Bretland
58 59 60 61 62 63 64 65 66 … 128 ›
Stöðva tímabundið bóluefnarannsóknir á börnum Vísindamenn AstraZeneca og Oxford-háskóla hafa stöðvað tímabundið bólusetningar barna með bóluefni sínu gegn Covid-19. Ákveðið hefur verið að bíða á meðan breska lyfjastofnunin (MHRA) rannsakar tengsl bóluefnsisins við sjaldgæfa blóðtappa. Erlent 7.4.2021 07:56
Leikarinn Paul Ritter er látinn Enski leikarinn Paul Ritter er látinn, 54 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir að hafa farið með hlutverk í þáttunum Friday Night Dinner og Chernobyl, sem og kvikmyndum um Harry Potter og James Bond. Lífið 6.4.2021 11:10
Segja bresku lyfjastofnunina vera að íhuga að endurskoða notkun bóluefnisins frá AstraZeneca Breska lyfjastofnunin (MHRA) segir enga ákvörðun hafa verið tekna varðandi breytingar á notkun Covid-19 bóluefnisins frá AztraZeneca en Channel 4 News greindi frá því í gær að verið væri að skoða að hætta notkun bóluefnisins í yngri aldurshópum. Erlent 6.4.2021 09:16
Sakar Markle og Harry um „lygar á alheimsskala“ Piers Morgan heldur fast í þær fullyrðingar sínar að Meghan Markle og Harry Bretaprins hafi logið í viðtali við Opruh Winfrey á dögunum og segist njóta stuðnings verulegs meirihluta bresku þjóðarinnar. Erlent 6.4.2021 07:59
Tvö ókeypis Covid-próf á viku Allir íbúar í Bretlandi munu fá tvö ókeypis Covid-próf á viku í þeirri von um að hefta frekari útbreiðslu veirunnar. Prófin sem um ræðir gefa niðurstöðu á um það bil hálftíma og verða aðgengileg íbúum meðal annars í apótekum og á skimunarstöðvum, en fólk getur tekið þau heima hjá sér. Erlent 5.4.2021 08:06
Tugþúsundir heilbrigðisstarfsmanna þjást af langvarandi Covid Að minnsta kosti 122 þúsund starfsmenn opinberu heilbrigðisþjónustunnar (NHS) þjást af langvarandi áhrifum Covid-19, samkvæmt hagstofu Bretlands. Stjórnendur NHS eru uggandi vegna áhrifa þessa á mönnun. Erlent 3.4.2021 08:58
Helmingur Breta nú með mótefni Helmingur allra Breta er nú kominn með mótefni gegn kórónuveirunni, annaðhvort eftir að hafa smitast af veirunni, eða eftir að hafa fengið bóluefni gegn hanni. Erlent 31.3.2021 08:22
Slakað á sóttvarnaaðgerðum utandyra í Bretlandi Allt að sex manns geta nú komið saman utandyra og íþróttir sem eru spilaðar úti eru aftur leyfðar eftir að slakað var verulega á sóttvarnaaðgerðum sem hafa gilt frá ársbyrjun í Bretlandi í dag. Nýjum kórónuveirusmitum hefur fækkað verulega með ströngum aðgerðum undanfarinna mánaða. Erlent 29.3.2021 13:29
Skora á Johnson að deila bóluefnum með fátækari þjóðum Góðgerðafélög á borð við Save the Children og Wellcome Trust hafa skorað á Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, að greina frá því hversu margir skammtar af bóluefnum munu fara til fátækari þjóða í ljósi þess að Bretar munu ekki nýta alla þá skammta sem hafa verið keyptir. Erlent 28.3.2021 08:22
Osbourne deilir örlögum Morgan og er látin taka pokann sinn Raunveruleikaþáttastjarnan Sharon Osbourne mun ekki snúa aftur í spjallþáttinn The Talk, eftir heita umræðu í þættinum um rasisma. Umræðan átti sér stað í kjölfar þess að Osbourne lýsti yfir stuðningi við sjónvarpsmanninn Piers Morgan. Erlent 27.3.2021 09:48
