Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
205 206 207 208 209 210 211 212 213 … 334 ›
Eitt boð ber tölurnar uppi Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að stóran hluta dreifingar Covid-19 sem greinst hefur að undanförnu megi rekja til eins fjölskylduboðs. Hann segir tölurnar í dag svipaðar og í gær en þó hafi fleiri verið í sóttkví við greiningu. Það gæti verið til marks um línulegan vöxt. Innlent 28.11.2020 11:45
Vísbendingar um smit í samfélaginu sem ekki er búið að finna Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir að þar á bæ hafi menn miklar áhyggjur af stöðunni vegna faraldurs Covid-19 hér á landi. Sérstaklega af því hve margir eru að greinast smitaðir utan sóttkvíar. Innlent 28.11.2020 11:10
21 greindist með Covid-19 innanlands í gær 21 greindist með covid-19 innanlands í gær. Þá greindust tveir með virkt smit við skimun á landamærum. Af þeim sem greindust innanlands var yfir helmingur í sóttkví eða 13 af 21. Alls eru nú 193 í einangrun með covid-19 hér á landi og 618 eru í sóttkví. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Innlent 28.11.2020 11:00
Írar boða umfangsmiklar tilslakanir í næstu viku Írsk stjórnvöld hafa ákveðið að draga verulega úr aðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins. Frá og með þriðjudegi í næstu viku má opna verslanir á nýjan leik, sem og hárgreiðslustofur, söfn og bókasöfn svo fátt eitt sé nefnt. Erlent 28.11.2020 10:13
Einn smitaður og tuttugu í sóttkví á Vestfjörðum Einstaklingur frá Vestfjörðum sem ferðaðist til höfuðborgarsvæðisins í síðustu viku hefur reynst smitaður af Covid-19. Sá fór aftur heim og eru nú tuttugu komnir í sóttkví vegna málsins. Flestir þeirra á norðanverðum Vestfjörðum en sex sunnan Dýrafjarðarganga. Innlent 28.11.2020 10:02
Þriðjungur greindra smita í þriðju bylgju tengist þremur hópsýkingum Um 2.900 manns hafa greinst smitaðir í þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins. Þriðjung smitanna má rekja til þriggja stórra hópsýkinga á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 28.11.2020 07:00
„Fullt af veiru þarna úti“ og mörg smit órakin Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir stöðuna núna líklegast tengjast samkomum síðustu helgar. Fólk sé byrjað að slaka á í ljósi jákvæðra frétta af bóluefnaþróun og reyni að halda í jólahefðirnar, þrátt fyrir að það sé ekki ráðlegt. Innlent 27.11.2020 23:00
Þórólfur búinn að greiða árgjaldið í World Class Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir tilgátur Björns Leifssonar, eiganda World Class, um að hann hafi fóbíu fyrir líkamsræktarstöðvum vera fjarri lagi. Hann hafi verið viðskiptavinur World Class í mörg ár og sé búinn að greiða árgjaldið í ár, þó hann hafi ekkert æft vegna faraldursins. Innlent 27.11.2020 18:42
Fimm fámennir hópar í forgangi í bólusetningu Tíu hópar eru í forgangi þegar kemur að bólusetningu við Covid-19 hér á landi. Ekki er gert ráð fyrir því að börn fædd eftir árið 2006 verði bólusett. Af forgangshópunum tíu eru fimm fámennir hópar sem innihalda um tuttugu þúsund einstaklinga í framlínu í baráttu við sjúkdóminn. Innlent 27.11.2020 18:26
Krefjast þess að minkarnir verði grafnir upp Þingmenn stjórnarandstöðunnar í Danmörku hafa kallað eftir því að milljónir minka, sem aflífaðir voru eftir að stökkbreytt afbrigði kórónuveirunnar fannst í þeim, verði grafnir upp og færðir annað. Erlent 27.11.2020 18:03
„Þetta lítur bara ekki vel út, því miður“ Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segist hafa miklar áhyggjur af stöðu kórónuveirufaraldursins hér á landi í dag. Hún reiknar með að helgin fari í að ákveða hvort einhverjar breytingar verði gerðar á sóttvarnaraðgerðum þann 2. desember. Innlent 27.11.2020 13:51
Flogið til Boston minnst tvisvar í viku út árið Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur framlengt samning sinn við Icelandair sem ætlað er að tryggja lágmarksflug til Bandaríkjanna út árið. Viðskipti innlent 27.11.2020 13:01
Kim sagður reiður og óskynsamur Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, er sagður vera reiður þessa dagana og hafa tekið óskynsamar ákvarðanir. Hann er sagður undir miklum þrýstingi vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar og versnandi stöðu hagkerfis landsins. Erlent 27.11.2020 12:53
Hefur áhyggjur af veldisvexti og skilar hugsanlega nýjum tillögum til ráðherra Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur miklar áhyggjur af þróun kórónuveirufaraldursins og þeim fjölda sem greinst hefur með veiruna innanlands undanfarna daga. Tuttugu greindust í gær og voru ellefu utan sóttkvíar. Ellefu greindust innanlands í fyrradag og voru átta af þeim ekki í sóttkví. Innlent 27.11.2020 11:40
Bein útsending: Fjallað um líðan ungmenna á tímum Covid-19 Bein útsending frá hádegisfyrirlestri Háskólans í Reykjavík þar sem Þórhiildur Halldórsdóttir, lektir við sálfræðideild skólans, segir frá rannsókn um áhrif faraldursins á líðan ungmenna. Innlent 27.11.2020 11:00
Tuttugu greindust innanlands og af þeim voru ellefu ekki í sóttkví Tuttugu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Ekki hafa jafnmörg smit greinst á einum sólarhring innanlands síðan 10. nóvember. Af þeim tuttugu sem greindust voru níu í sóttkví, en ellefu ekki. Innlent 27.11.2020 11:00
Segist hafa tekið eins milljarðs króna lán Eigandi World Class liggur undir feldi og veltir fyrir sér hvort rétt sé að segja upp 350 manns á mánudaginn. Hann segist hafa tekið eins milljarðs króna lán vegna kórónuveirufaraldursins. Ef hann ætti ekki flestar fasteignirnar sem stöðvar World Class eru reknar í, þá væri hann kominn á hausinn. Viðskipti innlent 27.11.2020 10:38
Kári segir 20 hafa greinst í gær en nýr stofn sé ekki sjáanlegur Tuttugu greindust með kórónuveiruna í gær. 18 hjá Íslenskri erfðagreiningu og 2 hjá Sýkla- og veirufræðideild Háskóla Íslands. Þetta segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar í samtali við fréttastofu. Innlent 27.11.2020 10:09
62 nemendur og fjórtán starfsmenn í Öldutúnsskóla í sóttkví Alls eru 62 nemendur og fjórtán starfsmenn Öldutúnsskóla í Hafnarfirði í sóttkví eftir að kórónuveirusmit kom upp í skólanum. Innlent 27.11.2020 10:05
Eru engin takmörk fyrir réttindaskerðingum? Á tímum sem þessum er mikilvægt að valdhafar gangi ekki of hart fram gagnvart borgaranum og gæti meðalhófs í sóttvarnaaðgerðum, þar sem afleiðingar þeirra til lengri tíma eru óljósar. Skoðun 27.11.2020 08:30
Gangið hægt um efasemdanna dyr! Það fer ekki fram hjá neinum að veirufaraldur hefur staðið yfir og að mestu leyti einkennt það ár sem nú líður. Gagnrýni í garð sóttvarnaraðgerða hérlendis hefur færst í aukana upp á síðkastið. Skoðun 27.11.2020 07:00
Allt lið GOG í sóttkví | Viktor Gísli þar á meðal Viktor Gísli Hallgrímsson – leikmaður GOG í dönsku úrvalsdeildinni og markvörður íslenska landsliðsins í handbolta – er nú farinn í sóttkví líkt og allir liðsfélagar sínir. Handbolti 26.11.2020 23:15
Fara þurfi varlega næstu vikur svo jólin verði ekki undirlögð samfélagssmiti Mikilvægt er að samfélagið vari varlega næstu þrjár vikurnar svo að vikan í kringum jól verði ekki undirlögð af samfélagssmitum, að því að er fram kemur í niðurlagi nýrrar rýni hóps vísindamanna sem stendur að spálíkani um þróun kórónuveirufaraldursins á Íslandi. Innlent 26.11.2020 23:36
„Þessum pistli er ætlað að vera hvatningarpistill til karla“ Andrea er félagsfræðingur og lektor við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Hún ásamt samstarfskonu sinni Valgerði S. Bjarnadóttir, nýdoktor við Háskóla Íslands hefur að undanförnu verið að vinna að rannsókn á breytingum á heimilislífi á tímum Covid-19 sérstaklega hvað varðar áhrif samkomutakmarkana á fjölskyldulíf og verkaskiptingu. Makamál 26.11.2020 21:28
Saklaust kaffiboð hjá ömmu sendi nokkra í einangrun Nokkrir hafa þurft í einangrun með kórónuveirusmit eftir kaffiboð innan fjölskyldu um síðustu helgi. Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir þetta sýna vel hversu lítið þurfi til að smitum fari fjölgandi. Innlent 26.11.2020 20:27
Dohop fær innspýtingu á besta tíma í faraldrinum Íslenska ferðatæknifyrirtækið Dohop hefur fengið breskan fjárfestingarsjóð til liðs við sig með rúmlega milljarð króna. Fjárfestingin kemur á besta tíma enda hafa tekjur Dohop hrapað með miklum samdrætti í alþjóðlegu flugi undanfarna mánuði. Viðskipti innlent 26.11.2020 19:21
Fordæmir að fátækir þurfi að híma í biðröðum eftir mat Samhæfingarstjóri samtaka fólks í fátækt segir niðurlægjandi að þurfa að bíða í röð eftir aðstoð hjálparsamtaka og óskar eftir að fyrirkomulaginu verði breytt. Fjórfalt fleiri glími við fátækt nú en í upphafi árs. Meiri örvænting einkenni þá sem nái ekki endum saman. Innlent 26.11.2020 20:23
Segir ekkert samræmi í fjöldatakmörkun í verslunum Forstjóri Olís kallar eftir fyrirsjáanleika í sóttvarnaraðgerðum og óskar eftir opnu samtali við stjórnvöld. Jafnvel þótt atvinnulífið hafi hagsmuna að gæta búi verslunarfólk yfir reynslu af beitingu aðgerða. Innlent 26.11.2020 18:31
Ekki fleiri smit innan konungsfjölskyldunnar Karl Gústaf Svíakonungur, Silvía drottning, Viktoría krónprinsessa og Daníel prins eru ekki smituð af kórónuveirunni. Erlent 26.11.2020 18:05
Segir Kringluna öruggan stað til að heimsækja Framkvæmdastjóri Kringlunnar segir Kringluna öruggan stað til að heimsækja en minnir á mikilvægi sóttvarna. Engin smit hafi komið upp nýlega í verslunum eða veitingastöðum Kringlunnar. Viðskipti innlent 26.11.2020 16:21