Erlendar

Fréttamynd

Heiðar minnkar muninn fyrir Fulham

Heiðar Helguson hefur minnkað muninn í 4-1 fyrir Fulham gegn Manchester United á Old Trafford. Skot Heiðars hrökk af Rio Ferdinand varnarmanni United og fram hjá Edwin van der Sar í markinu. Þetta er því annað árið í röð sem Heiðar skorar á Old Trafford.

Sport
Fréttamynd

Heiðar í byrjunarliði Fulham

Fyrri leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni er nú hafinn og er þar á ferðinni leikur Manchester United og Fulham. Skemmst er frá því að segja að United liðið er að valta yfir Lundúnaliðið og var staðan orðin 4-0 eftir aðeins 19 mínútur. Louis Saha, Wayne Rooney og Ronaldo hafa skorað mörk United og eitt þeirra var sjálfsmark. Heiðar Helguson er í liði Fulham en fær úr litlu að moða vegna stórsóknar heimamanna.

Sport
Fréttamynd

Kallar Eið Smára "Blondie"

Samuel Eto`o, sóknarmaður Barcelona og Kamerún, hefur tekið upp gælunafnið ¿Blondie¿ (Ljóska) á Eið Smára Guðjohnsen, félaga sinn í framlínu spænska stórliðsins. Eto"o greindi frá þessu í samtali við spænska vefmiðil þegar hann var spurður út í nýjustu liðsmenn félagsins, þá Eið Smára, Lilian Thuram og Gianluca Zambrotta.

Fótbolti
Fréttamynd

Ginobili tryggði heimsmeisturunum sigur

Bakvörðurinn snjalli Manu Ginobili var maðurinn á bak við sigur heimsmeistara Argentínu á Frökkum 80-70 í opnunarleik liðanna á HM sem fram fer í Japan. Ginobili skoraði 25 stig fyrir lið Argentínu og Andres Nocioni skoraði 18 stig, en franska liðið var án Tony Parker sem er fingurbrotinn og tekur ekki þátt í mótinu.

Körfubolti
Fréttamynd

Mourning framlengir við Miami

Miðherjinn Alonzo Mourning hefur skrifað undir eins árs samning um að leika með NBA meisturum Miami Heat á næstu leiktíð, en hann tilkynnti fyrir nokkru að hann ætlaði sér að spila eitt ár í viðbót áður en hann leggði skóna á hilluna. Mourning var lykilmaður hjá liði Miami í fyrra þegar hann var varamaður Shaquille O´Neal.

Körfubolti
Fréttamynd

Ánægður með innkomu Theo Walcott

Arsenal varð að láta sér lynda jafntefli í opnunarleik sínum í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið tók á móti Aston Villa á nýja Emirates-vellinum í London og sagði Arsene Wenger leikinn hafa verið dæmigerðan upphafsleik þar sem leikmenn væru ekki komnir að fullu í gang eftir sumarið. Hann var ánægður með táninginn Theo Walcott sem kom inná sem varamaður og átti stóran þátt í jöfnunarmarki Arsenal.

Sport
Fréttamynd

Allt annað að spila fyrir McClaren

Steven Gerrard hefur viðurkennt að hafa öðlast nýtt líf hjá enska landsliðinu eftir að Steve McClaren tók við liðinu af Sven-Göran Eriksson og segir að sér hafi fundist leiðinlegt að spila eftir höfði þess sænska í tíð hans með landsliðinu.

Sport
Fréttamynd

Luke Donald í forystu

Luke Donald er sem stendur í efsta sæti á PGA mótinu í golfi sem stendur yfir í Illinois-fylki í Bandaríkjunum, en þetta er síðasta risamót sumarsins. Donald er á 12 höggum undir pari í þriðju umferð mótsins en þeir Shaun Micheel og Mike Weir koma fast á hæla hans á 11 undir pari. Tiger Woods er í góðri aðstöðu til að hefja atlögu að efstu mönnum eins og hans er von og vísa, en hann er tveimur höggum á eftir þeim á Medinah-vellinum. Sýn er með beinar útsendingar í gangi frá mótinu.

Golf
Fréttamynd

Chelsea spilar leiðinlegan bolta

Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas hjá Arsenal segir að þó hann beri virðingu fyrir sterku liði Englandsmeistara Chelsea, spili það leiðinlega knattspyrnu. Hann segir Arsenal, Barcelona og AC Milan spila skemmtilegustu knattspyrnu allra Evrópuliðanna.

Sport
Fréttamynd

Vissi að við ættum möguleika

Steve Coppell var að vonum ánægður með sína menn í Reading í dag þegar lið hans innbyrti sigur í fyrsta leik sínum í ensku úrvalsdeildinni gegn Middlesbrough með ótrúlegum hætti. Hann sagði úrslitin mjög mikilvæg fyrir sig og leikmenn sína.

Sport
Fréttamynd

Auðvelt hjá Bolton

Lærisveinar Sam Allardyce í Bolton byrja leiktíðina í ensku úrvalsdeildinni með tilþrifum, en liðið vann auðveldan sigur á Tottenham 2-0 í lokaleiknum í dag. Kevin Davies og Ivan Campo skoruðu mörk heimamanna gegn lélegum gestunum frá Lundúnum, sem náðu aldrei að ógna þeirri tveggja marka forystu sem Bolton náði á fyrstu 14 mínútum leiksins.

Sport
Fréttamynd

Grönholm leiðir enn

Heimamaðurinn Marcus Grönholm hefur góða forystu þegar öðrum keppnisdeginum í Finnlandsrallinu er lokið. Grönholm, sem ekur á Ford, hefur rúma mínútu í forskot á heimsmeistarann Sebastien Loeb sem ekur á Citroen, en landi Grönholm Mikko Hirvonen á Ford er enn í þriðja sætinu.

Sport
Fréttamynd

Bolton í góðum málum

Nú er kominn hálfleikur í lokaviðureign dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Bolton hefur yfir 2-0 gegn Tottenham á heimavelli sínum. Kevin Davies skoraði fyrra mark Bolton með skalla eftir hornspyrnu eftir auman varnarleik gestanna og síðara markið var þrumufleygur Ivan Campo af meira en 30 metra færi.

Sport
Fréttamynd

Hannover steinlá

Hannover 96 tapaði í dag 4-0 fyrir Hertha Berlín í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og er liðið því neðst í deildinni án stiga eftir tvær umferðir. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var ekki í leikmannahópi Hannover í dag, frekar en í fyrsta leik liðsins á dögunum.

Fótbolti
Fréttamynd

Frábær byrjun hjá Reading

Nýliðar Reading byrjuðu vel í opnunarleik sínum í ensku úrvalsdeildinni í dag, þegar liðið vann frábæran 3-2 sigur á Middlesbrough á heimavelli sínum eftir að hafa lent undir 2-0. Ívar Ingimarsson var í byrjunarliði Reading og lagði upp jöfnunarmark liðsins, en það var Leroy Lita sem skoraði sigurmark nýliðanna í upphafi síðari hálfleiks.

Sport
Fréttamynd

Enska úrvalsdeildin er maraþonhlaup

Rafa Benitez hafði ekki miklar áhyggjur af því að hafa tapað tveimur stigum í fyrsta leik sínum með Liverpool á leiktíðinni í dag og líkti keppni í ensku úrvalsdeildinni við maraþonhlaup, aðeins væri búinn kílómeter af hlaupinu og því engin ástæða til að örvænta. Hann hefur þó meiri áhyggjur af þeim leikmönnum sem hann missti í meiðsli í leiknum gegn Sheffield United í dag.

Sport
Fréttamynd

Liverpool átti aldrei að fá víti

Neil Warnock var afar ósáttur við ákvörðun Rob Styles dómara í dag þegar hann dæmdi Liverpool vítaspyrnu sem Robbie Fowler skoraði úr og tryggði Liverpool stig gegn nýliðum Sheffield United. Warnock sagði dómarann hafa átt ágætan leik fyrir utan þessi afdrifaríku mistök, en var að öðru leiti sáttur við stigið. Styles dómari ver ákvörðun sína og segist viss um að Steven Gerrard hafi verið brugðið innan teigs.

Sport
Fréttamynd

Frábær endurkoma hjá Reading

Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fimm sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Mesta fjörið er án efa á leik Reading og Middlesbrough á Majeski vellinum í Reading, þar sem heimamenn skoruðu tvö mörk undir lok hálfleiksins og jöfnuðu eftir að hafa lent undir 2-0.

Sport
Fréttamynd

Tefli Malbranque ekki fram þó það kosti mig starfið

Chris Coleman segir það ekki koma til greina að tefla franska miðjumanninum Steed Malbranque fram með liði Fulham í vetur, jafnvel þó það kosti sig starfið. Malbranque hefur verið til sífelldra vandræða hjá félaginu í sumar og er Coleman algjörlega búinn að missa alla þolinmæði gagnvart honum.

Sport
Fréttamynd

Ívar í byrjunarliði Reading

Ívar Ingimarsson er í byrjunarliði Reading í dag þegar liðið tekur á móti Middlesbrough í sínum fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni í sögu félagsins. Brynjar Björn Gunnarsson er á varamannabekk liðsins. Leikurinn hefst nú klukkan 14 eins og fimm aðrir leikir, en síðasti leikur dagsins er svo viðureign Bolton og Tottenham klukkan 16:15.

Sport
Fréttamynd

Liverpool náði aðeins jafntefli við nýliðana

Leikmenn Liverpool naga sig eflaust í handabökin í dag eftir að hafa aðeins náð jafntefli við nýliða Sheffield United í fyrsta leiknum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. United komst yfir eftir 52 sekúndur í síðari hálfleik með marki frá Rob Hulse, en Robbie Fowler jafnaði úr víti fyrir Liverpool eftir að Steven Gerrard var brugðið innan teigs.

Sport
Fréttamynd

Jones sögð hafa fallið á lyfjaprófi

Bandaríska hlaupadrottningin Marion Jones hefur enn á ný verið borin þungum sökum um lyfjamisnotkun, nú síðast eftir að hún dró sig úr keppni á Gullmótinu í Zurich sem stendur nú yfir í Sviss. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum tala nú um að komið sé í ljós að hún hafi fallið á lyfjaprófi á móti í heimalandi sínu í sumar.

Sport
Fréttamynd

Lyon samþykkir að selja Diarra

Frönsku meistararnir í Lyon hafa loks gefið eftir og hafa samþykkt að selja Malímanninn Mahamadou Diarra til Real Madrid. Talið er að kaupverðið sé um 17 milljónir punda, en Diarra hafði krafist þess að fá að fara til Spánar og hótaði að fara í verkfall ef forráðamenn franska félagsins yrðu ekki að kröfum hans.

Fótbolti
Fréttamynd

Vel heppnuð endurkoma hjá Holyfield

Gamla brýnið Evander Holyfield átti vel heppnaða endurkomu í hnefaleikahringinn í Dallas í nótt þegar hann sigraði Jeremy Bates á tæknilegu rothöggi í annari lotu. Holyfield hafði ekki riðið feitum hesti fyrir bardagann og var sigur hans sá fyrsti síðan árið 2002. Hann stefnir á að koma sér aftur á toppinn á næsta ári og verða heimsmeistri í þungavigt í fimmta sinn á ferlinum.

Sport
Fréttamynd

Sigur í fyrsta leik hjá Bandaríkjamönnum

Lið Bandaríkjanna vann sinn fyrsta leik á HM í körfubolta þegar það lagði lið Portó Ríkó 111-100. Bandaríkjamennirnir voru í bullandi vandræðum í fyrri hálfleik og lentu þá undir í leiknum, en sigur þeirra var nokkuð öruggur þegar upp var staðið. Carmelo Anthony var stigahæstur í liði BNA með 21 stig og þeir LeBron James og Kirk Hinrich skoruðu 15 stig hvor. Chris Paul skoraði 11 stig, gaf 9 stoðsendingar og stal 5 boltum.

Körfubolti
Fréttamynd

Jafnt í hálfleik á Bramall Lane

Keppni í ensku úrvalsdeildinni er nú formlega hafin og flautað hefur verið til hálfleiks í fyrsta leik dagsins sem er viðureign nýliða Sheffield United og Liverpool á Bramall Lane. Staðan er enn 0-0, en þar ber hæst að norski landsliðsmaðurinn John Arne Riise var borinn meiddur af velli um miðbik hálfleiksins og félagi hans Jamie Carragher er sömuleiðis farinn meiddur af velli.

Sport
Fréttamynd

Óvíst hvað tekur við í haust

Hafnfirðingurinn Emil Hallfreðsson hefur staðið sig vel hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Malmö í ár en hann kom til liðsins um áramótin. Þangað var hann lánaður frá enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham sem hann er samningsbundinn. Hvað tekur við í haust er enn í lausu lofti en að öllu óbreyttu heldur hann aftur til Tottenham þegar tímabilið í Svíþjóð er búið.

Fótbolti
Fréttamynd

FIFA rannsakar nasistakveðjur Króata

Króatíska knattspyrnusambandið hefur þurft að svara til saka fyrir hönd stuðningsmanna landsliðsins sem voru með nasistaáróður á vináttuleik Króata og Ítala á dögunum. Hegðun stuðningsmannanna er litin mjög alvarlegum augum hjá FIFA og gætu króatar átt yfir höfði sér harðar refsingar vegna þessa.

Sport
Fréttamynd

Grönholm með forystu

Heimamaðurinn Marcus Grönholm á Ford hefur 12 sekúndna forystu á Sebastien Loeb á Citroen eftir fyrsta keppnisdaginn í Finnlandsrallinu. Grönholm byrjaði vel í dag og vann þrjár af fyrstu fjórum sérleiðunum við erfiðar aðstæður. Finninn hefur unnið keppni þessa fimm sinnum á síðustu sex árum, en heimsmeistarinn Loeb hefur enn ekki náð að sigra í þessari keppni. Hann hefur þó enn þægilegt 33 stiga forskot í stigakeppninni til heimsmeistara.

Sport
Fréttamynd

Powell jafnar heimsmetið aftur

Spretthlauparinn Asafa Powell jafnaði heimsmet sitt og Justin Gatlin í 100 metra hlaupi karla í kvöld þegar hann kom fyrstur í mark á tímanum 9,77 sekúndum á Gullmótinu í Zurich. Þetta er í þriðja sinn sem Powell hleypur á heimsmetstímanum, en Bandaríkjamaðurinn Tyson Gay varð annar í kvöld á persónulegu meti, 9,84 sekúndum.

Sport