Akureyri
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 55 ›
Samherji finnur not fyrir gamla Landsbankahúsið Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, hafa stofnað frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtæki sem verður til húsa í gamla Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri. Fyrirtækið mun bera nafnið Drift EA. Viðskipti innlent 21.12.2023 10:10
Lögreglan á Akureyri leitar manns með heilabilun Lögreglan á Akureyri hefur lýst eftir manni um sjötugt, sem þjáist af heilabilun. Maðurinn er talinn hafa farið fótgangandi úr húsi á Suðurbrekkunni á Akureyri síðdegis en hann á heima í Giljahverfi. Innlent 19.12.2023 18:13
Glitský gleðja Akureyringa Björt og litrík glitský sáust vel á Akureyri í dag. Slík ský sjást einkum þegar kalt er í veðri um vetur við sólarupprás eða sólsetur. Veður 19.12.2023 14:03
Einn á öræfum í ellefu nætur Göngumaðurinn og þjóðfræðingurinn Einar Skúlason lauk göngu sinni frá Seyðisfirði til Akureyrar í kvöld. Honum var fylgt síðasta spölinn og kom á Ráðhústorgið í miðbæ Akureyrar upp úr sjö. Blaðamaður náði af honum tali þar sem hann gekk yfir Pollinn. Innlent 14.12.2023 22:54
EasyJet stefnir áfram á flug til og frá Akureyri næsta vetur Breska flugfélagið easyJet hefur hafið sölu á flugferðum til Akureyrarflugvallar frá London Gatwick í október og nóvember á næsta ári. Flugfélagið hóf beint flug til Norðurlands í október síðastliðnum og er með ferðir á áætlun tvisvar í viku út mars, á þriðjudögum og laugardögum. Stefnt er að flugi sama tímabil næsta vetur og mun félagið setja fleiri mánuði í sölu þegar nær dregur. Viðskipti innlent 14.12.2023 11:48
Einstakt heimili Margrétar á Akureyri Margrét Jónsdóttir leirlistakona kann að gera aðventuna alveg einstaka á mjög einfaldan og spennandi máta. Lífið 14.12.2023 11:27
Ekki forsendur til skólahalds í Grímsey Upplýsingaöflun bæjarráðs Akureyrarbæjar hefur leitt í ljós að ekki séu forsendur til skólahalds í Grímsey. Skólahald var fellt niður árið 2019 en foreldrar þriggja barna óskuðu eftir því að það yrði endurvakið. Innlent 14.12.2023 10:01
Hamborgarafabrikkunni skellt í lás á Akureyri Hamborgarafabrikkan hefur ákveðið að loka útibúi sínu á Akureyri. Húsaleigusamningur rennur út um áramótin sem framkvæmdastjóri veitingastaðarins segir meginástæðu lokunar. Viðskipti innlent 13.12.2023 11:25
Vegagerðin tekur við rekstri Sævars Vegagerðin mun sjá um rekstur Hríseyjarferjunnar Sævars frá og með 1. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Innlent 12.12.2023 15:51
Sagðist „alveg við það að drepa þennan hobbita“ rétt fyrir andlátið Steinþór Einarsson, 37 ára gamall karlmaður sem er ákærður fyrir að hafa orðið Tómasi Waagfjörð að bana á Ólafsfirði í október í fyrra, lét þau orð falla hálftíma áður en andlátið átti sér stað að hann væri „alveg við það að drepa þennan hobbita“. Þar vísaði hann til Tómasar. Innlent 11.12.2023 11:10
Þurfa að reiða fram marga tugi milljóna þar sem engin læknismeðferð býðst á Íslandi „Við erum öll búin að leggja lífið okkar á hliðina út af þessu öllu saman,“ segir Halldór Kristinn Harðarsson. Árni Elliot Swinford, bróðir Halldórs, greindist fyrr á árinu með sjaldgæfan lungasjúkdóm og hefur neyðst til að sækja meðferð erlendis þar sem engin þekking er á meðhöndlun sjúkdómsins hér á landi. Innlent 10.12.2023 08:01
Klámplága og kynferðislegt ofbeldi tröllríður Akureyri Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri, ætlar að óska eftir umræðu í bæjarstjórn um niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Í kjölfarið vill hún leggja fram tillögur um áætlun til að sporna við fótum gegn kynferðisofbeldi sem er algengara á Akureyri en annars staðar. Innlent 8.12.2023 15:12
Ljósmæðrum brugðið við framgöngu stjórnenda á Akureyri Tveir yfirmenn ljósmæðra á mæðravernd annars vegar og í ungbarnavernd hins vegar á Heilbrigðisstofnun Norðurlands eru að hætta störfum. Enginn sótti um sameinaða stöðu. Formaður Ljósmæðrafélags Íslands segir ljósmæður mjög ósáttar við framgöngu stjórnenda stofnunarinnar. Innlent 7.12.2023 07:00
Ár mikilla tímamóta hjá Berglindi og Daníel Berglind Ósk Guðmundsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og Daníel Matthíasson verkefnastjóri giftu sig á föstudaginn á Akureyri. Þau greina frá tíðindunum á samfélagsmiðlum. Lífið 6.12.2023 15:51
„Mjög þungt högg fyrir Akureyri“ Tveir heimilislæknar hafa sagt upp störfum á heilsugæslunni á Akureyri og nýverið var tveimur yfirlæknum sagt upp. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir ástandið þungt högg fyrir bæinn. Innlent 5.12.2023 18:54
