Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 148 ›
Tímamót hjá fötluðu fólki á Íslandi Alþingi samþykkti í dag fyrstu landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks hér á landi. Áætlunin felur í sér 60 aðgerðir til að koma í framkvæmd ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Landsáætlunin er liður í innleiðingu og lögfestingu samningsins hér á landi. Innlent 20.3.2024 16:55
Rússar segja íslenska málaliða í Úkraínu María Sakaróva, talskona utanríkisráðuneytis Rússlands, segir íslenska málaliða berjast í Úkraínu, sem er ekki rétt. Hún gagnrýnir að Alþingi Íslendinga sé að skoða að festa stuðning við Úkraínu í sessi og að verið væri að endurskoða opinber samskipti Rússlands og Íslands. Erlent 20.3.2024 15:20
Verðbólga enn of mikil til að lækka vexti að mati Seðlabanka Björninn er ekki unninn í baráttunni við verðbólguna þótt samið hafi verið um hóflegar launahækkanir að mati Seðlabankans. Enn þurfi að draga úr þenslu og tryggja að launahækkunum verði ekki velt út í verðlagið. Innlent 20.3.2024 12:03
Naglarnir raðist í líkistu ríkisstjórnarinnar „Þetta er orðið þreytt ástand. Þetta er einhvern veginn eins og Weekend at Bernie´s, þegar þeir drösluðust með lík heila helgi. Ríkisstjórnin er löngu dauð en einhvern veginn skröltir hún áfram,“ dæsir Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi. Hann er að öðru leyti hress og segir hamingjuna eiga heimilisfesti í Flóanum. Innlent 20.3.2024 11:41
Vill festa stuðning við Úkraínu í sessi Utanríkisráðherra kynnti þingsályktunartillögu um stefnu um stuðning við Úkraínu til fimm ára á Alþingi í dag. Markmið stefnunnar er að festa umfangsmikinn stuðning Íslands við Úkraínu í varnarstríði sínu gegn innrásarliði Rússlands í sessi til langframa. Innlent 19.3.2024 23:23
Landsbankinn gæti bakað sér bótaskyldu með því að hætta við Fari svo að Landsbankinn dragi skuldbindandi kauptilboð í allt hlutafé TM trygginga af Kviku banka til baka gæti síðarnefndi bankinn að öllum líkindum krafist skaðabóta. Fjármálaráðherra hefur sagt að kaupin gangi ekki í gegn með hennar samþykki nema söluferli á Landsbankanum hefjist samhliða. Það hefur forsætisráðherra sagt ekki koma til greina á hennar vakt. Innlent 19.3.2024 21:46
Landsbankanum bar að upplýsa Bankasýsluna Landsbankanum bar að upplýsa Bankasýsluna um fyrirætlanir sínar um kaup á TM tryggingum að mati fjármálaráðherra. Það samræmdist ekki stefnu stjórnvalda að bankinn haslaði sér völl í Tryggingarstarfsemi. Innlent 19.3.2024 19:21
Segir ástandsskoðanir NTÍ í Grindavík fúsk Grindvíkingurinn Hilmar Freyr Gunnarsson vill að Alþingi fari yfir framkvæmd ástandsskoðana Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) á húsum í Grindavík. Hann segir framkvæmdina forkastanlega og fúsk. Forstjóri NTÍ segir aðeins um fyrstu matsgerð að ræða og hvetur fólk til að skila inn athugasemdum sé það ósátt. Innlent 19.3.2024 15:56
Frumvarp um sölu á restinni af Íslandsbanka komið fram Frumvarp fjármálaráðherra um sölu á því sem eftir er af eign ríkisins í Íslandsbanka var afgreitt úr ríkisstjórn í morgun. Gert er ráð fyrir því af hlutirnir verði seldir almenningi í tveimur áföngum á þessu ári og næsta. Innlent 19.3.2024 13:56
Vill samskipti Þórdísar við Bankasýsluna upp á borð Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, furðar sig á því að Bankasýsla ríkisins og fjármálaráðherra hafi ekki brugðist við orðrómi um að Landsbankinn hygðist kaupa TM. Viðskipti innlent 19.3.2024 12:49
