Erlendar

Fréttamynd

2-0 fyrir Everton í hálfleik

Mörk frá Andy Johnson og Tim Cahill hafa tryggt Everton tveggja marka forystu þegar flautað hefur verið til hálfleiks á Goodison Park í viðureign Everton og Liverpool.

Sport
Fréttamynd

Gasol frá keppni í fjóra mánuði

Spænski framherjinn Paul Gasol verður á hliðarlínunni næstu fjóra mánuðina eftir að hafa gengist undir aðgerð á vinstri fæti. Þetta er mikið áfall fyrir lið Memphis Grizzlies í NBA þar sem Gasol er lykilmaður liðsins.

Körfubolti
Fréttamynd

Fowler og Crouch í fremstu víglínu

Það eru þeir Robbie Fowler og Peter Crouch sem skipa sóknarlínu Liverpool í stórleik enska boltans í dag en verið var að flauta til leiks á Goodison Park rétt í þessu. Dirk Kuyt er á bekknum en Craig Bellamy er ekki í hópnum.

Sport
Fréttamynd

Ætlar sér sigur gegn Tottenham í dag

Miðjumaðurinn Michael Carrick spilar í fyrsta sinn á sínum nýja heimavelli, Old Trafford, þegar Man. Utd mætir hans gamla félagi Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Carrick kveðst ekki ætla að taka létt á sínum fyrrum félögum.

Sport
Fréttamynd

Baptista verður magnaður

Varnarmaðurinn Jonathan Woodgate, sem kom á láni til Middlesbrough frá Real Madrid rétt áður en félagsskiptaglugginn lokaðist fyrir skemmstu, spáir Julio Baptista hjá Arsenal glæstri framtíð í enska boltanum.

Sport
Fréttamynd

Tippaði á sigur Dana á norsku Lengjunni

Danski knattspyrnumaðurinn Allan Borgvardt sleit fyrir skömmu krossbönd í hné og verður frá næstu 6-8 mánuðina. Hann lék með FH í þrjú ár og var tvívegis kjörinn knattspyrnumaður ársins. Í fyrra fór hann til Noregs og samdi við 1. deildarliðið Bryne, þar sem hann hefur slegið í gegn og er markahæsti leikmaður liðsins með níu mörk.

Fótbolti
Fréttamynd

Ledley King kominn aftur í lið Tottenham

Enski landsliðsmaðurinn Ledley King verður hugsanlega í byrjunarliði Tottenham sem sækir Manchester United heim í ensku úrvalsdeildinni á morgun, en King hefur verið lengi frá vegna uppskurðar. Dimitar Berbatov er þó mjög tæpur fyrir leikinn og svo gæti farið að egypski framherjinn Mido taki sæti hans í byrjunarliðinu. Manchester United hefur verið á miklu flugi í upphafi leiktíðar, á meðan Tottenham hefur byrjað afleitlega.

Sport
Fréttamynd

Ósáttur við að fá ekki að spila úrslitaleikinn

Jose Antonio Reyes segir að það hafi verið dropinn sem fyllti mælinn fyrir sig hjá Arsenal þegar hann fékk ekki að koma við sögu í úrslitaleik meistaradeildarinnar í vor, en Spánverjinn tjáði sig um brotthvarf sitt frá enska liðinu þegar hann var kynntur til sögu á blaðamannafundi hjá Real Madrid í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

Sanchez ætlar að halda áfram

Talsmaður írska knattspyrnusambandsins hefur staðfest við breska sjónvarpið að Lawrie Sanchez, landsliðsþjálfari Norður-Íra, ætli að halda áfram í starfi. Mikil óvissa hefur ríkt um framtíð hans síðan eftir sigurinn á Spánverjum á miðvikudag, en hann setti sig í fyrsta skipti í samband við knattspyrnusambandið í dag og er sagður ætla að halda áfram þrátt fyrir allt.

Sport
Fréttamynd

Holyfield aftur í hringinn í nóvember

Gamla brýnið Evander Holyfield er nú á fullu við að fullkomna enn eina endurkomuna í hnefaleikahringinn. Hann vann á dögunum auðveldan sigur í sínum fyrsta bardaga í langan tíma og hefur nú ákveðið að mæta Fres Oquendo frá Portó Ríkó næst þann tíunda nóvember næstkomandi. Holyfield stefnir á að vinna sinn fimmta heimsmeistaratitil á ferlinum, en það hefur engum boxara tekist áður.