Úrræði fyrir þolendur á landsbyggðinni Þolendur á landsbyggðinni búa misvel að úrræðum þegar þeir verða fyrir ofbeldi. Frí og þolendamiðuð þjónusta er mikilvæg og aðgengi einstaklinga að slíkri þjónustu er mjög ólík á milli landshluta. Aflið þjónustar nokkur sveitarfélög en það má segja að þjónusta Aflsins sé sterkust á Norðurlandi eystra þar sem aðal starfsstöð Aflsins er. Skoðun 28.11.2023 09:01
Óli kommi fallinn frá Ólafur Þ. Jónsson, fyrrverandi vitavörður í Hornbjargsvita og betur þekktur sem Óli kommi, lést í síðustu viku 89 ára gamall. Innlent 27.11.2023 09:58
Tónlistarveisla til heiðurs Agli Ólafssyni Fjölmennt var á tónleikum til heiðurs Agli Ólafssyni í menningarhúsinu Hofi á Akureyri liðna helgi. Þar var farið yfir glæstan tónlistarferil Egils með sérstakri áherslu á Þursaflokksárin. Lífið 24.11.2023 15:00
Gengur með jólakortin 280 kílómetra í desember Einar Skúlason, í gönguhópnum Vesen og vergangi, ætlar í desember að ganga 280 kílómetra leið frá Seyðisfirði til Akureyrar. Við komu til Akureyrar ætlar hann að dreifa í hús jólakortum til fólks og fyrirtækja. Lífið 21.11.2023 12:30
Mótmæla breytingum á leikskólagjöldum á Akureyri Stéttarfélög á Akureyri saka meirihlutann í bænum um sjónhverfingar í leikskólamálum vegna breytinga á fyrirkomulagi leikskólagjalda fyrir árið 2024. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu sem sjö stéttarfélög skrifa undir. Innlent 10.11.2023 13:40
Hafnar því að hafa útilokað Önnu Formaður fræðslu-og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar hafnar því að hafa útilokað formann verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju á fræðslufundi á Microsoft Teams fjarskiptaforritinu um breytingar á gjaldskrá leikskóla Akureyrarbæjar sem haldinn var síðastliðinn þriðjudag. Innlent 9.11.2023 16:16
Snjóflóðahætta í Hlíðarfjalli Varað er við mikilli snjóflóðahættu við Hlíðarfjall á Akureyri næstu daga. Þrjú snjóflóð hafa fallið úr fjallinu í dag. Innlent 7.11.2023 18:01
Sameining framhaldsskóla sett á ís Ásmundur Einar Daðason barna- og menntamálaráðherra hefur sett sameiningaráform framhaldsskóla á ís. Hann fagnar samstöðu sem hafi orðið til um að finna aðrar leiðir til eflingar framhaldsskóla en að sameina. Innlent 7.11.2023 15:41
Vídeódansinn leggur Listagilið undir sig Fjórða útgáfa dansmyndahátíðarinnar Boreal hefst á föstudaginn og stendur yfir í tæpar tvær vikur. Hátíðin leggur undir sig hið alræmda Listagil á Akureyri á þessu tímabili. Lífið 6.11.2023 13:22
Keyrði á gangandi vegfaranda og stakk af Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir vitnum vegna umferðarslyss þar sem ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum Þingvallastrætis og Dalsbrautar klukkan 18:15 í kvöld. Ökumaður bifreiðarinnar ók af vettvangi án þess að tilkynna slysið. Innlent 3.11.2023 20:03
Ærandi þögn mennta- og barnamálaráðherra – Norðurland bíður svara Þann 5. september sl. blés mennta- og barnamálaráðherra til fundar framhaldsskólanema á Akureyri með tæplega þriggja klukkustunda fyrirvara, þar sem kynntar voru áætlanir um að leggja niður framhaldsskóla bæjarins, MA og VMA, í núverandi mynd og sameina í einn ótilgreindan skóla. Skoðun 3.11.2023 07:30
Fær tíu miða klippikort hjá Niceair endurgreitt Þrotabúi Niceair hefur verið dæmt að endurgreiða viðskiptavini 240 þúsund krónur vegna klippikorts sem viðskiptavinurinn hafði ekki fullnýtt áður en Niceair lýsti yfir gjaldþroti. Niceair hætti skyndilega rekstri í apríl á þessu ári og lýsti yfir gjaldþroti mánuði síðar. Neytendur 1.11.2023 13:27
Fyrsta flug easyJet til Akureyrar Breska flugfélagið easyJet hóf í morgun beint áætlunarflug milli Akureyrarflugvallar og Gatwick-flugvallar í London. Fyrsta vél félagsins lenti á Akureyrarflugvelli klukkan 10:40 í dag við hátíðlega athöfn þar sem fulltrúar úr ferðaþjónustu, sveitarfélögum og ríki komu saman og fögnuðu þessum mikilvæga áfanga. Viðskipti innlent 31.10.2023 15:30
Bjart fram undan í ferðaþjónustu á Norður- og Austurlandi Í dag lenti fyrsta flugvél EasyJet á Akureyrarflugvelli og hóf þar með vikulegt áætlunarflug í vetur. Þetta er stórmerkur áfangi og vart hægt að hugsa sér betri leið til að fagna vetrarkomunni. EasyJet er eitt öflugasta flugfélag Evrópu sem getur, ef vel gengur, gjörbreytt öllum forsendum fyrir heilsársferðaþjónustu á Norður- og Austurlandi. Skoðun 31.10.2023 11:00
Lyklamaðurinn á Akureyri dæmdur fyrir rúðubrot á Kaffi Lyst Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í þrjátíu daga fangelsi fyrir að hafa annars vegar rispað bíl og hins vegar brotið tvær rúður á veitingahúsinu Kaffi Lyst Akureyri í byrjun sumars. Um er að ræða hegningarauka, en maðurinn hlaut 45 daga dóm í sumar fyrir að vinna skemmdarverk á bílum i júlí síðastliðnum. Innlent 30.10.2023 14:21