Innlent Bendir á rétt útlendinga Fyrirtæki á Akranesi hafa fengið bréf frá lögreglunni í bænum þar sem hún áréttar lög um skyldur þeirra gagnvart erlendum starfsmönnum frá Evrópska efnahagssvæðinu. Innlent 20.7.2006 21:48 Bæjarstjóri í Fjallabyggð Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum í vikunni að ráða Þóri Kristin Þórisson í starf bæjarstjóra. Fjallabyggð varð til við sameiningu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar nú í vor og er Þórir fyrsti bæjarstjóri hins nýja sveitafélags. Innlent 20.7.2006 21:48 Upptökin voru sígarettuglóð Tæpur hektari lands á Gára í landi Landgræðslunnar í Rangárvallasýslu varð eldi að bráð í gær. Þakka má snarræði starfsmanna Landgræðslunnar í Gunnarsholti að ekki fór miklu verr þar sem tæpir þrjú þúsund hektarar af þurrum gróðri, sem er gömul uppgræðsla er þarna í kring og hefði hæglega getað orðið eldinum að bráð. Innlent 20.7.2006 21:49 Áningarstaður í alfaraleið Um helgina var skógræktarsvæði í Tröð á Hellissandi opnað undir merkjum „opins skógar“ skógræktarfélaganna. Tröð er áttundi opni skógurinn á landinu en stefnt er að því að opna um þrjátíu slík svæði um landið allt. „Markmiðið með verkefninu er að skógurinn sé í alfaraleið svo fólk getið áð og notið smá kyrrðar frá erli umferðarinnar,“ segir Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands. Innlent 20.7.2006 21:48 Viðræður báru ekki ávöxt Flugmálastjórn Íslands hefur sent frá sér tilkynningu þar sem breytingar á vaktakerfi flugumferðarstjóra eru útskýrðar og varðar. Í tilkynningunni kemur fram að viðræður um breytingar á vaktakerfi hafi staðið yfir milli Flugmálastjórnar og Félags íslenskra flugumferðarstjóra frá árinu 1999. Innlent 20.7.2006 21:48 Nýr bæjarstjóri í Fjarðabyggð Helga Jónsdóttir borgarritari var ráðin í embætti bæjarstjóra Fjarðabyggðar í gær til næstu fjögurra ára. Tuttugu sóttust eftir starfinu en allir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögu bæjarráðs um að bjóða Helgu embættið. Innlent 20.7.2006 21:48 Hrygning misfórst í fyrra Magn seiða sandsílastofns er minna nú en árið 1998 þegar ástand stofnsins var kannað. Mjög lítið sást af eins árs gömlum sílum, sem bendir til þess að hrygning hafi misfarist í fyrra. Ekki er þó hægt að segja til um endurnýjun þessa árs fyrr en á næsta ári. Innlent 20.7.2006 21:48 Vilja minnka ál í flugvélum Boeing-flugvélaframleiðandinn tilkynnti í gær að fyrirtækið hygðist skipta út 737 flugvélum sínum fyrir nýrri vélar af gerðinni 787-Dreamliner. Þær vélar eru að miklu leyti gerðar úr samsettum kolefnum en ekki áli eins og tíðkast. Efnin eru léttari en ál og þurfa vélarnar því minni orku. Innlent 20.7.2006 21:49 Fallist á kaup á Radíómiðun Innlent 20.7.2006 21:49 Fluttur fársjúkur til Íslands Jonathan Motzfeldt, formaður grænlenska landsþingsins, var fluttur alvarlega veikur frá Grænlandi á gjörgæsludeild Landspítalans í gær. Grænlenskir fjölmiðlar greina frá því að hann hafi veikst eftir að hafa neytt kæsts selspiks er hann dvaldi í heimabæ sínum Qaqortoq. Hann var fyrst fluttur með þyrlu til Narsarsuaq og þaðan til Nuuk. Læknar þar ákváðu að senda hann til Íslands. Innlent 20.7.2006 21:48 Beit lögregluþjón í höndina Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að bíta lögregluþjón. