Erlent
268 269 270 271 272 273 274 275 276 … 334 ›
Fjögurra ára fangelsi fyrir að misþyrma félaga sínum í hernum Rússneskur dómstóll dæmdi í dag hermann í fjögurra ára fangelsi fyrir að misþyrma nýliða í hernum svo alvarlega að læknar þurftu að taka af honum báða fæturna og kynfærin. Erlent 26.9.2006 10:42
Tímaáætlun ESB vegna inngöngu Rúmeníu og Búlgaríu kynnt fljótlega Evrópusambandið mun innan skamms birta tímaáætlun fyrir inngöngu Rúmeníu og Búlgaríu í Evrópusambandið. Búist er við að ríkjunum verði formlega tilkynnt 1. janúar næstkomandi að þau fái inngöngu að uppfylltum ströngum skilyrðum. Erlent 26.9.2006 09:08
Saddam Hussein hent út úr dómssal fyrir frammíköll Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, var hent út úr dómssal í þriðja sinn á innan við viku fyrir að trufla störf dómsins og stanslaus frammíköll. Verið er að rétta yfir Hussein og sex öðrum háttsettum mönnum í tíð hans vegna þjóðarmorðs á Kúrdum árið 1988. Erlent 26.9.2006 10:16
Hafmeyjustúlka tekur fyrstu skrefin Perúsk stúlka sem fæddist með leggina samfasta tók í gær sín fyrstu skref eftir að fætur hennar voru aðskildir í þremur flóknum skurðaðgerðum, þeirri fyrstu í júní 2005. Erlent 26.9.2006 09:11
Spiluðu í fyrsta sinn í Superdome eftir hamfarir Fagnaðarlætin voru mikil þegar fótboltaliðið New Orleans Saints hljóp inn á heimavöll sinn Louisiana Superdome í New Orleans í gærkvöld, í fyrsta skipti síðan fellibylurinn Katrina stórskemmdi íþróttahöllina. Erlent 26.9.2006 09:05
Sjö fangar létust í átökum í Gvatemala Að minnsta kosti sjö fangar létust í Pavon-fangelsinu í Gvatemala þegar lögregla og hermenn réðust inn í fangelsið og til harðra átaka kom milli þeirra og fanganna. Erlent 26.9.2006 09:00
Fyrrum forstjóri WorldCom í fangelsi Bernard Ebbers, fyrrum forstjóri bandaríska fjarskiptafélagsins WorldCom, fer í fangelsi í dag. Hann var dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir fjársvik, bókhalds- og skjalafals í mars á síðasta ári en hefur margsinnis áfrýjað dóminum. Verði Ebbers allan tímann í fangelsi fær hann lausn árið 2028. Viðskipti erlent 26.9.2006 08:35
Höfða mál vegna blekkinga um skaðsemi létt sígaretta Dómari í New York í Bandaríkjunum heimilaði í dag málshöfðun á hendur tóbaksframleiðendum vegna meintrar blekkingar þeirra á skaðsemi svokallaðra létt sígaretta. Erlent 25.9.2006 23:49
Vara við ferðum um Oaxaca í Mexíkó Bandaríska sendiráði í Mexíkó hefur aftur gefið út viðvörun til bandarískra ríkisborgara sem eiga leið um Oaxaca. Þar hafa mótmælendur hafst við í nokkra mánuði, kveikt í strætisvögnum og hafa ítrekuð átök átt sér stað milli mótmælenda og lögreglu. Erlent 25.9.2006 23:21
Erfiðar aðstæður hjálparstarfsmanna í Darfur Hjálparstarfsmenn í Darfurhéraði í Súdan hafa ekki verið í jafnmiklum erfiðleikum með að nálgast bágstadda í landinu síðan í ágúst 2003. Talið er að fimmtíu þúsund manns hafi þurft að flýja heimili sín í septembermánuði. Erlent 25.9.2006 22:29
Tóku á móti barni um borð í flugvél Flugstjóri flugvélar British Airways á leið frá London til Boston þurfti í gær að nauðlenda í Halifax eftir að kona um borð í flugvélinni fékk hríðir. Konan var gengin sjö og hálfan mánuð með barnið en þegar flugið var hálfnað fór konan að fá hríðir. Erlent 25.9.2006 20:41
Lokið við merkingu karfa Rannsóknarskipið Árni Friðriksson lauk nýlega leiðangri sínum sem farinn var til að merkja karfa. Þetta er í fjórða sinn sem slíkur leiðangur er farinn og er markmiðið að varpa ljósi á óvissu sem verið hefur um tengsl karfastofna á Íslandsmiðum og á nálægum hafsvæðum á Reykjaneshrygg. Erlent 25.9.2006 20:24
Starfsmannastjóri Ford segir upp Steven Hamp, starfsmannastjóri bandaríska bílaframleiðandans Ford og næstráðandi Alan Mulally, forstjóra, ætlar að láta af störfum hjá fyrirtækinu öðru hvoru megin við næstu áramót. Hamp varð starfsmannastjóri Ford í nóvember á síðasta ári undir stjórn Bill Ford, fráfarandi forstjóra, en þeir Hamp eru mágar. Viðskipti erlent 25.9.2006 20:19
Nýjar vísbendingar um morðingja Rafik al-Hariri Nýjar vísbendingar hafa fundist um hver myrti Rafik al-Hariri forsætisráðherra Líbanons. Þetta kemur fram í skýrslu Sameinuðu þjóðanna en þar kemur þó ekkert fram um hver fyrirskipaði morðið. Erlent 25.9.2006 19:40
Brown vill taka við Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, reyndi að sannfæra flokksmenn sína á þingi Verkamannaflokksins í dag um að hann væri tilbúinn til að taka við stjórnartaumunum af Tony Blair. Erlent 25.9.2006 18:00
Vill fresta frekari aðildarviðræðum vegna stjórnarskrár Jose Manuel Barroso, formaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, telur að sambandið eigi ekki að taka á móti fleiri aðildarlöndum fyrr en afstaða hefur verið tekin til sameiginlegrar stjórnarskrár sambandsins. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Brussel í dag. Erlent 25.9.2006 17:02
Tóbaksfyrirtæki sótt til saka fyrir blekkingar Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur komist að því að hópmálssókn á hendur tóbaksfyrirtækjum vegna light sígaretta sé tæk fyrir dómi. Fyrirtækjunum er gefið að sök að hafa talið reykingafólki trú um að light-sígarettur væru ekki eins skaðlegar og aðrar sígarettur. Erlent 25.9.2006 16:47
Hræddir þjófar Þjófar sem brutust inn í íbúðarhús í Vínarborg, í Austurríki, forðuðu sér skelfingu lostnir út úr húsinu þegar þeir fundu átta mannshöfuð í kistu, í kjallaranum. Erlent 25.9.2006 16:40
Fundu flak þyrlu sem saknað hafði verið í tvo daga í Nepal Yfirvöld í Nepal hafa staðfest að allir farþegar í þyrlu á vegum náttúruverndarsamtakanna Worldwide Fund for Nature hafi látist þegar hún hrapaði í vonskuveðri á laugardag. Flak þyrlunnar, sem var rússnesk, fannst snemma í morgun, en þess hafði verið leitað í nærri tvo daga við erfiðar aðstæður, bæði rigningu og þoku. Erlent 25.9.2006 14:56
Páfi vottar múslimum virðingu sína Benedikt sextándi páfi átti í dag fund með fulltrúum frá tuttugu múslimaríkjum í Gandolfo kastala, sem er sumarsetur hans. Öllum bar saman um að fundurinn hefði einkennst af gagnkvæmri virðingu og hlýju. Erlent 25.9.2006 15:58
