Rússland
27 28 29 30 31 32 33 34 35 … 97 ›
Úkraínskur dróni komst langt inn í Rússland Rússneski herinn skaut niður úkraínskan dróna við Engels herflugvöllinn. Engels er um sex hundruð kílómetra austur af landamærum Rússlands og Úkraínu. Erlent 26.12.2022 10:38
Segir Rússa reiðubúna til að semja Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir Rússa reiðubúna til að semja um endalok innrásar þeirra í Úkraínu. Hann segir Úkraínumenn og vesturlönd ekki vilja ganga að samningaborðinu. Erlent 25.12.2022 13:44
Eldsvoði í ólöglegu neyðarskýli banaði tuttugu og tveimur Tuttugu og tveir eru látnir eftir að kviknaði í ólöglegu neyðarskýli í rússnesku borginni Kemerovo. Erlent 24.12.2022 12:16
Rússneska sendiráðið gagnrýnir Þórdísi Kolbrúnu harðlega Rússneska sendiráðið gagnrýnir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra harðlega fyrir ummæli sem hún lét falla í sjónvarpsþætti í vikunni. Í þættinum gagnrýndi ráðherra rússnesk stjórnvöld en sendiráðið vísar ummælunum á bug. Innlent 23.12.2022 19:20
Evrópa í basli með skotfærabirgðir og framleiðslu Ríki Evrópu eiga í vandræðum með að auka framleiðslu hergagna, þrátt fyrir að mörg af stærstu vopnaframleiðslufyrirtækjum heims megi finna á heimsálfunni. Vandræðin snúa sérstaklega að framleiðslu skotfæra fyrir stórskotaliðsvopn. Erlent 23.12.2022 15:30
Afmá úkraínska menningu í Maríupól Undanfarnar vikur hafa rússneskir verktakar rifið fjölda rústa og bygginga í Maríupól. Með brakinu eru lík sem liggja enn í rústunum flutt á brott. Verið er að afmá úkraínska menningu borgarinnar og hafa götur Maríupól til að mynda fengið nöfn frá tímum Sovétríkjanna. Erlent 23.12.2022 10:31
Wagner málaliðahópurinn sagður hafa keypt vopn af Norður-Kóreu Bandaríkjamenn hafa sakað stjórnvöld í Norður-Kóreu um að hafa séð Wagner málaliðahópnum fyrir vopnun til notkunar í Úkraínu. Þeir segja söluna brjóta gegn ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Erlent 23.12.2022 07:54
Fyrrverandi yfirmaður Roscosmos særðist í Donetsk Dmitry Rogozin, fyrrverandi yfirmaður Geimvísindastofnunar Rússlands, Roscosmos, og núverandi hernaðarráðgjafi í Donbas, er sagður hafa særst í loftárás Úkraínumanna í Doentsk-borg. Erlent 22.12.2022 16:17
Pútín viðurkennir vandræði og styður stækkun hersins Vlaldimír Putín, forseti Rússlands, lýsti í gær yfir stuðningi við áætlun Varnarmálaráðuneytisins um að stækka rússneska herinn um um það bil helming. Þá sagði forsetinn að herinn þyrfti að ganga í gegnum ýmsar endurbætur og að engu væri sparað til. Erlent 22.12.2022 11:19
Úkraínuforseti færir Bandaríkjaforseta áritaðan fána hermanna á vígstöðvunum Bandarísk stjórnvöld munu staðfesta 45 milljarða dollara aðstoð við Úkraínu í óvæntri heimsókn Úkraínuforseta til Bandaríkjanna í kvöld. Zelenskyy heiðrari hermenn á víglínunni í Bakhmut í gær og sagði þá verja alla Úkraínu fyrir dauða og eyðileggingu sem Rússar skildu alls staðar eftir sig. Erlent 21.12.2022 19:20
Múrmansk svarar Akureyri í sömu mynt Borgarráð rússnesku borgarinnar Múrmansk hefur ákveðið að slíta vinabæjarsamstarfi við Akureyri, eftir að bæjarráð Akureyrar sleit samstarfinu við Múrmansk í síðasta mánuði. Innlent 21.12.2022 10:59
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Selenskí birtist óvænt í „hakkavélinni“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti óvænt Bakhmut í austurhluta Úkraínu í dag. Harðir bardagar hafa geisað um bæinn um mánaða skeið og hefur bænum verið lýst sem „hakkavél“. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði fyrr í morgun að ástandið í austurhluta Úkraínu væri „gífurlega flókið“ fyrir rússneska hermenn. Erlent 20.12.2022 14:49
Pútín, Lavrov og Shoigu allir í Hvíta-Rússlandi Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fer í dag á fund Alexanders Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands. Þetta er í fyrsta sinn í þrjú ár sem Pútín sækir Lúkasjenka heim en hann er einn af fáum bandamönnum Pútíns. Erlent 19.12.2022 13:44
Drónaárásir á Kænugarð í morgunsárið Loftvarnaflautur hafa ómað í úkraínsku höfuðborginni Kænugarði í morgun vegna drónaárása rússneska hersins. Vítalí Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, segir að fjöldi sprenginga hafi heyrst í höfuðborginni í morgun. Erlent 19.12.2022 06:31
Auglýsingaherferð sýnir glæstan lífsstíl rússneskra hermanna Ný auglýsingaherferð Rússa sýnir ungan mann kaupa sér glænýjan bíl fyrir peningana sem hann fékk fyrir þátttöku í innrásinni í Úkraínu. Yfirvöld í Rússlandi halda áfram að sækja fleira fólk í herinn þrátt fyrir að hafa sagt að til væri feykinóg af hermönnum. Erlent 18.12.2022 18:53