Sport
Fréttamynd

Raikkönen fer til Ferrari

Flavio Briatore segist vera búinn að gefast upp á að reyna að fá finnska ökuþórinn Kimi Raikkönen til Renault-liðsins, því hann sé þegar búinn að gera munnlegt samkomulag um að ganga í raðir Ferrari og segir að þar verði hann eftirmaður Michael Schumacher á næsta tímabili því Þjóðverjinn muni tilkynna að hann sé hættur um helgina.

Formúla 1
Fréttamynd

Ferguson og Giggs bestir

Sir Alex Ferguson og Ryan Giggs hjá Manchester United voru í dag útnefndir knattspyrnustjóri og leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United hefur byrjað allra liða best í deildinni og því kemur þessi niðurstaða ekki sérlega á óvart. Þrátt fyrir að Ryan Giggs hafi spilað yfir 600 leiki í úrvalsdeildinni og verið einn besti leikmaður síðasta áratugar, er þetta merkilegt nokk í fyrsta sinn sem hann hlýtur þessi verðlaun.

Sport
Fréttamynd

Alltaf erfitt að mæta Liverpool

David Moyes segir sína menn í Everton vera tilbúna í slaginn fyrir grannaslaginn við Liverpool á Goodison Park á hádegi á morgun, en jafnan er heitt í kolunum þegar þessir erkifjendur frá Liverpool borg eigast við á knattspyrnuvellinum.

Sport
Fréttamynd

Wenger jákvæður í garð Cole

Arsene Wenger virðist ekki hafa neitt nema gott að segja um Ashley Cole, fyrrum leikmann Arsenal, sem nýverið gekk í raðir Chelsea í skiptum fyrir William Gallas. Wenger vill ekki líkja þeim Cole og Gallas saman, en segir bæði félögin og leikmennina hafa grætt á skiptunum.

Sport
Fréttamynd

Vildi frekar halda Carrick en að græða peninga

Martin Jol og félagar í Tottenham hafa verið gagnrýndir nokkuð fyrir að selja landsliðsmanninn Michael Carrick í ljósi lélegrar byrjunar liðsins á fyrstu vikum ensku úrvalsdeildarinnar. Jol segist hinsvegar ekkert hafa geta gert í máli Carrick, því leikmaðurinn hefði viljað fara nær heimaslóðum sínum til Manchester United.

Sport
Fréttamynd

Schumacher fljótastur á æfingum

Michael Schumacher hafði í dag gríðarlega yfirburði aðalökuþóra á æfingum fyrir Ítalíukappaksturinn sem fram fer á Monza brautinni á sunnudag, en hann var með 1,7 sekúndum betri tíma en keppinautur sinn Fernando Alonso. Ferrari bílarnir komu mjög vel út úr æfingunum í dag og því er ljóst að þeir verða illsigraðir á heimavelli sínum um helgina ef að líkum lætur.

Formúla 1
Fréttamynd

Henchoz aftur til Blackburn

Enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn hefur samið við svissneska varnarmanninn Stephane Henchoz út leiktíðina, en hann var með lausa samninga eftir að hafa verið látinn fara frá Wigan. Henchoz er 32 ára gamall og spilaði með Blackburn í tvö ár frá árinu 1997. Hann hefur þar fyrir utan spilað með Liverpool og Celtic í Skotlandi.

Sport
Fréttamynd

Dæmdur í eins leiks bann

Steve Staunton hefur verið dæmdur í eins leiks bann fyrir að missa stjórn á skapi sínu í fyrsta alvöru leik sínum með írska landsliðsins á dögunum, en dómarinn rak hann upp í stúku á leik Íra og Þjóðverja. Staunton þarf því að sitja meðal áhorfenda þegar Írar mæta Kýpur í undankeppni EM í október.

Sport
Fréttamynd

Framlengir við Milan til 2011

Ítalski landsliðsmaðurinn Andrea Pirlo hjá AC Milan hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2011. Gamli samningurinn hans náði til ársins 2008, en greinilegt er að félagið vill ekki missa þennan öfluga miðjumann úr röðum sínum. Þá framlengdi Georgíumaðurinn Kakha Kaladze einnig samning sinn við Milan á dögunum og hefur hann sömuleiðis bundið sig til ársins 2011.

Fótbolti
Fréttamynd

Liverpool fær grænt ljós á nýjan leikvang

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur nú fengið grænt ljós frá borgaryfirvöldum til að byggja nýjan knattspyrnuleikvang sem taka mun 60.000 manns í sæti. Félagið hefur gert 999 ára leigusamning á lóð við Stanley Park, sem er steinsnar frá Anfield Road þar sem núverandi leikvangur félagsins er staðsettur.

Sport
Fréttamynd

Rooney lenti í ryskingum við leikmann Blackburn

Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að skaphundurinn Wayne Rooney hjá Manchester United hafi lent í ryskingum við Michael Gray, leikmann Blackburn, á veitingastað í Manchester um helgina.

Sport
Fréttamynd

Ekki dæma mig á mörkunum

Frank Lampard, leikmaður Chelsea og enska landsliðsins, segist vera orðinn leiður á því að frammistaða sín með enska landsliðinu sé endalaust dæmd á því hve mörg mörk hann skori.

Sport
Fréttamynd

Schumacher verður með fulla einbeitingu

Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault segir að Michael Schumacher verði með 100% einbeitingu í Ítalíukappakstrinum á Monza á sunnudaginn, þó tilkynnt verði eftir keppnina hverjir ökumenn Ferrari verði á næsta keppnistímabili - en þá kemur formlega í ljós hvort hinn sigursæli Þjóðverji leggur stýrið á hilluna eða heldur áfram að keppa á næsta tímabili.

Formúla 1
Fréttamynd

Auglýsingar á búningi Barcelona í fyrsta sinn

Spænska knattspyrnustórveldið Barcelona mun í fyrsta skipti í sögunni bera auglýsingar framan á búningum sínum á þriðjudagskvöldið þegar liðið mætir Levski Sofia í meistaradeildinni. Hér er þó ekki um hefðbundna auglýsingu að ræða, heldur ber liðið merki barnahjálpar sameinuðuþjóðanna. Forseti Barcelona mun á morgun undirrita sérstakan styrktarsamning við samtökin og talið er að spænska félagið muni láta um 1,5 milljónir evra af hendi rakna til styrktar þessu góða málefni.

Fótbolti
Fréttamynd

Sanchez heldur vonandi áfram

Forseti írska knattspyrnusambandsins segist vonast til þess að Lawrie Sanchez verði áfram landsliðsþjálfari Norður-Íra, en margt þykir benda til þess að hann hafi sagt starfi sínu lausu eftir sigurinn á Spánverjum í gær. Í kvöld verður sérstakur fundur haldinn hjá sambandinu þar sem endanlega kemur í ljós hvort Sanchez heldur áfram eða ekki.

Sport
Fréttamynd

Spánverjar gerðu sig að fíflum

Spænskir fjölmiðlar fóru ekki fögrum orðum um landsliðsþjálfarann Luis Aragones eftir tapið í Belfast í gær frekar en búast mátti við og segja fjölmiðlar að hann hafi orðið landi og þjóð til skammar með því að tapa leiknum og ætti að sjá sóma sinn í því að segja af sér tafarlaust.

Sport
Fréttamynd

Klitschko mætir Calvin Brock í nóvember

IBF heimsmeistarinn í þungavigt, Wladimir Klitschko, mun mæta Bandaríkjamanninum Calvin Brock í titilbardaga þann 11. nóvember næstkomandi. Brock þessi er 31 árs gamall og hefur keppt 29 sinnum á ferlinum. Hann hefur unnið 22 þeirra á rothöggi og þetta er í fyrsta skipti sem hann fær að berjast um titil. Klitschko hefur unnið 46 sigra í 49 bardögum.

Sport
Fréttamynd

Tevez vill feta í fótspor landa sinna

Argentínski framherjinn Carlos Tevez, sem nýverið gekk í raðir West Ham, segist ólmur vilja feta í fótspor landa sinna Ossie Ardiles og Ricardo Villa sem gerðu garðinn frægan með liði Tottenham fyrir um 30 árum síðan og ruddu leiðina fyrir útlendinga í ensku knattspyrnunni.

Sport
Fréttamynd

Ætlar að ljúka ferlinum með Ciudad

Landsliðsmaðurinn Ólafur Stefánsson hefur gert munnlegt samkomulag við spænska stórliðið Ciudad Real um að framlengja samning sinn um tvö ár við félagið og ætlar því væntanlega að ljúka atvinnumannsferli sínum með liðinu. Ólafur er 33 ára gamall og er almennt álitinn sterkasta örvhenta skytta heimsins í dag.

Sport
Fréttamynd

Ætlar að gefa Essien hárlokk

Ítalski framherjinn Bernardo Corradi hjá Manchester City segist ætla að gefa Michael Essien hjá Chelsea lokk úr hárinu á sér þegar liðin mætast í úrvalsdeildinni á ný eftir áramótin. Corradi var rekinn af leikvelli í sínum fyrsta leik með City í tapi gegn Chelsea og þá greip Essien í hárið á honum þegar hann gekk af velli. Ítalinn ætlar því að gefa Essien hárlokk og símanúmerið hjá rakaranum sínum þegar þeir mætast á ný.

Sport