Erlendar
141 142 143 144 145 146 147 148 149 … 264 ›
FH yfir í hálfleik í Tallin Íslandsmeistarar FH hafa yfir 1-0 í leikhléi í fyrri leik sínum gegn eistneska liðinu Tallin, en leikið er ytra. Tryggvi Guðmundsson skoraði mark Hafnfirðinga eftir um hálftíma leik og stendur FH því ágætlega að vígi. Sport 11.7.2006 16:04
FIFA hefur rannsókn á máli Zidane Alþjóða knattspyrnusambandið hefur nú hrundið af stað rannsókn á atburðarásinni í kring um rauða spjaldið sem Zinedine Zidane fékk að líta í úrslitaleiknum á HM. Zidane skallaði þá Marco Materazzi frá Ítalíu og hefur sá verið sakaður um kynþáttaníð í kjölfarið, en heldur alfarið fram sakleysi sínu. Sport 11.7.2006 14:50
Samningur Domenech framlengdur Franska knattspyrnusambandið hefur gefið það út að samningur landsliðsþjálfarans Raymond Domenech verði framlengdur síðar í sumar og að það sé einróma álit sambandsins að hann verði áfram við stjórnvölinn hjá liðinu. Domenech er 54 ára gamall og hefur stýrt liðinu frá því árið 2004. Sport 11.7.2006 14:45
Nadal slapp vel eftir umferðaróhapp Tenniskappinn Rafael Nadal þótti sleppa vel í gær þegar bíll sem hann var í fór út af veginum og hafnaði á staur. Nadal var á heimleið til Mallorca á Spáni eftir að hafa tapað í úrslitaleik Wimbledon-mótsins, en ekki er vitað hvort hann ók bílnum sjálfur eða var farþegi. Nadal slapp alveg ómeiddur frá óhappinu. Sport 11.7.2006 14:40
Hamann fer ekki til Bolton Þýski miðjumaðurinn Dietmar Hamann hjá Liverpool hefur nokkuð óvænt hætt við að ganga í raðir Bolton. Liverpool hafði gefið grænt ljós á að leikmaðurinn færi og aðeins átti eftir að ganga frá formsatriðum í nýjum samningi hans við Bolton, en nú hefur félagið gefið það út að ekkert verði af félagaskiptunum því Þjóðverjinn hafi skipt um skoðun. Sport 11.7.2006 14:35
Hasselbaink kominn til Charlton Enska úrvalsdeildarfélagið Charlton hefur gengið frá samningi við hollenska framherjann Jimmy Floyd Hasselbaink frá Middlesbrough, en hann var með lausa samninga. Hasselbaink er 34 ára gamall og er sjöundi markahæsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvaldseildarinnar með 125 mörk í 263 leikjum hjá Leeds, Chelsea og Middlesbrough. Sport 11.7.2006 14:29
Herra HM reyndi sjálfsvíg Jurgen Kiessling, einn af aðalskipuleggjendum HM í Þýskalandi, liggur nú mjög þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að hafa reynt að stytta sér aldur á heimili sínu skömmu eftir að keppninni lauk. Kiessling var kallaður "Herra HM" í Þýskalandi og þótti keppnin í alla staði heppnast með miklum ágætum. Ekki er vitað hvers vegna Kiessling greip til þessa örþrifaráðs. Sport 11.7.2006 14:18
Ég er fáfróður Marco Materazzi hefur þvertekið fyrir að hafa kallað Zinedine Zidane hryðjuverkamann í úrslitaleiknum á HM í gær eins og komið hefur fram í fréttum. Materazzi segist vera svo vitlaus að hann viti ekki einu sinni hvað orðið hryðjuverkamaður þýði. Sport 10.7.2006 21:10
Hneykslið keyrði okkur áfram Harðjaxlinn Gennaro Gattuso hjá ítalska landsliðinu segir að knattspyrnuhneykslið heima á Ítalíu hafi gefið liðinu aukinn styrk og þjappað því saman á HM. Nú í vikunni fá fjögur af stórliðunum á Ítalíu að vita örlög sín í kjölfar spillingarmálsins stóra og mun dómurinn hafa úrslitaþýðingu fyrir framtíð margra af leikmönnum landsliðsins. Sport 10.7.2006 18:58
Hann er drengur góður Umboðsmaður ítalska varnarmannsins Marco Materazzi gefur lítið fyrir ásakanir sem bornar hafa verið upp á skjólstæðing hans um að hann hafi ögrað Zidane til að skalla sig með ljótu orðbragði í úrslitaleik HM í gærkvöldi. Umboðsmaðurinn segir að Materazzi sé drengur góður. Sport 10.7.2006 18:46