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær og þar sem játning mannsins lá fyrir var hann dæmdur strax. Innlent 20.7.2006 21:49 Talsvert um skemmdarverk Nokkuð var um skemmdarverk í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í síðustu viku. Á föstudag voru unnar skemmdir á gulum Renault á Selfossi. Aðfaranótt laugardags var brotin rúða í Chevrolet í Þorlákshöfn, gler í biðskýli við Sunnulækjarskóla og rúða á gæsluvelli á Selfossi. Innlent 20.7.2006 21:48 Grímur Atlason nýr bæjarstjóri Innlent 20.7.2006 21:48 Vísaði kæru Ríkislögreglustjóra frá Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála vísaði máli Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínunnar gegn Póst- og fjarskiptastofnun frá í gær. Kærendur fóru í mál þar sem það er vandkvæðum bundið að staðsetja símtöl í netsímaþjónustu. Innlent 20.7.2006 21:49 Alþjóðahúsið í hvalaskoðunarferð Alþjóðahúsið bauð innflytjendum og öðrum sem sækja samtökin í hvalaskoðunarferð í kvöld. Met aðsókn var í ferðina og streymdi fólk niður á Reykjavíkurhöfn. Innlent 20.7.2006 22:52 Leggjast yfir gögn Ríkiskaupa Stjórnendur Atlantsolíu fengu í dag afhent gögn um samning sem Ríkiskaup gerðu við Skeljung og ESSO um kaup á eldsneyti og olíu fyrir ríkið. Forstjóri Ríkiskaupa vonar að það verði ekki til að veikja samkeppnisstöðu annarra olíufélaga í útboði í haust, þótt hann hafi neyðst til að láta pappírana af hendi. Innlent 20.7.2006 18:54 Jarðgöng mikilvæg á Vestfjörðum Engin aðgerð kemur vestfirskum byggðum jafnmikið til góða og jarðgangagerð milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, að mati íbúa á Vestfjörðum. Innlent 20.7.2006 19:31 Flokksbræður deila um greiðslur Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir nágrannasveitarfélög Reykjavíkur hafa svikist um að greiða til Strætós í samræmi við launahækkanir vegna nýs kjarasamnings. Flokksbróðir hans, bæjarstjórinn í Hafnarfirði, segir þetta með öllu rangt. Ráðist verður í stjórnsýsluúttekt á félaginu. Innlent 20.7.2006 18:48 Leikskólagjöld lækka í haust Leikskólagjöld í Reykjavík snarlækka í haust og systkinaafsláttur verður hækkaður, rétt eins og meirihlutinn lofaði í kosningabaráttunni. Innlent 20.7.2006 18:27 Helga Jónsdóttir ráðin bæjarstjóri Fjarðarbyggðar Helga Jónsdóttir, lögræðingur hefur verið ráðin bæjarstjóri Fjarðarbyggðar til næstu fjögurra ára. Allir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögu bæjarráðs um að bjóða Helgu embættið. Innlent 20.7.2006 17:59 Lifandi vegvísar Lifandi vegvísa má sjá víðsvegar um borgina í sumar. Vegvísarnir eru unglingar úr Vinnuskólanum sem starfa við að leiðbeina ferðamönnum um Reykjavík. Innlent 20.7.2006 17:36 Maður dæmdur fyrir að bíta lögregluþjón Karlmaður á þrítugsaldri var í morgunn dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að bíta lögreglumann í Keflavík. Innlent 20.7.2006 17:33 Deloitte & Touche gerir stjórnsýsluúttekt á Strætó Endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækið Deloitte & Touche hefur verið ráðið til að gera stjórnsýsluúttekt á Strætó bs. Stefnt er að því að niðurstöður úttektarinnar liggi fyrir í september. Innlent 20.7.2006 17:16 Heimsmeistarakeppnin í Mýrarfótbolta haldin í níunda sinn Heimsmeistaramótið í Mýararfótbolta var haldið í níunda sinn í Hirinsalmi í Finnlandi um síðustu helgi. Lítið var þó um leðjuna að þessu sinni sökum rigningarleysis og því voru keppendur snyrtilegri nú en oft áður. Innlent 20.7.2006 16:04 Fyrsta skóflustungan tekin fyrir Leiruvogstunguhverfi Fyrst skóflustungan var tekin í Leiruvogstungu í Mosfellsbæ í dag en þar á að rísa nýtt íbúðahverfi. Innlent 20.7.2006 16:35 