Landspítalinn
20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 60 ›
Mikilvæg nýsköpun í tækni á Landspítala Stafræn tækni hefur breytt hefðbundinni atvinnustarfsemi um heim allan og þjóðarsjúkrahúsið Landspítali hefur tekið þátt í þeirri þróun af miklum krafti. Stafrænt umhverfi Landspítala er flókið og umfangsmikið á íslenskan mælikvarða og fjölbreytt nýsköpunarverkefni hafa sprottið upp á undanförnum árum. Skoðun 19.1.2022 13:00
Enn fækkar inniliggjandi á Landspítala með Covid-19 33 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. Innlent 19.1.2022 09:57
Algjörlega óraunhæft að komast niður í 500 smit Tveir læknar Landspítalans eru sammála um að það sé heldur óraunhæft markmið að ná daglegum fjölda smitaðra niður í 500 manns eins og sóttvarnalæknir sagði að markmiðið væri á fundi velferðarnefndar Alþingis síðasta þriðjudag. Innlent 18.1.2022 20:31
Vatnaskil orðið í faraldrinum og því tímabært að endurskoða viðbrögð og takmarkanir Landspítalinn telur tímabært að fara að endurskoða viðbragð sitt í heimsfaraldrinum með tilliti til vægari veikinda. Vatnaskil hafi orðið og því komi til greina að fækka fjölda starfsmanna á hvern covid-sjúkling. Þá sé ástæða til að íhuga að létta á sóttvarnaaðgerðum. Innlent 18.1.2022 18:47
Læknar með gjörólíka sýn á faraldurinn takast á í Pallborðinu Gamlir vinir og samstarfsmenn á Landspítala mætast í Pallborðinu klukkan 14:30 í beinni hér á Vísi og Stöð 2 Vísi í dag til að ræða heimsfaraldurinn og leiðir út úr honum. Fylgst er með gangi mála í textalýsingu í vaktinni hér að neðan. Innlent 18.1.2022 12:09
Inniliggjandi með Covid-19 fækkar á milli daga Þeim sem liggja inn á Landspítala með Covid-19 fækkaði um sex á milli daga, þar af fækkaði inniliggjandi með Covid-19 á gjörgæslu um þrjá. Innlent 18.1.2022 10:44
Málefni sjúklinga með endómetríósu tekin til tímabærrar skoðunar Heilbrigðisráðherra hefur svarað fyrirspurn minni á Alþingi um meðhöndlun endómetríósu (legslímuflakks). Líkt og ég hef áður fjallað um á þessum vettvangi, getur sjúkdómurinn valdið sárum verkjum og ófrjósemi, en talið er að hann hrjái allt að 10% kvenna og að meðalgreiningartími hans sé allt að 7-9 ár. Skoðun 18.1.2022 07:01
Um þriðjungur Covid-smitaðra á Landspítala ekki inni vegna Covid Um þriðjungur þeirra sem liggja inni á Landspítala í einangrun með Covid-19 eru þar vegna annarra veikinda eða meiðsla. Nýtt spálíkan er væntanlegt frá spítalanum sem gæti orðið til þess að sóttvarnalæknir endurskoði samkomutakmarkanir. Innlent 17.1.2022 19:31
Tæplega 3500 börn á aldrinum 5-11 ára greinst en ekkert lagst inn Hér á landi hafa 6.578 börn á aldrinum 0–16 ára greinst með COVID-19 frá upphafi faraldursins til 2. janúar 2022, þar af eru 3.449 börn á aldrinum 5–11 ára. Innlent 17.1.2022 15:35
Getur enn ekki sagt til um hversu alvarlegt ómíkron sé Allt bendir til að ómíkron-afbrigði veirunnar sé talsvert vægara en menn hafa reiknað með. Gjörgæsluinnlögnum fækkar dag frá degi á meðan fjöldi smitaðra stendur í stað. Sóttvarnalæknir vill þó enn stíga varlega til jarðar og segist ekki hafa nægar upplýsingar frá Landspítalanum um alvarleika veikinda. Innlent 17.1.2022 13:12
Ráðherra skipi sjö manna stjórn yfir Landspítalanum Heilbrigðisráðherra mun skipa sjö manna stjórn yfir Landspítalanum til tveggja ára í senn en í henni þurfa meðal annars að vera tveir stjórnarmenn með sérþekkingu á rekstri og áætlanagerð. Innherji 17.1.2022 10:08
45 sjúklingar nú inniliggjandi með Covid-19 45 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19. Sjö eru nú á gjörgæslu og eru tveir þeirra í öndunarvél. Innlent 17.1.2022 09:49
Fleiri teknir inn í hjúkrun í Háskóla Íslands Allir þeir sem náðu tilskilinni einkunn í samkeppnisprófum í hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands komast inn í námið. Til stóð að hleypa 122 nemendum í gegn en þeir verða 127. Innlent 17.1.2022 06:35
Ráðherrar verði að gæta orða sinna í miðjum heimsfaraldri Tómas Guðbjartsson, skurðlæknir hjá Landspítala, finnst utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins hafa talað óvarlega og af undarlegum hætti um faraldurinn og sóttvarnatakmarkanir undanfarið. Landspítali hefur starfað á neyðarstigi í tæpar fjórar vikur og segir Tómas ástandið á skurðdeildunum skelfilegt. Innlent 16.1.2022 21:12
Róm brennur en ráðherra spyr spurninga Nú hefur Landspítali verið á neyðarstigi frá 28. desember síðastliðinn, en róðurinn var sömuleiðis afar þungur allan mánuðinn á undan. Víða er erfitt að halda starfsemi gangandi innan veggja spítalans vegna uppsafnaðs álags á starfsfólk og vaxandi fjarveru þess sem rekja má til smita í samfélaginu. Skoðun 16.1.2022 19:31