Búist við auknum sóknarþunga Rússa Valdímír Pútin Rússlandsforseti hefur fundað með herforingjum sínum nú þegar hávær orðrómur er um að Rússar muni gera metnaðarfulla tilraun til að snúa vörn í sókn á vígvellinum. Erlent 17.12.2022 16:48
Griner þakkar Biden og stefnir á að spila á næstu leiktíð Brittney Griner þakkaði Bandaríkjaforseta þegar hún tjáði sig í fyrsta skipti opinberlega eftir að vera loks komin heim eftir tíu mánuði í rússnesku fangelsi. Þá stefnir hún á að spila með Phoenix Mercury í WNBA deildinni í körfubolta á næstu leiktíð. Körfubolti 17.12.2022 07:01
Sextíu flugskeytum skotið á borgir Úkraínu í morgunsárið Rússar eru sagðir hafa skotið tugum flugskeyta á borgir Úkraínu snemma í morgun. Skipulega hafi verið ráðist á innviði þjóðarinnar. Rafmagnslaust er í borgunum Kharkiv og Poltava eftir árásirnar. Erlent 16.12.2022 10:47
Grunar að örloftsteinn hafi valdið skemmdum á geimferju Rússneska geimstofnunin segir að mögulega hafi örloftsteinn valdið skemmdum á Soyuz-geimferju sem liggur við Alþjóðlegu geimstöðina á braut um jörðu. Geimferjan lekur kælivökva en hún á að vera nokkurs konar björgunarbátur fyrir áhöfnina. Erlent 15.12.2022 23:54
Viss um að Rússar geri aðra atlögu að Kænugarði Valerí Salúsjní, yfirmaður herafla Úkraínu, segist handviss um að Rússar muni gera aðra atlögu að Kænugarði. Þeir séu að þjálfa og vopna um tvö hundruð þúsund nýja hermenn og muni reyna að nota þá til að opna nýja víglínu á nýju ári. Erlent 15.12.2022 23:05
Eldflaugaárásir gerðar á miðborg Kænugarðs Rússar gerðu eldflaugaárás á miðborg Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu, snemma í morgun. Vitali Klitschko borgarstjóri greinir frá því á samfélagsmiðlum að sprengingar hafi orðið í Sjevtsjenkiskíj-hverfinu og að björgunaraðilar séu nú að störfum á vettvangi. Erlent 14.12.2022 07:10
Farnir að nota fjörutíu ára sprengikúlur Rússneski herinn hefur gengið verulega á skotfærabirgðir Rússlands fyrir stórskotalið og framleiðsla þar í landi heldur ekki við notkunina í innrás Rússa í Úkraínu. Bandaríkjamenn segja herinn byrjaðan að nota rúmlega fjörutíu ára skot sem eru líkleg til að virka ekki sem skildi. Erlent 12.12.2022 23:41
Hættir við blaðamannafund í fyrsta sinn í tíu ár Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur hætt við að halda árlegan blaðamannafund í lok árs. Er það í fyrsta sinn í tíu ár sem þessi fundur fer ekki fram. Forsetinn hefur notað fundina til að styrkja ímynd sína í Rússlandi og svara spurningum blaðamanna ríkismiðla Rússlands. Erlent 12.12.2022 18:07
Vill rússneskan ríkisborgararétt til að forðast framsal vegna morðtilraunar Hollendingurinn Quincy Promes hefur sótt um rússneskan ríkisborgararétt samkvæmt þarlendum fjölmiðlum. Promes er sakaður um að hafa reynt að myrða frænda sinn og gerir nú allt til að forðast framsal til Hollands. Fótbolti 12.12.2022 15:30
Segja höfuðstöðvar Wagner hafa verið sprengdar í loft upp Úkraínumenn eru sagðir hafa sprengt höfuðstöðvar Wagner málaliðasveitarinnar í Luhansk. Þetta fullyrðir fyrrverandi héraðsstjóri Luhansk, sem nú er í útlegð. Erlent 12.12.2022 07:19
Ein og hálf milljón manns án rafmagns eftir árásir Rússa Viðbúið er að það muni taka einhverja daga að koma rafmagni aftur á í hafnarborginni Odesa í Úkraínu eftir árásir Rússa í gærkvöldi. Um ein og hálf milljón manns eru nú án rafmagns eftir árásirnar. Erlent 11.12.2022 10:11
„Sölumaður dauðans“ á erfitt með að lýsa tilfinningum sínum Hinn alræmdi vopnasali Viktor Bout segir erfitt að lýsa tilfinningum sínum eftir að honum var sleppt úr fangelsi í Bandaríkjunum í gær. Bout, sem gengið hefur undir nafninu „Vopnasali dauðans, var sleppt í skiptum fyrir bandarísku körfuboltakonuna Brittney Griner. Erlent 9.12.2022 22:16
Mannskæður stórbruni í verslunarmiðstöð við Moskvu Einn er látinn eftir að mikill eldur kviknaði í stórri verslunarmiðstöð rétt utan við Moskvu í Rússlandi í gær. Eldhafið náði yfir alla verslunarmiðstöðina þegar eldurinn var sem ákafastur. Erlent 9.12.2022 08:48
Settu upp eldflaugaskotpalla við stærsta kjarnorkuver Evrópu Rússar eru nú sagðir hafa sett upp fjölda eldflaugaskotpalla við kjarnorkuverið í Zaporizhzhia í Úkraínu. Erlent 9.12.2022 07:30
Griner sleppt úr fangelsi í skiptum fyrir alræmdan vopnasala Bandarísku körfuboltakonunni Brittney Griner hefur verið sleppt úr fangelsi í Rússlandi. Það var gert í skiptum fyrir það vopnasalann alræmda Viktor Bout sem setið hefur í fangelsi í Bandaríkjunum yrði sleppt. Erlent 8.12.2022 13:21