeinn Sigþórsson verður ekki með íslenska landsliðinu sem mætir Norðmönnum í undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu á föstudagskvöldið. Fótbolti 2.9.2012 15:53
Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Slóvakía 84-86 | Grátlegt tap Ísland tapaði fyrir Slóvakíu 86-84 í spennandi og skemmtilegum leik í Laugardalshöllinni. Ísland var við það að krækja í framlengingu en boltinn rúllaði upp úr körfunni um leið og lokaflautið gall. Grátlegt tap. Körfubolti 2.9.2012 12:34
Vinna strákarnir fyrsta sigurinn í Höllinni í fjögur ár? Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Slóvakíu í undankeppni EM í körfubolta í Laugardalshöllinni klukkan 15.45 í dag. Íslenska liðið vann 81-75 sigur í fyrri leik þjóðanna í Slóvakíu og því eiga strákarnir góða möguleika á því að landa sínum fyrsta heimasigri í dag. Körfubolti 1.9.2012 23:13
Ísland tapaði með 56 stigum í Serbíu Íslendingar máttu þola stórt tap fyrir Serbíu í undankepppni EM í körfubolta ytra í kvöld. Lokatölur voru 114-58, heimamönnum í vil. Körfubolti 30.8.2012 20:17
Jón Arnór og Hlynur leika báðir sextugasta landsleikinn sinn í Serbíu í kvöld Jón Arnór Stefánsson og Hlynur Bæringsson munu báðir leika 60. A-landsleikinn sinn í kvöld þegar Ísland sækir Serbíu heim í undankeppni Evrópumótsins. Leikurinn fer fram í Cair Sports Center í Nis og hefst klukkan 18.30 að íslenskum tíma. Körfubolti 30.8.2012 10:35
Hlynur frákastahæstur í riðli Íslands - Jón Arnór í 2. sæti í stigum Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í körfubolta, tók flest fráköst í fyrri umferðinni í riðli Íslands í undankeppni Evrópumótsins en seinni umferðin hefst á morgun með leik Íslands á móti Serbum í Nis. Körfubolti 29.8.2012 11:49
Strákarnir fá enn á ný lið í sárum - Ísrael vann Serbíu Íslenska körfuboltalandsliðið mætir Serbíu í Nis á morgun í undankeppni Evrópumótsins í körfubolta en strákarnir hafa tapað þremur síðustu leikjum sínum og unnu aðeins einn af fimm leikjum í fyrri umferð riðilsins. Körfubolti 29.8.2012 11:16
18 þristar á 60 sekúndum - er þetta nýtt heimsmet? Dave Hopla setti að eigin sögn nýtt heimsmet í þriggja stiga körfum á einni mínútu þegar hann setti niður 18 þriggja stiga skot í röð á dögunum. Hopla hefur áður sett svona skotsýningu á svið en hefur aldrei gert betur en þarna. Körfubolti 28.8.2012 15:53
Marcus Walker fékk sér KR-húðflúr á öxlina Marcus Walker ýtir heldur betur undir goðsögnina einu sinni KR-ingur, ávallt KR-ingur. Þessi frábæri bakvörður sem fór á kostum með KR-liðinu veturinn 2010 til 2011 stóð nefnilega við loforð sitt og fékk sér KR-húðflúr á öxlina. Körfubolti 27.8.2012 12:48
Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Eistland 65-87 | Undankeppni EM Ísland steinlá gegn Eistum 67-86 í undakeppni Evrópumeistaramótsins í körfubolta í Laugardalshöllinni í kvöld. Eistar tóku hreðjartak á leiknum strax í fyrsta leikhluta og átti Ísland aldrei möguleika í leiknum. Körfubolti 27.8.2012 11:35
Jakob hitnar ekki fyrr en í seinni hálfleik Jakob Örn Sigurðarson bakvörður íslenska körfuboltalandsliðsins er búinn að skora 14,0 stig að meðaltali í fyrstu fjórum leikjum liðsins í undankeppni EM. Jakob verður í sviðsljósinu í dag þegar strákarnir taka á móti Eistum klukkan 19.15 í Laugardalshöllinni. Körfubolti 27.8.2012 12:04
Þrír íslenskir leikmenn á topp tíu yfir flestar spilaðar mínútur Það hefur verið mikið álag á nokkrum leikmönnum íslenska landsliðsins í körfubolta í undankeppni Evrópumótsins en íslenska liðið leikur sinn fimmta leik í kvöld þegar Eistlendingar mæta í Laugardalshöllina. Leikurinn hefst klukkan 19.15 en bæði lið hafa tapað undanförnum tveimur leikjum og þyrstir því í sigur. Körfubolti 27.8.2012 12:00
Feðgar stjórna öllu hjá eistneska landsliðinu - spila í Höllinni í kvöld Íslenska körfuboltalandsliðið tekur á móti Eistlandi í Laugardalshöllinni klukkan 19.15 í kvöld en þetta er fimmti leikur liðsins af tíu í undankeppni Evrópumótsins. Eftir leikinn í kvöld hefur íslenska landsliðið mætt öllum þjóðunum fimm sem eru með strákunum okkar í riðli. Það vekur athygli að feðgar eru í stóru hlutverki í landsliði Eistlendinga. Körfubolti 27.8.2012 11:57
Strákarnir töpuðu með 18 stigum í Svartfjallalandi Íslenska karlalandsliðið í körfubolta átti aldrei möguleika á móti sterku liði Svartfellinga í Niksic í undankeppni Evrópumótsins í kvöld. Svartfellingar unnu leikinn á endanum með 18 stigum, 85-67 eftir að hafa komist mest 25 stigum yfir í fyrri hálfleiknum. Íslenska liðið hefur þar með tapað tveimur leikjum í röð og þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum í riðlinum. Körfubolti 24.8.2012 20:15
Nú hittu Ísraelsmenn ekkert fyrir utan en rúlluðu samt yfir Slóvaka Ísraelsmenn fylgdu eftir sigri í Laugardalshöllinni með því að rúlla yfir Slóvaka í undankeppni Evrópumótsins í körfubolta í dag. Ísrael vann þá 18 stiga stórsigur, 82-64, en leikið var í Slóvakíu. Körfubolti 24.8.2012 17:46