Mjög þungur dagur á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Mikið álag hefur verið á bráðamóttöku Landspítalans í dag vegna hálkuslysa. Yfirlæknir segir höfuðhögg og beinbrot vera algengustu meiðslin í kjölfar slysanna. Innlent 16.1.2022 15:55
Einn til viðbótar smitaður á Landakoti eftir umfangsmiklar skimanir Einn sjúklingur á Landakoti greindist með kórónuveiruna í gær eftir umfangsmiklar skimanir þar og á hjartadeild spítalans. Innlent 16.1.2022 15:07
„Ég fékk þá tilfinningu að spítalinn væri einstaklega illa rekinn“ „Það vakti ekki hrifningu hjá mér hvernig Landsspítalinn nálgaðist fjárlagaumræðuna, mér fannst það ekki sérstaklega trúverðugt, þekkjandi til rekstrar. Ég fékk ekki tilfinningu fyrir því að þarna væri vel farið með opinbert fé. Þvert á móti fékk ég þá tilfinningu að spítalinn væri einstaklega illa rekinn.“ Innherji 16.1.2022 12:01
Íslendingar „á leið út af sporinu“ segir Ragnar Freyr „Loksins sést til sólar,“ segir Ragnar Freyr Ingvarsson læknir á Facebook um stöðu Covid-19 faraldursins á hérlendis. Hann segir Íslendinga engu að síður „á leið út af sporinu“ og á þar við þær sóttvarnaaðgerðir sem voru boðaðar fyrir helgi. Innlent 16.1.2022 10:45
Heilbrigðisstarfsmenn Orkuhússins hlaupa undir bagga með Landspítala Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við Orkuhúsið um að útvega lækna og hjúkrunarfræðinga til að starfa á Landspítala og þannig styðja við þjónustu spítalans á þessum krefjandi tímum. Innlent 15.1.2022 17:33
Gjörgæslusjúklingum fækkar Þeim fjölgar um tvo sem liggja inni á Landspítala með Covid-19 milli daga en fækkar á sama tíma um tvo sem liggja á gjörgæsludeild. 45 sjúklingar á spítalanum eru smitaðir. Innlent 15.1.2022 11:56
Tveggja ára stríðsrekstur Við erum í stríði, og höfum verið í stríði undanfarin 2 ár. Framlína þess stríðs fer fram á spítalanum, þó að mörg önnur svið samfélagsins hafi fundið verulega fyrir afleiddum áhrifum þessa faraldurs. Skoðun 15.1.2022 11:01
Breyti engu ef fólk breyti ekki hegðun sinni Formaður farsóttanefndar Landspítalans bindur vonir við að hertar samkomutakmarkanir komi til með að skila árangri og draga úr álagi á spítalann. Þær muni þó engu breyta ef fólk breyti ekki hegðun sinni. Innlent 15.1.2022 14:51
Fá svigrúm til að greiða aukalega næstu fjórar vikurnar Ríkisstjórnin hefur ákveðið að tryggja Landspítala svigrúm sem gerir kleift að greiða starfsfólki sérstaklega fyrir viðbótarvinnuframlag næstu fjórar vikurnar. Talið er að þannig megi betur tryggja mönnun við erfiðar aðstæður meðan mesti þunginn í faraldrinum gengur yfir. Innlent 14.1.2022 13:44
Ríkisstjórnarfundi lokið: Tilkynnt um hertar aðgerðir Ríkisstjórnarfundur hófst klukkan 9.30 en en á dagskrá fundarins er meðal annars nýtt minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Ráða má í yfirlýsingar Þórólfs í vikunni að hann leggi til hertar sóttvarnaaðgerðir. Innlent 14.1.2022 10:15
42 sjúklingar nú á Landspítala með Covid-19 42 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19. Átta eru á gjörgæslu, fjórir þeirra í öndunarvél. Meðalaldur innlagðra er 64 ár. Innlent 14.1.2022 10:03
„Spáin núna ætti eiginlega að heita vondur, verri, verstur“ Bjartsýnasta spá Landspítala um innlagnir á legudeild vegna Covid-19 virðist nú vera að rætast. Verkefnastjóri hjá farsóttanefnd Landspítala segir orðalagið um bjartsýna spá villandi og telur nauðsynlegt að herða takmarkanir. Innlent 13.1.2022 20:32
„Náum þessu niður áður en við göngum af heilbrigðiskerfinu dauðu“ Formaður Læknafélags Íslands og formaður Félags hjúkrunarfræðinga kalla eftir því að stjórnvöld bregðist við því mikla álagi sem sé á heilbrigðisstarfsfólk, til dæmis með tímabundnum álagsgreiðslum í faraldrinum. Ekki sé hægt að leggja það á fólk árum og mánuðum saman að einangra sig og vinni ítrekað langt um fram eðlilega vinnuskyldu. Innlent 13.1.2022 19:16
Andlát vegna Covid-19 Karlmaður á tíræðisaldri lést á Landspítala í gær af völdum Covid-19. Um er að ræða fimmta andlátið vegna Covid-19 hérlendis á þessu ári, en alls hafa 43 nú látist af völdum Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins. Innlent 13.1.2022 09:59
Læknar vilja viðbótargreiðslur í samræmi við álag Læknar vilja breytinga á kjarasamningum og leggja til viðbótargreiðslur í samræmi við aukið álag. Mikið hafi mætt á heilbrigðisstarfsfólki í kórónuveirufaraldrinum og læknar segja eðlilegt að hluti þeirra fjármuna sem fallið hafa til samfélagsins í faraldrinum fari einnig til heilbrigðisstarsfólks. Innlent 12.1.2022 19:02