Ekki í stjórnarsáttmála að ríkisvæða tryggingafélög Fjármálaráðherra segir það ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar að selja hlut í Landsbankanum fyrr en sölu á Íslandsbanka verði lokið. Það samræmdist heldur ekki eigendastefnu stjórnvalda að Landsbankinn haslaði sér völl í tryggingastarfsemi. Viðskipti innlent 19.3.2024 12:36
Heimilisuppbót – áskorun til ráðherra ÖBÍ réttindasamtök hafa skorað á félags- og vinnumarkaðsráðherra að bregðast við fordæmisgefandi dómi Hæstaréttar frá því fyrr í mánuðinum sem sneri að afgreiðslu umsókna um heimilisuppbót. Dómurinn var kveðinn upp þann 6. mars og sendi ÖBÍ áskorun til ráðherra í kjölfarið. Skoðun 19.3.2024 12:02
Bein útsending: Málþing um framtíð rammaáætlunar Málþing um framtíð rammaáætlunar fer fram í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Málþingið hefst klukkan níu og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi að neðan. Innlent 19.3.2024 08:21
„Þetta er að verða komið gott“ Formenn Miðflokksins og Samfylkingarinnar eru sammála um að fyrirhuguð sala ríkisins á Landsbankanum fari gegn eigandastefnu ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin tali í kross og málið beri þess merki að hún sé ekki sammála um grundvallaratriði. Innlent 18.3.2024 22:48
Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin Forstjóri Bankasýslu ríkisins segir að stofnuninni hafi verið alls ókunnugt um kaup Landsbankans á öllu hlutafé í TM tryggingum. Landsbankinn haldi því fram að upplýst hafi verið um áhuga bankans á kaupunum í óformlegu símtali til stjórnarformanns Bankasýslunnar. Innlent 18.3.2024 22:28
Bankastjóri segir það hennar hlutverk að reka Landsbankann Bankastjóri Landsbankans segist hlusta á fjármálaráðherra vegna fyrirhugaðra kaupa bankans á TM tryggingum. Það sé hins vegar hennar hlutverk að reka bankann og auka verðmæti hans. Innlent 18.3.2024 19:20
Tekur ekki þátt í að selja hlut í Landsbankanum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ljóst að hún muni ekki taka þátt í því að selja hlut ríkisins í Landsbankanum. Þetta sagði Katrín í svari við fyrirspurn Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. Innlent 18.3.2024 16:22
Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Bankastjóri Landsbankans segir bankann ekki vera ríkisfyrirtæki heldur almenningshlutafélag nær eingöngu í eigu ríkisins. Bankinn muni halda áfram ferlinu við kaup á TM tryggingum þrátt fyrir andstöðu fjármálaráðherra. Viðskipti innlent 18.3.2024 13:09
Ráðherra sem fer þvert á vilja Alþingis Síðastliðinn febrúar ásakaði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra þingmenn Flokks fólksins um að beita aðferðum sem hann kallaði „popúlisma“. Skoðun 18.3.2024 07:01
„Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fjármálaráðherra lýsir óánægju sinni með fyrirhuguð kaup Landsbankans á tryggingafélaginu TM. Hún segir að ríkisfyrirtæki eigi ekki að kaupa tryggingafélög og að viðskiptin verði ekki samþykkt af henni, nema söluferli Landsbankans hefjist samhliða. Viðskipti innlent 17.3.2024 22:10
„Áframhaldandi áfall fyrir alla Grindvíkinga“ Forsætisráðherra segist ekki ætla að fagna neinu fyrr en ljóst sé hvernig atburðarrásinni í yfirstandandi eldgosi vindi fram. Erfitt sé að horfa upp á atburðinn sem sé enn eitt áfallið fyrir Grindvíkinga. Innlent 17.3.2024 13:39
