Erlendar
136 137 138 139 140 141 142 143 144 … 264 ›
Tiger Woods varði titil sinn Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hefur tryggt sér sigur á opna breska meistaramótinu í golfi, annað árið í röð. Woods lék af fádæma öryggi í dag og tryggði sér sigur með því að leika lokahringinn á 67 höggum og endaði á 18 höggum undir pari. Chris DiMarco lék á 68 höggum í dag og lauk keppni tveimur höggum á eftir Woods, sem grét fögrum tárum þegar sigurinn var í höfn. Golf 23.7.2006 17:28
Baldomir vann sannfærandi sigur á Gatti Argentínumaðurinn Carlos Alberto Baldomir vann í nótt sannfærandi sigur á Kanadamanninum Arturo Gatty í bardaga þeirra um WBC-titilinn í veltivigt. Baldomir hafði yfirhöndina allan tímann og sló Gatti tvisvar niður með stuttu millibili í 9. lotu og var í kjölfarið dæmdur sigurinn. Gatti sagðist vera að hugsa um að leggja hanskana á hilluna eftir bardagann, en Baldomir hefur augastað á Bretanum Ricky Hatton í framtíðinni. Bardaginn var sýndur beint á Sýn. Sport 23.7.2006 17:08
Floyd Landis sigraði Bandaríkjamaðurinn Floyd Landis er sigurvegari í Frakklandshjólreiðunum árið 2006. Landis var nánast öruggur með sigurinn eftir góða frammistöðu í gær og varð með sigrinum þriðji Bandaríkjamaðurinn til að vinna keppnina. Oscar Pereiro frá Spáni varð annar í keppninni og Þjóðverjinn Andreas Kloeden þriðji. Sport 23.7.2006 16:39
Vieira er velkominn hingað Serbneski varnarmaðurinn Sinisa Mihajlovic hjá Inter Milan á Ítalíu, segist muni bjóða Patrick Vieira velkominn ef hann kjósi að ganga í raðir Inter eins og orðrómur hefur verið á kreiki um að undanförnu. Mihajlovic var dæmdur í sex leikja bann árið 2000 fyrir að ausa Vieira kynþáttaníð í leik í meistaradeildinni. Fótbolti 23.7.2006 15:16
Skandall í uppsiglingu í Tyrklandi? Tyrkneska knattspyrnusambandið hefur nú hrundið af stað rannsókn á mútumáli í efstu deild þar í landi. Eitt dagblaðanna hélt því fram á dögunum að forráðamenn knattspyrnuliðsins Denzilspor hefðu mútað nokkrum leikmönnum andstæðinga sinna til að tapa leik gegn sér til að forðast fall og nú reynir tyrkneska sambandið allt sem í valdi þess stendur til að hreinsa málið út af borðinu áður en deildarkeppnin hefst í byrjun ágúst. Sport 23.7.2006 15:06
Hundfúll yfir að vera fallinn úr Evrópukeppninni Manuel Pellegrini, þjálfari spænska liðsins Villarreal, var mjög óhress með að liðið félli óvænt úr Intertoto keppninni gegn slóvenska liðinu NK Maribor í gær. Pellegrini gagnrýndi leikmenn liðsins harðlega eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli við Slóvenana á útivelli og féll því úr keppni eftir að hafa tapað heimaleiknum 2-1. Fótbolti 23.7.2006 14:55
Damien Duff kominn til Newcastle Írski vængmaðurinn Damien Duff gekk í gærkvöld formlega í raðir Newcastle eftir að hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu. Duff kostar Newcastle um 10 milljónir punda og hefur skrifað undir fimm ára samning við félagið. Hann var keyptur frá Blackburn til Chelsea á 17 milljónir punda árið 2003 og hafði unnið tvo Englandsmeistaratitla með Lundúnaliðinu. Sport 23.7.2006 15:27
Lögmaður Juventus biðst vægðar Cesare Zaccone, lögmaður ítalska stórliðsins Juventus, baðst vægðar fyrir hönd félagsins þegar réttarhöldin héldu áfram í dag. Zaccone segir að refsingin sem Juventus var fengin sé allt of þung og eigi eftir að hafa gríðarlega alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir félagið. Fótbolti 23.7.2006 14:37
Í viðræðum við Bayern Munchen Framkvæmdastjóri Bayern Munchen segir að félagið sé nú í formlegum viðræðum við hollenska framherjann Ruud Van Nistelrooy um að ganga í raðir félagsins, en Nistelrooy hefur gefið það út að hann hafi þrisvar sinnum farið fram á að verða seldur frá Manchester Untied. Karl-Heinz Rummenigge segir Nistelrooy hafa lýst yfir áhuga á að ganga í raðir þýska liðsins, búið sé að ræða fjármálahliðina og nú sé boltinn alfarið hjá Manchester United. Sport 23.7.2006 14:32
