Erlendar
121 122 123 124 125 126 127 128 129 … 264 ›
Held að engan hafi órað fyrir þessu Árni Gautur Arason, markvörður íslenska landsliðsins, var skiljanlega ánægður með sigurinn á Norður-Írum í dag. Árni sagðist hafa verið ánægður með að halda hreinu í leiknum og sagðist í samtali við Eirík Stefán Ásgeirsson, blaðamann á Fréttablaðinu, efast um að nokkur hafi þorað að vona að liðið næði þessum úrslitum. Sport 2.9.2006 17:54
Gott að fara heim með þrjú stig Hjálmar Jónsson, leikmaður íslenska landsliðsins, var mjög ánægður með sigurinn á Norður-Írum í dag. Hjálmar kom inná sem varamaður í leiknum í dag og stóð sig ágætlega. Sport 2.9.2006 17:43
Eiður Smári maður leiksins að mati Sky Eiður Smári Guðjohnsen var maður leiksins að mati Sky sjónvarpsstöðvarinnar í dag þegar Íslendingar lögðu Norður-Íra 3-0 í Belfast í undankeppni EM. Eiður fékk 9 fyrir frammistöðu sína í dag og miðverðirnir Hermann Hreiðarsson og Ívar Ingimarsson fengu 8. Keith Gillespie fékk hæstu einkunn Norður-Íra eða 7, en aðrir fengu flestir 5-6 fyrir frammistöðu sína. Sport 2.9.2006 17:31
Aldrei heyrt áhorfendur baula á okkur á heimavelli Lawrie Sanchez var afar óhress með varnarleik norður-írska liðsins gegn Íslendingum í undankeppni EM í dag þegar heimamenn lágu 3-0. Áhorfendur bauluðu á norður-írska liðið þegar það gekk af velli á Windsor Park og sagði Sanchez þá hafa haft fullan rétt á því. Sport 2.9.2006 17:11
Englendingar yfir í hálfleik Englendingar hafa ekki mætt mikilli mótstöðu í fyrri hálfleik gegn Andorra í viðureign þjóðanna í undankeppni EM. England leiðir 3-0 í hálfleik á Old Trafford og það voru þeir Peter Crouch (5), Steven Gerrard (13) og Jermain Defoe (38) sem skoruðu mörk liðsins. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Sport 2.9.2006 16:57
Skotar burstuðu Færeyinga Skotar voru ekki í vandræðum með Færeyinga í B-riðli undankeppni EM í dag og unnu auðveldan 6-0 sigur á heimavelli sínum. Kris Boyd skoraði tvö mörk og þeir Darren Fletcher, James McFadden, Kenny Miller og Garry O´Connor eitt hver. Sport 2.9.2006 16:11
Phil Neville í byrjunarliði Englendinga Leikur Englendinga og Andorra í undankeppni EM er nú hafinn á Old Trafford, en þar vekur athygli að gamla brýnið Phil Neville leikur í stöðu hægri bakvarðar hjá enska liðinu. Þá hefur Steve McClaren ákveðið að gefa Jermain Defoe tækifæri við hlið Peter Crouch í framlínunni, þrátt fyrir að hann fái lítið að spila með liði Tottenham. Wes Brown tekur stöðu Rio Ferdinand í miðri vörninni. Sport 2.9.2006 16:02
Frábær sigur á Norður-Írum Íslenska landsliðið í knattspyrnu vann í dag frábæran 3-0 sigur á Norður-Írum í fyrsta leik sínum í undankeppni EM á Windsor Park í Belfast. Íslenska liðið gerði nánast út um leikinn með mörkum Gunnars Heiðars Þorvaldssonar, Hermanns Hreiðarssonar og Eiðs Smára Guðjohnsen í fyrri hálfleik. Þetta er sannarlega frábær byrjun hjá íslenska liðinu sem tekur næst á móti dönum á Laugardalsvelli í næstu viku. Sport 2.9.2006 15:50
Mark dæmt af Norður-Írum Norður-Írar hafa tekið öll völd á Windsor Park í síðari hálfleiknum gegn íslenska liðinu, en liðið hefur ekki haft heppnina með sér. Markahrókurinn David Healy skoraði raunar mark á 61. mínútu, en það var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Sport 2.9.2006 15:25
Kári Árnason fékk astmakast Læknir íslenska landsliðsins í knattspyrnu hefur staðfest við blaðamann Fréttablaðsins sem staddur er á Windsor Park í Belfast, að Kári Árnason hafi verið tekinn af leikvelli í fyrri hálfleik því hann hafi fengið astmakast. Kári á að hafa verið tæpur í gær vegna þessa, en Eyjólfur Sverrisson ákvað að láta slag standa og láta hann spila í dag. Sport 2.9.2006 15:04
