Vara við fordæmalausu kynferðisofbeldi gegn börnum Hermenn Austur-Kongó og aðrar sveitir sem styðja herinn hafa hörfað frá flugvelli skammt frá borginni Bukavu í austurhluta Austur-Kongó. Uppreisnarmenn M23 hafa tekið flugvöllinn og útlit er fyrir að þeir stefni á árásir á Bukavo, sem yrði önnur stóra borgin á svæðinu til að falla í hendur þeirra. 14.2.2025 15:28
Hótar hertum aðgerðum neiti Pútín að semja JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, segir að neiti Vladimír Pútin, forseti Rússlands, að semja um frið í Úkraínu og tryggja sjálfstæði Úkraínumanna til lengri tíma, muni Bandaríkin herða refsiaðgerðir og þvinganir gegn Rússlandi. Þá kæmi einnig til greina að senda bandaríska hermenn til Úkraínu. 14.2.2025 11:55
Segir Úkraínu enn á leið í NATO Úkraína mun að endingu ganga í Atlantshafsbandalagið. Þetta sagði Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, þegar þeir töluðu saman í síma í morgun en þá sagði Starmer einnig að engar viðræður um Úkraínu gætu átt sér stað án Úkraínu. 14.2.2025 10:53
Segja nánast öllum nýjum starfsmönnum upp Yfirmönnum opinberra stofnana í Bandaríkjunum hefur verið sagt að segja upp svo gott sem öllum nýjum starfsmönnum. Sumum yfirmannanna var sömuleiðis tilkynnt að frekari uppsagnir væru í vændum. 14.2.2025 10:02
RFK verður heilbrigðisráðherra Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt tilnefningu Robert F. Kennedy yngri til embættis heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna. Atkvæðagreiðslan á þinginu fór 52-48 en Mitch McConnell, fyrrverandi leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeildinni, var eini meðlimur flokksins sem greiddi atkvæði gegn tilnefningunni. 13.2.2025 16:30
Fékk að vera áfram í Þýskalandi eftir höfnun Maðurinn sem ók inn í hóp fólks í München í Þýskalandi í morgun sótti um hæli í Þýskalandi árið 2016. Umsókninni var hafnað en hann fékk þrátt fyrir það undanþágu frá brottvísun. 13.2.2025 15:08
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sýndi á spilin fyrir viðræður Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vann líklega stóran sigur í gær. Hann gerði það ekki á víglínunni í Úkraínu eða í Kúrsk, heldur á alþjóðasviðinu og hafa málpípur hans fagnað ákaft. 13.2.2025 14:11
Ók á fólk á götum München: Segja að um árás sé að ræða og 27 eru særðir Að minnsta kosti 27 eru særðir eftir að hælisleitandi frá Afganistan ók inn í hóp mótmælenda á götum München í Þýskalandi í morgun. Ökumaður bílsins var handtekinn á staðnum en yfirvöld telja að um árás sé að ræða. 13.2.2025 10:18
McConnell greiddi atkvæði gegn Gabbard Tilnefning Tulsi Gabbard til embættis yfirmanns leyniþjónusta Bandaríkjanna hefur verið samþykkt. Það var gert með atkvæðagreiðslu í öldungadeild Bandaríkjaþings en hún fór 52-48. 12.2.2025 17:49
Útilokar aðild Úkraínu að NATO og krefur Evrópu um meira Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir ríkisstjórn Donalds Trump, forseta, ekki telja að aðild Úkraínu af Atlantshafsbandalaginu vera raunsæja að svo stöddu. Hann sagði Bandaríkjamenn þó fylgjandi því að Úkraína haldi fullveldi sínu og mikilvægt væri að tryggja frið sem fyrst og ríki Evrópu þyrftu að spila stærri rullu. 12.2.2025 14:49