Forsætisráðherra lét bændur heyra það Forsætisráðherra sá ástæðu til að skamma íslenska bændur við setningu Búnaðarþings þar sem hún gerði alvarlegar athugasemdir við merkingar eða réttara sagt engar merkingar á íslenskum landbúnaðarafurðum. Innlent 16.3.2024 13:31
„Það þýðir ekkert annað en banka upp á hjá erlendum stórfyrirtækjum“ Menningar- og viðskiptaráðuneytið kynnti á fimmtudag áætlun um íslenska máltækni sem undirstrikar mikilvægi þess að tryggja stafræna framtíð tungumálsins. Áætlunin, sem telur fram sjö afmarkaðar tillögur og kjarnaverkefni, byggir á fyrri máltækniáætlun ráðuneytisins. Innlent 16.3.2024 08:00
Ríkiskaup lögð niður og verkefnin flutt til Fjársýslunnar Leggja á niður Ríkiskaup og færa verkefni stofnunarinnar ýmist til sérstakrar starfseiningar eða ríkisaðila sem starfar á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Breytingin er liður í innleiðingu á breytingum á lögum um opinber innkaup. Viðskipti innlent 15.3.2024 15:07
Leggur til að listamannalaun verði margfölduð Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra hefur lagt í samráðsgátt drög að frumvarpi sem felur í sér að stóraukið framlag ríkisins til listamannalauna. Innlent 15.3.2024 10:04
Engin svör Manni sýnist að þrátt fyrir að skrifað hafi verið undir kjarasamninga, með aðkomu sveitarfélaga og 80 milljarða meðgjöf frá ríkisvaldinu, að þá standi þetta allt frekar tæpt. Atburðarásin er ekki sannfærandi, satt best að segja. Sem er miður því kjarasamningar til langs tíma eru nauðsynlegir. Það er ljóst eftir útspil Sjálfstæðisflokksins á sveitastjórnarstiginu að lítil sátt er um skólamáltíðir, sem þó er partur af samkomulaginu. Skoðun 15.3.2024 08:02
Sjálfstæðismenn segja ríkisstjórn og stéttarfélög ráðskast með sveitarfélögin Oddvitar Sjálfstæðisflokksins segja að ráðskast hafi verið með sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga í tengslum við nýgerða kjarasamninga. Formaður Sambands sveitarfélaga hafi ekki komið andstöðu þeirra við gjaldfrjálsar skólamáltíðir skýrt á framfæri við stjórnvöld og aðila vinnumarkaðarins. Innlent 14.3.2024 19:20
Leggur til að ríkið hætti að ganga á eftir ábyrgðarmönnum námslána Ekki verður lengur gengið á eftir ábyrgðarmönnum námslána til innheimtu skuldar ef nýtt frumvarp háskólaráðherra nær fram að ganga. Ráðherra segir sanngjarnt að lántakandinn sjálfur beri ábyrgð á sínum skuldum og vill afnema ábyrgðarmannakerfið í heild sinni. Innlent 14.3.2024 18:31
Í skýjunum með 111 milljarða króna útboðið Ríkissjóður Íslands gaf í dag út grænt skuldabréf að fjárhæð 750 milljónir evra, jafnvirði um 111 milljarða króna. Skuldabréfin bera 3,5% fasta vexti og voru gefin út til 10 ára á ávöxtunarkröfunni 3,636%. Skuldabréfin eru gefin út undir sjálfbærum fjármögnunarramma ríkissjóðs. Viðskipti innlent 14.3.2024 16:38
Katrín noti mögulega orðróm um forsetaframboð í pólitískri skák Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gæti verið að nota umræðu um mögulegt forsetaframboð sitt til að styrkja pólitíska stöðu sína. Þessari tilgátu vörpuðu bæði Einar Bárðarson, umboðsmaður Íslands, og Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar og fyrrverandi forsetaframboðsstýra, í Pallborðinu á Vísi í dag. Innlent 14.3.2024 15:30