Fréttir

Fréttamynd

Ungur piltur með barnaklám

Piltur á átjánda ári hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu barnakláms.

Innlent
Fréttamynd

Telja að gæði skólastarfs muni skerðast

SAMFOK, samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, lýsa yfir áhyggjum af fyrirhuguðum niðurskurði á menntasviði Reykjavíkurborgar þriðja árið í röð. Guðrún Valdimarsdóttir, formaður SAMFOK, segir helsta áhyggjuefnið vera að fjárveitingar til skólanna muni vart duga til að fylgja ákvæðum grunnskólalaga að fullu.

Innlent
Fréttamynd

Þúsundir manna flýja

Þúsundir flúðu heimili sín undan rótum eldfjallsins Merapi í Indónesíu í gær. Opinber viðvörun var gefin út um að eldfjallið gæti gosið aftur hvenær sem væri og fjölmenntu íbúar inn í rútur, lestir og bíla til að flýja í kjölfarið.

Erlent
Fréttamynd

Hækka viðmið um 20 til 25%

Tekjuviðmið vegna gjafsóknar verða hækkuð um 20 til 25 prósent í kjölfar fjölmargra ábendinga um að viðmiðið sé of lágt, sagði Ögmundur Jónasson, dómsmála- og mannréttindaráðherra, á Alþingi í gær.

Innlent
Fréttamynd

Vill betra flæði á upplýsingum

Elliði Vignisson bæjar­stjóri í Vestmannaeyjum hefur lýst yfir óánægju með upplýsingaflæði vegna ferða Herjólfs, en ferð til lands féll niður í gærmorgun sökum óhagstæðra veðurskilyrða.

Innlent
Fréttamynd

Landið fái sæti í öryggisráði SÞ

Barack Obama Bandaríkjaforseti styður óskir Indlands um að fá varanlegt sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Kom þetta fram í ræðu sem Obama flutti á indverska þinginu.

Erlent
Fréttamynd

EES-samningurinn var versti kostur Finna

Juhana Aunesluoma, sem stýrir Evrópufræðastofnun Háskólans í Helsinki, reifaði afstöðu Finna til Evrópusambandsins í gegnum árin. Finnar hefðu, ólíkt Svíum, verið hrifnir af yfirþjóðlegum þætti ESB og fljótir til að finna sinn sess í Brussel.

Innlent
Fréttamynd

Við samningslok liggja kostirnir skýrt fyrir

Samstaða var um að ljúka aðildar­viðræðum við Evrópusambandið (ESB) og að þingmenn kysu um niðurstöðuna, í pallborði og hjá frummælendum á nýafstaðinni morgunráðstefnu samtakanna Sterkara Ísland.

Innlent
Fréttamynd

Óttast glæpi en ekki stóra tölvuárás

Íslenskum tölvunotendum stafar mun meiri hætta af skipulagðri glæpastarfsemi á netinu en skipulagðri árás sem hefði það að markmiði að setja íslensk fjarskipti á hliðina, að mati sérfræðinga í tölvuöryggismálum.

Innlent
Fréttamynd

Nýir fjárfestar koma í Ölgerðina

„Það var mjög gott að klára þetta til að eyða allri óvissu og geta horft fram á við,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, en fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins, sem staðið hefur yfir frá í fyrra, er lokið. Við þetta eignast fagfjárfestingasjóðurinn Auður 1, sem heyrir undir Auði Capital, 36 prósenta hlut ásamt meðfjárfestum og Arion banki

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Mannréttindi og öryggi skert

Persónuvernd leggst gegn áformum heilbrigðisráðuneytisins um að leggja að mestu af aðkomu stofnunarinnar að leyfisveitingum til aðgangs að sjúkraskrám.

Innlent
Fréttamynd

Hefur fætt barn í bíl og flugvél

„Við náðum ekki á spítalann, það er ekki flóknara en það,“ segir Þórunn Hrund Óladóttir, sem fæddi dreng fyrir utan sjúkrahúsið í Neskaupstað snemma á fimmtudagsmorgun.

Innlent
Fréttamynd

Byggi stúku eða spili leiki utanbæjar

Bæjarfulltrúar í Snæfellsbæ telja að Knattspyrnusamband Íslands hafi stillt bæjarfélaginu upp við vegg þannig að ekki sé umflúið að bærinn styrki byggingu 350 manna stúku í Ólafsvík um sjö milljónir króna.

Innlent
Fréttamynd

Hópur vildi draga aftur ESB-umsókn

Málefnaþing Vinstri Grænna um utanríkismál hófst í gær þar sem mál tengd umsókn Íslands í Evrópusambandið voru meðal þess sem brann á fólki.

Innlent
Fréttamynd

Elsta vetrarbrautin mynduð

„Þetta er fjarlægasta fyrirbæri sem sést hefur í alheiminum hingað til. Ljósið frá þessari vetrarbraut lagði af stað fyrir rúmlega þrettán milljörðum ára, nánar tiltekið aðeins um 600 milljón árum eftir Miklahvell. Það er um átta milljörðum ára áður en jörðin var til," segir Sævar Helgi Bragason, ritstjóri Stjörnufræðivefsins og tengiliður ESO á Íslandi, um nýjustu uppgötvun stjarnvísindanna.

Innlent
Fréttamynd

15% aukning á sölu nautakjöts

Sala á nautakjöti jókst um 15,3 prósent í nýliðnum september samanborið við sama mánuð í fyrra, samkvæmt samantekt Bændasamtaka Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Fagfólk skóla virðist vanmeta eineltið

Börn sem eiga erlenda foreldra eru helmingi líklegri til að upplifa einelti en þau sem eiga íslenska foreldra. Þetta kemur fram í rannsókn Þórodds Bjarnasonar, prófessors í félagsfræði við Háskólann á Akureyri.

Innlent
Fréttamynd

Stjörnustöð Evrópulanda (ESO)

European Southern Observatory, stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli (ESO), er stærsta fjölþjóðlega stjörnustöð Evrópu og ein öflugasta stjörnustöð heims.

Erlent
Fréttamynd

Innkallar meira en milljón bíla

Japanski bílaframleiðandinn Toyota hefur ákveðið að innkalla 1,53 milljónir bifreiða vegna galla. 740 þúsund þessara bifreiða eru í Japan, 599 þúsund í Bandaríkjunum, en hinar í Evrópuríkjum og víðar um heim.

Erlent