Ísland yfir 3-0 í hálfleik Íslenska landsliðið hefur yfir 3-0 gegn Norður-Írum á Windsor Park í Belfast þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Hermann Hreiðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen skoruðu mörk íslenska liðsins, sem er sannarlega í vænlegri stöðu. Það eina sem skyggir á frábæran árangur liðsins er að Kári Árnason þurfti að fara meiddur af velli í fyrri hálfleiknum en í hans stað er Helgi Valur Daníelsson kominn inn í íslenska liðið. Sport 2.9.2006 14:53
Eiður Smári kemur Íslendingum í 3-0 Íslenska landsliðið er komið í 3-0 gegn Norður-Írum á Windsor Park í Belfast. Eiður Smári Guðjohnsen skoraði þriðja markið á 37. mínútu með hnitmiðuðu skoti eftir skyndisókn íslenska liðsins og er þar með orðinn markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi ásamt Ríkharði Jónssyni með 17 mörk. Sport 2.9.2006 14:48
Eiður Smári kemur Íslendingum í 3-0 Íslenska landsliðið er komið í 3-0 gegn Norður-Írum á Windsor Park í Belfast. Eiður Smári Guðjohnsen skoraði þriðja markið á 37. mínútu með hnitmiðuðu skoti eftir skyndisókn íslenska liðsins og er þar með orðinn markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi ásamt Ríkharði Jónssyni með 17 mörk. Innlent 2.9.2006 14:42
Ísland komið í 2-0 Hermann Hreiðarsson hefur komið íslenska landsliðinu í 2-0 gegn Norður-Írum á Windsor Park. Hermann skoraði markið með föstu og hnitmiðuðu skoti í teig Norður-Íra á 21. mínútu en hann var einn og óvaldaður eftir hornspyrnu Jóhannesar Karls Guðjónssonar. Sport 2.9.2006 14:25
Íslendingar komnir yfir Íslenska landsliðið hefur náð 1-0 forystu gegn Norður-Írum í leik liðanna í undankeppni EM sem fram fer í Belfast. Það var Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem skoraði mark íslenska liðsins í fyrstu sókn þess í leiknum á 13. mínútu eftir sendingu frá Brynjari Birni Gunnarssyni. Sport 2.9.2006 14:18
Leikur Norður-Íra og Íslendinga að hefjast á Sýn Leikur Norður-Íra og Íslendinga í undankeppni EM hefst nú klukkan 14 og búið er að tilkynna byrjunarliðin á Windsor Park í Belfast. Leikurinn er sýndur beint á Sýn og það er Guðjón Guðmundsson sem lýsir honum beint að utan. Sport 2.9.2006 13:54
Loeb í góðri stöðu Heimsmeistarinn í rallakstri, Frakkinn Sebastien Loeb á Citroen, hefur þægilega 25 sekúndna forystu á finnska ökuþórinn Marcus Grönholm þegar öðrum keppnisdeginum í Japansrallinu er lokið. Með sigri getur Loeb ekki aðeins farið langt með að tryggja sér þriðja heimsmeistaratitilinn í röð, heldur getur hann jafnað met Carlos Sainz með sínum 27. sigri á ferlinum. Sport 2.9.2006 13:39
Gasol spilar ekki úrslitaleikinn Spænski framherjinn Pau Gasol getur ekki spilað úrslitaleikinn á HM með liði Spánverja eftir að í ljós kom að hann er ristarbrotinn. Gasol hefur verið langbesti maður spænska liðsins á leið þess í úrslitaleikinn og er þetta því gríðarleg blóðtaka fyrir liðið. Hann hefur skorað að meðaltali rúm 21 stig og hirt yfir 9 fráköst. Úrslitaleikurinn fer fram á morgun. Körfubolti 2.9.2006 13:28
Bandaríkjamenn hirtu bronsið Bandaríska landsliðið tryggði sér í dag bronsverðlaun á HM í körfubolta sem fram fer í Japan með öruggum sigri á Argentínumönnum 96-81. Dwyane Wade skoraði 32 stig fyrir Bandaríkjamenn, sem þurftu að gera sér þriðja sætið að góðu líkt og á Ólympíuleikunum fyrir tveimur árum. Körfubolti 2.9.2006 13:18
Brasilía - Argentína í beinni á Sýn í dag Erkifjendurnir og knattspyrnustórveldin Brasilía og Argentína spila vináttulandsleik á Emirates Stadium í London í dag og verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Útsendingin hefst klukkan 14:50 og eru tefla báðar þjóðir fram mjög sterkum liðum. Þá er rétt að minna á beina útsendingu frá PGA mótaröðinni í golfi í kvöld klukkan 21. Sport 2.9.2006 22:19
Danir lögðu Portúgala Danir unnu Portúgala 4-2 í vináttuleik í knattspyrnu í kvöld, en leikurinn fór fram í Danmörku. Jon Dahl Tomasson, Thomas Kahlenberg, Martin Jörgensen og Nicklas Bendtner skoruðu mörk danska liðsins, en Ricardo Carvalho skoraði bæði mörk Portúgala. Cristiano Ronaldo, leikmaður Manchester United, misnotaði vítaspyrnu í leiknum, sem var liður í undirbúningi Dana fyrir leikinn gegn Íslendingum á Laugardalsvelli í næstu viku. Sport 1.9.2006 20:17
Ze Roberto farinn til heimalandsins Brasilíski landsliðsmaðurinn Ze Roberto gekk í gær í raðir Santos í heimalandi sínu Brasilíu. Ze Roberto hefur verið samningslaus í allt sumar eftir að samningur hans við meistara Bayern Munchen rann út. Hann hafði spilað í þýsku úrvalsdeildinni í átta ár, með fyrst hjá Leverkusen og svo hjá Bayern Munchen. Ze Roberto er 32 ára gamall og var í HM hóp Brassa í sumar, en þar þótti hann ekki gera sérstaklega gott mót. Sport 1.9.2006 19:25
Kristján inn í hópinn í stað Daða Markvörðurinn Kristján Finnbogason úr KR hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Norður-Írum á morgun eftir að Daði Lárusson meiddist á æfingu í dag. Kristján er öllum hnútum kunnugur hjá landsliðinu og á að baki 20 landsleiki. Hann verður varamarkvörður Árna Gauts Arasonar í leiknum, sem sýndur verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst klukkan 14. Sport 1.9.2006 18:57
Lokaæfingu hætt snemma vegna hörku Lawrie Sanchez segir að norður-írska landsliðið sé að hugsa um þjóðarstoltið en ekki peningagræðgi nú þegar það leggur lokahönd á undirbúninginn fyrir fyrsta leik sinn í undankeppni EM gegn Íslendingum á morgun. Sanchez flautaði lokaæfinguna af snemma í dag, því honum þótti komið full mikið kapp í sína menn. Sport 1.9.2006 18:39
Denilson á leið til Arsenal? Breska sjónvarpsstöðin Sky heldur því fram að Arsenal sé búið að gera samning við 18 ára gamlan Brasilíumann frá liði Sao Paulo, en sá heitir Denilson og er varnartengiliður. Denilson er sagður gríðarlegt efni, en engin staðfesting hefur enn borist frá Arsenal vegna þessa. Sport 1.9.2006 18:09
Fótboltaveisla á Sýn um helgina Það verður mikið um dýrðir á sjónvarpsstöðinni Sýn um helgina og næstu daga, en þá verður á dagskrá fjöldi beinna útsendinga frá leikjum í undankeppni EM og þá verða athyglisverðir vináttuleikir inn á milli. Þá verður Sýn einnig með beinar útsendingar frá Deutsche Bank mótinu í golfi. Sport 1.9.2006 15:02
Baptista styrkir okkur mikið Arsene Wenger er mjög ánægður með að vera búinn að landa brasilíska landsliðsmanninum Julio Baptista frá Real Madrid og segir hann styrkja hóp Arsenal til muna. Sport 1.9.2006 14:54
Yfirtökutilboð í West Ham á viðræðustigi Breska sjónvarpið greinir frá því í dag að stjórn West Ham sé nú í viðræðum við fjárfesta sem hafi hug á að gera yfirtökutilboð í félagið. Því hefur enn sem komið er verið vísað á bug að þessi tíðindi tengist kaupum félagsins á Argentínumönnunum tveimur í gær, en þeir voru á mála hjá fyrirtækinu Media Sports Investment. Talsmaður þess fyrirtækist segir engin áform uppi hjá fyrirtækinu að eignast knattspyrnufélag í Evrópu. Sport 1.9.2006 14:43
Frítt á völlinn í kvöld Íslenska U-21 árs landsliðið tekur í kvöld á móti því ítalska í riðlakeppni EM. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og hefur KSÍ ákveðið að hafa aðgangseyrir ókeypis. Leikurinn hefst klukkan 19 í kvöld og rétt að skora á sem flesta að mæta og styðja við bakið á íslenska liðinu, en til gamans má geta að ítalska liðið teflir fram leikmönnum á borð við framherjann Guiseppe Rossi hjá Manchester United, sem gekk í raðir Newcastle sem lánsmaður í gær. Sport 1.9.2006 13:36
Spánverjar í úrslit Það verða Spánverjar og Grikkir sem leika til úrslita á HM í körfubolta eftir að liðið vann nauman sigur á Ólympíumeisturum Argentínu í undanúrslitunum í dag 75-74. Leikurinn var í járnum allan tímann, en spænska liðið náði að landa naumum sigri á lokasekúndunum þrátt fyrir að vera án Pau Gasol sem meiddist á ökkla í lokin. Körfubolti 1.9.2006 12:31
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent