Erlendar
77 78 79 80 81 82 83 84 85 … 264 ›
Henry ekki tilnefndur sem knattspyrnumaður ársins Alþjóða knattspyrnusambandið gaf í dag út hvaða þrír menn eru tilnefndir sem knattspyrnumenn ársins hjá FIFA. Athygli vekur að framherjinn Thierry Henry hjá Arsenal er ekki á listanum að þessu sinni, en hann skipa nýkjörinn knattspyrnumaður Evrópu, Fabio Cannavaro frá Ítalíu og þeir Ronaldinho og Zinedine Zidane. Enski boltinn 29.11.2006 14:45
Michael Redd skaut Lakers í kaf Michael Redd átti stórleik í nótt þegar Milwaukee bar sigurorð af LA Lakers á útivelli 109-105 í NBA deildinni. Redd skoraði 45 stig, þar af 18 í lokaleikhlutanum og afstýrði þar með 11. tapi Milwaukee í röð gegn Lakers. Kobe Bryant skoraði 27 stig fyrir Lakers en var með afleita skotnýtingu. Lamar Odom var bestur hjá Lakers með 21 stig, 13 fráköst og 8 stoðsendingar. Körfubolti 29.11.2006 14:28
New Orleans - Toronto í beinni Leikur New Orleans Hornets og Toronto Raptors verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld og hefst hann klukkan 1 eftir miðnættið. New Orleans er erfitt heim að sækja þó liðið spili heimaleiki sína raunar í Oklahoma-borg, en Toronto hefur enn ekki unnið útileik á tímabilinu. Rétt er að minna svo á leik Dallas og Sacramento sem verður í beinni á Sýn á föstudagskvöldið. Körfubolti 28.11.2006 22:38
Mikilvægur sigur Sheffield United Sheffield United tryggði sér þrjú afar dýrmæt stig í botnbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 1-0 útisigri á Watford. Það var Danny Webber, fyrrum leikmaður Watford, sem skoraði sigurmark United rétt fyrir leikslok. Markið var nokkuð umdeilt, því Webber þótti hafa verið rangstæður þegar hann skoraði, en sigurinn var engu að síður verðskuldaður hjá United. Enski boltinn 28.11.2006 22:31
Howard er enn inni í myndinni Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að markvörðurinn Tim Howard gæti vel átt framtíðina fyrir sér á Old Trafford þó hann hafi ekki náð að festa sig í sessi hjá félaginu. Howard er lánsmaður hjá Everton um þessar mundir. Enski boltinn 28.11.2006 20:59
Formúla 1 er ekkert barnaafmæli Michael Schumacher segist ekki hafa hlotið neina sérmeðferð þau ár sem hann var ökumaður númer eitt hjá Ferrari eins og margir hafa meinað, heldur segist hann hafa unnið fyrir því með því að vera einfaldlega fljótari en félagi sinn hverju sinni. Formúla 1 28.11.2006 21:16
Orkuríkur Rooney David James, nemandi við háskóla í Sheffield á Englandi, opinberaði í dag rannsókn sína á orkuframleiðslu framherjans Wayne Rooney á knattspyrnuvellinum og niðurstöður skýrslu hans voru mjög eftirtektarverðar. James fann það út að Rooney framleiddi t.a.m. næga orku til að sjóða vatn í 16 tebolla á meðan á einum knattspyrnuleik stendur. Enski boltinn 28.11.2006 21:06
Böðullinn er hættur við að hætta "Böðullinn" Bernard Hopkins hefur nú ákveðið að hætta við að leggja hanskana á hilluna og segist ætla að berjast um heimsmeistaratitilinn í þungavigt að þessu sinni. Hopkins er 41 árs gamall og hætti í júní sl. eftir góðan sigur á Antonio Tarver, en hann segist nú ætla að halda uppi heiðri Bandaríkjanna í þungavigtinni. Sport 28.11.2006 19:36
Riquelme byrjaður að æfa á ný Argentínski landsliðsmaðurinn Juan Roamn Riquelme er nú byrjaður að æfa með liði sínu Villarreal á ný eftir sex daga leyfi. Riquelme var í Argentínu til að vera viðstaddur fæðingu síns þriðja barns og missti fyrir vikið af leik Villarreal og Barcelona um helgina. Fótbolti 28.11.2006 19:19
Tottenham að kaupa ungan miðjumann Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham er nú sagt hafa gengið frá kaupum á 17 ára gömlum miðjumanni frá franska liðinu Lens. Þetta er Marokkómaðurinn Abel Taarabt sem verið hefur í akademíu franska liðsins síðan hann var uppgötvaður hjá Vallons, uppeldisfélagi Zinedine Zidane. Enski boltinn 28.11.2006 19:09