Skemmtanahaldarar bera kostnað af aukinni löggæslu Í umburðarbréfi sem gefið er út af Birni Bjarnasyni, dóms- og kirkjumálaráðherra til lögreglustjóra landsins vegna útihátíða, kveður á um nýja reglugerð um löggæslukostnað. Innlent 20.7.2006 15:06 Spáir 8,6 prósenta verðbólgu í ágúst Greiningardeild KB banka spáir 0,4 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs í ágúst. Gangi spáin eftir fer 12 mánaða verðbólga úr 8,4 prósentum í 8,6 prósent. Útsöluáhrif draga verulega úr hækkun vísitölunnar og er búist við að útsölur hafi um 0,3 til 0,4 prósent áhrif á vísitölu neysluverðs til lækkunar. Án útsöluáhrifa hefði hækkun á milli mánaða numið 0,7 til 0,8 prósentum. Viðskipti innlent 20.7.2006 14:46 Umferðaróhapp á Akureyri Umferðaróhapp var í Vestursíðu á Akureyri í hádeginu. Bifhjóli var ekið fram úr bíl sem beygði inná bílastæði með með afleiðingum að bifhjólið og ökumaður þess hafnaði inní garði. Ekki eru talin mikil meiðsl á ökumanni bifhjólsins, eitthvert tjón var á bifhjóli og bifreið. Innlent 20.7.2006 13:24 Skemmtiferðaskip í Grundarfirði Skemmtiferðaskipið Columbus lagðist að bryggju í Grundarfirði í morgun. Fréttavefurinn Skessuhorn greinir frá því að með skipinu séu 350 farþegar og 170 manna áhöfn. Flestir farþeganna eru Þjóðverjar en farþegarnir munu fara í skoðunaferð um nágrenni Snæfellsjökuls. Veðrið leikur við mannskapinn líkt og hér í höfuðborginni en í Grundarfirði er ekki ský á himni og um 13 gráðu hiti. Innlent 20.7.2006 13:10 Mikill áhugi fyrir skólaskipinu Sedov Fjöldi manns var saman komin á Reykjavíkurhöfn í morgun til að skoða rússneska skólaskipið Sedov. Skólaskipið Sedov kom til hafnar í Reykjavík í gær og var opnað almenningi til skoðunar um klukkan hálf tíu í morgun. Innlent 20.7.2006 12:29 « ‹ 316 317 318 319 320 321 322 323 324 … 334 ›
Bendir á rétt útlendinga Fyrirtæki á Akranesi hafa fengið bréf frá lögreglunni í bænum þar sem hún áréttar lög um skyldur þeirra gagnvart erlendum starfsmönnum frá Evrópska efnahagssvæðinu. Innlent 20.7.2006 21:48
Bæjarstjóri í Fjallabyggð Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum í vikunni að ráða Þóri Kristin Þórisson í starf bæjarstjóra. Fjallabyggð varð til við sameiningu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar nú í vor og er Þórir fyrsti bæjarstjóri hins nýja sveitafélags. Innlent 20.7.2006 21:48
Upptökin voru sígarettuglóð Tæpur hektari lands á Gára í landi Landgræðslunnar í Rangárvallasýslu varð eldi að bráð í gær. Þakka má snarræði starfsmanna Landgræðslunnar í Gunnarsholti að ekki fór miklu verr þar sem tæpir þrjú þúsund hektarar af þurrum gróðri, sem er gömul uppgræðsla er þarna í kring og hefði hæglega getað orðið eldinum að bráð. Innlent 20.7.2006 21:49
Áningarstaður í alfaraleið Um helgina var skógræktarsvæði í Tröð á Hellissandi opnað undir merkjum „opins skógar“ skógræktarfélaganna. Tröð er áttundi opni skógurinn á landinu en stefnt er að því að opna um þrjátíu slík svæði um landið allt. „Markmiðið með verkefninu er að skógurinn sé í alfaraleið svo fólk getið áð og notið smá kyrrðar frá erli umferðarinnar,“ segir Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands. Innlent 20.7.2006 21:48
Viðræður báru ekki ávöxt Flugmálastjórn Íslands hefur sent frá sér tilkynningu þar sem breytingar á vaktakerfi flugumferðarstjóra eru útskýrðar og varðar. Í tilkynningunni kemur fram að viðræður um breytingar á vaktakerfi hafi staðið yfir milli Flugmálastjórnar og Félags íslenskra flugumferðarstjóra frá árinu 1999. Innlent 20.7.2006 21:48
