Erlendar

Fréttamynd

Gary Payton framlengir við Miami

Leikstjórnandinn Gary Payton hefur efnt loforð sitt frá því í vor og hefur nú framlengt samning sinn við NBA meistara Miami Heat um eitt ár. Payton fær aðeins rúma milljón dollara í árslaun fyrir samninginn og segist vilja vinna annan titil með liðinu áður en hann leggur skóna á hilluna.

Körfubolti
Fréttamynd

Marion Jones sleppur við bann

Bandaríska frjálsíþróttakonan Marion Jones sleppur við keppnisbann eftir að í ljós koma að B-sýnið úr lyfjaprófi hennar frá bandaríska meistaramótinu í sumar reyndist neikvætt. A-sýni hennar innihélt lyfið EPO og átti hún því yfir höfði sér langt keppnisbann.

Sport
Fréttamynd

Yfirheyrður vegna annarar líkamsárásar

Varnarmaðurinn Ben Thatcher hjá Manchester City á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir, en nú hefur lögregla hafið formlega rannsókn í kjölfar kæru ungs leikmanns úr röðum Blackburn, sem slasaðist illa í varaliðsleik eftir að hafa orðið fyrir alræmdum olnboga Thatcher, en frá þessu var greint í Fréttablaðinu á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Helguera neitaði okkur á síðustu stundu

"Stóri-Sam" Allardyce, stjóri Bolton, hefur viðurkennt að félagið hafi verið hársbreidd frá því að fá spænska varnarmanninn Ivan Helguera til liðs við sig frá Real Madrid á síðasta degi félagaskiptagluggans um mánaðamótin.

Sport
Fréttamynd

Ég er tilbúinn að spila gegn Spurs

Enski framherjinn Alan Smith hjá Manchester United segist vera tilbúinn að koma inn sem varamaður með liðinu þegar það tekur á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn, en Smith hefur verið frá keppni í sjö mánuði eftir að hafa fótbrotnað illa í leik gegn Liverpool á síðustu leiktíð.

Sport
Fréttamynd

Ferguson stakk mig í bakið

Hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy hjá Real Madrid segir að Sir Alex Ferguson hjá Manchester United hafi stungið sig í bakið þegar hann ákvað að tefla honum ekki fram í úrslitaleik deildarbikarsins í vor.

Fótbolti
Fréttamynd

Frá í tvo mánuði eftir aðgerð

Franski miðjumaðurinn Steed Malbranque, sem nýverið gekk í raðir Tottenham, verður frá keppni í að minnsta kosti tvo mánuði eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna kviðslits. Þá þykir ljóst að búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov muni missa af leik Tottenham og Manchester United um helgina vegna nárameiðsla.

Sport
Fréttamynd

Sanchez hættur með Norður-Íra?

Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að hugsanlega hafi Lawrie Sanches stýrt landsliði Norður-Íra í síðasta sinn í gær þegar liðið vann dramatískan sigur á Spánverjum á heimavelli sínum. Talið er að Sanchez hafi íhugað að segja af sér eftir tapið gegn Íslendingum um síðustu helgi, en hann talaði ekki við blaðamenn eftir leikinn í gær, heldur henti jakka sínum og bindi upp í áhorfendastæðin og yfirgaf svæðið.

Sport
Fréttamynd

Keisarinn er ekki bjartsýnn

Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, er ekki bjartsýnn á að liðið nái góðum árangri í Meistaradeild Evrópu í vetur. Félagið hefur misst bæði Michael Ballack og Ze Roberto en fengið Mark van Bommel, Lukas Podolski og Daniel van Buyten til liðsins í þeirra stað.

Fótbolti
Fréttamynd

Boxar fyrir smáaura upp í skuldir

Fyrrum heimsmeistarinn í þungavigt, járnkarlinn Mike Tyson, er um þessar mundir að vinna hjá einu af spilavítunum í Las Vegas. Þar boxar Tyson við gesti og gangandi sem vilja fá að bera goðsögnina augum, en hann er nú að reyna sitt besta til að greiða skuldir sínar við skattayfirvöld í Bandaríkjunum.

Sport
Fréttamynd

Frábær sigur hjá Gummersbach

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach eru enn taplausir í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik eftir frækinn útisigur á Kiel í kvöld 39-37, eftir að hafa verið undir 24-20 í hálfleik. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði átta mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson eitt, en þetta var fyrsta tap Kiel á heimavelli í nær þrjú ár.

Sport
Fréttamynd

Frakkar náðu fram hefndum

Frakkar náðu í kvöld fram hefndum frá úrslitaleiknum á HM fyrir tveimur mánuðum, þegar þeir lögðu Ítala 3-1 á heimavelli í undankeppni EM. Sidney Govou skoraði tvö mörk Frakka og Thierry Henry eitt, en Alberto Gilardino svaraði fyrir Ítala og ekki hægt að segja að byrjunin sé glæsileg hjá Roberto Donadoni landsliðsþjálfara.

Sport
Fréttamynd

Þjóverjar niðurlægðu San Marino

Þjóðverjar hreint út sagt niðurlægðu smálið San Marino í undankeppni EM í kvöld og sigruðu 13-0 á útivelli. Lukas Podolski skoraði fjögur mörk í leiknum, Miroslav Klose, Bastian Schweinsteiger og Thomas Hitzlsperger skoruðu tvö hver og þeir Michael Ballack, Arne Friedrich og Bernd Schneider gerðu eitt mark hver.

Sport
Fréttamynd

Frækinn sigur Norður-Íra

Norður-Írar virðast hafa jafnað sig eftir áfallið á heimavelli gegn Íslendingum um síðustu helgi, en liðið skellti Spánverjum 3-2 í undankeppni EM í Belfast í kvöld. David Healy skoraði þrennu fyrir írska liðið, en þeir Xavi og David Villa skoruðu mörk Spánverja.

Sport
Fréttamynd

Crouch bjargaði Englendingum

Peter Crouch skoraði eina mark leiksins þegar Englendingar lögðu Makedóna 1-0 á útivelli í undankeppni EM í kvöld. Crouch hefur verið sjóðandi heitur upp á síðkastið, en þó enska liðið hafi vissulega fengið fleiri færi til að skora í kvöld, hefðu heimamenn að sama skapi geta tryggt sér stig með smá heppni. Englendingar eru því enn með fullt hús stiga eftir tvo leiki í riðlakeppninni.

Sport
Fréttamynd

Danir númeri of stórir

Íslenska landsliðið í knattspyrnu þurfti að sætta sig við 2-0 tap fyrir Dönum á Laugardalsvelli í kvöld í undankeppni EM. Danska liðið hafði sterk tök á leiknum frá upphafi og eftir að þeir Dennis Rommendahl og Jon Dahl Tomasson höfðu komið liðinu í 2-0 eftir rúman hálftíma, var sigur Dana aldrei í hættu.

Sport
Fréttamynd

Danir leiða í hálfleik

Nú er búið að flauta til leikhlés í viðureign Íslendinga og Dana á Laugardalsvelli í undankeppni EM í knattspyrnu. Skemmst er frá því að segja að Danir hafa verið miklu betri í fyrri hálfleiknum og leiða verðskuldað 2-0. Það voru Dennis Rommendahl og Jon Dahl Tomasson sem skoruðu mörk danska liðsins á 5. og 33. mínútu.

Sport
Fréttamynd

2-0 fyrir Dani

Danir eru komnir í 2-0 gegn Íslendingum eftir 33 mínútur á Laugardalsvelli. Það var Jon Dahl Tomasson sem skoraði markið eftir snarpa skyndisókn danska liðsins, en skömmu áður hafði Eiður Smári Guðjohnsen fengið dauðafæri á hinum enda vallarins.

Sport
Fréttamynd

Danir komnir yfir

Það tók Dani ekki nema um fimm mínútur að ná forystu gegn Íslendingum í leik liðanna í undankeppni EM á Laugardalsvelli. Það var Dennis Rommendahl sem skoraði mark Dana eftir að hafa fengið langa sendingu inn fyrir íslensku vörnina. Nokkur rangstöðufnykur var af markinu, en línuvörðurinn sá ekki ástæðu til að flagga.

Sport
Fréttamynd

Tveir stórleikir í beinni í kvöld

Það verða tveir frábærir leikir í beinni útsendingu á Sýn og Sýn Extra í undankeppni EM í kvöld. Á Sýn verður stórleikur liðanna sem mættust í úrslitaleik HM fyrir tveimur mánuðum þegar Frakkar og Ítalir mætast í París og þá verður leikur Makedóna og Englendinga í beinni á Sýn Extra. Leikirnir hefjast klukkan 18.

Sport
Fréttamynd

Hef lært mikið af Jose Mourinho

John Terry, fyrirliði Chelsea og enska landsliðsins, segir að Jose Mourinho hafi kennt sér mikið um það að vera fyrirliði þann tíma sem hann hefur verið hjá Chelsea og þessir hlutir hafi komið sér vel eftir að hann tók við fyrirliðabandinu hjá enska liðinu.

Sport
Fréttamynd

Hjálmar í byrjunarliðið

Eyjólfur Sverrisson hefur gert eina breytingu á byrjunarliði sínu fyrir leikinn gegn Dönum í undankeppni EM á Laugardalsvelli í kvöld, en hann hefur kallað Hjálmar Jónsson inn í liðið í stað Hannesar Þ Sigurðssonar. Annars er byrjunarliðið það sama og lagði Norður-Íra um helgina.

Sport
Fréttamynd

Væri kominn með landsleik ef ég spilaði fyrir stórlið

Kevin Nolan segist viss um að sú staðreynd að hann spili með smáliði Bolton hafi hindrað að hann fái tækifæri til að spreyta sig með enska landsliðinu. Nolan hefur oft verið rómaður fyrir frammistöðu sína með Bolton, en hann segist viss um ef hann spilaði með Liverpool eða Manchester United, hefði hann fengið að spila landsleik fyrir löngu.

Sport
Fréttamynd

300 aukamiðar til sölu á miði.is

Knattspyrnusamband Íslands hefur nú boðið 300 aukamiða til sölu á leik Íslands og Danmerkur í undankeppni EM sem hefst klukkan 18:05 í kvöld og þar er á ferðinni kjörið tækifæri fyrir þá sem enn hafa ekki náð að tryggja sér miða á þennan stórleik. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.

Sport
Fréttamynd

Thuram býður heimilislausum á völlinn

Franski landsliðsmaðurinn Lilian Thuram hefur valdið nokkru fjaðrafoki í heimalandi sínu með því að bjóða 80 heimilislausum innflytjendum á leik Frakka og Ítala í París í kvöld, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn og leikur Makedóníu og Englands verður sýndur beint á Sýn Extra klukkan 20.

Sport
Fréttamynd

Aaron Lennon bankar á dyrnar

Steve McClaren hefur aðvarað byrjunarliðsmenn enska landsliðsins og segir að Aaron Lennon geri kröfur á að fá sæti í byrjunarliðinu með frábærum innkomum sínum í leiki liðsins. Lennon lagði upp mark gegn Andorra um helgina og McClaren segir bindur miklar vonir við þennan unga leikmann.

Sport
Fréttamynd

Tiger Woods kylfingur ársins hjá PGA

Sigur Tiger Woods á Deutsche Bank mótinu um helgina tryggði það að hann vann sér nafnbótina kylfingur ársins á PGA enn eitt árið, en titilinn hlýtur sá kylfingur sem rakað hefur inn flestum stigum á mótum ársins. Þetta er í áttunda skipti á tíu árum Woods á mótaröðinni sem hann vinnur stigatitilinn, en aðeins þeir Mark O'Meara árið 1998 og Vijay Singh árið 2004 hafa náð að skáka snillingnum á þeim tíma.

Golf
Fréttamynd

Lisa Leslie verðmætasti leikmaðurinn

Lisa Leslie var á sunnudag valin verðmætasti leikmaðurinn í amerísku kvennadeildinni í körfubolta í þriðja sinn á ferlinum. Leslie leikur með Los Angeles Sparks og var þetta í þriðja sinn á ferlinum sem hún vinnur þessi verðlaun, en aðeins Sheryl Swoopes hjá Houston Comets hefur unnið verðlaunin jafn oft. Leslie skoraði 20 stig að meðaltali í leik í sumar og leiddi deildina í stigum og fráköstum.

Körfubolti
Fréttamynd

Ég gæti notað mann eins og Giggs

Dunga, landsliðsþjálfari Brasilíu, var mjög hrifinn af Ryan Giggs í gærkvöldi þegar Brassar lögðu Wales í æfingaleik á White Hart Lane. Brassar höfðu 2-0 sigur, en Dunga þótti Ryan Giggs fara á kostum í þær 45 mínútur sem hann spilaði í gær.

Sport
Fréttamynd

Kovalainen leysir Alonso af hólmi

Keppnislið Renault í Formúlu 1 tilkynnti í dag að finnski ökuþórinn Heikki Kovalainen muni leysa Spánverjann Fernando Alonso af hólmi sem aðalökumaður liðsins á næsta keppnistímabili þegar heimsmeistarinn gengur í raðir McLaren. Giancarlo Fisichella verður áfram ökumaður hjá liðinu, en hann framlengdi samning sinn um eitt ár á dögunum.

Formúla 1