Heilbrigðismál
97 98 99 100 101 102 103 104 105 … 216 ›
Tíu greindust með Covid-19 í gær, allir nema einn í sóttkví Tíu greindust með Covid-19 í gær og 134 eru í einangrun. 812 eru í sóttkví og 1.106 í skimunarsóttkví. Þá liggja fjórir inni á sjúkrahúsi vegna Covid-19. Innlent 23.4.2021 10:52
„Ég er ekki búin að geta opnað munninn í þrjá mánuði“ Lembi Seia Sangla, aðstoðarleikskólastjóri á Egilsstöðum, er algjörlega ráðþrota og langþreytt eftir að hún lenti í því fyrir nokkrum mánuðum, eftir að dregin var úr henni tönn, að geta ekki lengur opnað munninn. Hún þjáist af heilkenni sem kallast trismus sem lýsir sér þannig að viðkomandi festist í kjálkanum og getur ekki opnað munninn nema takmarkað. Þar að auki er hún mjög bólgin í andliti og er misslæm milli daga. Innlent 22.4.2021 21:01
Tilslakanir á veitingastöðum og börum Ýmsar smávægilegar breytingar voru gerðar á gildandi reglugerð heilbrigðisráðuneytisins um sóttvarnir í fyrradag. Innlent 22.4.2021 16:50
Hefði viljað ganga lengra til að „stoppa lekann á landamærum“ Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður velferðarnefndar, segir miður að ekki hafi verið gengið lengra í frumvarpi sem samþykkt var á Alþingi í nótt við að veita sóttvarnayfirvöldum heimild til að „stöðva lekann á landamærum.“ Hún telur ósamstöðu innan ríkisstjórnarinnar um að kenna. Innlent 22.4.2021 11:38
Sautján greindust innanlands og átta ekki í sóttkví Alls greindust sautján með covid-19 innanlands í gær og voru átta þeirra ekki í sóttkví. Alls voru tekin 1.923 sýni og er tala yfir nýgengi smita nú 29,2. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Innlent 22.4.2021 10:52
Frumvarpið samþykkt á Alþingi í nótt Frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um breytingar á sóttvarnalögum og lögum um útlendinga, þar sem kveðið er á um sóttvarnahús og för yfir landamæri, var samþykkt á Alþingi á fimmta tímanum í nótt. Frumvarpið var samþykkt með 28 atkvæðum gegn tveimur, 22 greiddu ekki atkvæði og ellefu voru fjarstaddir. Innlent 22.4.2021 07:10
„Hún er líflína foreldra með barn í krabbameinsmeðferð“ Míuverðlaunin voru afhent í fyrsta skipti í dag og er Sigrún Þóroddsdóttir, barnahjúkrunarfræðingur á Barnaspítala Hringsins, fyrsti viðtakandi þessara nýju verðlauna. Lífið 21.4.2021 16:38
Enginn greinst í handahófsskimun Íslenskrar erfðagreiningar Bæði smitin sem greindust utan sóttkvíar í gær tengjast þeim hópsýkingum sem hafa verið til umfjöllunar síðustu daga. Um 3.000 manns fóru í sýnatöku í gær og 1.100 í slembiskimun hjá Íslenskri erfðagreiningu. Innlent 21.4.2021 11:23
Tólf greindust með Covid-19 í gær en tíu voru í sóttkví Tólf greindust með kórónuveiruna í gær. Tíu voru í sóttkví en tveir utan sóttkvíar. 120 eru í einangrun. Innlent 21.4.2021 10:53
Bólusetningardagatalið uppfært Bólusetningardagatalið á covid.is hefur verið uppfært en samkvæmt því hefst bólusetning einstaklinga utan áhættuhópa fyrstu eða aðra vikuna í júní. Innlent 21.4.2021 07:54
21 greindist með Covid-19 í gær og átján voru í sóttkví 21 greindist með Covid-19 í gær. Átján voru í sóttkví en þrír utan sóttkvíar. 113 eru nú í einangrun og tveir liggja inni á Landspítala. Innlent 20.4.2021 10:56
Óbólusett í áhættuhóp en neyðist til að mæta í próf: „Eins og maður sé einn í liði á móti heiminum“ Helga Margrét Agnarsdóttir, laganemi á þriðja ári við Háskóla Íslands, segir mikið stress og óánægju ríkja meðal laganema vegna komandi lokaprófa sem að óbreyttu stendur til að fari fram í háskólanum. Sjálf er Helga Margrét í áhættuhópi og hefur síðastliðið ár ekki hitt marga úr fjölskyldu sinni og nánustu vini. Hún kvíðir því að þurfa að mæta í skólann til að taka próf og kallar eftir því að deildin taki ákvörðun um að bjóða upp á heimapróf í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu sökum kórónuveirufaraldursins. Innlent 19.4.2021 21:01
Sitja landsmenn við sama borð? Eitt af þeim málum sem við þingmenn Miðflokksins fengum samþykkt í þinginu var að fela heilbrigðisráðherra að meta hvernig megi lágmarka kostnað sjúklinga vegna langvinnra og lífshættulegra sjúkdóma. Skoðun 19.4.2021 18:01
Bein útsending: Varið land - hvað höfum við lært um Covid-19? „Varið land - hvað höfum við lært um Covid-19?“ er yfirskrift fræðslufundar Íslenskrar erfðagreiningar sem fram fer í dag. Fundurinn hefst klukkan 14 og verður hægt að fylgjast með honum í spilara að neðan. Innlent 19.4.2021 13:31
Hyggjast ráðast í víðtækar skimanir Ráðast á í víðtækar skimanir í tengslum við þau hópsmit sem upp eru komin í samfélaginu og sömuleiðis handahófskenndar skimanir til að freista þess að meta útbreiðsluna almennt. Innlent 19.4.2021 11:22
Þrettán í sóttkví vegna smits í Krónunni: „Það fór strax allt í gang hjá okkur“ Innlent 19.4.2021 10:59
Fleiri en tuttugu greindust með Covid-19 í gær Fleiri en 20 Covid-19 smit greindust í gær, að sögn Runólfs Pálssonar yfirlæknis Covid-19 göngudeildar Landspítalans. Hann greindi frá þessu í Morgunútvarpi Rásar 2. Innlent 19.4.2021 08:24
Segir afglæpavæðingu „gefa leyfi til að prófa“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir stórkostleg mistök að afglæpavæða neysluskammta og vonar að „menn nái áttum“ áður en það verði að veruleika. Frumvarp heilbrigðisráðherra um afnám refsinga fyrir vörslu neysluskammta hugnast honum ekki. Innlent 18.4.2021 20:13
„Stjarnfræðilega meiri ávinningur í að nota AstraZeneca en hætta því“ Yfirlæknir í blóðmeinafræði mælir með notkun AstraZeneca bóluefnisins fyrir alla nema fólk í áhættuhópum. Ávinningurinn sé stjarnfræðilega meiri en að hætta að nota efnið líkt og Danir. Innlent 16.4.2021 20:31
Bóluefnið sem er aðeins gefið fólki utan áhættuhópa Fimm af hverjum milljón Bretum sem bólusettir hafa verið með bóluefni AstraZeneca eiga á hættu að fá alvarlega blóðtappa. Hlutfallið er einn af hverjum fjörutíu þúsund í Danmörku og Noregi. Sóttvarnalæknir segir aðeins einstaklingum utan áhættuhópa boðið bóluefnið sem veiti góða vörn gegn Covid-19. Innlent 16.4.2021 14:02
Mannleg og kerfisleg mistök í máli konunnar Embætti landlæknis hefur komist að þeirri niðurstöðu að bæði mannleg og kerfisleg mistök hafi verið gerð í máli konu sem greindist með ólæknandi leghálskrabbamein eftir skimun hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Innlent 16.4.2021 12:29
Segir miður að fólk með einkenni skuli ekki drífa sig strax í sýnatöku Fjórir greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír þeirra sem greindust voru utan sóttkvíar. Sóttvarnarlæknir segir að enn sé fólk að greinast sem hefur verið með einkenni úti í samfélaginu áður en það fer sig í sýnatöku. Fleiri gætu því greinst á næstu dögum utan sóttkvíar. Innlent 16.4.2021 12:06
Lækningaleyfi veitt að loknu sex ára námi Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerðarbreytingu sem kveður á um að læknaleyfi verði veitt að loknu sex ára læknanámi við Háskóla Íslands. Starfsnám sem hefur farið fram á kandídatsári, og verið hluti af grunnnámi lækna hingað til, verður nú hluti af sérnámi. Innlent 15.4.2021 20:21
Færri þurft að leggjast inn á spítala en gert var ráð fyrir er breska afbrigðið greindist Mun færri hafa verið lagðir inn á spítala hér á landi undanfarnar vikur vegna Covid-19 en gert var ráð fyrir. Breska afbrigði veirunnar virðist ekki hafa reynst eins hættulegt og óttast var. Landlæknir segir að Covid- göngudeild sé alltaf að eflast. Innlent 15.4.2021 20:00
Sífellt fleiri leita til heilsugæslunnar vegna langvinnra eftirkasta af Covid-19 Á fjórða hundrað manns hafa leitað til Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna langvarandi eftirkasta af Covid-19 frá upphafi faraldursins. Fólk kvartar aðallega yfir mikilli þreytu, úthaldsleysi og heilsukvíða. Innlent 15.4.2021 18:31
Þrjátíu undirflokkar undirliggjandi sjúkdóma skapa flókna stöðu Fólk eldra en 65 ára með undirliggjandi sjúkdóma er að þiggja bólusetningu um land allt þessa dagana. Því fylgir ærin áskorun fyrir starfsfólk heilsugæsla, enda eru undirliggjandi sjúkdómar mjög margvíslegir að eðli og alvarleika. Innlent 15.4.2021 13:01
Fleiri þurfi meðferð vegna kvíða og þunglyndis í kjölfar faraldursins Forstjóri Heilsustofnunar í Hveragerði segir sífellt fleiri leyta til stofnunarinnar vegna kvíða og þunglyndis sem rekja megi til þeirra áhrifa sem kórónuveirufaraldurinn hafi haft á samfélagið. Þá hafi mörgum farið líkamlega aftur í faraldrinum og óskað eftir innlögn. Innlent 15.4.2021 12:01
Bóluefnið frá AstraZeneca mögulega gefið karlmönnum yngri en 65 ára Á upplýsingafundi dagsins var nokkuð rætt um bólusetningar og aukaverkanir af völdum bóluefna en Danir hyggjast hætta notkun bóluefnisins frá AstraZeneca og að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis er sama til skoðunar í Noregi. Innlent 15.4.2021 11:38
Einstaklingur á sjötugsaldri í öndunarvél eftir millilendingu vegna veikinda Tveir eru á Landspítala, þar af einn í öndunarvél á gjörgæslu. Sá er á sjötugsaldri en millilent var hér vegna veikinda viðkomandi. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi um stöðu kórónuveirufaraldursins. Innlent 15.4.2021 11:22
Svona var 175. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirufaraldursins Almannavarnir hafa boðað til upplýsingafundar vegna kórónuveirufaraldursins kl. 11. Þríeykið snýr aftur; þjóðinni til upplýsingar verða Alma Möller landlæknir, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn. Innlent 15.4.2021 10:10