Erlendar
81 82 83 84 85 86 87 88 89 … 264 ›
Ísland upp um tvö sæti Í morgun var birtur nýr styrkleikalisti Alþjóða Knattspyrnusambandsins FIFA en þar hefur íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hækkað sig um tvö sæti síðan síðasti listi var gefinn út og situr í 93. sæti. Brasilía er sem fyrr í efsta sæti listans, heimsmeistarar Ítalíu í öðru og Argentínumenn í því þriðja. Fótbolti 22.11.2006 17:02
Benitez vill hirða toppsætið Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur lagt ríka áherslu á það við leikmenn sína að reyna að ná toppsætinu í C-riðli Meistaradeildarinnar í undirbúningi liðsins fyrir leikinn við PSV á Anfield í kvöld. Fótbolti 22.11.2006 16:56
Þrír leikir í beinni á Sýn í kvöld Keppni í Meistaradeild Evrópu heldur áfram með miklum látum í kvöld og sjónvarpsstöðvar Sýnar verða með þrjá leiki í beinni útsendingu. Leikur Werder Bremen og Chelsea verður í beinni á Sýn klukkan 19:30, Liverpool - PSV verður í beinni á Sýn Extra og Levski - Barcelona verður í beinni á Sýn Extra 2 á sama tíma. Fótbolti 22.11.2006 15:04
Schumacher hefur ekki áhyggjur af framtíðinni Ævisaga Michael Schumacher kemur í bókahillur á næstu dögum og ber einfaldlega heitið "Schumacher". Sjöfaldur heimsmeistarinn segist ekki óttast aðgerðaleysi í framtíðinni þó hann sé hættur að keppa og flestir reikna með að hann setjist við hlið Jean Todt hjá Ferrari og sinni starfi ráðgjafa liðsins. Formúla 1 22.11.2006 14:57
Myndavélar verða notaðar á næsta ári Sepp Blatter, forseti FIFA, gaf það út í gær að notast verði við myndavélar til að skera úr um það hvort boltinn fer inn fyrir marklínu í heimsmeistarakeppni félagsliða á næsta ári. Til stóð að nota slíkan búnað á HM í sumar en hætt var við það eftir að búnaðurinn þótti ekki nógu langt kominn. Nú hefur hinsvegar verið ákveðið að reyna hann frekar og stefnt er á að koma þessari tækni inn á öll stórmót í nánustu framtíð. Fótbolti 22.11.2006 14:52
Joey Barton hefur ekki áhyggjur af landsliðinu Miðjumaðurinn skrautlegi Joey Barton hjá Manchester City segist ekki hafa stórar áhyggjur af því þó hann hljóti ekki náð fyrir augum Steve McClaren hjá enska landsliðinu og segist heldur vilja vinna titla með liði City. Enski boltinn 22.11.2006 14:45
Gamlir refir íhuga að hætta Ítalska dagblaðið Gazzetta dello Sport greinir frá því í dag að einhver skörð verði væntanlega höggvin í stórlið AC Milan í vor, því þeir Paolo Maldini og Alessandro Corstacurta hallist að því að leggja skóna á hilluna. Þá er einnig reiknað með því að brasilíski bakvörðurinn Cafu sé að spila sína síðustu leiktíð með liðinu. Fótbolti 22.11.2006 14:40
Roy Carroll í meðferð Markvörðurinn Roy Carroll hjá West Ham er að sögn bresku blaðanna að ljúka meðferð við áfengis- og spilafíkn. Carroll hefur verið frá keppni um nokkurt skeið vegna þessa, en félagið fékk markvörðinn Gabor Kiraly til liðs við sig í nokkrar vikur til að fylla skarð hans. Enski boltinn 22.11.2006 14:38
Vissi að Saha næði ekki að skora Neil Lennon, fyrirliði Glasgow Celtic, hefur gefið það upp að Gary Neville hjá Manchester United hafi komið til sín skömmu áður en Louis Saha tók vítaspyrnuna á lokamínútum leiks liðanna í Meistaradeildinni í gær og sagt sér að Saha myndi ekki skora úr henni. Fótbolti 22.11.2006 14:30
Anton Ferdinand ákærður fyrir líkamsárás Varnarmaðurinn Anton Ferdinand hjá enska úrvalsdeildarliðinu West Ham hefur verið kærður fyrir líkamsárás á næturklúbbi í London í síðasta mánuði. Breska sjónvarpið greinir frá þessu í dag. Enski boltinn 22.11.2006 14:27