Nýr bæjarstjóri í Fjarðabyggð Helga Jónsdóttir borgarritari var ráðin í embætti bæjarstjóra Fjarðabyggðar í gær til næstu fjögurra ára. Tuttugu sóttust eftir starfinu en allir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögu bæjarráðs um að bjóða Helgu embættið. Innlent 20.7.2006 21:48
Hrygning misfórst í fyrra Magn seiða sandsílastofns er minna nú en árið 1998 þegar ástand stofnsins var kannað. Mjög lítið sást af eins árs gömlum sílum, sem bendir til þess að hrygning hafi misfarist í fyrra. Ekki er þó hægt að segja til um endurnýjun þessa árs fyrr en á næsta ári. Innlent 20.7.2006 21:48
Vilja minnka ál í flugvélum Boeing-flugvélaframleiðandinn tilkynnti í gær að fyrirtækið hygðist skipta út 737 flugvélum sínum fyrir nýrri vélar af gerðinni 787-Dreamliner. Þær vélar eru að miklu leyti gerðar úr samsettum kolefnum en ekki áli eins og tíðkast. Efnin eru léttari en ál og þurfa vélarnar því minni orku. Innlent 20.7.2006 21:49
Fluttur fársjúkur til Íslands Jonathan Motzfeldt, formaður grænlenska landsþingsins, var fluttur alvarlega veikur frá Grænlandi á gjörgæsludeild Landspítalans í gær. Grænlenskir fjölmiðlar greina frá því að hann hafi veikst eftir að hafa neytt kæsts selspiks er hann dvaldi í heimabæ sínum Qaqortoq. Hann var fyrst fluttur með þyrlu til Narsarsuaq og þaðan til Nuuk. Læknar þar ákváðu að senda hann til Íslands. Innlent 20.7.2006 21:48
Beit lögregluþjón í höndina Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að bíta lögregluþjón. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær og þar sem játning mannsins lá fyrir var hann dæmdur strax. Innlent 20.7.2006 21:49
Talsvert um skemmdarverk Nokkuð var um skemmdarverk í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í síðustu viku. Á föstudag voru unnar skemmdir á gulum Renault á Selfossi. Aðfaranótt laugardags var brotin rúða í Chevrolet í Þorlákshöfn, gler í biðskýli við Sunnulækjarskóla og rúða á gæsluvelli á Selfossi. Innlent 20.7.2006 21:48
Vísaði kæru Ríkislögreglustjóra frá Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála vísaði máli Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínunnar gegn Póst- og fjarskiptastofnun frá í gær. Kærendur fóru í mál þar sem það er vandkvæðum bundið að staðsetja símtöl í netsímaþjónustu. Innlent 20.7.2006 21:49
Alþjóðahúsið í hvalaskoðunarferð Alþjóðahúsið bauð innflytjendum og öðrum sem sækja samtökin í hvalaskoðunarferð í kvöld. Met aðsókn var í ferðina og streymdi fólk niður á Reykjavíkurhöfn. Innlent 20.7.2006 22:52
Leggjast yfir gögn Ríkiskaupa Stjórnendur Atlantsolíu fengu í dag afhent gögn um samning sem Ríkiskaup gerðu við Skeljung og ESSO um kaup á eldsneyti og olíu fyrir ríkið. Forstjóri Ríkiskaupa vonar að það verði ekki til að veikja samkeppnisstöðu annarra olíufélaga í útboði í haust, þótt hann hafi neyðst til að láta pappírana af hendi. Innlent 20.7.2006 18:54
Jarðgöng mikilvæg á Vestfjörðum Engin aðgerð kemur vestfirskum byggðum jafnmikið til góða og jarðgangagerð milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, að mati íbúa á Vestfjörðum. Innlent 20.7.2006 19:31
Flokksbræður deila um greiðslur Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir nágrannasveitarfélög Reykjavíkur hafa svikist um að greiða til Strætós í samræmi við launahækkanir vegna nýs kjarasamnings. Flokksbróðir hans, bæjarstjórinn í Hafnarfirði, segir þetta með öllu rangt. Ráðist verður í stjórnsýsluúttekt á félaginu. Innlent 20.7.2006 18:48
Leikskólagjöld lækka í haust Leikskólagjöld í Reykjavík snarlækka í haust og systkinaafsláttur verður hækkaður, rétt eins og meirihlutinn lofaði í kosningabaráttunni. Innlent 20.7.2006 18:27
Helga Jónsdóttir ráðin bæjarstjóri Fjarðarbyggðar Helga Jónsdóttir, lögræðingur hefur verið ráðin bæjarstjóri Fjarðarbyggðar til næstu fjögurra ára. Allir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögu bæjarráðs um að bjóða Helgu embættið. Innlent 20.7.2006 17:59
Lifandi vegvísar Lifandi vegvísa má sjá víðsvegar um borgina í sumar. Vegvísarnir eru unglingar úr Vinnuskólanum sem starfa við að leiðbeina ferðamönnum um Reykjavík. Innlent 20.7.2006 17:36
Maður dæmdur fyrir að bíta lögregluþjón Karlmaður á þrítugsaldri var í morgunn dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að bíta lögreglumann í Keflavík. Innlent 20.7.2006 17:33
Deloitte & Touche gerir stjórnsýsluúttekt á Strætó Endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtækið Deloitte & Touche hefur verið ráðið til að gera stjórnsýsluúttekt á Strætó bs. Stefnt er að því að niðurstöður úttektarinnar liggi fyrir í september. Innlent 20.7.2006 17:16
Heimsmeistarakeppnin í Mýrarfótbolta haldin í níunda sinn Heimsmeistaramótið í Mýararfótbolta var haldið í níunda sinn í Hirinsalmi í Finnlandi um síðustu helgi. Lítið var þó um leðjuna að þessu sinni sökum rigningarleysis og því voru keppendur snyrtilegri nú en oft áður. Innlent 20.7.2006 16:04
Fyrsta skóflustungan tekin fyrir Leiruvogstunguhverfi Fyrst skóflustungan var tekin í Leiruvogstungu í Mosfellsbæ í dag en þar á að rísa nýtt íbúðahverfi. Innlent 20.7.2006 16:35
Skemmtanahaldarar bera kostnað af aukinni löggæslu Í umburðarbréfi sem gefið er út af Birni Bjarnasyni, dóms- og kirkjumálaráðherra til lögreglustjóra landsins vegna útihátíða, kveður á um nýja reglugerð um löggæslukostnað. Innlent 20.7.2006 15:06
Spáir 8,6 prósenta verðbólgu í ágúst Greiningardeild KB banka spáir 0,4 prósenta hækkun vísitölu neysluverðs í ágúst. Gangi spáin eftir fer 12 mánaða verðbólga úr 8,4 prósentum í 8,6 prósent. Útsöluáhrif draga verulega úr hækkun vísitölunnar og er búist við að útsölur hafi um 0,3 til 0,4 prósent áhrif á vísitölu neysluverðs til lækkunar. Án útsöluáhrifa hefði hækkun á milli mánaða numið 0,7 til 0,8 prósentum. Viðskipti innlent 20.7.2006 14:46
Umferðaróhapp á Akureyri Umferðaróhapp var í Vestursíðu á Akureyri í hádeginu. Bifhjóli var ekið fram úr bíl sem beygði inná bílastæði með með afleiðingum að bifhjólið og ökumaður þess hafnaði inní garði. Ekki eru talin mikil meiðsl á ökumanni bifhjólsins, eitthvert tjón var á bifhjóli og bifreið. Innlent 20.7.2006 13:24
Skemmtiferðaskip í Grundarfirði Skemmtiferðaskipið Columbus lagðist að bryggju í Grundarfirði í morgun. Fréttavefurinn Skessuhorn greinir frá því að með skipinu séu 350 farþegar og 170 manna áhöfn. Flestir farþeganna eru Þjóðverjar en farþegarnir munu fara í skoðunaferð um nágrenni Snæfellsjökuls. Veðrið leikur við mannskapinn líkt og hér í höfuðborginni en í Grundarfirði er ekki ský á himni og um 13 gráðu hiti. Innlent 20.7.2006 13:10
Mikill áhugi fyrir skólaskipinu Sedov Fjöldi manns var saman komin á Reykjavíkurhöfn í morgun til að skoða rússneska skólaskipið Sedov. Skólaskipið Sedov kom til hafnar í Reykjavík í gær og var opnað almenningi til skoðunar um klukkan hálf tíu í morgun. Innlent 20.7.2006 12:29