Hefðu átt að velja annan varaflugvöll áður en lagt var í „martraðarflugið“ Illa var staðið að vali á varaflugvelli miðað við veðurskilyrði þegar flugvél Icelandair var flogið til Manchester 23. febrúar 2017. Þá var óveðursboðum ekki gerð nægilega góð skil í flugáætlun umræddan morgun. Þetta kemur fram í lokaskýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa sem birt var í dag. Innlent 26.3.2021 20:19
Salmond formaður nýs sjálfstæðis-flokks Alex Salmond, fyrrverandi forsætisráðherra skosku heimastjórnarinnar, verður formaður nýs stjórnmálaflokks sem mun berjast fyrir aðskilnaði frá Bretlandi. Alba-flokkurinn var stofnaður í janúar og mun bjóða fram í þingkosningunum 6. maí. Erlent 26.3.2021 18:11
Konum á miðjum aldri hættara við langtímaveikindum af Covid Rannsóknir á Bretlandi benda til þess að konur á fimmtugs- og sextugsaldri sem leggja þarf inn á sjúkrahús með Covid-19 séu líklegri en aðrir til þess að lenda í langvarandi einkennum eftir að þær eru útskrifaðar. Þær sem eiga fyrir við undirliggjandi heilsubrest að stríða virðast einnig í meiri áhættu. Erlent 24.3.2021 16:41
Óvíst hvort útflutningstakmarkanir hafi áhrif á Ísland Utanríkisráðuneytið segist ekki hafa fengið neinar upplýsingar sem gefi tilefni til að ætla að fyrirhugaðar útflutningstakmarkanir Evrópusambandsins á bóluefni gegn kórónuveirunni hafi áhrif á afhendingu bóluefnis hingað. Erlent 24.3.2021 13:58
Ný bylgja muni brotna á varnargarði bólusettra einstaklinga „Eftir á að hyggja er eflaust margt sem við vildum óska að við hefðum vitað og margt sem við vildum óska að við hefðum gert öðruvísi, eftir á að hyggja, af því að við vorum að berjast við nýjan sjúkdóm undir allt öðruvísi kringumstæðum en nokkur fyrrverandi stjórnvöld gátu ímyndað sér.“ Erlent 23.3.2021 20:19
Harry prins til BetterUp Harry Bretaprins hefur verið ráðinn í stjórnandastöðu hjá bandaríska sprotafyrirtækinu BetterUp, sem metið er á um milljarð bandaríkjadala. Viðskipti erlent 23.3.2021 15:15
Gætu lagt fjársektir á þá sem reyna að ferðast frá Englandi Breska ríkisstjórnin ætlar að leggja hundruð þúsunda króna sekt á Englendinga sem reyna að ferðast til útlanda fyrir lok júní. Sektirnar eru hluti af hertum aðgerðum breskra stjórnvalda á landamærunum vegna kórónuveirufaraldursins. Erlent 23.3.2021 10:32
Um 600 kvartanir vegna kynferðisbrota af hálfu Lundúnarlögreglunnar á fjögurra ára tímabili Breskum yfirvöldum bárust 594 tilkynningar vegna kynferðisbrota af hálfu Lundúnarlögreglunnar á árunum 2012 til 2018. Alls voru 119 mál rannsökuð, þeirra á meðal mál lögreglumanns sem réðst á þolanda heimilisofbeldis. Erlent 22.3.2021 15:05
Ekki útilokað að ferðabann verði framlengt Varnarmálaráðherra Bretlands segir ekki hægt að útiloka þann möguleika að ferðabann verði framlengt í því skyni að sporna gegn útbreiðslu kórónuveirunnar. Það sé því ekki skynsamlegt að bóka utanlandsferðir eins og staðan sé núna. Erlent 22.3.2021 00:00
British Airways horfir til heimavinnunnar og íhugar að selja höfuðstöðvarnar Forsvarsmenn British Airways íhuga nú að selja höfuðstöðvar sínar vegna þess hve margir starfsmenn eru farnir að vinna heima. Höfuðstöðvarnar voru byggðar árið 1998 og kostuðu 200 milljónir punda, eða um 35 milljarða íslenskra króna. Erlent 20.3.2021 21:32
Breskir sérfræðingar segja hefðbundið ferðasumar ólíklegt og óráðlegt Einn ráðgjafa bresku ríkisstjórnarinnar segir afar ólíklegt að sólarlandaferðir séu í kortunum hjá Bretum í sumar, vegna hættunnar á því að fólk snúi heim með nýtt afbirgði SARS-CoV-2 í farteskinu. Erlent 20.3.2021 19:07
Leeds goðsögnin Peter Lorimer látinn Peter Lorimer, markahæsti leikmaður í sögu Leeds United, er látinn 74 ára að aldri. Lorimer skoraði 238 mörk í 705 leikjum fyrir félagið, en hann hafði glímt við langvarandi veikindi. Fótbolti 20.3.2021 13:52
Bræðurnir hafi alltaf átt „flókið“ samband við föður sinn Karl Bretaprins á ekki hefðbundið fegðasamband við syni sína Vilhjálm og Harry. Þetta hefur People eftir heimildarmanni sínum sem er sagður þekkja vel til innan konungsfjölskyldunnar. Sambandið hafi alltaf verið flókið. Lífið 19.3.2021 20:20
Hyggst láta bólusetja sig með AstraZeneca til að fullvissa Breta um öryggi Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands hyggst láta bólusetja sig með bóluefni AstraZeneca til að fullvissa Breta um að bóluefnið sé öruggt. Nokkurrar tortryggni hefur gætt í garð bóluefnisins eftir að tilkynningar bárust um alvarlegar aukaverkanir. Erlent 19.3.2021 07:43
The Sun réði einkaspæjara til að fá upplýsingar um Meghan Breska götublaðið The Sun borgaði bandaríska einkaspæjaranum Daniel Hanks fyrir að sækja upplýsingar um Meghan Markle, hertogaynjuna af Sussex, á fyrstu stigum sambands hennar við Harry Bretaprins. Frá þessu greinir breska ríkisútvarpið í kvöld. Erlent 18.3.2021 19:58
Aldrei fleiri kvartanir borist Rúmlega 57 þúsund kvartanir hafa borist breska eftirlitsaðilanum Ofcom í kjölfar þáttar Good Morning Britain í síðustu viku þar sem viðtal Opruh Winfrey við hertogahjónin af Sussex var til umræðu. Aldrei hafa jafn margar kvartanir borist fjölmiðlaeftirlitinu vegna sjónvarpsefnis áður. Lífið 17.3.2021 18:41
ESB íhugar að banna útflutning á bóluefni til Bretlands Evrópusambandið hótaði því að banna útflutning á bóluefni gegn kórónuveirunni til Bretlands til að tryggja sem flesta skammta fyrir sína eigin þegna. Sambandið er ósátt við hversu fáir skammtar af bóluefni AstraZeneca sem samið var um hafa verið afhentir til þessa. Erlent 17.3.2021 16:03
Filippus útskrifaður og kominn aftur til Windsor Filippus prins, hertogi af Edinborg, hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi og er kominn aftur í Windsor kastalann með Elísabetu Bretadrottningu. Hann var fluttur á sjúkrahús fyrir mánuði síðan, þann 16. febrúar, þar sem honum leið ekki vel. Erlent 16.3.2021 12:17
Handtökur á mótmælum vegna lögregluaðgerða á minningarsamkomu Hundruð hafa safnast saman í miðborg Lundúna til þess að minnast Söruh Everard, sem var myrt af lögreglumanni í Kent 3. mars síðastliðinn, og til þess að mótmæla lögreglunni. Komið hefur til átaka milli lögreglu og mótmælenda og einhverjir hafa verið handteknir. Erlent 15.3.2021 20:48
Hinn goðsagnakenndi Murray Walker er látinn Murray Walker lést á föstudagskvöld, Walker er einna þekktastur fyrir litríkar lýsingar á Formúlu 1 sem og öðrum akstursíþróttum. Walker var 97 ára þegar hann lést. Bílar 15.3.2021 07:00