Verðlaunagripum Wayne Rooney stolið Lögreglan í Liverpool hefur nú til rannsóknar innbrot sem framið var á heimili foreldra knattspyrnumannsins Wayne Rooney í nótt. Fjölda verðlaunagripa og annara muna tengdum knattspyrnuferli hans var stolið að sögn breska sjónvarpssins. Lögregla hefur þegar gefið það út til almennings að láta vita ef eitthvað af mununum verða settir á sölu á netinu. Sport 23.7.2006 14:24
Vill ólmur spila áfram Varnarmaðurinn Sol Campbell sem nýlega hætti hjá Arsenal, segir tæplega koma til greina fyrir sig að spila á Englandi í framtíðinni því hann vilji reyna fyrir sér á meginlandi Evrópu. Campbell segist vera með samningstilboð í höndunum frá Ítalíu, Spáni og Þýskalandi. Sport 23.7.2006 14:14
Ég er með hreina samvisku Ítalski varnarmaðurinn Marco Materazzi hefur veitt sitt fyrsta viðtal síðan hann var dæmdur í leikbann og sekt fyrir athæfi sitt í úrslitaleik HM um daginn, en Materazzi segist vera með hreina samvisku þrátt fyrir að hafa verið gagnrýndur mikið. Sport 23.7.2006 14:08
Arsenal lagði Ajax Það var mikið um dýrðir í London í dag þegar Arsenal kvaddi goðsögnina Dennis Bergkamp í opnunarleik félagsins á nýja Emirates-leikvangnum. Gamlar hetjur sem leikið hafa með Arsenal og Ajax í gegn um tíðina leiddu þar saman hesta sína fyrir framan fullt hús áhorfenda, sem kvöddu Bergkamp og þökkuðu honum fyrir rúmlega áratugar þjónustu sína við félagið. Sport 22.7.2006 18:06
Floyd Landis í vænlegri stöðu Bandaríkjamaðurinn Floyd Landis hefur forystu fyrir síðasta keppnisdaginn í Frakklandshjólreiðunum eftir að hann kom þriðji í mark á 19. leiðinni í dag. Hann klæðist því gulu treyjunni á morgun, þegar hjólað verður inn í Parísarborg í lokaáfanga þessarar frægustu hjólreiðakeppni heims. Sport 22.7.2006 17:47
Berbatov með tvö glæsimörk í sigri Tottenham Búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov stimplaði rækilega inn í lið Tottenham Hotspur í dag þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í æfingaleik gegn Birmingham á útivelli. Tottenham stillti upp sókndjörfu liði í leiknum með þá Robbie Keane og Jermain Defoe í fremstu víglínu ásamt Berbatov, en það var Búlgarinn sem stal senunni með tveimur þrumuskotum í 2-0 sigri Lundúnaliðsins. Sport 22.7.2006 17:52
Tiger Woods í forystu fyrir lokadaginn Bandaríski kylfingurinn Tiger Wodds hefur eins höggs forystu á opna breska meistaramótinu í golfi þegar keppni er að ljúka á þriðja degi. Woods lék á höggi undir pari í dag og og er því samtals á 13 höggum undir pari á mótinu. Höggi þar á eftir koma þeir Sergio Garcia, Chris DiMarco og Ernie Els. Golf 22.7.2006 17:42
Tap fyrir Kaizer Chiefs í úrslitaleik Manchester United tapaði í dag úrslitaleiknum á æfingamótinu sem háð var í Höfðaborg í Suður-Afríku gegn heimamönnum í Kaizer Chiefs. Ekkert mark var skorað í venjulegum leiktíma, en heimamenn höfðu betur í vítakeppni þar sem markvörður liðsins innsiglaði sigurinn með því að skora sjálfur úr síðustu spyrnunni. Sport 22.7.2006 17:32
Okkar bíður gríðarlega erfitt verkefni Steve Coppell, stjóri Íslendingaliðs Reading sem í vor vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni, segir að liðsins bíði gríðarlega erfitt verkefni á næstu leiktíð. Hann segist hafa nokkuð góða hugmynd um hvar liðið muni standa í úrvalsdeildinni, en bendir á að það muni taka sig um sex deildarleiki að sjá endanlega hvort núverandi hópur liðsins sé nógu sterkur til að halda sæti sínu í deildinni. Sport 22.7.2006 14:48
Við munum veita Chelsea harða keppni Framherjinn Craig Bellamy sem nýverið gekk í raðir Liverpool, segist viss um að lið sitt hafi það sem til þarf til að veita Englandsmeisturum Chelsea verðuga samkeppni í titilbaráttunni næsta vetur. Sport 22.7.2006 14:36
