Kannski er yfirmaðurinn þinn á breytingaskeiðinu sínu (á líka við karlmenn) Að tala um breytingaskeiðið fer oftast fram í frekar lokuðum hópum. Kannski hjá bestu vinkonum. Hjá hjónum. Hjá lækninum. Sjaldnast meðal karlmanna, en þó: Það kemur fyrir. Hjá báðum kynjum oft í gríni eða sem einhvers konar djók. 21.5.2021 07:00
„Ekki nóg að stilla stólinn rétt og hafa skrifborðið í réttri hæð“ Vinnan getur verið uppspretta andlegrar orku, ekkert ólíkt þeirri upplifun að ganga á fjöll eða sinna öðrum áhugamálum. Vinnustaðir þurfa að hanna sveigjanlegri kerfi sem hver og einn starfmaður getur aðlagað að sér og sínum verkefnum. Og íslensk fyrirtæki eru nú þegar að sjá vísbendingar um að fólk hugi að flutningum á milli landshluta eða jafnvel til annarra landa, nú þegar fjarvinna er orðin að veruleika til framtíðar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svörum mannauðstjóra sem teknir voru tali í dag, í tilefni alþjóðlega mannauðsdagsins sem er í dag. 20.5.2021 07:01
„Þessir tímar breytinga eru bæði yfirþyrmandi og spennandi“ „Það er enginn vafi á að starf mannauðsstjóra er að taka stakkaskiptum. Þessir tímar breytinga eru bæði yfirþyrmandi og spennandi en það að setja fólk í forgang mun skipta sköpum. Það er því bráðnauðsynlegt að mannauðsstjórar stígi fram, hætti að bregðast við breytingum og fari að leiða þær. Þannig mótum við nýja framtíð,“ segir Ásdís Eir Símonardóttir, formaður Mannauðs. Alþjóðlegi mannauðsdagurinn er á morgun og er yfirskrift dagsins í þetta sinn „HR shaping the new future,“ eða Mannauðsmál móta nýja framtíð. 19.5.2021 07:01
Heitir í höfuðið á bryta Batmans Halldór Friðrik Þorsteinsson, framkvæmdastjóri og einn eigandi ráðningaappsins Alfreðs, segir appið Alfreð heita í höfuðið á bryta Batmans. Alfreð fagnar átta ára afmæli sínu á þessu ári og er í dag í boði fyrir atvinnuleitendur og vinnuveitendur á Íslandi, í Tékklandi, Slóvakíu og á Möltu. Og enn er hugað að fleiri og stærri tækifærum fyrir þetta íslenska app. „Stafrænar lausnir eiga mjög auðvelt með að ferðast og þess vegna er freistandi að horfa út yfir túngarðinn,“ segir Halldór. 17.5.2021 07:01
Klæddu sig í bestu fötin til að virka eldri meðal fræga fólksins „Það var oft erfitt á kvikmyndasýningunum erlendis því að við vorum svo ungir að fólk tók ekki mark á okkur. Við vorum því alltaf best klæddir af öllum, en þannig reyndum við að byggja upp trúverðugleika og virðast eldri,“ segir Magnús Geir Gunnarsson. 16.5.2021 09:00
Rifjar upp prins Valíant og gírar sig í gleðigírinn alla morgna Sigrún Hildur Jónsdóttir, framkvæmdastjóri kúnnagleði og meðstofnandi Klappir, lifði sig inn í ævintýri prins Valíant þegar að hún var lítil og fannst gaman að tálga örvar með pabba sínum. Sigrún Hildur leggur sérstaka áherslu á það alla morgna, að gíra sig inn í gleði og jákvæðni, sem hún segir mjög mikilvægt til þess að mæta rétt innstilltur til vinnu. 15.5.2021 10:00
Ólík karaktereinkenni að koma betur í ljós eftir Covid Nú þegar rúmt ár er liðið frá því að öllu var skellt í lás og fjarvinna varð fyrir alvöru hluti af raunverulegu lífi hjá mörgum, er áhugavert að velta því fyrir sér hvað hefur gerst í millitíðinni. Eða mega vinnustaðir búast við því að allt fólk snúi til baka til vinnu eftir bólusetningu og þá verði allt eins og áður? 14.5.2021 07:01
Jafnræði heima fyrir en ekki vitlaust að setja sér reglur og mörk Við tölum oft um jafnvægi heimilis og vinnu, veltum fyrir okkur hvort vinnustaðir teljist fjölskylduvænir, hvort jafnræði ríki á milli kvenna og karla í uppeldis- og heimilisverkum og mikilvægi styttingu vinnuvikunnar. En hvað segja ungu foreldrarnir sjálfir sem stunda fulla vinnu, samhliða því að ala upp ung börn, byggja upp heimili, láta sig umhverfismálin varða og lifa á tímum samfélagsmiðla? 12.5.2021 07:00
Vilja ná sömu dreifingu um heiminn og Covid-19 „Það er ekki hægt að verða stærri en stærsti fiskurinn í sjónum nema vera með góðan grunn og okkur hefur nú þegar tekist að sanna að fólk vill nota vöruna. Það sem þarf hins vegar að gerast núna er varan þarf að sanna sig á mörkuðum utan landsteinanna og hún þarf að geta dreift sér sjálf, manna á milli, nokkurn veginn eins og kórónuveiran,“ segir Ásgeir Vísir, einn eigenda Smitten stefnumótaappsins sem kynnt var til sögunnar laust fyrir síðustu jól. 10.5.2021 07:02
„Vigdís Finnbogadóttir kom til okkar strax á fyrsta ári“ „Við vorum búnir að hugsa fyrir öllu. Matseðilinn, andrúmsloft staðarins, staðsetninguna og þann viðskiptavinahóp sem við vildum ná til. Draumurinn var að fá Frú Vigdísi Finnbogadóttur til okkar, því ef hún kæmi væri það staðfesting á því að við værum að búa til góðan stað,“ segir Jakob Jakobsson þegar hann rifjar upp stofnun Jómfrúarinnar árið 1996. „Vigdís var líka hetjan okkar. Hún hafði farið fram gegn karlaveldinu, ekkert ólíkt okkur sjálfum,“ segir Jakob og bætir við: „Og þetta tókst því Vigdís Finnbogadóttir kom til okkar strax á fyrsta ári.“ 9.5.2021 08:01