Erlent

Tattó auglýsingar fyrir lífstíð

Það getur verið erfitt að breyta ef fyrirtæki vill ekki auglýsa lengur.
Það getur verið erfitt að breyta ef fyrirtæki vill ekki auglýsa lengur. MYND/Getty Images

Atvinnulaus maður í Brasilíu hefur fundið afar sérstaka leið til að afla sér lífsviðurværis. Hann notar líkama sinn sem auglýsingaskilti. Edson Alves hefur látið tattóvera tuttugu auglýsingar fyrirtækja frá heimabæ sínum á bak sitt og handleggi. Hann fer síðan úr að ofan við hvert tækifæri og gengur um bæinn.

Edson segist þéna afar vel á þessu uppátæki sínu. Grænmetisfyrirtæki í bænum segir að þessi auglýsing sé áhrifaríkari en nokkur önnur sem völ sé á í dagblöðum eða útvarpi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×