Óvæntar veðuraðstæður í Reykjavík í dag áttu sér skýringu Veðrið lék við landsmenn á suður- og vesturhorni landsins í dag á þessum síðasta degi marsmánaðar. 31.3.2022 20:31
„Sigríður, þetta er dálítið ljótt“ Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir að stríðinu gegn fíkniefnum hafi verið tapað um allan heim - og að fara þurfi nýjar leiðir - en að fyrirliggjandi hugmyndir um afglæpavæðingu neysluskammta séu ekki leiðin út úr núverandi vanda. 29.3.2022 09:00
Göngustígar á bólakafi á höfuðborgarsvæðinu Gífurlegir vatnavextir hafa unnið skemmdir á vegum í Borgarfirði um helgina og göngustígar eru komnir á kaf á höfuðborgarsvæðinu. Þar þrefaldaðist rennslið í Bugðu í Norðlingaholti í gær. 27.3.2022 20:31
Landspítali líklega af neyðarstigi en vandamálin áfram mörg Gert er ráð fyrir því að Landspítalinn verði færður af neyðarstigi í vikunni eftir að hafa verið þar í meira en mánuð. Forstjóri spítalans segir þó fleiri úrlausnarefni en kórónuveirufaraldurinn blasa við. 27.3.2022 18:54
Magnaðar ljósmyndir á gömlu almenningssalerni Í Núllinu í miðbæ Reykjavíkur var áður almenningssalerni, en nú er starfrækt þar listastúdíó. Þessi dægrin má þar finna ljósmyndasýningu sem hverfist um Úkraínu, sögu landsins og stríðið sem geisað hefur þar síðasta rúma mánuðinn. 27.3.2022 18:05
Alvarlegt að ráðherra rugli saman hugtökum Sérfræðingur í skaðaminnkun telur alvarlegt að ráðherrar vilji eins og því er lýst halda áfram að refsa fólki fyrir neyslu eiturlyfja. Úrræðaleysi í málaflokknum eigi ekki að standa í vegi fyrir afglæpavæðingu. 27.3.2022 13:51
Katrín vill gjaldfrjálsa leikskóla Forsætisráðherra telur að sveitarfélög ættu að fella niður leikskólagjöld og kveðst sjálf munu auka framlög til barna á komandi tímum. Talið er að allt að tíuþúsund börn séu fátæk á Íslandi. 26.3.2022 22:34
Vill fara mjög varlega í að segja að fíkniefni séu lögleg Fjármálaráðherra telur að fara þurfi mjög varlega í að segja að fíkniefni séu lögleg á Íslandi. Innviðaráðherra segir ekki ráðlegt að ráðast í afglæpavæðingu neysluskammta áður en önnur úrræði séu líka tilbúin. 26.3.2022 18:46
Ekkert að gerast í nýjasta hverfi borgarinnar: Vill bakarí, lágvöruverslun, ísbúð, pítsustað, bar og kaffihús Íbúa á Hlíðarenda í Reykjavík er farið að lengja eftir verslun og þjónustu í hverfið sitt. Þúsundir fermetra af atvinnuhúsnæði standa auðir. 26.3.2022 15:10
„Ekki auðveld ákvörðun“ Fiskideginum mikla á Dalvík hefur verið frestað, þriðja árið í röð. Ástæðan: Óvissa vegna Covid-19. 26.3.2022 11:54