Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)
62 63 64 65 66 67 68 69 70 … 148 ›
Kallar eftir neyðarlögum um leigufélög og myndarlegri aðkomu ríkisins Formaður VR segir að það muni líklega ekki taka lengri tíma en daginn í dag til að meta hvort flötur sé á samningi við Samtök atvinnulífsins. Hann segir gríðarlega mikilvægt að ríkisstjórnin liðki fyrir viðræðum og helst með neyðarlögum um leigufélög. Staða til dæmis leigjenda og fólks með húsnæðislán með breytilegum vöxtum sé alvarlegri en svo að kjarasamningar einir og sér dugi til. Innlent 7.12.2022 13:27
Kerfi sem eigi að byggja á samhjálp og samtryggingu standi ekki undir nafni Varaformaður velferðarnefndar segir stöðu sjúkratrygginga birtingamynd þess að heilbrigðiskerfið standi ekki undir nafni. Kerfið hafi verið fjársvelt um árabil. Í skýrslu forstjóra stofnunarinnar um stöðuna kemur fram að þó að verkefni hennar hafi aukist margfalt síðustu ár hafi framlög til hennar dregist saman um tugi milljóna miðað við fast verðlag. Innlent 7.12.2022 13:02
Forsætisráðherra birtir ítarlega skýrslu um horfur í þjóðaröryggismálum Forsætisráðherra hefur skilað skýrslu um mat þjóðaröryggisráðs á ástandi og horfum í þjóðaröryggismálum. Skýrslan er löng og yfirgripsmikil og ljóst að verkefnin framundan eru mörg, ekki síst í ljósi stöðu öryggismála í Evrópu. Innlent 7.12.2022 08:04
Ekki tímabært að ræða frekari styttingu Ekki er tímabært að ræða frekari styttingu á vinnuvikunni líkt og verkalýðshreyfingin kallar eftir, að mati fjármálaráðherra. Hann segir útfærsluna hafa verið áskorun. Innlent 6.12.2022 19:20
Fagnar samningi SGS og vonar að hann ryðji brautina fyrir aðra Aðgerðir til að liðka fyrir kjaraviðræðum sem snúa að barnabótum og húsnæðismálum eru til umræðu í þjóðhagsráði að sögn fjármálaráðherra. Hann kveðst ánægður með nýgerðan samning Starfsgreinasambandsins. Innlent 6.12.2022 15:24
Jólakveðja matvælaráðherra Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra ritaði grein í síðasta Bændablað undir fyrirsögninni „Bjartsýni í sauðfjárrækt“. Greinin skildi eftir fleiri spurningar en hún svaraði hjá undirrituðum og fleirum sbr. nýlega skoðanagrein Þuríðar Lillý Sigurðardóttur (Vonbrigði fyrir starfstétt sauðfjárbænda). Skoðun 6.12.2022 14:00
Fjármálaráðherra hafði ekki „nokkra ástæðu“ til að íhuga hæfi sitt Ríkisendurskoðandi sagði að hann hafi ekki komið auga á atvik þar sem fjármálaráðherra hafi haft „nokkra ástæðu“ til að velta fyrir sér hæfi sínu við sölu á Íslandsbanka. Fjármálaráðherra hafi ekki fengið slíkar upplýsingar á borð til sín. Hefði Ríkisendurskoðun orðið þess áskynja í framkvæmdinni hefði verið vakin athygli á því í skýrslu um söluna. „Það skýrir hvers vegna við fórum ekki dýpra ofan í þá sálma [í skýrslunni],“ sagði ríkisendurskoðandi. Innherji 6.12.2022 13:31
Leggja til að þrettán milljarðar króna fari í kjarabætur Formaður Samfylkingarinnar kynnti í dag kjarapakka þar sem lagt er til að fallið verði fá gjaldahækkunum ríkisstjórnarinnar og að fjármagnstekjuskattur verði hækkaður. Þá er meðal annars lagt til að húsnæðisbætur til leigjenda, vaxtabætur til millitekjufólks, og barnabætur verði hækkaðar. Þrettán milljarðar fari alls í kjarabætur og mótvægisaðgerðir skili sautján milljörðum. Innlent 6.12.2022 13:30
Skýr skref í þágu löggæslunnar Við höfum öll orðin vör við aukna hörku og breyttar aðstæður í glæpastarfsemi á Íslandi. Síðustu vikur hafa fregnir af hrottalegum árásum og auknum umsvifum glæpasamtaka verið daglegt brauð. Lögreglan gerir allt sem hún getur með þann mannafla og þá tækni sem hún hefur í höndum sér, en þó sjáum við íbúa óttaslegna við þróun skipulagðrar glæpastarfsemi hér á landi. Skoðun 6.12.2022 11:30
Framlögin tveir milljarðar króna Heilbrigðisráðherra segir framlög til Sjúkratrygginga Íslands hafa aukist á sama tíma og stofnunin hafi aukist að umfangi. Forstjóri Sjúkratrygginga hefur sagt störfum upp þar sem hann telur sig ekki geta borið ábyrgð á rekstri stofnunarinnar vegna vanfjármögunar. Innlent 5.12.2022 20:00
Bein útsending: Gott að eldast – Aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra og Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra standa fyrir opnum kynningarfundi þar sem kynnt verða drög að aðgerðaáætlun til fjögurra ára um heildarendurskoðun þjónustu við eldra fólk. Innlent 5.12.2022 10:36
Segir útboðið á Íslandsbanka eitt það farsælasta í sögunni Stjórnarformaður Bankasýslunnar segir að umdeilt útboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka, þar sem aðeins fagfjárfestar fengu að taka þátt, hafi raunar jafnvel verið betur heppnað en fyrra útboðið, sem var alveg opið. Hann segir ekki laust við að stjórnmálamönnum hafi þótt ágætt að benda á einhvern annan en sjálfan sig eftir að salan komst í hámæli. Viðskipti innlent 4.12.2022 11:55
„Fagnaðarefni að Starfsgreinasambandið hafi brotið ísinn með þessum hætti“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir stjórnvöld eiga í samræðum varðandi það hvað þau geti lagt af mörkum í kjaraviðræðum. Hún segist vonast til þess að fleiri félög fylgi í kjölfarið nú þegar ísinn hefur verið brotinn. Innlent 3.12.2022 19:41
Aukið aðgengi fatlaðs fólks Í dag höldum við hátíðlegan alþjóðlegan dag fatlaðs fólks sem ætlað er að stuðla að aukinni þekkingu og skilningi á málefnum fatlaðs fólks. Í ár er sérstök áhersla á hlutverk nýsköpunar við að ýta undir aðgengilegan og sanngjarnan heim. Skoðun 3.12.2022 07:00
Aukin heimild til eftirlits nái frumvarpið fram að ganga Nýtt frumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um breytingar á lögreglulögum felur í sér að lögregla fái heimild til að viðhafa sérstakt eftirlit með einstaklingum sem hafa tengsl við skipulagða brotastarfsemi, án þess þó að þeir séu grunaðir um afbrot. Frumvarpið felur einnig í sér að eftirlit með störfum lögreglu verður eflt frá núverandi mynd. Innlent 2.12.2022 14:44
VG gerir fyrirvara við frumvarp Jóns um lögregluna Þingflokkur VG hefur afgreitt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögreglulögum og sent það til þinglegrar meðferðar. Þingflokkurinn gerði nokkra fyrirvara við frumvarpið, til dæmis hvað varðar heimildir lögreglu til að hafa eftirlit með borgurum. Innlent 1.12.2022 13:00
Mikilvægt að ná samningum sem fyrst Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að ná samningum við sérgreinalækna sem fyrst en sumir þeirra hafa hækkað verðskrár sínar vegna skorts á samningum við Sjúkratryggingar Íslands. Það sé vont að vita til þess að það eigi að rukka allt að tvö hundruð þúsund krónur fyrir aðgerðir sem áður kostuðu mun minna. Innlent 30.11.2022 21:00
Samningur og samvinna um meðferð við endómetríósu Aðgangur að heilbrigðisþjónustu er réttlætismál og áherslumál ríkisstjórnarinnar. Það er mikilvægt að allir hafi jafnt aðgengi að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni. Aðgengi sé óháð kyni, stöðu, bakgrunni, efnahag og búsetu. Bið eftir heilbrigðisþjónustu eða skert aðgengi getur verið dýrkeypt einstaklingnum og samfélaginu. Skoðun 30.11.2022 16:31
Katrín og Lilja þráspurðar um ábyrgð og mögulegt vanhæfi Bjarna Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra varði miklum hluta fyrirspurnatíma á fundi með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í að svara fyrir möguleg afglöp Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Innlent 30.11.2022 11:13
Bein útsending: Katrín og Lilja mæta á fund nefndar vegna Íslandsbankasölunnar Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis heldur opinn fund í dag vegna skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Forsætisráðherra og viðskiptaráðherrra munu þar svara spurningum nefndarmanna. Innlent 30.11.2022 08:31
Reynt til þrautar að ná samningum á næstu dögum Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að samningar við fjölmennustu stéttarfélögin hljóti að verða leiðandi í samningum við aðra um skammtíma kjarasamning. Hann og margir forystumanna verkalýðshreyfingarinnar stefna á að ljúka samningum fyrir mánaðamót en ekki er eining um að það geti tekist. Innlent 29.11.2022 20:01
Stefnt á nýjan kjarasamning fyrir mánaðamót Forystumenn Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins stefna að því að nýjum skammtímakjarasamningi verði lokið fyrir mánaðamót. Formaður VR, sem sleit viðræðum fyrir helgi, er ekki jafn bjartsýnn og telur tilboð Eflingar frá í morgun eðlilegt í ljósi stöðunnar. Innlent 29.11.2022 12:17
Þrjátíu milljónir til verslana í dreifbýli Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur staðfest tillögur sérstakrar valnefndar sem fela í sér að þrjátíu milljónum króna verði úthlutað til verslunar í dreifbýli fyrir árin 2022 og 2023. Samningar vegna styrkjanna verða undirritaðir á næstu dögum. Viðskipti innlent 29.11.2022 11:14
Gerir stjórnvöldum kleift að stíga mjög ákveðin skref Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að aukin framlög til löggæslu- og fangelsismála sem gert sé ráð fyrir í breytingartillögum fjármálaráðherra við fjárlög muni gera mönnum kleift að stíga mjög ákveðin skref í rannsóknum og greiningum á skipulagðri glæpastarfsemi. Innlent 29.11.2022 11:03
Hælisleitendur fá tíu þúsund króna desemberuppbót Ríkisstjórnin samþykkti að greiða umsækjendum um alþjóðlega vernd viðbótargreiðslur í desember líkt og fyrri ár. Þær nema tíu þúsund krónum til fullorðinna og fimm þúsund krónum fyrir börn til viðbótar við fastar framfærslugreiðslur. Innlent 29.11.2022 10:09
Stjórnvöld fíflast með framtíð fiskeldis Í umræðu liðinna daga hefur nokkuð verið rætt um gjaldtöku af fiskeldi. Tilefnið er fyrst og fremst boðuð áform núverandi ríkisstjórnar um nærri tvöföldun á auðlindagjaldi vegna fiskeldis, sem innheimt er af þeim sem hafa leyfi til sjókvíaeldis við Ísland. Skoðun 29.11.2022 10:01
Enn ekki búið að ráða í stöðu forstöðumanns Listasafns Íslands „Mínir félagsmenn eiga ekki til orð. Ég heyri mikla gagnrýni vegna þessa langa ráðningarferlis,“ segir Anna Eyjólfsdóttir, formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna, um urg vegna þess hve lengi hefur tekið að ráða í stöðu forstöðumanns Listasafns Íslands. Innlent 29.11.2022 07:09
Ráðherra leggur til 37 milljarða heildarhækkun fjárframlaga Framlög til ýmissa málaflokka hækka um 37 milljarða króna ef tillögur ríkisstjórnarinnar um breytingar á fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2023 verða að veruleika. Fjármála- og efnahagsráðherra kynnti tillögurnar fyrir fjárlaganefnd í gær. Innlent 29.11.2022 06:52
Æskuheimili Ólafs Ragnars nýtt til ræktunar alþjóðlegs fræðanets Alþjóðlegu fræðaneti var ýtt úr vör á fyrsta málþingi stofnunar Ólafs Ragnars Grímssonar á Ísafirði í dag. Innlendir og erlendir fræðimenn geta starfað á æskuheimili forsetans fyrrverandi í bænum í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða og háskólanna í Reykjavík og á Akureyri. Innlent 28.11.2022 19:36
Leggur til tvö hundruð króna gjald á hvern farþega til að byggja upp varaflugvelli Lagt verður varaflugvallagjald sem nemur 200 krónum á hvern farþega ef frumvarp innviðaráðherra sem lagt var fram í samráðsgátt stjórnvalda í dag nær fram að ganga. Sé miðað við sex milljón farþega gætu tekjur ríkissjóðs orðið allt að einn og hálfur milljarður króna. Isavia og Icelandair hafa mótmælt gjaldtökunni. Innlent 28.11.2022 15:00