Ítalska landsliðinu ákaft fagnað við heimkomuna Hundruðir æstra aðdáenda og stuðningsmanna ítalska landsliðsins í knattspyrnu voru samankomnir á flugvellinum þegar liðið lenti þar með HM-styttuna í farteskinu í dag. Búist er við að um hálf milljón manna verði samankomin í miðbæ Rómar í kvöld þar sem sérstök sigurhátíð verður haldin til heiðurs hetjunum. Sport 10.7.2006 17:39
Materazzi kallaði Zidane hryðjuverkamann Samtökin SOS, sem berjast gegn kynþáttafordómum, fullyrða eftir heimildarmönnum sínum að Zinedine Zidane hafi skallað ítalska varnarmanninn Marco Materazzi í úrslitaleiknum á HM í gær eftir að sá ítalski kallaði hann "hryðjuverkamann." Sport 10.7.2006 16:51
Heimurinn ætti að þakka Zidane Thierry Henry, félagi Zinedine Zidane hjá franska landsliðinu, segir að heimurinn standi í þakkarskuld við hann og hvetur fólk til að einblína ekki á brottrekstur hans í úrslitaleiknum í gær, heldur skoða heldur glæstan feril hans sem knattspyrnumanns. Sport 10.7.2006 16:37
Deschamps tekinn við Juventus Frakkinn Didier Deschamps hefur verið ráðinn næsti þjálfari ítalska stórliðsins Juventus. Deschamps varð heimsmeistari með franska landsliðinu árið 1998 og gerði garðinn frægan sem leikmaður Juventus á sínum tíma. Frekari frétta er að vænta af ráðningu Deschamps síðar í dag. Fótbolti 10.7.2006 16:17
Á leið til Boro á næstu dögum Breska sjónvarpið greinir frá því í dag að þýski miðvörðurinn Robert Huth sé nú í þann mund að ganga í raðir Middlesbrough frá Englandsmeisturum Chelsea, eftir að leikmaðurinn var staddur í herbúðum Boro í dag til að gangast undir læknisskoðun. Líklegt er talið að gengið verði frá málinu á næstu 24 tímum og að kaupverðið verði um 5 milljónir punda. Sport 10.7.2006 15:57
Real og Bayern á höttunum eftir Nistelrooy Nú virðist sem Real Madrid ætli að veita Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen samkeppni um hollenska framherjann Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United, en framtíð hans hjá enska félaginu virðist vera mjög óljós. Fótbolti 10.7.2006 15:49
Hefur hug á að halda áfram Marcello Lippi ætlar ekki að leggja árar í bát í þjálfunni og hefur látið í veðri vaka að hann muni halda áfram að þjálfa ítalska landsliðið. Lippi er 58 ára og núverandi samningur hans við ítalska knattspyrnusambandið rennur út í næsta mánuði. Sport 10.7.2006 15:36
Zidane fékk gullknöttinn Frakkinn Zinedine Zidane fékk í gær gullknöttinn á HM, en það eru verðlaunin sem afhent eru besta leikmanni mótsins hverju sinni. Það eru blaðamenn sem standa að valinu og hlaut Zidane flest atkvæði, Fabio Cannavaro varð annar og Andrea Pirlo þriðji. Þess má geta að atkvæðin voru flest komin í hús í hálfleik úrslitaleiksins i gær og því hafði árás Zidane á Marco Materazzi lítil áhrif á útkomuna. Sport 10.7.2006 15:11
FIFA neitar ásökunum Domenech Forráðamenn Alþjóða Knattspyrnusambandsins hafa alfarið neitað ásökunum Raymond Domenech, þjálfara Frakka, um að dómarinn í úrslitaleiknum í gær hafi stuðst við myndbandsupptökur þegar hann rak Zinedine Zidane af velli fyrir að skalla Marco Materazzi. Sport 10.7.2006 14:14
Hvað sagði Marco Materazzi? Miklar vangaveltur hafa nú staðið yfir í allan dag um hvað það var sem varnarmaðurinn Marco Materazzi hjá ítalska landsliðinu sagði við Zinedine Zidane í úrslitaleiknum á HM í gærkvöldi, sem varð þess valdandi að Zidane réðist á hann og skallaði hann. Menn sem tengjast Zidane vilja lítið tjá sig um málið, en þó eru einhverjir sem telja sig vita hvað Materazzi sagði við hann. Sport 10.7.2006 13:56
Niðrandi ummæli um móður Zidane orsök reiðikastsins? Talið er að niðrandi ummæli um móður Zinedine Zidane, fyrirliða franska knattspyrnulandsliðsins, hafi orðið til þess að Zidane skallaði Materazzi leikmann Ítala í leik liðanna á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í gær. Fótbolti 10.7.2006 13:44
