Kvöldfréttir Stöðvar 2 Móðir tvítugs pilts sem lést fyrir nokkrum vikum af völdum of stórs skammts af fíkniefnum telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir andlát sonar síns. Hún lýsir síðustu vikum sem algjörri martröð. 27.4.2023 17:37
Ekki verður af afglæpavæðingu neysluskammta Heilbrigðisráðherra mun ekki leggja fram frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta, líkt og áður hafði verið boðað. Hann segist frekar munu leggja áherslu á skaðaminnkandi úrræði. 27.4.2023 12:04
Einn liggur enn þungt haldinn á spítala Einn liggur enn þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir bruna í bátnum Grísmnesi í Njarðvíkurhöfn. Að sögn lögreglu liggja eldsupptök enn ekki fyrir. 26.4.2023 11:56
Brotið gegn barni sem var flutt í einveruherbergi Brotið var gegn barni sem var gegn vilja sínum flutt í svokallað einveruherbergi í grunnskóla í Hafnarfirði, samkvæmt úrskurði mennta- og barnamálaráðuneytisins. Sérfræðingur segir gríðarlega vöntun á stuðningi fyrir börn með sérþarfir í skólakerfinu og skýrum verklagsreglum. 23.4.2023 18:55
Kjarnorkuknúnir kafbátar nærri Helguvík Kjarnorkuknúnum orrustukafbátum bandaríska sjóhersins verður heimilt að hafa viðkomu við Ísland og von er á fyrsta kafbátnum á næstunni. Utanríkisráðherra hefur áréttað sérstaklega við bandarísk stjórnvöld að þeir megi ekki bera kjarnorkuvopn innan íslenskrar landhelgi. 18.4.2023 12:29
Allt aðeins erfiðara vegna aðhaldsleysis Almenningur mun gjalda fyrir aðhaldsleysi stjórnvalda með hærra matvöruverði og aukinni vaxtabyrði að mati þingmanns Viðreisnar. Fjármálaáætlun er til umræðu á Alþingi í dag og þingmaðurinn hvetur fjármálaráðherra til að veita fram kominni gagnrýni verðskuldaða athygli. 17.4.2023 14:03
Líkleg riða á öðru stóru býli Fyrstu niðurstöður gefa til kynna að riða hafi greinst á öðru býli í Miðfjarðarhólfi. Smitið hefur ekki verið staðfest endanlega en yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun segir unnið út frá því að um riðu sé að ræða. 14.4.2023 11:06
Von á hlýindum og góðu vorveðri Það gæti stefnt í einn hlýjasta aprílmánuð frá upphafi mælinga ef langtímaspár ganga eftir. Von er á hlýju lofti yfir landið eftir helgi og góðu vorveðri í kringum sumardaginn fyrsta. 12.4.2023 12:59
Uggandi vegna mögulegrar dreifingar riðunnar Búið er að aflífa um sjö hundruð kindur á bænum Bergsstöðum í Vestur-Húnaþingi vegna riðu sem kom þar upp. Tuttugu kindur úr hjörðinni höfðu verið fluttar á nokkra bæi í nágrenninu og yfirdýralæknir segir í forgangi að greina sýni úr þeim. Reynist þær sýktar þarf að aflífa fé á þeim bæjum. 11.4.2023 12:03
„Allt farið eftir 25 ára þrotlaust starf“ Bóndi á Bergsstöðum er miður sín vegna riðu sem greindist í sauðfé á bænum. Öllum 690 kindum bæjarins verður lógað. 3.4.2023 14:35