Gæti verið valinn númer tvö þrátt fyrir að hafa verið hluti af morðrannsókn Brandon Miller tekur þátt í nýliðavali NBA-deildarinnar í nótt. Margir telja að hann verði á meðal þeirra fyrstu að vera valinn, þrátt fyrir að það hafi ekki alltaf legið fyrir að Miller gæti tekið þátt í valinu. 22.6.2023 22:16
Grindavík vann slaginn um Suðurstrandaveginn Grindavík vann 3-1 sigur á Ægi í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Þá unnu Þróttarar góðan endurkomusigur gegn Gróttu. 22.6.2023 21:30
Chris Paul verður samherji Steph Curry hjá Warriors Chris Paul er við það að ganga til liðs við Golden State Warriors í NBA-deildinni í körfuknattleik og verður þar með samherji Steph Curry. 22.6.2023 20:58
England byrjar af krafti og Frakkar lögðu Ítali England vann 2-0 sigur á Tékkum í fyrsta leik liðsins á Evrópumóti U-21 árs landsliða sem hófst í Georgíu í dag. Þá unnu Frakkar góðan sigur á Ítölum í D-riðli. 22.6.2023 20:40
Alþjóða hnefaleikasambandið svipt réttindum sínum innan IOC Alþjóða ólympíunefndin hefur svipt Alþjóða hnefaleikasambandið réttindum sínum sem æðstu samtök íþróttarinnar í heiminum. Nýtt alþjóðasamband hnefaleika var stofnað í apríl. 22.6.2023 19:54
Ekki möguleiki að Klopp taki við þýska landsliðinu Umboðsmaður Jurgen Klopp þvertekur fyrir að Klopp muni taka við þýska landsliðinu fyrir Evrópumótið á næsta ári. Þýska blaðið Bild hefur hafið herferð til að fá Klopp í landsliðsþjálfarastöðuna. 22.6.2023 19:00
Íslenska liðinu tókst ekki að bjarga sér frá falli Íslenska landsliðið í frjálsum íþróttum féll í dag úr 2. deild Evrópubikarsins, en þriðji og síðasti keppnisdagur fór fram í Póllandi í dag. 22.6.2023 18:06
Tottenham að ganga frá samningum við eftirmann Lloris Tottenham hefur náð samkomulagi við Empoli um kaupverð á markverðinum Guglielmo Vicario. Búist er við að gengið verði frá félagaskiptunum á næstu klukkustundum. 22.6.2023 17:49
Neymar biður ófríska unnustu sína afsökunar á meintu framhjáhaldi Neymar var á dögunum sakaður um að hafa haldið framhjá ófrískri unnustu sinni. Brasilíska knattspyrnustjarnan hefur nú birt langan pistil á Instagramsíðu sinni þar sem hann biður hana afsökunar. 22.6.2023 07:01
Arsenal innkallar nýjar treyjur sem eiga að heiðra „The Invincibles“ Arsenal og Adidas hafa innkallað nýjar keppnistreyjur félagsins sem komnar voru í sölu. Ástæðan er mistök í prentun en treyjunum er ætlað að heiðar hetjur liðsins frá tímabilinu 2003-2004. 21.6.2023 23:31