Ítalir eru heimsmeistarar í knattspyrnu Ítalir eru heimsmeistarar í knattspyrnu eftir sigur á Frökkum í úrslitaleik HM í kvöld. Zinedine Zidane kom Frökkum yfir með marki úr vítaspyrnu í upphafi leiksins, en Marco Materazzi jafnaði metin fyrir ítalska liðið skömmu síðar. Liðunum tókst svo ekki að skora í venjulegum leiktíma eða í framlengingu, en taugar Ítala héldu betur í vítakeppninni. Aðeins framherjinn David Trezeguet misnotaði spyrnu sína þegar skot hans hafnaði í slá og Ítalir því heimsmeistarar 2006. Erlent 9.7.2006 20:40
Zinedine Zidane lýkur keppni Franski snillingurinn Zinedine Zidane fór heldur betur illa að ráði sínu í síðari hálfleik framlengingar í úrslitaleiknum á HM. Staðan er enn 1-1, en Zidane var rekinn af velli á 110. mínútu fyrir að skalla Marco Materazzi, varnarmann Ítala. Þar með hefur Zinedine Zidane lokið knattspyrnuferli sínum á fremur ósmekklegan hátt. Sport 9.7.2006 20:18
Framlengt í Berlín Leikur Frakka og Ítala um heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu hefur verið framlengdur eftir að staðan að loknum venjulegum leiktíma var jöfn 1-1. Frakkar byrjuðu síðari hálfleikinn mun betur, en ítalska liðið sótti í sig veðrið þegar á leið. Luca Tony skoraði reyndar mark fyrir Ítala, sem dæmt var af vegna rangstöðu. Sport 9.7.2006 19:51
Montoya er á sínu síðasta tímabili í Formúlu 1 Kólumbíski ökuþórinn Juan Pablo Montoya hefur tilkynnt að hann ætli að hætta sem ökumaður í Formúlu 1 að loknu yfirstandandi keppnistímabili. Samningur Montoya við McLaren liðið rennur út á þessu ári og ætlar kappinn að reyna fyrir sér í Nascar í Bandaríkjunum. Sport 9.7.2006 19:13
Jafnt í hálfleik í Berlín Nú hefur verið flautað til leikhlés í úrslitaleik Ítala og Frakka í Berlín. Staðan er 1-1 eftir nokkuð fjörlegan fyrri hálfleik. Zinedine Zidane kom Frökkum yfir úr vítaspyrnu á 7. mínútu, en Marco Materazzi jafnaði metin fyrir Ítala á þeirri 18. Síðan hefur heldur dofnað yfir leiknum, en þó átti Luca Tony skalla í þverslána á franska markinu á 36. mínútu. Sport 9.7.2006 18:45
Materazzi jafnar fyrir Ítala Úrslitaleikurinn á HM er strax farinn að verða í meira lagi dramatískur, því ítalski varnarmaðurinn Marco Materazzi sem gaf Frökkum vítaspyrnu í upphafi leiks, er búinn að jafna metin í 1-1 með skalla eftir hornspyrnu Ítala á 18. mínútu. Frábær byrjun á úrslitaleiknum. Sport 9.7.2006 18:21
Zidane kemur Frökkum yfir Hinn ótrúlegi Zinedine Zidane hefur komið Frökkum yfir 1-0 gegn Ítölum í úrslitaleiknum á HM eftir aðeins sjö mínútur. Frakkar fengu vítaspyrnu eftir að Marco Materazzi braut á Florent Malouda í teignum og Zidane skoraði úr vítaspyrnunni af fádæma öryggi þegar hann vippaði boltanum í þverslána og inn. Sport 9.7.2006 18:07
Englendinga skorti hungur Sir Bobby Robson, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga, segir að liðið hafi skort nauðsynlegt hungur til að ná langt á HM. Robson bendir á að nokkrir af leikmönnum liðsins hafi alls ekki sýnt sitt rétta andlit og segir leikstíl enska liðsins ekki hafa hentað liðinu til að ná að nýta styrkleika þess. Sport 9.7.2006 17:57
Hasselbaink á leið til Charlton? Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að hollenski framherjinn Jimmy Floyd Hasselbaink sé á leið til Lundúnaliðsins Charlton og fullyrða að hann muni gangast undir læknisskoðun hjá félaginu á morgun. Hasselbaink er með lausa samninga eftir að Gareth Southgate, stjóri Middlesbrough, ákvað að framlengja ekki samning þessa fyrrum leikmanns Chelsea. Sport 9.7.2006 17:45
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent