Fréttir
192 193 194 195 196 197 198 199 200 … 334 ›
Lentu í deilum við konu á Hebron Íslenskur karlmaður um tvítugt var færður til yfirheyrslu hjá ísrelsku lögreglunni í Hebron á Vesturbakkanum í fyrradag. Ísraelsk kona sem þau lentu í útistöðu við hafði þá kært danska vinkonu hans fyrir líkamsárás. Atvikið náðist allt á myndband. Erlent 20.3.2007 17:02
Umhverfisráðherra undirritar sáttmála Framtíðarlandsins Umhverfisráðherra, Jónína Bjartmarz, hefur skrifað undir sáttmála Framtíðarlandsins, fyrst stjórnarþingmanna. Á fjórða þúsund höfðu nú síðdegis undirritað sáttmálann. Innlent 20.3.2007 18:24
Gæsluvarðhald framlengt Hæstiréttur staðfesti í dag framlengingu á gæsluvarðhaldi til ellefta maí yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um aðild að smygli á nærri fjórum kílóum af kókaíni. Mennirnir hafa verið í haldi síðan áttunda febrúar. Fíkniefnin voru falin í bifreið sem flutt var frá Þýskalandi en tollgæsla fann þau áður en þeirra var vitjað og skipti þeim út fyrir gerviefni. Innlent 20.3.2007 18:24
Ingibjörg ítrekar framburð sinn Ingibjörg S. Pálmadóttir, sambýliskona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem hún ítrekar að Jón Steinar Gunnlaugsson hafi sagt henni að ýmsir aðilar hafi þrýst á sig að taka að sér mál Jóns Geralds. Jón Steinar hafði í gær sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagði fullyrðingar Ingibjargar við yfirheyrslu í Hæstarétti ekki sannar. Innlent 20.3.2007 17:59
Handtóku 171 í aðgerðum gegn mafíunni Ítalska lögreglan handtók í dag vel á annað hundrað manns í aðgerðum gegn mafíunni í Napólí. Heilu fjölskyldurnar voru þá sendar í steininn en alls var um 171 manns að ræða. Þúsund lögreglumenn tóku þátt í aðgerðunum. Eiturlyfjahringur var leystur upp og afhjúpuð ýmis glæpastarfsemi sem mun að sögn lögreglu hafa skilað jafnvirði rúmlega þrjátíu milljóna króna í tekjur á mánuði. Erlent 20.3.2007 17:42
Sektaður fyrir að skafa ekki bílrúðu Lögregla stöðvaði ökumann í dag vegna þess að hann hirti ekki um að skafa af bílrúðunum. Útsýni mannsins var mjög takmarkað og setti hann sjálfan sig og aðra í hættu, segir í tilkynningu frá lögreglunni. Hann var sektaður um fimm þúsund krónur samkvæmt reglugerð um hélaðar rúður á ökutækjum. Þrjátíu og eitt umferðaróhapp var tilkynnt til lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt. Innlent 20.3.2007 16:53
Laganemar aðstoða innflytjendur Innflytjendur fá ókeypis lögfræðiþjónustu hjá laganemum Háskólans í Reykjavík frá og með morgundeginum. Þjónustan fer fram á efstu hæð Alþjóðahússins við Hverfisgötu. Að henni munu starfa laganemar á þriðja til fimmta námsári. Markmiðið er að veita aðstoð á hvaða réttarsviði sem er. Innlent 20.3.2007 16:42
Lögreglan stöðvaði líkfylgd Lögregla í Hollandi hefur verið gagnrýnd fyrir að stöðva líkfylgd til að taka öndunarpróf af ökumönnum. Syrgjendurnir voru nýlagðir af stað frá kirkju í Enschede á leið til kirkjugarðsins Usselo. Lögreglan leyfði líkbílnum og fjórum næstu bílum að halda ferðinni áfram. Tíu bifreiðum fjölskyldumeðlima og vina var hins vegar vikið til hliðar. Erlent 20.3.2007 16:11
Nokkuð um minniháttar slys í gær Þrjár konur á níræðisaldri voru fluttar undir læknishendur í Reykjavík í gær. Tvær þeirra duttu í hálku og voru fluttar á slysadeild. Sú þriðja datt í Kringlunni. Þá skarst maður á tíræðisaldri á höfði þegar hann féll í Austurveri og þurfti læknisaðstoð. Fimm ára drengur rann á tré á skíðum í Fossvogi í gær. Hann var með hjálm en fékk stóra kúlu á ennið. Innlent 20.3.2007 15:24
Varðskip á leið til bjargar fiskiskipi Varðskip Landhelgisgæslunnar er nú á leið suður fyrir Reykjanessskaga til að draga vélarvana fiskiskip í land. Gæslunni var tilkynnt um skipið út af Reykjanesi á þriðja tímanum í dag. Skipið er 70 tonna snurvoðabátur með fimm manna áhöfn. Það bilaði upp úr hádegi og liggur fyrir akkerum stutt frá landi. Innlent 20.3.2007 15:08
Nýbyggingum fjölgar í Bandaríkjunum Byggingu nýrra fasteigna fjölgaði um níu prósent á milli mánaða í febrúar, samkvæmt nýlegum upplýsingum frá viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna. Þetta er langtum meira en greinendur gerðu ráð fyrir og þykir auka líkurnar á því að seðlabanki Bandaríkjanna ákveði að halda stýrivöxtum óbreyttum. Viðskipti erlent 20.3.2007 14:49
Fangelsi fyrir ofbeldi gegn lögreglumönnum Kona á þrítugsaldri var í dag dæmd í fjögurra mánaða fangelsi fyrir ofbeldi gegn tveimur lögreglumönnum. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur og er skilorðsbundinn til fimm ára. Ákæra gegn karlmanni sem lést 11. þessa mánaðar var felld niður. Innlent 20.3.2007 14:33
Kinnbeinin orsökuðu hrakfarir Kínverskur maður lét minnnka kinnbeinin í lýtaaðgerð til að eiginkonan myndi lifa lengur. Spákonur sögðu Lang Qiang að konan myndi deyja á undan honum, vegna kinnbeinanna. Lang var sannfærður um að það væri rétt þar sem konan var einstaklega óheppin, en hann ekki. Erlent 20.3.2007 14:01
Kaupþing flaggar í Storebrand Kaupþing jók við hlut sinn í norska trygginga- og fjármálafyrirtækinu Storebrand í morgun og er nú komið með 10,4 prósent hlutabréfa í félaginu. Bankinn fékk heimild hjá norskum yfirvöldum í morgun til að kaupa allt að 20 prósenta hlut í Storebrand. Viðskipti innlent 20.3.2007 13:07
Hjólbarðar í hættu á Akureyri Oddhvass mulningur, sem borinn er á götur Akureyrar í hálku, getur stórskemmt dekk bifreiða. Þetta segir hjólbarðasali en bærinn kemur af fjöllum. Um er að ræða gróft efni með skarpri egg og er hjólbarðasölunum hjá Heldi nóg boðið vegna dreifingar á götum. Þeir hafa séð mörg dæmi um að efnið skemmi dekk þegar ekið er yfir. Innlent 20.3.2007 12:23
Semja þurfi um frestun stækkunar álvers Formaður Samfylkingar tekur undir með bæjarstjóranum í Hafnarfirði um að semja þurfi við Alcan og orkufyrirtæki um frestun á stækkun álversins í Straumsvík, samþykki Hafnfirðingar stækkunina í lok mánaðarins. Innlent 20.3.2007 12:21
Samherji kaupir Engey Samherji á Akureyri hefur keypt Engey, flaggskip íslenska fiskiskipaflotans af Granda, en Grandi ætlaði að gera skipið út við Afríkustrendur. Engey er umþaðbil fjórum sinnum stærri en meðal stór frystitogari. Hún kom til hafnar í Færeyjum úr sinni síðustu veiðiferð fyrir Granda, þegar gengið var frá kaupunum upp á hátt í þrá milljarða króna. Innlent 20.3.2007 12:13
Fiskverð upp úr öllu valdi Fiskverð fór upp úr öllu valdi á innlendum fiskmörkuðum í síðustu viku og hefur aldrei verið hærra í krónum talið. Verð á leigukvóta hefur líka náð sögulegum hæðum. Verð fyrir kílóið af nýveiddum fiski upp úr bát var að meðaltali tæpar 193 krónur fyrir allar tegundir og stærðir. Innlent 20.3.2007 12:05
Verktakar í Reykjanesbæ bjartsýnir á sölu Verktaki og byggingarmeistari í Reykjanesbæ blása á áhyggjur minnihlutans um að erfitt geti reynst að selja allar þær 1900 íbúðir sem búið er að skipuleggja í bænum. Verktakinn fagnar miklu lóðaframboði og segir það á ábyrgð byggingarmeistara að byggja ekki meira en markaðurinn þolir. Innlent 20.3.2007 11:27
Kaupmáttur ellilífeyris minnstur á Íslandi Fjármálaráðherra studdist við rangar tölur þegar hann fullyrti á eldhúsdagsumræðum að kaupmáttur ellilífeyris væri hærri á Íslandi en annars staðar á Vesturlöndum. Réttara sé að styðjast við tölur Hagstofunnar sem sýni hið gagnstæða. Þetta segir í yfirlýsingu frá Landssambandi eldri borgara. Línurit á heimasíðu ráðherra sé byggt á röngum tölum sem komi úr norrænni skýrslu NOSOSKO. Innlent 20.3.2007 11:29
Kaupþing spáir 5,3 prósenta verðbólgu Greiningardeild Kaupþings spáir því að vísitala neysluverð hækki um 0,6 prósent í apríl. Gangi það eftir mun tólf mánaða verðbólga mælast 5,3 prósent í mánuðinum. Til samanburðar mældist 5,9 prósenta verðbólga í þessum mánuði. Greiningardeildin spáir því að verðbólga lækki fram á sumar en telur óvíst að 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði Seðlabankans verði náð. Viðskipti innlent 20.3.2007 11:01
Yahoo komið með leitarvél fyrir farsíma Bandaríska netfyrirtækið Yahoo kynnti í gær leitarvél fyrir farsíma með vafra. Með leitarvélinni, sem heitir OneSearch, þykir Yahoo hafa náð nokkru forskoti á netleitarfyrirtækið Google sem hefur í bígerð að búa til svipaðan hugbúnað fyrir farsíma. Viðskipti erlent 20.3.2007 09:45
Kaupþing fær að auka hlut sinn í Storebrand Kaupþing fékk í morgun heimild norska yfirvalda til að fara með 20 prósenta hlut í norska tryggingafélaginu Storebrand. Bankinn á fyrir tæpan tíu prósenta hlut en norsk lög banna erlendum aðilum að eiga meira en það í norsku fjármála- og tryggingafélagi án sérstakrar heimildar. Gengi bréfa í Storebrand hækkaði um 7,5 prósent í kjölfar þess að Kaupþingi var veitt heimild til að auka við hlut sinn. Viðskipti innlent 20.3.2007 10:11
Ísland næst frjósamast Fjölgun er milli ára á fæðingum á Íslandi og er hlutfallið 51 prósent drengir og 49 prósent stúlkur. Ísland er í öðru sæti þegar kemur að frjósemi kvenna í Evrópu. Hins vegar fæðast fleiri börn utan hjónabands hérlendis en í nokkru öðru Evrópuríki. Fæðingaraldur hækkar jafnt og þétt og er nú 25-29 ára en var 20-24 ára fram til 1980. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar um fæðingar á Íslandi 2006. Innlent 20.3.2007 09:48
Engeyin ekki seld úr landi HB Grandi hefur fallið frá því að selja Engey RE-1, stærsta skip íslenska fiskveiðiflotans, til Atlantic Pelagic og gera það út við strendur Afríku. Í stað þess hefur verið samið við Samherja hf um sölu á skipinu. Söluverð nemur 31,4 milljónum evra, jafnvirði rúmra 2,8 milljarða króna. Bókfærður hagnaður af sölunni er í kringum 700 milljónir króna. Viðskipti innlent 20.3.2007 09:20
Harma frávísun á íslensku táknmáli Félag heyrnarlausra harmar að frumvarp um viðurkenningu á íslensku táknmáli hafi ekki náð fram að ganga fyrir þinglok. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að það hafi slæm áhrif á heyrnarlausa í samfélaginu. Barist hafi verið fyrir réttindum þeirra í áratugi. Þá segir að félagið muni ekki gefast upp í réttindabaráttunni og vonist eftir stuðningi á þinginu í haust. Innlent 20.3.2007 09:13
Óbreyttir stýrivextir í Japan Japanski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,5 prósentustigum. Bankinn hækkaði vextina um 25 punkta í síðasta mánuði en það var önnur stýrivaxtahækkunin í Japan í sex ár. Viðskipti erlent 20.3.2007 08:55
Málfrelsi nemenda í hættu í Bandaríkjunum Hæstiréttur Bandaríkjanna veltir nú fyrir sér málfrelsi í nemenda í skólum í Bandaríkjunum. Er þetta í fyrsta sinn í rúmlega 20 ár sem slíkt mál kemur fyrir dómstólinn. Dæmt verður um hvort að skólastjóri hafi brotið á málfrelsi nemanda þegar að hún rak nemandann úr skólanum fyrir að sýna borða sem á stóð „Reykjum gras fyrir Jesús.“ (e. Bong hits 4 Jesus). Erlent 19.3.2007 23:45
Reyndi að refsa Lampard Ósáttur aðdáandi hljóp út á völlinn eftir að leik Chelsea og Tottenham lauk í kvöld og reyndi að gefa Frank Lampard, leikmanni Chelsea, einn á lúðurinn. Lampard var að fagna með liðsfélögunum sínum þegar maðurinn kom hlaupandi með hnefann á lofti og rétt náði að bregða sér undan hægrihandarsveiflu hins reiða áhanganda Tottenham. Öryggisverðir brugðust snögglega við og yfirbuguðu manninn á örskotsstundu. Erlent 19.3.2007 23:10
Lögðu hald á 19,4 tonn af kókaíni Eiturlyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum hefur í samstarfi við lögregluna í Panama lagt hald á 19,4 tonn af kókaíni. Kókaínið fannst um borð í skipi á Kyrrahafi um helgina og talið er að aldrei hafi meira magn eiturlyfja verið gert upptækt á hafi úti. Lögreglan í Panama skýrði frá þessu í kvöld. Skipið er flutningaskip og er skráð í Panama. 14 voru handteknir í tengslum við málið. Erlent 19.3.2007 22:59