Newcastle lagði Lilleström Newcastle vann í dag nokkuð öruggan 3-0 útisigur á norska liðinu Lilleström í forkeppnni Evrópukeppni félagsliða í Noregi. Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli og því er Newcastle komið áfram í keppninni. Shola Ameobi skoraði tvö mörk fyrir Newcastle og Emre eitt. Sport 22.7.2006 16:22
Ashley Cole á förum? Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, lét í það skína í viðtali við Sky-sjónvarpsstöðina í dag að hugsanlega væri enski landsliðsbakvörðurinn Ashley Cole á leið frá félaginu. Cole lét stjórn Arsenal hafa það óþvegið í nýútkominni ævisögu sinni og talið er að grunnt sé á því góða milli hans og forráðamanna félagsins. Cole hefur lengi verið orðaður sterklega við Englandsmeistara Chelsea. Sport 22.7.2006 15:36
Boðið að taka við Suður-Afríku Brasilíska þjálfaranum Carlos Alberto Parreira var á dögunum boðið að taka við landsliði Suður-Afríku, sem einmitt mun verða gestgjafi í næstu heimsmeistarakeppni í knattspyrnu. Parreira sagði starfi sínu lausu sem þjálfari brasilíska landsliðsins á dögunum og segist upp með sér yfir áhuga Afríkumanna, en ætlar að taka sér tíma í að hugsa málið um nokkra hríð. Sport 22.7.2006 14:32
Erum alveg að landa Duff Glenn Roader, stjóri Newcastle, segir félagið vera aðeins hársbreidd frá því að landa vængmanninum knáa Damien Duff frá Chelsea og búist er við því að hann skrifi undir samning á mánudaginn ef hann stenst læknisskoðun hjá félaginu. Sport 22.7.2006 15:29
Del Horno skrifar undir hjá Valencia Spænski landsliðsmaðurinn Asier del Horno skrifaði í dag undir sex ára samning við Valencia í heimalandi sínu, en félagið keypti hann frá Englandsmeisturum Chelsea á dögunum. Talið er að kaupverðið sé tæpar fimm milljónir punda. Fótbolti 22.7.2006 15:26
Laporta gefur aftur kost á sér Joan Laporta ætlar að gefa aftur kost á sér sem forseti Evrópumeistara Barcelona, en á stjórnarfundi á föstudag var ákveðið að boða til forsetakosninga hjá félaginu eftir að í ljós kom að kjörtímabil Laporta væri úti þó hann hefði í raun aðeins setið í þrjú ár í valdastóli. Laporta segist gefa kost á sér í áframhaldandi embætti því hann beri hagsmuni félagsins í brjósti. Fótbolti 22.7.2006 14:27
Ég er kominn til Real Madrid til að vinna Ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro segist ekki skilja hvernig standi á því að stórlið Real Madrid hafi ekki unnið titil í þrjú ár, en segist staðráðinn í að gera sitt til að breyta því á næstu leiktíð. Cannavara gekki í raðir spænska liðsins frá Juventus á dögunum og leikur nú undir stjórn gamla stjóra síns frá því hjá Juventus, Fabio Capello. Fótbolti 22.7.2006 14:17
Tilbúinn að taka áhættu á Anelka Harry Redknapp segist vera tilbúinn að taka áhættuna á því að kaupa franska framherjan Nicolas Anelka frá tyrkneska liðinu Fenerbahce, þó leikmaðurinn hafi mjög slæmt orð á sér fyrir að vera vandræðagemlingur. Sport 22.7.2006 13:38
Neitar að hafa talað illa um Chelsea Sir Alex Ferguson hefur séð ástæðu til að leiðrétta frétt sem birtist í blaði í Suður-Afríku, þar sem því var haldið fram að Ferguson hefði sagt að Chelsea væri að ganga að knattspyrnunni dauðri. Ferguson var sakaður um að láta þessi orð falla í kvöldverðarboði í Höfðaborg þar sem Manchester United hefur verið við æfingar að undanförnu. Sport 22.7.2006 13:19
Curbishley hefur ekki áhuga á Villa Alan Curbishley, sem nýverið lét af störfum hjá Charlton eftir 15 ára störf, segist ekki hafa áhuga á að taka við liði Aston Villa. Curbishley segir að til greina hefði komið að taka við enska landsliðinu á sínum tíma, en úr því ekkert varð úr því hefur hann ákveðið að taka sér frí í það minnsta fram á vorið. Sport 22.7.2006 13:15
Riggott semur við Boro Varnarmaðurinn Chris Riggott hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarliðið Middlesbrough um fjögur ár. Riggott er 25 ára gamall miðvörður sem festi sig í sessi í byrjunarliði liðsins á síðustu leiktíð og hefur nú bundist félaginu til ársins 2010. Sport 21.7.2006 20:09
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent