Erlent
120 121 122 123 124 125 126 127 128 … 334 ›
Hundur stórslasar tveggja ára stúlku Tveggja ára stúlka er á sjúkrahúsi eftir að hundur réðist á hana þar sem hún var gestkomandi í íbúð í Lancashire í Skotlandi. Stúlkan hlaut alvarlega áverka á andliti og hefur farið í eina aðgerð. Hundurinn er af Staffordshire bull terrier kyni. Hann hafði ekki áður ráðist að fólki og er ekki á lista yfir hættulega hunda. Erlent 28.4.2007 20:37
Pakistan: Ráðherra slasaðist og 28 létust Innanríkisráðherra Pakistan slasaðist og í það minnsta 28 manns létust í sjálfsmorðsárás í norðvesturhluta Pakistans í dag. 36 aðrir eru slasaðir. Maður með sprengju innanklæða gekk inn á opinberan fund í Charsadda sem er heimabær Aftab Ahmad Khan Sherpao innanríkisráðherra. Sherpao hafði nýlokið ræðu og var að tala við gesti á fundinum þegar öryggisverðir stöðvuðu manninn. Erlent 28.4.2007 20:10
Til marks um uppgang þjóðernissinna Um 800 mótmælendur hafa verið handteknir og 150 særst í átökum við lögreglu í Eistlandi vegna deilna um minnismerki um fallna hermenn í síðari heimsstyrjöldinni. Íslendingur sem búsettur er í landinu segir átökin til marks um uppgang þjóðernissinna í Eistlandi. Erlent 28.4.2007 19:00
Jörð skalf undir fótum Englendinga Íbúum í Kent-sýslu á Englandi brá heldur en ekki í brún í morgun þegar jörð tók að skjálfa undir fótum þeirra. Engin slasaðist alvarlega í jarðhræringunum en nokkrar skemmdir urðu á byggingum og rafmagn fór af stóru svæði um tíma. Erlent 28.4.2007 17:53
Tyrkneski herinn haldi að sér höndum Bandaríkjamenn og Evrópusambandið hvetja tyrkneska herinn til að halda að sér höndum nú þegar þing Tyrklands velur næsta forseta landsins. Svo gæti farið að íslamskur forseti verði fyrir valinu og hefur herinn hótað að grípa í taumana til að vernda sjálfstæði stjórnvalda gagnvart trúarbrögðum. Erlent 28.4.2007 17:47
57 létust og 160 slösuðust í Írak Í það minnsta 57 eru látnir og 160 slasaðir eftir að bílasprengja sprakk í Írösku borginni Karbala í dag. Þetta er önnur sprengingin af þessu tagi á tveimur vikum í borginni. Í henni eru tvö heilugustu bænahús síja múslíma. Fréttir herma að sprengjan hafi sprungið við hlið moskunnar Imam Abbas þegar fólk flykktist þangað til bæna. Erlent 28.4.2007 18:17
Tattó auglýsingar fyrir lífstíð Atvinnulaus maður í Brasilíu hefur fundið afar sérstaka leið til að afla sér lífsviðurværis. Hann notar líkama sinn sem auglýsingaskilti. Edson Alves hefur látið tattóvera tuttugu auglýsingar fyrirtækja frá heimabæ sínum á bak sitt og handleggi. Hann fer síðan úr að ofan við hvert tækifæri og gengur um bæinn. Erlent 28.4.2007 17:00
Harry prins skotmark hryðjuverkasamtaka Ákvörðun um að senda Harry Bretaprins til Íraks með herdeild sinni er nú til endurskoðunar hjá yfirmönnum breska hersins. Ákvörðunin var tekin í febrúar. Embættismenn óttast nú að Harry verði aðalskotmark hryðjuverkamanna, en ellefu breskir hermenn hafa látist í Írak í þessum mánuði. Erlent 28.4.2007 15:34
England: Ekki heitara í apríl í rúm 300 ár Hitastig í aprílmánuði í Englandi hefur ekki mælst jafn hátt frá upphafi mælinga sem hófust fyrir rúmum 300 árum. Gert er ráð fyrir að vormánuðirnir mars apríl og maí slái öll fyrri met. Fyrir allt Bretland er mánuðurinn sá hlýjasti í 140 ár. Á landsvísu er nýliðinn vetur annar hlýjasti veturinn frá því mælingar hófust. Erlent 28.4.2007 14:22
Átök í Tallin Allt logaði í óeirðum í Tallin höfuðborg Eistlands í gærkvöldi - annað kvöldið í röð. Deilt er um sovéskt minnismerki sem yfirvöld fjarlægðu úr höfuðborginni í gær en þar hefur það staðið í áratugi. Tíu mótmælendur særðust í átökum við lögreglu í gær og þrjú hundruð úr hópi þeirra voru handteknir. Erlent 28.4.2007 11:56
Geitburður hafinn í húsdýragarðinum Sex kiðlingar fæddust í Húsdýragarðinum í gær og þykja tíðindin endanlega boða vorkomu. Fjórar kvenkynsgeitur báru kiðlingana sex og var jafnræði milli kynjanna, því þrír hafrar komu í heiminn og þrjár huðnur, eða geitastelpur. Hafurinn Brúsi er faðir allra kiðlinganna, en mæðurnar eru Perla, Snotra, Dáfríð og Ísbrá. Innlent 28.4.2007 11:59
Aflétta banni á demanta-útflutningi Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær að aflétta banni á útflutningi á demöntum frá Afríkuríkinu Líberíu. Bannið hefur verið í gildi frá 2001 og var sett á til að koma í veg fyrir að ágóðinni af sölunni yrði notaður til að fjármagna stríð í Vestur-Afríku. Erlent 28.4.2007 10:33
Jarðskjálfti skók Kent sýslu í Englandi Jarðskjálfti sem mældist fjórir komma sjö á Richter skók Kent-sýslu á Englandi í morgun. Raflínur féllu til jarðar og rafmagnslaust er á stóru svæði. Skemmdir urðu á húsum. Engar fréttir hafa borist af slysum á fólki. Fram kemur á fréttavef BBC að sérfræðingar telji upptök skjálftans hafa orðið um tuttugu og fimm kílómetra suður af Canterbury og um tíu kílómetra undir jarðskorpunni. Erlent 28.4.2007 10:24
Tíu særðust í mótmælum í Tallin Tíu særðust og þrjú hundruð mótmælendur voru handteknir í óeirðum í Tallin, höfuðborg Eistlands, í gærkvöldi. Þetta er annar dagurinn í röð sem til átaka kemur. Tekist er á um niðurrif á sovésku minnismerki sem hefur staðið í miðborginni í áratugi. Erlent 28.4.2007 10:22
Grátbiðja Uribe um að hefja viðræður Tólf kólumbískir þingmenn sendu í dag forseta landsins, Alvaro Uribe, skilaboð um að hefja viðræður við uppreisnarmenn, FARC, sem hafa haldið þeim föngnum síðastliðin fimm ár. Fjölskyldur mannanna grétu á meðan þær horfðu á myndband þar sem þeir minntust barnanna sinna, heilsuðu eiginkonum sínum og grátbáðu Uribe að hefja viðræður við uppreisnarmennina. Erlent 27.4.2007 23:36
Ætla að auka viðskipti yfir Atlantshafið Leiðtogar Bandaríkjanna og Evrópusambandsins munu á mánudaginn kemur taka stórt skref í áttina að því að auka viðskipti yfir Atlantshafið. Þá skrifa Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, undir rammasamkomulag um frekari viðskipti. Þau ætla sér einnig að reyna að ljúka Doha viðræðunum, sem núna eru á sjötta ári, fljótlega. Erlent 27.4.2007 23:27
Knattspyrna hvetur til kynlífs Þýsk yfirvöld hafa skýrt frá því að fæðingar hafa aukist um 30 prósent miðað við sama tíma í fyrra. Og hver gæti ástæðan verið? Jú, knattspyrna. Erlent 27.4.2007 23:01
Wolfowitz yfirheyrður á mánudaginn Paul Wolfowitz, forseti Alþjóðabankans, og kærastan hans, Shaha Riza, munu koma fram fyrir sérstaka nefnd Alþjóðabankans á mánudaginn kemur til þess að svara spurningum um aðkomu hans að stöðu- og launahækkun Riza. Lögfræðingur Wolfowitz segir að þar muni koma fram að engir hagsmunaárekstrar hafi átt sér stað og að allt sé með felldu. Erlent 27.4.2007 22:48
Kona giftist fjórum konum Nígerísk lesbía frá ríkinu Kano, sem giftist fjórum konum um síðustu helgi, hefur farið í felur til þess að forðast íslömsku lögregluna. Samkvæmt íslömskum Sharia-lögum, sem voru sett á fyrir sjö árum, er samkynhneigð sem og hjónabönd fólks af sama kyni bönnuð. Bæði brotin eru talin mjög alvarleg. Til að mynda var leikhúsið þar sem brúðkaupið fór fram brotið niður. Erlent 27.4.2007 22:29
Tyrkneski herinn segist verndari stjórnkerfisins Herinn í Tyrklandi sendi í kvöld frá sér yfirlýsingu um að hann fylgdist vel með forsetakosningum þar í landi. Herinn sagðist hafa áhyggjur af stöðu mála eftir að fyrsta umferð kosninganna leiddi til pattstöðu á milli stjórnarflokka og stjórnarandstöðu. Tyrkneska þingið kýs forseta landsins. Erlent 27.4.2007 21:35
Solana hvetur Bandaríkin til viðræðna Utanríkismálaráðherra Evrópusambandsins, Javier Solana, hvatti í kvöld Bandaríkin til þess að hefja beinar viðræður við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra. Solana sagðist jafnframt öruggur um að Íranar væru tilbúnir til slíkra viðræðna. Erlent 27.4.2007 20:51
Viðskipti með demanta frá Líberíu leyfð Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna aflétti í dag sex ára banni á útflutning á líberískum demöntum. Banninu hafði verið ætlað að koma í veg fyrir viðskipti með svokallaða blóðdemanta en slík viðskipti fjármagna oftar en ekki stríðsherra í borgarastyrjöldum. Erlent 27.4.2007 19:59
172 al-Kaída liðar handteknir í Sádi-Arabíu Yfirvöld í Sádi-Arabíu segjast hafa komið upp um ráðagerð al-Kaída um að ráðast á olíu- og herstöðvar í landinu. Lögreglan handtók 172, þar á meðal menn sem voru í þjálfun til þess að gerast sjálfsmorðsflugmenn. Þá lagði lögreglan hald á fjölvörg vopn og meira en 340 milljónir íslenskra króna. Erlent 27.4.2007 18:09
Al-Kæda foringi til Gvantanamo Háttsettur íraskur foringi í Al-Kæda var sendur í fangabúðirnar í Gvantanamo flóa á Kúbu í þessari viku, að sögn bandaríska varnarmálaráðuneytisins. Erlent 27.4.2007 15:56
Harry hótar að hætta í hernum Breska herstjórnin er orðin hikandi við að senda Harry prins til Íraks með hersveit sinni. Síðasti mánuður var sá blóðugasti sem breskir hermenn hafa upplifað í Írak, síðan innrásin var gerð árið 2003. Prinsinn er sagður hafa hótað því að hætta í hernum, ef hann verði ekki sendur. Harry er þriðji í erfðaröðinni til bresku krúnunnar. Erlent 27.4.2007 15:36
Lærðu flug fyrir hryðjuverkaárásir Grunaðir hryðjuverkamenn sem voru handtekinir í Saudi-Arabíu, voru að læra að fljúga til þess að geta gert sjálfsmorðsárásir á mikilvæg skotmörk eins og olíustöðvar og herstöðvar bæði innanlands og utan. Erlent 27.4.2007 14:12
Berlusconi sýknaður aftur Áfrýjunardómstóll í Mílanó sýknaði í dag Silvio Berlusconi fyrrverandi forsætisráðherra, af ákærum um spillingu. Þetta er í annað skipti sem hann er sýknaður í þessu sama máli. Í fyrra skiptið var það árið 2004. Erlent 27.4.2007 13:51
Einn lést og 60 særðust í óeirðum í Tallin Maður var stunginn til bana og hátt í sextíu manns særðust í miklum óeirðum í Tallinn í Eistlandi í gærkvöldi. Átökin brutust út þegar hópur fólks mótmælti niðurrifi sovésks minnismerkis um afrek Rauða hersins í seinni heimsstyrjöldinni, sem staðið hefur í miðborg Tallinn í áratugi. Erlent 27.4.2007 13:29
Hagvöxtur í Bandaíkjunum langt undir spám Hagvöxtur jókst um 1,3 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins í Bandaríkjunum, samkvæmt nýjustu upplýsingum hagstofu Bandaríkjanna. Hagvöxtur hefur ekki verið jafn lítill í fjögur ár. Fréttirnar ollu því að gengi bandaríkjadals lækkaði á markaði og hefur aldrei verið jafn lágur gagnvart evru. Viðskipti erlent 27.4.2007 13:12
„Noregur úr NATO og NATO úr þessum heimi“ Þetta voru slagorð mótmælenda gegn NATO á götum Óslóborgar í gærkvöldi. Óeirðalögreglan beitti á endanum táragasi á hópinn, og þurftu fréttamaður okkar og utanríkisráðherra að forða sér undan gasinu sem lagði um nágrenni ráðhússins. Erlent 27.4.2007 12:46
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent