Skóla- og menntamál
49 50 51 52 53 54 55 56 57 … 138 ›
Dauðadæmt loforð um leikskólapláss Loforð um leikskólapláss fyrir öll tólf mánaða börn í Reykjavík var dauðadæmt frá byrjun, að mati leikskólastjóra sem ekki hefur getað boðið neinu barni fæddu 2021 pláss. Það sé enn fremur ekki endilega börnunum fyrir bestu að byrja á leikskóla 12 mánaða. Innlent 16.8.2022 21:01
Hvað er mikilvægast fyrstu tvö ár barna? Við umræður um vöntun á leikskólaplássi fyrir yngstu börnin þ.e.a.s. 12 mánaða börnin okkar þá fæ ég á tilfinninguna að talað sé um dósir í dósaverksmiðju en ekki lifandi einstaklinga með tilfinningar og þrár eftir öryggi í fangi foreldra sinna. Skoðun 16.8.2022 19:31
Ójöfnuður í boði jafnaðarmanna Samfylkingin hefur lofað lausn leikskólavandans í minnst 16 ár, án árangurs, þrátt fyrir að hafa allan þennan tíma verið í lófa lagið að taka á vandanum, en flokkurinn hefur verið í brúnni í borginni meira og minna öll þessi ár. Tæplega 800 börn eru á biðlistum og stendur þessu fjöldi í stað, þrátt fyrir gefin loforð. Framsókn, sem fyrir kosningar lofaði breytingum en endurreisti þess í stað margfallinn meirihluta, leiðir í dag skólamálin í borginni, en virðist ekki hafa gert handtak í sumar til að bregðast við hinum mjög svo fyrirséða vanda. Skoðun 16.8.2022 10:31
Hver er vandinn? Leikskólamál voru kosningamál síðastliðið vor og flestir flokkar ætluðu sér að brúa bilið milli leikskóla og fæðingarorlofs. Fáir höfðu raunverulegar hugmyndir um það hvernig fara mætti að því og enn færri lögðu fram tillögur sem myndu ráðast að rót vandans, sem er að fjölga leikskólakennurum. Ef sá vandi er ekki leystur munu allar tilraunir til að stækka leikskólakerfið, til dæmis með því að taka inn yngri börn, draga úr gæðum leikskólastarfs og hafa alvarleg áhrif á starfsumhverfi leikskólakennara. Skoðun 16.8.2022 10:01
Stýrihópur um leikskólamál skilar minnisblaði fyrir fimmtudag Stýrihópur sem heldur utan um uppbyggingu leikskóla í Reykjavík mun skila minnisblaði um stöðu mála fyrir fund borgarráðs á fimmtudag. Innlent 16.8.2022 09:19
Borgin hafi dregið foreldra á asnaeyrunum Borgin hefur dregið okkur á asnaeyrunum , segir faðir tæplega tveggja ára barns sem hefur enn ekki komist inn á leikskóla. Hann vill að foreldrar í sömu stöðu fái bætur, enda hafi margir nýtt sumarfrí næsta árs og tekið launalaust leyfi til að sjá um börnin. Innlent 15.8.2022 21:00
„Fátækt hefur áhrif á börn. Þau skammast sín og finna oft fyrir mikilli höfnun“ Einstæð móðir og sjálfboðaliði í samtökum um fátækt segir fólk kvíða hækkandi útgjöldum sem fylgja skólabyrjun. Hún leggur til að börnum verði útvegaðar skólatöskur. Vaxandi verðbólga bitni helst á þeim sem glíma við fátækt. Innlent 15.8.2022 19:00
Vilja biðlistabætur í borginni Sjálfstæðismenn vilja koma á svokölluðum biðlistabótum í Reykjavík fyrir foreldra þeirra barna sem eru eldri en 12 mánaða en hafa ekki fengið pláss á leikskóla. Bæturnar myndu hljóða upp á 200 þúsund krónur á mánuði á hvert barn. Meirihlutinn tekur ekki illa í hugmyndirnar en segir megináhersluna þá að fjölga leikskólaplássum. Innlent 15.8.2022 13:30
Leikskólamál í lamasessi Ástandið í leikskólamálum borgarinnar er óásættanlegt. Enginn mótmælir því, ekki einu sinni meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur. Skoðun 15.8.2022 13:02
Fleiri barir en börn í skólanum á Borgarfirði eystri Það eru fleiri barir hérna en börn í skólanum“, segir sveitarstjórnarmaður Vinstri grænna í Múlaþingi en þá á hann við þorpið á Borgarfirði eystri. Mikil uppbygging er á staðnum, ekki síst í ferðaþjónustu og nú hafa fyrstu nýju íbúðarhúsin í fjörutíu ár verið byggð í þorpinu. Innlent 14.8.2022 08:03
„Hústökuleikskóli“ í Ráðhúsinu Móðir sautján mánaða gamals barns sem ekki fær leikskólapláss í borginni ætlar að setja upp hústökuleikskóla í Ráðhúsi Reykjavíkur í næstu viku. Hún segir algjört neyðarástand ríkja meðal foreldra barna á leikskólaaldri. Svör borgarinnar til foreldra séu kæruleysisleg. Innlent 13.8.2022 21:00
„Miðað við vísindin þá erum við á villigötum“ Heitar umræður hafa spunnist um lestrarkennslu í skólakerfinu að undanförnu. Því er haldið fram að kennsla foreldra sé lykilþáttur í læsi barna og við lestrarkennslu sé notast við aðferðir sem henti íslenskunni illa. Samt sem áður er lítið af kennsluefni til fyrir foreldra og Pisa niðurstöður benda til hnignandi lesskilnings. Lestrarfræðingur telur að menntakerfið sé á villigötum að þessu leyti. Innlent 13.8.2022 14:41
Enginn biðlisti í leikskólann á Skagaströnd Íbúum á Skagaströnd er að fjölga en það gerist hægt. Kona, sem flutti á staðinn fyrir þremur árum segir að staðurinn sé friðsæll og náttúran allt í kringum þorpið sé yndisleg. Börn eru tekin níu mánaða inn í leikskólann og þar er engin biðlisti. Innlent 13.8.2022 08:31
UMFÍ tekur við rekstri Skólabúðanna að Reykjum Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) mun taka við rekstri Skólabúðanna að Reykjum frá næsta skólaári. Um 3.200 nemendur í 7. bekk í grunnskóla heimsækja búðirnar ár hvert. Innlent 12.8.2022 22:37
„Nei mér finnst það ekki boðlegt“ Foreldrar barna í Reykjavík sem ekki hafa fengið leikskólapláss söfnuðust saman í ráðhúsinu í morgun til þess að mótmæla stöðunni. Oddviti Framsóknar í Reykjavík segir stöðuna ekki boðlega. Innlent 11.8.2022 23:00
„Þetta er algjör skrípaleikur“ Foreldrar barna í Reykjavík sem hafa ekki fengið leikskólapláss söfnuðust saman í ráðhúsinu í morgun til þess að mótmæla stöðunni. Innlent 11.8.2022 20:20
Lestur barna er á ábyrgð foreldra Mikið hefur verið í umræðunni undanfarinn tíma að lestur barna (sérstaklega drengja) sé ekki nógu góður og skólakerfið sett inn í þá umræðu. Kennarar þurfi að leggja auknar áherslur á lestur barna svo börnin geti lesið sér til gagns við lok grunnskólagöngu. Lítið hefur farið fyrir umræðu foreldra í þessar umfjöllun. Lestur er á ábyrgð foreldra. Skoðun 11.8.2022 15:00
Hefði ekki farið í sumarfrí og látið leikskólavandann liggja Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vandar meirihlutanum ekki kveðjurnar þegar kemur að leikskólamálum í Reykjavík. Hann segir fulltrúa meirihlutans hafa farið í sumarfrí þegar ljóst væri að ekki yrði unnt að standa við gefin loforð í málaflokknum án stórtækra aðgerða. Innlent 11.8.2022 14:59
Hvernig skólatösku á ég að velja fyrir barnið mitt? – skilaboð frá iðjuþjálfum Að mörgu er að hyggja þegar velja á skólatösku og miðað við auglýsingar verslana er úrvalið töluvert. Iðjuþjálfar hvetja foreldra til að vanda valið enda hefur góð skólataska mikið forvarnargildi þegar kemur að heilsu og líðan barna. Skoðun 11.8.2022 13:01
Stórt hlutfall íslenskra lækna útskrifast erlendis Tæplega helmingur lækna frá Íslandi útskrifast nú úr grunnámi við erlenda háskóla. Innlent 11.8.2022 06:56
Nóg komið af eftiráskýringum borgarinnar og vill tafarlausar aðgerðir Móðir sautján mánaða gamals barns sem fær ekki leikskólapláss í Reykjavík í haust segir nóg komið af eftiráskýringum borgaryfirvalda um orsakir leikskólavandans og vill að borgin kynni lausnir og grípi til aðgerða. Innlent 10.8.2022 13:01
Fimm flottar fartölvur fyrir skólann Nú fer að styttast í það að skólinn hefjist aftur og því mikilvægt að vera með réttu græjurnar þegar skólaátökin hefjast og verkefnavinnan komin á fullt. Þetta er gríðarlega spennandi en að sama skapi krefjandi tími og því er nauðsynlegt að vera með réttu fartölvuna þér við hlið til þess að aðstoða þig í gegnum námið. Samstarf 10.8.2022 11:14
Leikskólinn byrjaður og sautján mánaða gömul börn sitja heima Ekki er útlit fyrir að öll tólf mánaða gömul börn í Reykjavík fái leikskólapláss í haust, eins og stefnt var að. Móðir sautján mánaða barns sem fær ekki leikskólapláss í haust líkir leikskólamálum borgarinnar við frumskóg. Innlent 9.8.2022 13:01
Boðar bráðaaðgerðir í iðnnámi Menntamálaráðherra heitir því að stjórnvöld muni gera það sem hægt er til að tryggja að sem flestir fái aðgang að verknámi sem það vilja. Komið hefur fram að mun færri komast að en vilja í slíkt nám, en ráðherra segir hugsanlegt að ekki verði hægt að bregðast við öllum sem vilja komast að. Innlent 9.8.2022 11:55
Munu ekki geta staðið við fyrirheit um pláss fyrir öll 12 mánaða börn Ekki er útlit fyrir að öll tólf mánaða gömul börn í Reykjavík fái leikskólapláss í haust, eins og stefnt var að. Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs borgarinnar, segir nokkur pláss laus eins og er en ekki endilega í þeim hverfum þar sem eftirspurnin er mest. Innlent 9.8.2022 07:16
Þrefalt fleiri nemendur á örfáum árum Sprenging hefur orðið í umsóknum um verknám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, einkum í húsasmíðum og rafvirkjun. Skólameistarinn segir þróunina hafa verið hraðari en fólk átti von á - þannig að færri komast að en vilja. Þetta er líka staðan um allt land, þar sem 20% umsækjenda um verknám fá höfnun. Innlent 8.8.2022 22:06
Margfalt fleirum hafnað um nám í starfsnámi Gögn frá Menntamálastofnun sýna að margfalt fleirum er hlutfallslega hafnað um skólavist í starfsnámi í framhaldsskóla en í bóknámi á Íslandi. Um þriðjungur umsækjenda í Tækniskólanum var hafnað í haust. Verzlunarskólinn er vinsælasti bóknámsskólinn, en hann er alveg sprunginn á plássi. Innlent 8.8.2022 12:46
Eldur logaði við Lækjarskóla Eldur logaði í rusli á bak við Lækjarskóla í Hafnarfirði í gærkvöldi. Fram kemur í dagbók lögreglu að tilkynnt hafi verið um eld í gámi í hverfinu klukkan 21:57. Innlent 8.8.2022 07:37
Allir eiga rétt á jöfnum tækifærum til náms – verkfærin eru til staðar Undanfarið hafa átt stað miklar umræður um skólamál innan ákveðinna hópa skólafólks á samfélagsmiðlum og íslenskt skólakerfi hefur ekki farið varhluta af gagnrýni vegna niðurstaðna á PISA sem er umfangsmikil alþjóðleg könnun á hæfni og getu 15 ára nemenda á lesskilningi, læsi á náttúruvísindi og læsi á stærðfræði. Samkvæmt mælanlegum niðurstöðum þá stendur skólakerfið frammi fyrir alvarlegum vanda þar sem ólæsi hefur aukist ásamt brottfalli nemenda úr framhaldsskólum. Skoðun 5.8.2022 15:00
Bæjarstjóri segir ákvörðun kærunefndar ekki endanlega Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir ákvörðun kærunefndar útboðsmála um að stöðva samningagerð milli Garðabæjar og Fortis ehf um byggingu nýs leikskóla í Urriðaholti ekki endanlega. Ákvörðunin var tekin fyrir á fundi bæjarráðs 26. júlí síðastliðinn og málinu vísað til bæjarstjóra. Innlent 4.8.2022 07:10