Erlent

Fréttamynd

Ásakanir um spillingu drógu úr fylgi Silva

Luiz Inacio Lula da Silva, hinn vinstrisinnaði forseti Brasilíu, náði ekki þeirri yfirburða kosningu nú um helgina, sem flestir höfðu reiknað með fyrirfram. Ásakanir um spillingu virðast hafa ráðið þar úrslitum.

Erlent
Fréttamynd

Systurnar áður orðið fyrir árás

Tvær af systrunum þremur, sem myrtar voru í Ósló á sunnudagskvöld, hafa áður orðið fyrir fólskulegri árás frá manni úr fjölskyldu þeirra. Sá maður er þó ekki sá sami og bróðir þeirra, sem grunaður er um að hafa myrt þær.

Erlent
Fréttamynd

Forseti Sambíu endurkjörinn

Levy Mwanawasa hefur verið endurkjörinn forseti Sambíu með 43% atkvæða. Kjörstjórn landsins staðfesti það í dag. Michale Sata, leiðtogi stjórnarandstöðunnar og sem kom næstur forsetanum með 29% atkvæða, segir Mwanawasa hafa stolið sigrinum en hvetur stuðningsmenn sína til að sýna stillingu.

Erlent
Fréttamynd

Rússar sendir heim

Fjórir Rússar, sem undanfarna daga hafa verið í haldi georgískra yfirvalda grunaðir um njósnir, voru í dag reknir úr landi. Þeir voru seldir í hendur yfirmanns ÖSE sem fylgdi þeim svo um borð í flugvél sem flaug síðan með þá til Moskvu. Um svipað leyti ákváðu rússnesk stjórnvöld að stöðva allar samgöngur og viðskipti á milli landanna tveggja.

Erlent
Fréttamynd

Ban Ki-Moon hafi sigur

Ban Ki-Moon, utanríkisráðherra Suður-Kóreu, er talinn líklegasti arftaki Kofis Annans í embætti framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Ki-Moon hafði sigur í óformlegri atkvæðagreiðslu um hvern ætti að skipa næst í embættið. Annan lætur af störfum í lok árs.

Erlent
Fréttamynd

Reyndi að ráðast inn í hús forsætisráðherra

Maður vopnaður hnífi reyndi í dag að ráðast inn á skrifstofu Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, við Downing-stræti 10 í Lundúnum. Maðurinn var handtekinn eftir að hann hafði klifrað yfir girðingu aftan við húsið sem liggur samsíða þeirri hlið byggingarinnar sem snýr að götu sem opin er almenningi. Maðurinn hefur verið ákærður fyrir vopnaburð og að hafa ráðist að lögreglumanni.

Erlent
Fréttamynd

15 særðust í sprengingu á kaffihúsi

Að minnsta kosti 15 særðust þegar sprening varð á kaffihúsi í Izmar, þriðju stærstu borg Tyrklands, í dag. Ekki liggur fyrir hvort sprengju var komið fyrir á kaffihúsinu eða sprengingin orðið af öðrum völdum. Í gær lýsti Verkamannaflokkur Kúrdistans, PKK, einhliða yfir vopnahlé. Flokkurinn og Kúrdar hafa barist fyrir sjálfstæði við Tyrki í rúma tvo áratugi. Ekki er vitað hvort Kúrdar voru að verki í Izmar í dag.

Erlent
Fréttamynd

Minnst 3 skólastúlkur myrtar í Pennsylvaníu

Að minnsta kosti þrjár eru sagðir hafa týnt lífi og sjö særst þegar byssumaður skaut á skólastúlkur í skóla Amish-fólks í smábæ í Pennsylvaniu-ríki í Bandaríkjunum í dag. Stúlkurnar sem voru skotnar eru allar á aldrinum 6 til 13 ára.

Erlent
Fréttamynd

Allir um borð fórust

Nú er staðfest að allir þeir hundrað fimmtíu og fimm manns sem voru um borð í flugvélinni sem fórst í Amazon regnskóginum á föstudag eru látnir.

Erlent
Fréttamynd

Olíuverð hækkar

Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar þess að Nígería og Venesúela, sem eru aðildarríki samtaka olíuútflutningsríkja, OPEC, ákváðu að draga úr útflutningi til að bregðast við talsverðum verðlækkunum síðustu vikurnar og draga úr framboð á olíu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Fimm fórust er brú hrundi

Minnst fimm manns fórust þegar tæplega tuttugu metra langur hluti brúar á mislægum gatnamótum hrundi í Montréal í Kanada á laugardag. Sex manns liggja á sjúkrahúsi og eru tveir alvarlega slasaðir.

Erlent
Fréttamynd

Sýnir myndband með Atta

Myndband af Mohammed Atta, sem flaug farþegavél á annan Tvíburaturnanna í New York í september 2001, var birt á vefsíðu Sunday Times í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem myndbandið er sýnt opinberlega.

Erlent
Fréttamynd

Alvarlegar ásakanir á Bush og stjórn hans

Bandaríkjaforseti og stjórn hans fá harða útreið í bók virts blaðamanns sem gefin verður út í dag. Þar eru ríkisstjórnin og George W. Bush sökuð um að fela fyrir þegnum landsins hversu víðtæk og alvarleg upplausnin í Írak er orðin. Jafnframt kemur fram að Henry Kissinger sé orðinn einn aðalráðgjafi Bush.

Erlent
Fréttamynd

Fjórir handteknir í ferju

Fjórir sænskir nýnasistar voru handteknir eftir að þeir sýndu ferjufarþegum, sem ekki litu út fyrir að vera norrænir, kynþáttafordóma og ofbeldi á laugardag, segir á fréttavef sænska dagblaðsins Dagens Nyheter.

Erlent
Fréttamynd

Herforingi verður forsætisráðherra

Hershöfðinginn fyrrverandi, Surayud Chulanont, var í gær svarinn í embætti forsætisráðherra Taílands. Tvær vikur eru frá valdaráni stjórnarhersins þar í landi og völdu yfirmenn hersins Surayud í embættið þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar um að herinn myndi ekki sitja lengi við völd.

Erlent
Fréttamynd

Læknar í sjálfsmorðshug

Þriðjungur lækna er í sjálfsmorðshugleiðingum ef marka má niðurstöður nýrrar rannsóknar sem gerð var á vinnuumhverfi starfsfólks Karólínska háskólasjúkrahússins í Stokkhólmi. Jafnmargir læknar telja sig vera útbrunna í starfi.

Erlent
Fréttamynd

Tattúveruðu enni morðingja

Fangar í fangelsi í Indiana í Bandaríkjunum munu hafa sett húðflúr á enni barnsmorðingja nokkurs sem situr í fangelsi með þeim. Að sögn fangelsisyfirvalda, stendur nú hefnd Katiear á enni mannsins. Fanginn var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa misnotað kynferðislega og banað tíu ára gamalli telpu, Katie að nafni, í fyrra.

Erlent
Fréttamynd

Þjóðaratkvæðagreiðslu hafnað

Yfirkjörstjórn Rússlands hafnaði í liðinni viku beiðni um þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrárbreytingar. Breytingarnar hefðu gert Vladimír Pútín kleift að bjóða sig fram til að sitja þriðja kjörtímabilið í embætti.

Erlent
Fréttamynd

Uppnám vegna Mozartóperu

Ákvörðun Þýsku óperunnar í Berlín um að hætta af öryggisástæðum við fjórar sýningar á óperu eftir Mozart hefur vakið harðar deilur þar í landi. Í einu atriði óperunnar Idomeneo átti að sýna afhöggna hausa þriggja helstu trúarhöfunda mannkyns, þeirra Jesú, Búdda og Múhameðs, ásamt höfði sjávarguðsins Poseidons.

Erlent