„Ef við getum þetta á Anfield þá getum við þetta alls staðar“ „Við höfum verið réttilega gagnrýndir, staða okkar í deildinni segir allt sem segja þarf. Við höfum tapað of mikið af stigum,“ sagði Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn toppliði Liverpool á Anfield. 5.1.2025 19:35
Damir ekki lengi að opna markareikninginn í Asíu Damir Muminovic fer vel af stað með sínu nýja félagi DPMM, Duli Pengiran Muda Mahkota, í Brúnei. Miðvörðurinn skoraði eftir aðeins sex mínútna leik í sínum fyrsta leik. 5.1.2025 17:17
Jafntefli niðurstaðan í einum af leikjum ársins Liverpool og Manchester United gerðu 2-2 jafntefli í einum af skemmtilegri leikjum ensku úrvalsdeildar karla til þessa á leiktíðinni. 5.1.2025 16:02
Allt er fertugum LeBron fært Hinn fertugi LeBron James heldur áfram að skríða upp alla þá lista yfir tölfræði sem NBA-deildin í körfubolta getur boðið upp á. Nú síðast fór hann upp fyrir Michael Jordan er kemur að því að skora 30 stig eða meira í leik. 5.1.2025 08:02
„Við stýrðum leiknum ekki nægilega vel“ Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, var heldur ósáttur með leik sinna manna í 1-1 jafntefli liðsins við Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á laugardag. 5.1.2025 08:02
„Þetta er það sem gerir þá öðruvísi en önnur lið“ Tindastóll vann frábæran sigur á KR í síðustu umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Í Körfuboltakvöldi í kjölfarið var farið yfir hvað Tindastóll hefur sem önnur lið á Íslandi búa hreinlega ekki yfir. 5.1.2025 07:03
Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina „Nei,“ sagði Pep Guardiola, þjálfari Englandsmeistara Manchester City, einfaldlega aðspurður hvort hans liðið væri komið aftur í gírinn eftir 4-1 sigur á West Ham United í ensku úrvalsdeildinni. 4.1.2025 23:15
Tryggvi Snær öflugur en það dugði skammt Tryggvi Snær Hlinason átti virkilega góðan leik þegar lið hans Bilbao Basket mátti þola tap á útivelli gegn Lenovo Tenerife. 4.1.2025 22:31
Tindastóll upp fyrir Njarðvík Tindastóll lagði Njarðvík í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld og fór þar með upp fyrir þær grænklæddu í töflunni. 4.1.2025 22:17
Þessi hlutu atkvæði sem Íþróttamaður ársins, lið ársins og þjálfari ársins Í kvöld var Glódís Perla Viggósdóttir kosin Íþróttamaður ársins 2024 af Samtökum íþróttafréttamanna. Hér að neðan má sjá hver fengu atkvæði en Glódís Perla vann með fullt hús stiga. 4.1.2025 21:52