Herflugvél brotlenti skömmu eftir flugtak Fimmtán eru sagðir hafa dáið þegar rússnesk herflugvél af gerðinni Il-76 brotlenti skömmu eftir flugtak í morgun. Myndbönd sýna að minnsta kosti einn hreyfil flugvélarinnar í ljósum logum skömmu eftir flugtak og féll hann af henni áður en hún brotlenti. 12.3.2024 11:34
Gerðu árásir í átta héruðum Rússlands Úkraínumenn gerðu umfangsmiklar drónaárásir í að minnsta kosti átta héruðum Rússlands í nótt. Í einu tilfelli var gerð árás á olíuvinnslustöð í um 775 kílómetra fjarlægð frá landamærum Úkraínu. Þá hafa rússneskir menn sem berjast með Úkraínu gert aðra atlögu inn í Belgórodhérað og Kúrskhérað í Rússlandi. 12.3.2024 10:42
Spilaðu Warzone með GameTíví Það verður stuð og fjör hjá strákunum í GameTíví í kvöld þar sem þeir verða með opið hús. Áhorfendur munu geta tekið leik með þeim í Warzone. 11.3.2024 19:31
Snerist hugur um TikTok eftir heimsókn auðjöfurs Undir lok forsetatíðar sinnar skrifaði Donald Trump undir forsetatilskipun sem ætlað var að takmarka umfang samfélagsmiðilsins TikTok í Bandaríkjunum. Var það á grunni þess að Kommúnistaflokkur Kína stýrði í raun samfélagsmiðlinum og hefði þannig gífurleg áhrif á fjölmiðlaneyslu Bandaríkjamanna. 11.3.2024 16:57
Stakk konu sína og þrjú börn Lík hjóna og þriggja barna fundust um helgina á heimili þeirra í í Honolulu á Havaíeyjum. Forsvarsmenn lögreglunnar segja útlit fyrir að maður hafi stungið eiginkonu sína og þrjú börn þeirra til bana, áður en hann svipti sig einnig lífi. 11.3.2024 15:01
Segir Trump ætla að stöðva alla aðstoð handa Úkraínumönnum Viktor Orban, umdeildur forsætisráðherra Ungverjalands, segir Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðanda, hafa sagt sér að verði hann forseti á nýjan leik muni hann binda endi á alla hernaðaraðstoð til Úkraínu. Það er samkvæmt Orban liður í „nákvæmum áætlunum“ Trumps um að binda enda á stríðið í Úkraínu. 11.3.2024 14:26
Fritzl verður áfram á réttargeðdeild Josef Fritzl verður ekki fluttur í almennt fangelsi í Austurríki í bili og verður þess í stað áfram á réttargeðdeild í öryggisfangelsi. Fyrri ákvörðun hefur verið snúið af áfrýjunardómstól en upprunalegi úrskurðurinn byggði á því að ekki væri talið að ógn stafaði af Fritzl. 11.3.2024 12:25
Tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna Fimmtíu vefir eða stafrænar lausnir eru tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna. Þeir Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson, sem eru hvað þekktastir fyrir Hraðfréttir kynna tilnefningarnar og verða kynnar á verðlaunahátíðinni. 11.3.2024 11:12
Vita lítið um ástandið í Fukushima þrettán árum síðar Nærri því 29 þúsund manns hafa ekki getað snúið aftur til síns heima, þó þrettán ár séu liðin frá því að flóðbylgja, sem myndaðist vegna stærðarinnar jarðskjálfta, skall á ströndum Japans. Flóðbylgjan dró rúmlega 22 þúsund manns til dauða og olli einhverju versta kjarnorkuslysi heimsins frá Tsjernobyl-slysinu sem varð árið 1986. 11.3.2024 10:54
Margir vilja halda rekstri áfram í Grindavík Ríflega þriðjungi fyrirtækja í Grindavík hefur verið lokað vegna jarðhræringanna og rýmingarinnar. Þrátt fyrir það segjast 41,2 prósent fyrirtækjaeigenda stefna að því að halda áfram fullum rekstri í bænum, á einhverjum tímapunkti. 8.3.2024 16:03
Ljósmóðir á eftirlaunum kölluð út: „Óbilandi óöryggistilfinningar- og aðstæður sem við búum við“ Innlent