Segjast ekki hafa hugmynd um hvar bin Laden sé niðurkominn Pakistönsk yfirvöld hafa engar upplýsingar um það hvar Osama bin Laden er niðurkominn eða hvort hann er á lífi. Þetta sagði talsmaður utanríkisráðuneytis landsins í dag. Erlent 25.9.2006 15:08
Drápu háttsettan al-Qaida liða í Basra Breskar hersveitir drápu í dag háttsettan al-Qadia liða í álaupi á hús í borginni Basra í Írak. Fram kemur á fréttavef BBC að maðurinn, Omar Farouq, hafi áður stýrt al-Qaida í Suðaustur-Asíu en hann var gripinn í Indónesíu árið 2002. Erlent 25.9.2006 14:38
Mótmæltu lokun miðstöðvar fyrir ungt fólk Vel á þriðja hundrað manns voru handteknir eftir að mótmæli fóru úr böndunum á Norðurbrú í Kaupmannahöfn í gærkvöld. Danska lögreglan hefur krafist gæsluvarðhalds yfir fimm þeirra. Verið var að mótmæla lokun miðstöðvar fyrir ungt fólk í hverfinu. Erlent 25.9.2006 12:13
Lést í sprengingu í Barcelona Áttræður maður lést og nokkrir slösuðust í sprengingu sem varð í Barcelona á Spáni í morgun. Svo virðist sem maðurinn sem lést hafi verið að hita pela fyrir barnabarn sitt á prímusi þegar gaskúturinn sprakk. Erlent 25.9.2006 12:01
Gagnrýna skeflilegt efnahagsástand í Rússlandi Hópur Bolsévika braust inn í rússneska fjármálaráðuneytið í morgun til að mótmæla efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Mótmælendurnir hlekkjuðu sig við glugga á nokkrum hæðum byggingarinnar og slepptu bæklingum þar sem ríkisstjórnin er gagnrýnd fyrir skelfilegt efnahagsástand og fátækt í landinu. Erlent 25.9.2006 12:06
Kristnir og múslimar verði að hafna öllu ofbeldi Benedikt páfi sagði í dag á fundi sínum með fulltrúum 22 múslimalanda að bæði kristnir og múslimar yrðu að hafna öllu ofbeldi um leið og hann lýsti yfir djúpri virðingu fyrir þeim sem aðhylltust íslam. Erlent 25.9.2006 11:01
Sprenging í byggingu í Barcelona á Spáni Nokkrir eru sagðir hafa slasast eftir sprengingu í húsi í Barcelona á Spáni fyrir stundu. Frá þessu er greint í spænsku útvarpi. Ekki liggur fyrir hvers vegna sprengingin varð en ljóst er að einhverjir munu vera alvarlega slasaðir. Erlent 25.9.2006 11:07
Nasdaq eykur við í LSE Bandaríski hlutabréfamarkaðurinn Nasdaq hefur aukið við hlut sinn í Kauphöll Lundúna (LSE) í Bretlandi. Nasdaq, sem er stærsti hluthafi LSE átti fyrir 24,1 prósent í breska markaðnum en hefur með kaupum á 2,2 milljónum bréfa aukið hann í 25,1 prósent eða rétt rúman fjórðung. Viðskipti erlent 25.9.2006 10:21
260 handteknir eftir mótmæli í Kaupmannahöfn Yfir 260 ungmenni voru handtekin í Kaupmanna í gær þegar friðsamleg mótmæli til stuðnings félagsmiðstöðinni Ungdomshuset leystust upp í óeirðir.Talið er að um 800 manns hafi tekið þátt í mótmælunum en þegar einhverjir mótmælenda fóru ekki að fyrirmælum lögreglunnar leysti hún hópinn upp. Erlent 25.9.2006 09:50
Sjáandi eða James Bond Hneyksli skekur nú ríkissaksóknaraembættið í Kólumbíu eftir að í ljós kom að ríkissaksóknari réð til sín sjáanda sem beitti dáleiðslu og særingum gagnvart starfsfólki og lifði líkt og James Bond. Erlent 25.9.2006 08:20
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent