Viðskipti
185 186 187 188 189 190 191 192 193 … 223 ›
Hyggst bjóða ódýrari olíu Íslensk olíumiðlun ætlar að bjóða útgerðum olíu á lægra verði en keppinautarnir. Olíusala hófst hjá fyrirtækinu í dag, en það er með birgðastöð í Neskaupstað. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:15
Flugfargjöld hafi hækkað um 20% Flugfargjöld hafa hækkað um 20% á undanförnu ári. Þetta segir Helgi Jóhannsson, framkvæmdastjóri Sumarferða. Helgi segir að eflaust sé það tilvljun en að flugfélögin tvö, Icelandair og Iceland Express, hafi verið mjög samtaka í því að hækka verð á fargjöldum hjá sér. Erfitt sé að finna fargjöld undir 20 þúsund krónum nú eins og það var fyrir ári og sé verð á farmiðum oftast yfir 30 þúsund krónum. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:15
Aukin samkeppni á skipaolíumarkaði Samkeppni í olíusölu til skipa eykst í dag þegar Íslensk olíumiðlun hefur starfsemi. Norska olíuflutningaskipið Havstraum kom með fyrsta farm félagsins í birgðastöð þess í Neskaupstað í gær og hefst olíusalan í dag. Í tilkynningu frá Íslenskri olíumiðlun er því lofað að útgerðum standi til boða olía á hagstæðu verði. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:15
Breytingar á yfirstjórn Heklu Knútur G. Hauksson, forstjóri Samskipa, færir sig um set um næstu mánaðamót og tekur við starfi forstjóra Heklu ásamt því að koma inn í eigendahóp fyrirtækisins. Tryggvi Jónsson, núverandi forstjóri Heklu, verður hins vegar stjórnarformaður félagsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:15
Segir samkeppni hafa minnkað Flugfargjöld hafa hækkað um fimmtung frá því fyrra. Það staðhæfir Helgi Jóhannsson framkvæmdastjóri Sumarferða. Hann segir að allt útlit sé fyrir að samkeppnin hafi minnkað og flugfélögin geri lítið til að bjóða neytendum betri kjör. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:15
Föt 50% dýrari en í nágrannaríkjum Fatnaður og skór eru tæplega fimmtíu prósentum dýrari hér á landi en í öðrum Evrópuríkjum. Þetta kemur fram í tölum sem hagstofa Evrópusambandsins birti nýverið. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:15
Launavísitala hækkar um 0,5% Launavísitalan hækkaði um hálft prósent í síðasta mánuði miðað við mánuðinn þar á undan. Síðustu tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,7 prósent. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:15
Hagnaður aukist um 50 prósent Stjórnendur lyfjafyrirtækisins Actavis búast við að hagnaður fyrirtækisins aukist um allt að 50 prósent á næsta ári eftir kaupin á bandaríska samheitalyfjafyrirtækinu Amide. Kaupverðið nemur um 34 milljörðum íslenskra króna og er um stærstu fjárfestingu fyrirtækisins að ræða frá upphafi. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Vísitalan lækkaði um 0,5% Samræmd vísitala neysluverðs fyrir Ísland var 129,2 stig í apríl og lækkaði um 0,5% frá fyrra mánuði, aðallega vegna mikillar samkeppni á dagvörumarkaði samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Hönnun og Tandur fyrirtæki ársins Hönnun hf. og Tandur hf. eru fyrirtæki ársins 2005 samkvæmt niðurstöðum könnunar Verslunarmannafélags Reykjavíkur sem send var til yfir tuttugu þúsund starfsmanna á vinnumarkaði. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
38 milljarða halli á vöruskiptum Íslendingar fluttu út vörur fyrir rúma 202 milljarða króna árið 2004 en inn fyrir rúmlega 240 milljarða. Halli á vöruskiptum við útlönd nam því 38 milljörðum á síðasta ári. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Kaupa bandarískt lyfjafyrirtæki Actavis mun tilkynna í dag kaup fyrirtækisins á bandaríska lyfjafyrirtækinu Amide. Kaupverðið er um 500 milljónir bandaríkjadollara eða sem nemur um 34 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Kaup Actavis frágengin Actavis er búið að kaupa bandaríska lyfjafyrirtækið Amide á 33 milljarða króna og var það staðgreitt. Sameiginlega eru þessi fyrirtækið með fimm hundruð samheitalyf á markaði og þar með eitt mesta lyfjaúrval á sínu sviði. Þá eru fyrirtækin með eitt hundrað og fjörutíu lyf í þróun. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Gengi bréfa í Actavis rauk upp Gengi bréfa í Actavis rauk upp í morgun eftir að tilkynnt var um kaup á bandarísku lyfjafyrirtæiki. Actavis keypti bandaríska lyfjafyrirtækið Amide í morgun fyrir þrjátíu og þrjá milljarða króna. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Kaupa saman útvarpsstöðvar Ár og dagur, útgáfufélag <em>Blaðsins</em>, og Íslenska sjónvarpsfélagið sem rekur Skjá einn hafa keypt 97 prósent hlutafjár í Pyrit fjölmiðlun ehf. sem rekur útvarpsstöðvarnar KissFM og X-FM. Í tilkynningu frá Skjá einum segir að nýir eigendur ætli sér að vinna með öflugum hópi núverandi starfsfólks með það markmið að auka bæði markaðshlutdeild og hlustunarsvæði stöðvanna. Kaupverð er sagt trúnaðarmál. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13
Ekki stefnt að sjónvarpsrekstri Útgefendur <em>Blaðsins</em> og Skjár einn hafa í sameiningu keypt tvær útvarpsstöðvar. Ritstjóri <em>Blaðsins</em> segir samstarfið ekki þýða að farið verði út í sjónvarpsrekstur. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Mikill áhugi á bréfum Mosaic Fagfjárfestar óskuðu eftir að kaupa fjórfalt fleiri hluti í Mosaic Fashion en í boði voru en allt hlutaféð er selt fyrir 3,7 milljarða króna. Um er að ræða nýja hluti sem seldir voru á genginu 13,6, en hlutafjárútboðið er liður í undirbúningi að skráningu Mosaic Fashions í Kauphöll Íslands. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Aukin hætta á launaskriði Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi hefur lækkað úr 3,1 prósenti í 2,3 prósent á einu ári. Vegvísir Landsbankans bendir á að reynslan síðasta áratuginn sýni að ekki séu dæmi um að saman geti farið atvinnuleysi undir tveimur prósentum og verðbólga undir fjórum prósentum. Nú þegar atvinnuleysið sé komið niður að tveggja prósenta mörkunum aukist hættan á því að launaskrið aukist verulega. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Fermetraverð fari yfir 200 þúsund Greining Íslandsbanka spáir 15 prósenta hækkun á íbúðarverði til viðbótar þar til það staðni síðla á næsta ári. Meðalfermetraverð yrði þá komið yfir 200 þúsund krónur. Þó er tekið fram að lítið megi út af bregða til að ekki komi til lækkunar. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Íbúðaverð hækki um 15% í viðbót Greining Íslandsbanka spáir því að íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu muni hækka um 15 prósent til viðbótar þar til það staðnar síðla á næsta ári og stöðnun muni ríkja á íbúðamarkaðnum allt árið 2007. Spáir greiningardeildin því að markaðsverð íbúðarhúsnæðis fari úr um 175 þúsund krónum á fermetra, eins og það er nú, og yfir 200 þúsund krónur að meðaltali á fermetra áður en kemur að tímabili stöðnunar á fasteignamarkaði. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13
Viðskiptastríð í uppsiglingu? Líkur á mesta viðskiptastríði sögunnar jukust í dag þegar upplýst var að Airbus-verksmiðjurnar hefðu beðið Evrópusambandið um lán til þess að hanna nýja farþegaþotu. Bandaríkjamenn eru æfir. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:14
Almenningur ekki einn um sérkjör Hópurinn sem Almenningur ehf. gerði samning við vegna kaupa á Símanum er ekki sá eini sem mun bjóða íslenskum almenningi sérkjör. Fleiri ætla að bjóða almenningi að minnsta kosti sömu kjör þótt Agnes Bragadóttir og Orri Vigfússon hafi ekki gert samkomulag við þá. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Leggja stærstu hitaveitu í heimi Fulltúar fyrirtækjanna Enex hf., Orkuveitu Reykjavíkur og Íslandsbanka hf. skrifuðu í morgun undir samkomulag um að leggja stærstu jarðvarmahitaveitu í heimi í nýtt hverfi sem á að rísa í borginni Xianyang í Kína. Gert er ráð fyrir að hitaveitan nái í fyrstu til 100 til 150 þúsund íbúa en síðan þegar hverfið hefur verið stækkað verða íbúarnir um 400 þúsund. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13
Efnahagur Kína á fleygiferð Fjöldi íslenskra fyrirtækja hefur á undanförnum dögum gert samninga við kínversk fyrirtæki enda er efnahagur Kína á fleygiferð. Það er þó ekki hlaupið að því að hefja viðskipti þar í landi. Viðskipti erlent 13.10.2005 19:13
Yfirtökutilboð í finnskt símafélag Novator Finland, dótturfélag Novator International, sem er fjárfestingafélag undir forystu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur gert tilboð í öll hlutabréf í finnska símafyrirtækinu Saunalahti. Tilboðið hljóðar upp á 1,9 evrur á hlut sem þýðir að heildarverðmæti fyrirtækins er um 21,5 milljarðar króna. Novator Finland á þegar tæp 23 prósent í félaginu. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13
Eignatengslum breytt vegna tilboðs Dæmi eru um að hópar sem gerðu tilboð í Símann hafi breytt eignatengslum til að standast skilyrði útboðsins. Kögun sóttist ekki eftir útboðsgögnum eftir að einkavæðingarnefnd mat að fyrirtækið uppfyllti ekki sett skilyrði. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13
Nýtt píramídafyrirtæki á Íslandi Enn eitt píramídafyrirtækið ætlar að hasla sér völl á Íslandi þar sem gulli og grænum skógum er lofað. Nú er það fyrirtækið Bridge, sem er upprunnið í Svíþjóð, en skráð í Belís. Um 70 Íslendingar mættu á kynningarfund fyrirtækisins í gærkvöldi. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13
Meðal stærstu hluthafa Skandia Burðarás er kominn langt með að verða stærsti hluthafinn í Skandia, en Burðarás á nú 4,4 prósent í félaginu eftir að hafa keypt eitt prósent á hálfan milljarð sænskra króna, eða tæplega fimm milljarða íslenskra króna. Friðrik Jóhannsson, forstjóri Burðaráss, segir í samtali við <em>Svenska Dagladet</em> og félagið líti á Skandia sem góðan fjárfestingarkost, ekki sé verið að sækjast eftir stjórnarsæti. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13
Fjórtán tilboð í Símann Fjórtán tilboð bárust í hlut ríkisins í Landssíma Íslands. 37 fjárfestar standa að baki tilboðunum, bæði innlendir og erlendir. Framkvæmdanefnd um einkavæðingu mun á næstu dögum ásamt ráðgjafafyrirtækinu Morgan Stanley fara yfir tilboðin. Við mat á þeim verður meðal annars horft til verðs, fjárhagslegs styrks, reynslu af rekstri, fjármögnum og framtíðarsýnar. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13
Samið við hæstbjóðendur Fjórtán tilboð bárust í Landsíma Íslands. Þeir sem uppfylla skilyrði fá að bjóða aftur og verður þá verðið eitt látið ráða. Kögun, sem ætlaði að bjóða ásamt erlendum fjárfestum, var meinað um útboðsgögn. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13