Kína
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 42 ›
Allt á floti í miðhluta Kína Úrhellisrigning í miðhluta Kína hefur orsakað mikil flóð, þá sérstaklega í Henan-héraði þar sem tíu þúsund íbúar hafa verið fluttir í skjól. Myndir og myndbönd á samfélagsmiðlum sýna hvernig allt er á floti. Erlent 20.7.2021 23:30
Fingralauss fjallagarps saknað Umfangsmikil leit að suður-kóreska fjallagarpinum Kim Hong-bin er í bígerð. Hans er saknað eftir að hann komst upp á topp hins 8.407 metra háa Broad Peak á landamærum Pakistans og Kína. Erlent 20.7.2021 21:48
Saka kínversk yfirvöld um umfangsmikla tölvuárás á Microsoft Evrópusambandið og yfirvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum hafa sakað kínversk yfirvöld um að hafa staðið að baki umfangsmikilli tölvuárás á bandaríska tæknirisann Microsoft, fyrr á þessu ári. Viðskipti erlent 19.7.2021 20:55
Hættan á nýrri bylgju hræðir fjárfesta víða um heim Það var víðar en á Íslandi þar sem rauður dagur sást í kauphöllum. Hlutabréfavísitölur víða um heim féllu í dag, ástæðan er rakin til ótta fjárfesta við að ný bylgja kórónuveirufaraldursins geti farið af stað, auk vaxandi spennu í samskiptum Kína og Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 19.7.2021 19:45
Minnst sautján látin eftir að hótel hrundi í Kína Sautján eru látnir hið minnsta eftir að hótel hrundi til grunna í kínversku borginni Suzhou í austurhluta landsins. Hótelið hrundi í fyrradag og eftir þrjátíu og sex tíma starf hefur björgunarsveitum tekist að finna tuttugu og þrjár manneskjur í rústunum og voru sex þeirra á lífi. Erlent 14.7.2021 07:55
Kínverskir feðgar sameinaðir 24 árum eftir að syninum var rænt Guo Gangtang hefur fundið son sinn Guo Xinzhen eftir 24 ára leit. Syninum var rænt fyrir utan fjölskylduheimilið árið 1997 þegar hann var aðeins tveggja ára gamall. Erlent 13.7.2021 23:45
Xi og Kim heita nánari samvinnu Xi Jinping og Kim Jong Un, ráðendur Kína og Norður-Kóreu, hafa heitið því að auka samvinnu ríkjanna. Það gerðu þeir í skilaboðum sem þeir sendu hvorum öðrum á dögunum. Í skilaboðum til Xi sagði Kim að náið samband Norður-Kóreu og Kína væri nauðsynlegt í ljósi óvinveittra erlendra afla. Erlent 10.7.2021 23:14
Evrópuþingið hvetur diplómata til að sniðganga vetrarólympíuleikana í Pekíng Evrópuþingið hefur samþykkt ályktun þar sem diplómatar eru hvattir til að sniðganga vetrarólympíuleikana í Pekíng vegna mannréttindabrota kínverskra stjórnvalda. Erlent 9.7.2021 08:36
Risapandan ekki lengur í útrýmingarhættu Kínversk stjórnvöld segja risapönduna ekki lengur í bráðri útrýmingarhættu en stofninn sé enn viðkvæmur. Fjöldi villtra risapanda hefur nú náð 1.800. Erlent 9.7.2021 07:05
Fresta réttarhöldum yfir 47 lýðræðissinnum um ellefu vikur Saksóknarar hafa frestað réttarhöldum yfir 47 lýðræðissinnum í Hong Kong, sem blésu til prófkjörs sem dæmt var ólöglegt, um ellefu vikur. Erlent 8.7.2021 13:04
Aðför gerð að hinsegin samfélaginu á WeChat Kínverskir netverjar eru klofnir í afstöðu sinni til nýjasta útspils tæknirisans Tencent, sem á samskiptamiðilinn WeChat. Á þriðjudag var fjölda aðganga hinsegin hópa lokað og öllum gömlum færslum eytt. Erlent 8.7.2021 08:04
Vilja skjóta 23 eldflaugum á smástirni Kínverskir vísindamenn vilja senda 23 Long March 5 eldflaugar, þær öflugustu sem framleiddar eru í Kína, til að kanna hvort hægt sé að nota þær til að breyta stefnu smástirna. Markmið vísindamannanna er að komast að því hvort hægt væri að bjarga jörðinni með þessum hætti, ef smástirni stefndi á plánetuna okkar. Erlent 7.7.2021 14:03
Segir að Japan muni aðstoða Taívan verði gerð innrás Taro Aso, aðstoðarforsætisráðherra Japans, segir nauðsynlegt fyrir Japani að koma Taívan til aðstoðar, auk Bandaríkjanna, geri Kínverjar innrás í eyríkið. Þetta sagði hann í gær og hafa ummælin þegar vakið mikla reiði í Peking. Erlent 6.7.2021 14:39
Hvetur foreldra, kennara og aðra til að vakta ungmenni og tilkynna þau til lögreglu Lögreglan í Hong Kong hefur handtekið níu manns vegna meintrar hryðjuverkaógnar. Meðal hinna handteknu eru sex krakkar í menntaskóla en fólkið er fimmtán til 39 ára. Lögreglan segir þau hafa leigt hótelherbergi til að framleiða þar sprengjur og markmið hópsins hafi verið að gera sprengjuárásir á skotmörk í borginni. Erlent 6.7.2021 11:49
Segir höfuð óvina verða blóðguð á stálmúr kínversku þjóðarinnar „Aðeins sósíalisminn mun bjarga Kína og framþróun Kína mun byggja á kínverskum sósíalisma,“ sagði Xi Jinping, forseti Kína, í hátíðarávarpi í aðdraganda aldarafmælis kínverska kommúnistaflokksins. Erlent 1.7.2021 07:37
Kínverjar sagðir byggja fjölda byrgja fyrir langdrægar eldflaugar Kínverjar eru sagðir vera að byggja allt að 119 eldflaugabyrgi í eyðimörk í vesturhluta landsins. Byrgi þessi gætu hýst langdrægar eldflaugar sem geta borið kjarnorkuvopn. Erlent 30.6.2021 22:30
Taívan býr sig undir átök við Kína Joseph Wu, utanríkisráðherra Taívan, segir stjórnvöld þurfa að undirbúa sig undir möguleg hernaðarátök. Þetta sagði hann í viðtali við CNN en fyrir um viku síðan flugu 28 kínverskar herþotur og sprengjuflugvélar inn í lofthelgi landsins. Erlent 24.6.2021 11:34
Útgáfu Apple Daily í Hong Kong hætt um helgina Vef- og prentútgáfu fjölmiðilsins Apple Daily í Hong Kong verður hætt í síðasta lagi á laugardag. Frá þessu segir í tilkynningu frá stjórn útgáfunnar í morgun og er ástæðan sögð vera ríkjandi aðstæður í Hong Kong. Erlent 23.6.2021 07:46
Segir Bandaríkin hafa „helga skyldu“ til að verja Evrópu Joe Biden Bandaríkjaforseti lýsti þátttöku Bandaríkjanna í sameiginlegum vörnum Evrópu, Kanada og Tyrklands sem „helgri skyldu“ þeirra við upphaf leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins (NATO) í morgun. Lagði hann áherslu á mikilvægi bandalagsins. Erlent 14.6.2021 13:40
NATO kvartar undan Kínverjum sem skjóta til baka á „lítil bandalög“ sem vilja ráða öllu Jens Stoltenberg, aðalframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, gerði aukin umsvif Kínverja að umtalsefni við upphaf leiðtogafundar NATO í Brussel í dag. Erlent 14.6.2021 12:52
G7 ríkin mynda bandalag gegn Kína Leiðtogar G7 ríkjanna hafa samþykkt áætlun um að fara í aukna uppbyggingu innviða í þróunarríkjum til þess að stemma stigu við vaxandi áhrif Kína í þróunarríkjum. Joe Biden, Bandaríkjaforseti, lagði þetta til og ber verkefnið yfirskriftina „Byggjum aftur betri heim“ eða Build Back Better World upp á ensku. Erlent 12.6.2021 13:03
Lýðræðisbaráttukona leyst úr fangelsi Lýðræðisbaráttukonan Agnes Chow losnaði úr fangelsi í Hong Kong í dag, laugardag, eftir sjö mánuði á bak við lás og slá. Chow var handtekin eftir að hún tók þátt í skipulagningu ósamþykktra mótmæla í borginni árið 2019. Erlent 12.6.2021 08:08
Segja Kínverja hafa skapað „dystópískt helvíti“ í Xinjiang Mannréttindasamtökin Amnesty International saka kínversk stjórnvöld um glæpi gegn mannkyninu með meðferð sinni á úígúrum í Xinjiang-héraði. Framkvæmdastjóri samtakanna segir kommúnistastjórnina hafa skapað „dystópískt helvíti af gífurlegri stærðargráðu“. Erlent 10.6.2021 15:54
Minningarathafnir um mótmælin á Torgi hins himneska friðar bannaðar annað árið í röð Yfirvöld í Hong Kong hafa bannað minningarathafnir um mótmælin á Torgi hins himneska friðar annað árið í röð. Íbúar í Hong Kong hafa ár hvert minnst blóðbaðsins á torginu en fjöldasamkomur voru bannaðar í fyrra sökum kórónuveirufaraldursins. Það sama er uppi á teningunum í ár. Erlent 4.6.2021 20:47
Biden lengir bannlista Trumps Joe Biden undirritaði í gær forsetatilskipun þess efnis að fleiri kínverskum fyrirtækjum verði bætt á lista yfir fyrirtæki sem Bandaríkjamenn mega ekki fjárfesta í. Erlent 4.6.2021 17:03
Leiðtogi aðgerðasinna handtekinn í Hong Kong Lögreglan í Hong Kong handtók í nótt Chow Hang Tung, einn af leiðtogum andófsmanna þar í borg. Erlent 4.6.2021 07:04
Vitnaleiðslur um meint mannréttindabrot í Kína hefjast í Lundúnum á morgun Á morgun hefjast vitnaleiðslur í Lundúnum þar sem markmiðið er að safna gögnum um það hvort meint mannréttindabrot kínverskra yfirvalda í Xinjang héraði séu þjóðarmorð. Erlent 3.6.2021 23:31
Maður greinist með sjaldgæft afbrigði fuglaflensu Fertugur kínverskur karlmaður hefur greinst með sjaldgæft afbrigði fuglaflensunnar svokölluðu, fyrstur manna. Engar upplýsingar liggja fyrir um það hvernig maðurinn smitaðist en afbrigðið, H10N3, er ekki talið smitast auðveldlega milli manna. Erlent 2.6.2021 08:12
Annað kínverskt bóluefni fær neyðarskráningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur skráð bóluefni kínverska fyrirtækisins Sinovac gegn kórónuveirunni til neyðarnotkunar fyrir fólk eldra en átján ára. Það er annað kínverska bóluefnið sem fær slíka heimild. Erlent 1.6.2021 15:45
Kínverjar mega nú eignast þrjú börn Stjórnvöld í Kína hafa ákveðið að heimila pörum að eignast þrjú börn. Breytingin var samþykkt af forsetanum Xi Jinping á fundi miðstjórnar kínverska kommúnistaflokksins. Erlent 31.5.2021 08:18