Kvöldfréttir Stöðvar 2
12 13 14 15 16 17 18 19 20 … 64 ›
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lagt er til að fimm milljóna króna þak verði á sanngirnisbótum í frumvarpi sem forsætisráðherra stefnir á að leggja fyrir þingið í næstu viku. Hún segir mikinn fjölda geta leitað til nefndar um sanngirnisbætur. Farið verður yfir málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 29.10.2023 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ísraelski herinn réðst í umfangsmestu loft- og stórskotaliðsárásir á Gasaströndina síðan átök hófust fyrir þremur vikum. Herinn hefur enn á ný hvatt íbúa norðurhluta strandarinnar til að flýja til suðurs. Innlent 28.10.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Algengt er að afborganir á óverðtryggðum fasteignalánum hafi meira en tvöfaldast milli ára. Kona sem keypti sér íbúð fyrir þremur árum segir blóðugt að á sama tíma og afborganir hafi snarhækkað sé eignamyndun minni. Innlent 27.10.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Íslensk stjórnvöld eru gagnrýnd fyrir lélegan árangur í mansalsmálum í nýrri úttekt. Á sama tíma eru tilkynningar um mansal orðnar þriðjungi fleiri á þessu ári en samanlagt síðustu tvö ár. Teymisstjóri fyrir þolendur ofbeldis grunar að málin séu miklu fleiri. Innlent 26.10.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fylgi Samfylkingarinnar heldur áfram að aukast samkvæmt nýrri könnun og stuðningurinn er nærri samanlögðu fylgi stjórnarflokkanna þriggja. Í kvöldfréttum verður rætt við forsætisráðherra og formann Vinstri grænna sem segir fylgistap flokksins áhyggjuefni. Innlent 25.10.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Konur og kvár lögðu niður störf í dag og fjölmenntu á baráttufundi um land allt. Stærsti fundurinn var í miðbænum og talið er að allt að hundrað þúsund hafi komið saman á Arnarhóli. Innlent 24.10.2023 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Aukinn þungi er í árásum Ísraelshers á Gaza og hátt í fimm hundruð létust í loftárásum í nótt. Brýn þörf er á hjálpargögnum og læknir segir ungbörn og sjúklinga í bráðri hættu. Innlent 23.10.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ísraelsmenn boða enn umfangsmeiri árásir á Gasa en hingað til og hvetja Palestínumenn til að flýja. Óttast er að átökin gætu stigmagnast eftir yfirlýsingar ráðherra Írans og Ísraels í dag. Yfirvöld á Gasa segja um 4.700 Palestínumenn nú hafa látist í loftárásum frá því innrásin hófst fyrir tveimur vikum. Innlent 22.10.2023 18:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tuttugu bílfarmar af neyðargögnum, sem hleypt var inn á Gasa eftir langa bið í morgun, duga afar skammt ef binda á enda á martöðina á svæðinu, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Neyðin ágerist meðal Palestínumanna á meðan Ísraelsmenn búa sig undir enn frekari sókn. Við segjum frá vendingum dagsins fyrir botni Miðjarðarhafs í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. Innlent 21.10.2023 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ýmsir hlutar samfélagsins munu lamast eftir helgi þegar konur og kvár legga niður störf. Leik- og grunnskólum verður víða lokað og heilbrigðisþjónusta skert. Innlent 20.10.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sonur manns sem lést í eldsvoða á Funahöfða á mánudag segir föður sinn hafa búið við hrikalegar aðstæður í húsnæðinu. Hann stendur ráðalaus frammi fyrir miklum útfararkostnaði. Við ræðum við son mannsins í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. Innlent 19.10.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Óljóst er hvort tólf ára stúlka sem varð fyrir árás með stíflueyði við skólalóð Breiðagerðisskóla í Reykjavík hljóti varanlegan skaða af. Stíflueyðirinn sem notaður var í árásinni hefur verið tekinn úr sölu í Hagkaup og neyðaráætlun virkjuð. Innlent 18.10.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Einn var fluttur á sjúkrahús þegar eldur kom upp í iðnaðarhúsnæði við Funahöfða í dag. Íbúi segir að tugir hafi búið í húsinu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við íbúa og slökkvilið í beinni útsendingu. Innlent 16.10.2023 17:59
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjöldi fólks kom saman á Austurvelli í dag til að lýsa yfir samstöðu með palestínsku þjóðinni. Þess var krafist að íslensk stjórnvöld fordæmdu ekki aðeins aðgerðir Hamas, heldur líka árásir Ísraels á Gasa. Innlent 15.10.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Nýr fjármálaráðherra segir forgangsmál að klára söluna á Íslandsbanka og ná verðbólgu niður. Þetta er fjórða ráðuneytið sem Þórdís Kolbrún stýrir á þem sjö árum sem hún hefur verið ráðherra. Innlent 14.10.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Við förum yfir stöðuna á stjórnarheimilinu í fréttatímanum. Þingmenn og ráðherrar stjórnarflokkanna hafa fundað á Þingvöllum í dag en ekki viljað gefa upp um hver verður næsti fjármálaráðherra. Berghildur Erla, fréttamaður hefur fylgt hópnum í dag og við heyrum í henni í beinni útsendingu. Innlent 13.10.2023 18:26
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum fjöllum við ítarlega um stöðuna á stjórnarheimilinu. Formenn og þingflokksformenn ríkisstjórnarflokkanna hittust í ráðherrabústaðnum í morgun en segja að engar ákvarðanir hafi verið teknar um hver taki við fjármálaráðuneytinu. Innlent 12.10.2023 17:59
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stjórnarandstaðan telur að afsögn fjármálaráðherra hljóti að þýða að hann hætti í ríkisstjórn, ella sé um að ræða sýndarmennsku. Þá hafi forsætisráðherra brugðist í Íslandsbankamálinu. Við höldum áfram umfjöllun um afsögn fjármáláráðherra og förum yfir það sem nú er hvíslað inni á Alþingi um næstu skref. Kvöldfréttir Stöðvar 2 á sínum stað klukkan 18:30. Innlent 11.10.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bjarni Benediktsson sagði af sér sem fjármálaráðherra í dag. Ákvörðunina tók hann í kjölfar álits Umboðsmanns Alþingis um að hann hafi verið vanhæfur þegar hann samþykkti söluna á Íslandsbanka þar sem faðir hans var á meðal kaupenda í útboðinu. Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina standa styrkum fótum. Innlent 10.10.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Yfir tólf hundruð eru látin í blóðugum átökum Ísraelsmanna og Hamas. Umsátursástand ríkir á Gasaströndinni þar sem hafa lokað fyrir vatn og rafmagn til íbúa. Innlent 9.10.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Öryggisráð Ísraels hefur lýst formlega yfir stríði í landinu. Minnst sjö hundruð Ísraelar eru látnir, aðeins lítill hluti þeirra hermenn, og fjögur hundruð Palestínumenn. Íslensk kona sem er búsett í Jerúsalem segir ástandið ekki hafa verið svona slæmt síðan í Jom kippúr stríðinu. Staðan sé martraðakennd. Rætt verður við hana í kvöldfréttum Stöðvar 2. Erlent 8.10.2023 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fólk sem dvaldi á vöggustofum í Reykjavík sem börn er líklegra til að lifa skemur en jafnaldrar þess. Einn þeirra sem þrýsti á að vöggustofurnar yrðu rannsakaðar fagnar nýrri og svartri skýrslu rannsóknarnefndar. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 5.10.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum fjöllum við um verðbólguna. Seðlabankastjóri segir þörf á því að hafa stýrivexti áfram háa til að hafa hemil á hagkerfinu. Mikilvægt sé fyrir lántakendur sem sjá fram á hærri afborganir að fara yfir sína stöðu. Innlent 4.10.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Vextir á námslánum hækka sífellt og hægt er að fá húsnæðislán á betri kjörum en námslán. Lántakendum hefur fækkað á síðustu árum og forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta kallar eftir hugarfarsbreytingu hjá stjórnvöldum. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 3.10.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Torfajökull er einn þriggja jökla á landinu sem mun að öllum líkindum hverfa á næstu tveimur áratugum. Jöklafræðingur segir ekkert geta bjargað jöklinum úr þessu. Ljósmyndarinn RAX flaug nýverið yfir jökulinn og sýnir myndefnið vel stöðuna í dag. Innlent 2.10.2023 17:51
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dómsmálaráðherra segist treysta niðurstöðu kærunefndar útlendingamála um ástandið í Venesúela, þrátt fyrir þveröfuga niðurstöðu Bandaríkjamanna í sama málefni fyrir skömmu. Dómsmálaráðherra segir það vera hluta af kerfinu að fólkið snúi til síns heima. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum og fáum til okkar stjórnmálafræðing, sérfræðing í málum Venesúela, til að ræða stöðuna í beinni útsendingu. Innlent 1.10.2023 18:08
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hælisleitendur frá Venesúela segja það ekki rétt að ástandið í heimalandinu hafi skánað það mikið að öruggt sé fyrir þá að snúa aftur heim. Þeir eru hræddir og reiðir - og líður eins og Útlendingastofnun sjái þá sem tölur á blaði en ekki manneskjur. Við hittum hælisleitendur á Ásbrú í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. Innlent 30.9.2023 18:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Eitranir hafa dregið 31 til dauða á þessu ári og flest andlátin má rekja til notkunar áfengis, ópíóíða eða morfínskyldra lyfja. Yfirlögregluþjónn segist merkja aukna notkun á oxycontin og segir hvert andlát einu of mikið. Innlent 29.9.2023 17:53
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sakborningar lýsa ringulreið á Bankastræti Club þegar hópurinn ruddist inn á staðinn og réðist þar á þrjá menn. Fjölmiðlabanni var aflétt eftir að skýrslutökum lauk síðdegis í dag og í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður farið yfir það sem fram hefur komið við aðalmeðferðina í Gullhömrum auk þess sem rætt verður við verjanda í málinu í beinni. Innlent 28.9.2023 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Gistiskýli fyrir hælisleitendur, sem fengið hafa endanlega synjun og fá ekki þjónustu, verður í sérstöku húsnæði í Borgartúni. Stefnt er að opnun á föstudag. Innlent 27.9.2023 18:01