Juninho gagnrýnir brasilíska landsliðið Juninho, leikmaður Lyon í Frakklandi og fyrrum landsliðsmaður Brasilíu, gagnrýnir harðlega undirbúning Brassa fyrir HM í Þýskalandi í sumar og segir að liðið hafi farið á mótið með hangandi hendi. Hann segist þó ánægður með störf nýja landsliðsþjálfarans Dunga það sem af er. Fótbolti 28.11.2006 16:10
Thomas Sörensen í aðgerð Danski landsliðsmaðurinn Thomas Sörensen hjá Aston Villa þarf að fara í aðgerð vegna hnémeiðsla semhann varð fyrir þegar hann lenti í samstuði við Emmanuel Pogatetz hjá Middlesbrough um helgina. Ekki er vitað hversu alvarleg meiðslin eru, en ljóst er að hann verður frá keppni í að minnsta kosti nokkrar vikur. Enski boltinn 28.11.2006 15:39
Nýliðarnir eigast við í kvöld Einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld þegar nýliðar Watford taka á móti nýliðum Sheffield United. Fyrirfram má búast við mikilli hörku í leiknum þar sem liðin tvö eiga eftir að vilja sækja þrjú dýrmæt stig hvort af öðru í botnbaráttunni. Enski boltinn 28.11.2006 15:45
Zenden frá í sex vikur Hollenski miðjumaðurinn Boundewijn Zenden hjá Liverpool verður frá keppni næstu sex vikurnar hið minnsta eftir að hann þurfti í uppskurð á hné. Zanden meiddist á hné í leiknum gegn Manchester City um helgina, en hann var líka frá keppni meira og minna allt síðasta tímabil vegna meiðsla á sama hné. Enski boltinn 28.11.2006 15:32
Johnson verður ekki með gegn United Enski landsliðsframherjinn Andy Johnson getur ekki leikið með liði sínu Everton gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld vegna meiðsla. Johnson er meiddur á læri og þarf nokkra daga til að jafna sig. Þá má lánsmaðurinn Tim Howard ekki spila gegn sínum gömlu félögum í United og það verður því Richard Wright sem stendur í marki Everton í fyrsta úrvalsdeildarleik sínum síðan í apríl. Enski boltinn 28.11.2006 14:38
Dunleavy framlengir við Clippers Þjálfarinn Mike Dunleavy hefur framlengt samning sinn við félagið um fjögur ár og fær fyrir það um 21 milljón dollara. Los Angeles Times greindi frá þessu í gærkvöld. Dunleavy hefur átt stóran þátt í því að rífa lið Clippers upp úr meðalmennskunni og þrátt fyrir að leiktíðin í ár hafi ekki byrjað glæsilega, en liðið náði besta árangri í þrjá áratugi á síðustu leiktíð. Körfubolti 28.11.2006 14:22
Chelsea að skoða David Villa Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að útsendarar Chelsea hafi fylgst náið með spænska landsliðsframherjanum David Villa hjá Valencia að undanförnu og því er haldið fram að hann sé jafnvel hugsaður sem arftaki Andriy Shevchenko hjá enska liðinu, enda hefur Úkraínumanninum ekki gengið vel að skora til þessa. Enski boltinn 28.11.2006 14:08
Phillips er velkominn aftur Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að Shaun Wright-Phillips sé alltaf velkominn aftur til Manchester City eftir 16 mánaða tilþrifalitla veru í herbúðum Englandsmeistara Chelsea. Breskir fjölmiðlar eru á því að Phillips verði seldur frá Chelsea í janúar og var hann síðast orðaður við West Ham. Enski boltinn 28.11.2006 14:01
Solskjær og Park farnir að æfa á ný Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United hefur fengið þær gleðifregnir að þeir Ole Gunnar Solskjær og Park Ji-Sung hafi nú snúið aftur til æfinga eftir meiðsli. Solskjær hefur verið meiddur á læri, en þó hann sé byrjaður að æfa létt - mun hann ekki snúa aftur fyrr en í kring um jólin. Park hefur verið frá vegna ökklameiðsla síðan í september. Enski boltinn 28.11.2006 13:55
Tíu sigrar í röð hjá Dallas Dallas vann í nótt 10. leikinn í röð í NBA deildinni þegar liðið vann sigur á Minnesota 93-87 í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni. Josh Howard og Dirk Nowitzki skoruðu 15 stig hvor fyrir Dallas en Kevin Garnett skoraði 19 stig og hirti 12 fráköst fyrir Minnesota. Körfubolti 28.11.2006 13:32
Bellamy missir af næsta leik Vandræðagemlingurinn Craig Bellamy hjá Liverpool mun að öllum líkindum missa af leik Liverpool og Portsmouth í miðri viku eftir að réttarhöld yfir honum í heimaborg hans Cardiff töfðust um nokkurn tíma. Bellamy var tvo daga fyrir rétti í síðustu viku og þarf að eyða þremur dögum þar í þessari viku. Hann er ákærður fyrir líkamsárás. Enski boltinn 27.11.2006 20:01
Silvestre vill reyna fyrir sér á Spáni Franski varnarmaðurinn Mikael Silvestre hjá Manchester United segist gjarnan vilja breyta til og spila jafnvel á Spáni áður en hann leggur skóna á hilluna. Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur misst sæti sitt í liði United til Nemanja Vidic, en segist engu að síður sáttur við sitt hlutskipti. Enski boltinn 27.11.2006 18:18
Bilbao rekur þjálfarann Baskaliðið Atletic Bilbao rak í dag þjálfarann Felix Sarriugarte eftir að liðið tapaði 3-1 fyrir Sevilla í spænsku deildinni í gær, en liðið datt niður á fallsvæðið í deildinni í kjölfarið. Bilbao hefur aldrei fallið úr efstu deild í sögu félagsins, en liðið slapp naumlega við fall á síðustu leiktíð og er sömuleiðis í vandræðum nú. Fótbolti 27.11.2006 19:26
Dallas - Minnesota í beinni í nótt Leikur Dallas og Minnesota í NBA deildinni verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan hálf tvö í nótt. Dallas er heitasta liðið í NBA og hefur unnið níu leiki í röð og þá er leikur kvöldsins fín upphitun fyrir leik Dallas og Sacramento sem sýndur verður beint á Sýn á föstudagskvöldið klukkan eitt. Körfubolti 27.11.2006 19:51
Hahnemann og Little semja við Reading Markvörðurinn Marcus Hahnemann og miðjumaðurinn Glen Little hafa nú fetað í fótspor Íslendinganna hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Reading og undirritað nýjan samning við félagið. Báðir leikmennirnir eru nú samningsbundnir Reading út leiktíðina 2008. Enski boltinn 27.11.2006 18:28
Cannavaro þakkar landsliðinu og Juventus Ítalska landsliðið og Juventus voru Fabio Cannavaro ofarlega í huga í kvöld þegar hann tók við Gullknettinum, sem er viðurkenning sem afhent er knattspyrnumanni ársins að mati franska tímaritsins France Football. Cannavaro tileinkaði hluta verðlaunanna heimaborg sinni Napoli. Fótbolti 27.11.2006 19:00
Houllier segir það hneyksli að Cannavaro fái Gullknöttinn Gerrard Houllier, þjálfari Frakklandsmeistara Lyon, segir að það sé algjört hneyksli að ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro skuli hafa verið útnefndur knattspyrnumaður Evrópu í ár, en það verður staðfest við hátíðlega athöfn í kvöld. Fótbolti 27.11.2006 18:33
Eiður Smári semur við Adidas Eiður Smári Guðjohnsen skrifaði í gær undir samning við íþróttavöruframleiðandann Adidas sem gilda mun til ársins 2012. Samkvæmt samningnum mun Eiður leika í Predator skóm Adidas á næstu árum og mun taka þátt í þróun á nýjum vörum frá fyrirtækinu. Hann kemst þar með í hóp stórstjarna á borð við Beckham, Kaka og Gerrard sem þegar eru með samning við Adidas. Fótbolti 27.11.2006 17:39
Vialli spáir Manchester United sigri Gianluca Vialli, fyrrum knattspyrnustjóri Chelsea, segir að Manchester United sé líklegasta liðið til að hampa Englandsmeistaratitlinum í vor vegna þeirrar auknu áherslu sem lögð sé á Meistaradeildina í herbúðum Chelsea. Enski boltinn 27.11.2006 17:26
Tottenham að fá ungan markvörð Allt stefnir nú í að enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham muni fá enska U-21 árs landsliðsmarkvörðinn Ben Alnwick frá Sunderland í sínar raðir í janúar. Sunderland fær í staðinn ungverska markvörðinn Martin Fulop og eina milljón punda ef af skiptunum verður, en þau geta ekki klárast formlega fyrr en í janúar. Enski boltinn 27.11.2006 16:21
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent