Lífið

Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Rúm fjögur ár eru síðan fyrsti þátturinn af Karlmennskunni var gefinn út. 
Rúm fjögur ár eru síðan fyrsti þátturinn af Karlmennskunni var gefinn út.  Vísir/Vilhelm

Kynjafræðingurinn Þorsteinn V. Einarsson hefur tilkynnt að ekki verði teknir upp fleiri þættir af hlaðvarpi hans, Karlmennskunni. 

Í færslu á Insragram síðu hlaðvarpsins segir Þorsteinn að áfram verði hægt að nálgast þættina á hlaðvarpsveitum en þættirnir verði ekki fleiri.

„Það hefur verið afskaplega gaman að hitta og spjalla við svo margt frótt fólk með áhugaverða reynslu eða sjónarhorn á samfélagið. Markmiðið var alltaf að varpa ljósi á virkni feðraveldis í gegnum mismunandi birtingarmyndir, sem höfðu einhvern snertiflöt við karla eða karlmennsku. Veit að það tókst oft vel upp. Og það gleður mig að vita að ennþá eru nokkur hundruð einstaklingar að hlusta á gamla þætti,“ segir í færslu Þorsteins. 

Þá segir hann að stundum hafi hann átt í erfiðleikum með að verða sér úti um styrki, ekki öll fyrirtæki hafi verið til í að leggja honum lið. 

„Það var greinilega ekki mjög sexý söluvara fyrir fyrirtæki að tengja sig femínísku hlaðvarpi. Þrátt fyrir þrjú til sex þúsund hlustanir á hvern þátt og snertingu við um 30 þúsund á þessum miðli þóttu yfir 100 fyrirtækjum, sem þá höfðu varið fjármagni í hlaðvörp og „áhrifavalda“, ekki nógu safe að tengjast Karlmennskunni. Þau völdu frekar að tengjast einhverjum sem fjalla um fótbolta, fíkniefni, grín og glens – eitthvað „hlutlaust“,“ segir jafnframt í færslunni.

Þorsteinn segist ekki hafa skrifað færsluna til að fá samkennd eða vorkunn. „Ég er að skrifa þetta svo þið sjáið hvernig það er að taka raunverulega afstöðu og hversu hættulegt það virðist vera. Vonandi verður auðveldara fyrir næstu kynslóð að sækja fjármagn til að standa í jafnréttisbaráttu.“

Þorsteinn var viðmælandi í Einkalífinu á Vísi fyrr á árinu. Þar ræddi hann meðal annars um hlaðvarpið og fjölmiðlastorminn sem varð í kringum bók hans og eiginkonu hans Huldu Tölgyes um þriðju vaktina í aðdraganda síðustu jóla og áhrifin sem málið hafði á hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×