Mourinho ætlar að spila til sigurs Jose Mourinho segir sína menn í Chelsea ætla að sækja til sigurs gegn Werder Breen í Meistaradeildinni í kvöld, þó sigur gæti í raun orðið til þess að hjálpa erkifjendunum Barcelona að komast áfram upp úr riðlinum. Fótbolti 22.11.2006 13:43
Koba Bryant skoraði 40 stig gegn Clippers Kobe Bryant, leikmaður LA Lakers í NBA deildinni, er nú óðum að finna fyrra form eftir hnéuppskurð í sumar. Hann skoraði 40 stig í 105-101 sigri Lakers á grönnum sínum í LA Clippers í nótt. Elton Brand skoraði 20 stig og hirti 15 fráköst fyrir Clippers og Corey Magette skoraði einnig 20 stig. Lakers hefur unnið 8 leiki og tapað aðeins 3. Körfubolti 22.11.2006 13:28
Áfall að tapa þessum leik Sir Alex Ferguson segir að það hafi verið algjört áfall fyrir sig og sína menn í Manchester United að tapa fyrir Celtic í Meistaradeildinni í kvöld, en enska liðið hafði tögl og haldir áður en frábær aukaspyrna Japanans Nakamura tryggði Celtic sigurinn. Fótbolti 21.11.2006 23:20
Nakamura tryggði Celtic sigur á Man Utd Manchester United tapaði öðrum leik sínum í röð í Meistaradeild Evrópu í kvöld þegar liðið lá 1-0 fyrir Glasgow Celtic í Skotlandi. Enska liðið var mun betri aðilinn í leiknum en eins og til að kóróna slæmt kvöld hjá liðinu, misnotaði Louis Saha vítaspyrnu á lokamínútum leiksins. Það var japanski aukaspyrnusérfræðingurinn Nakamura sem tryggði Celtic sigur með stórkostlegu marki beint úr aukaspyrnu, en hann skoraði einnig beint úr aukaspyrnu í fyrri leik liðanna í haust. Fótbolti 21.11.2006 21:48
Hamburg yfir gegn Arsenal í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sjö sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu. Þýska liðið Hamburg hefur yfir 1-0 gegn Arsenal á Emirates þar sem Rafael van der Vaart skoraði strax á 4. mínútu og Lyon hefur yfir 2-1 gegn Real Madrid á Bernabeu. Enn er markalaust í baráttunni um Bretland á Celtic Park, en stöðuna í leikjum kvöldsins má sjá á Boltavaktinni hér á Vísi og svo eru þrír leikir í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðvum Sýnar. Fótbolti 21.11.2006 20:39
Porto tók CSKA Moskvu í kennslustund Einum leik er lokið í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Porto vann öruggan og sannfærandi útisigur á CSKA Moskvu 2-0 með mörkum frá Ricardo Quaresma og Lucho Gonzalés og er liðið fyrir vikið komið í toppsætið í G-riðli. Fótbolti 21.11.2006 19:45
Montoya ók á vegg Kólumbíumaðurinn Juan Pablo Montoya, sem áður ók með McLaren í Formúlu 1, slapp ómeiddur á sunnudaginn þegar hann ók Nascar-bíl sínum á vegg í keppni í Miami. Jimmy Johnson tryggði sér meistaratitilinn með því að hafna í 9. sæti í keppninni og hafði betur í einvígi sínu við Matt Kenseth. Formúla 1 21.11.2006 17:21
Platini situr ekki á skoðunum sínum Michel Platini, fyrrum landsliðsmaður Frakka sem þrisvar var sæmdur Gullskónum sem leikmaður, segir að Fabio Cannavaro eigi alls ekki skilið að verða sæmdur verðlaununum í ár. Víst þykir að Cannavaro muni verða sæmdur verðlaununum í lok mánaðarins, en fréttir þess efnis hafa lekið í fjölmiðla að undanförnu. Fótbolti 21.11.2006 17:28
Of mikil pressa á útlendingunum Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að útlenskum leikmönnum í ensku úrvalsdeildinni sé ekki sýnd næg þolinmæði og bendir á að stuðningsmenn geri óraunhæfar væntingar til manna sem eru að rífa fjölskyldu sína upp og flytja búferlum til landa með gjörólíka menningu. Enski boltinn 21.11.2006 16:16
Áfrýjunum Tottenham og Blackburn vísað frá Ensku úrvalsdeildarfélögin Tottenham og Blackburn höfðu ekki erindi sem erfiði í áfrýjunum sínum á rauðu spjöldin sem þeir Hossam Ghaly og Tugay fengu að líta í viðureign liðanna á sunnudaginn. Stjórar beggja liða gagnrýndu dómgæslu Phil Dowd harðlega eftir leikinn, enda má færa rök fyrir því að bæði rauðu spjöldin hafi verið ansi vafasöm. Enski boltinn 21.11.2006 15:05
Carlos og Guti framlengja hjá Real Madrid Brasilíski bakvörðurinn Roberto Carlos og spænski miðjumaðurinn Guti skrifuðu báðir undir framlengingu á samningi sínum við Real Madrid í dag. Carlos 33 ára og er nú samningsbundinn Real fram til 2008 og Guti, sem er þrítugur, hefur framlengt til ársins 2010. Þeir verða væntanlega báðir í eldlínunni í kvöld þegar Real fær Lyon í heimsókn í Meistaradeildinni en sá leikur verður sýndur beint á Sýn Extra 2 klukkan 19:30. Fótbolti 21.11.2006 14:51
Fjórir leikir í beinni á Sýn í dag Sjónvarpsstöðvar Sýnar verða með fjórar beinar útsendingar frá Meistaradeildinni í dag. Hátíðin hefst með leik CSKA Moskvu og Porto klukkan 17:15 á Sýn. Klukkan 19:30 hefst svo leikur Celtic og Manchester United á Sýn og á sama tíma verða leikir Arsenal og HSV á Sýn Extra og leikur Real Madrid og Lyon á Sýn Extra 2. Fótbolti 21.11.2006 14:37
Celtic ætti fullt erindi í ensku úrvalsdeildina Gordon Strachan og lærisveinar hans í skoska liðinu Glasgow Celtic mæta Manchester United í Meistaradeildinni í kvöld og á blaðamannafundi fyrir leikinn sagði Strachan að ekki væri jafn mikill munur á ensku úrvalsdeildinni og þeirri skosku og margir héldu. Fótbolti 21.11.2006 14:28
Thorpe hættur Eins og fram kom í fjölmiðlum um helgina hefur ástralski sundmaðurinn Ian Thorpe nú tilkynnt formlega að hann sé hættur keppni, aðeins 24 ára að aldri. Thorpe er fimmfaldur Ólympíumeistari, en hefur lítið geta keppt síðan árið 2004 vegna þrálátra meiðsla. Sport 21.11.2006 14:23
Besta byrjun í sögu Utah Jazz Utah Jazz vann í nótt sjötta leik sinn í röð í NBA deildinni og hefur unnið 10 af fyrstu 11 leikjum sínum í upphafi leiktíðar, sem er félagsmet. Liðið skellti Toronto 101-96 á heimavelli í nótt og er í efsta sæti deildarinnar, en lenti þó 16 stigum undir á tímapunkti í síðari hálfleik rétt eins og í leiknum þar á undan. Körfubolti 21.11.2006 13:57
Greiða rúma 14 milljarða fyrir West Ham Eggert Magnússon og félagar sömdu í dag um kaup á meirihluta í breska knattspyrnufélaginu West Ham United. Kaupverðið er 108 milljónir punda eða um 14 milljarðar króna. Enski boltinn 21.11.2006 13:38
Geir verður eftirlitsmaður í Meistaradeildinni Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, verður eftirlitsmaður UEFA á leik Benfica og FC Kaupmannahöfn í Meistaradeild Evrópu á morgun. Leikurinn er liður í riðlakeppni Meistaradeildarinnar, en liðin eru í F-riðli keppninnar. Fótbolti 20.11.2006 20:03
Búist við að Thorpe hætti keppni í sundi Búist er við því að sundmaðurinn Ian Thorpe frá Ástralíu tilkynni um brotthvarf sitt úr íþróttinni á blaðamannafundi sem fram fer á morgun, en þrátlát meiðsli eru svo gott sem búin að binda enda á feril hans. Sport 20.11.2006 15:55
Gallas verður frá í nokkrar vikur Arsenal verður án liðskrafta varnarmannsins William Gallas næstu vikurnar eftir að leikmaðurinn meiddist á æfingu á mánudag. Þetta er mikið áfall fyrir Arsenal en Gallas hefur spilað mjög vel síðustu vikur. Enski boltinn 20.11.2006 15:45
Real Madrid býður í táning frá Argentínu River Plate í Argentínu hefur hafnað 7 milljón punda tilboði frá Real Madrid í táninginn Gonzalo Higuain, sem þykir eitt mesta efnið í Argentínu um þessar mundir. Huguin er til sölu, en aðeins fyrir rétt verð. Fótbolti 20.11.2006 11:21
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent