Íþróttafréttamaður

Valur Páll Eiríksson

Valur Páll er íþróttafréttamaður á Vísi, Stöð 2 og Bylgjunni.

Nýjustu greinar eftir höfund

Konur eiga ekki upp á pallborðið: „Vissi að ég yrði ekki kosin“

47. ársþing UEFA fór fram í Lissabon í Portúgal í vikunni þar sem Slóveninn Aleksander Čeferin var endurkjörinn sem forseti sambandsins næstu fjögur árin án mótframboðs. Einnig var kosið um framkvæmdastjórn sambandsins til næstu fjögurra ára. Aðeins karlar hlutu kjör til stjórnarsetu.

Skilur að menn séu sárir og svekktir

Formaður Körfuknattleikssambands Íslands kallar eftir virðingu fyrir störfum dómara í ljósi hatrammar umræðu í kringum leikbann leikmanns Keflavíkur. Sérstaklega í ljósi þess að úrslitakeppnirnar eru nú komnar af stað þar sem púlsinn á til að hækka enn meira.

Arnar tjáir sig: „Tímasetningin óskiljanleg“

Arnar Þór Viðarsson, sem var sagt upp störfum sem landsliðsþjálfari karla í fótbolta í vikunni, sat fyrir svörum í fótboltaþættinum Extra Time á flæmsku ríkissjónvarpsstöðinni VRT í gærkvöld. Hann kveðst ósáttur við uppsögnina en stoltur af sínum störfum.

Sjáðu stemninguna á æfingu Valsmanna

Valsmenn æfðu í dag í keppnishöllinni í Göppingen hvar þeir mæta heimamönnum í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildar karla í handbolta í kvöld.

„Sá alveg fullt af tækifærum“

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, segir leikmenn liðsins ákveðna í því að bæta fyrir slæmt tap fyrir Göppingen á Hlíðarenda í síðustu viku þegar liðin mætast að nýju í 16-liða úrslitum Evrópudeildar karla í handbolta í kvöld.

„Okkur langar að dreyma“

Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, kveðst meðvitaður um að liðið eigi við ofurefli að etja er það sækir Göppingen heim í 16-liða úrslitum Evrópudeildar karla í handbolta í kvöld. Um er að ræða erfiðan útivöll og þeir þýsku eru með sjö marka forskot eftir fyrri leikinn á Hlíðarenda.

Benedikt varð eftir heima

Benedikt Gunnar Óskarsson, leikmaður Vals, er ekki með hópnum sem er staddur í Göppingen og mætir heimamönnum í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildar karla í handbolta í dag. Hann glímir við meiðsli.

Höllin í eldri kantinum

Arnór Snær Óskarsson, skytta Valsliðsins sem mætir Göppingen í Evrópudeildinni í handbolta á morgun, segist spenntur fyrir að leika í góðri stemningu í keppnishöll sem komin til ára sinna.

Sjá meira