Játar að hafa stungið tvo en ekki þrjá Fyrirtöku í Bankastræti club-málinu svokallaða lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Karlmaður, sem ákærður er fyrir alvarlegasta hluta líkamsárásarinnar, breytti afstöðu sinni til sakargifta. Hann játar að hafa stungið tvo en ekki þrjá eins og áður. 14.7.2023 17:33
Strandveiðimenn boða til mótmæla Strandveiðisjómenn hafa boðað til mótmæla laugardaginn 15. júlí þar sem mótmælt verður stöðvun strandveiða sem þeir segja ótímabæra. Gengið verður frá Hörpu að Austurvelli og verður lagt af stað klukkan tólf. 13.7.2023 23:31
Leikarar í Hollywood komnir í verkfall Stjórn stéttarfélags leikara í Hollywood (SAG) samþykkti í kvöld að leggja niður störf á miðnætti. Verkfallið nær til um 160 þúsund leikara sem hafa undanfarið reynt að ná nýjum samningi, fyrir leikara í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, í höfn. 13.7.2023 23:01
Hækkun launa í Vinnuskólanum ekki forgangsmál Þórdís Lóa Þórhallsdóttir borgarfulltrúi Viðreisnar segir hækkun launa unglinga í Vinnuskólanum ekki forgangsmál. Það sé ánægjuefni að skólanum hafi verið haldið gangandi í miklum hagræðingaraðgerðum borgarinnar. 13.7.2023 22:10
Hátt í hundrað manns mögulega smitaðir af nóróveiru Hátt í hundrað tilkynningar hafa borist heilbrigðiseftirliti vegna mögulegra nóróveirusmita. Líkur eru á óvenju stóru hópsmiti á veitingastöðum Hamborgarafabrikkunnar. 13.7.2023 19:45
Mýrarboltinn á Ísafirði heyrir sögunni til Mýrarboltinn á Ísafirði verður ekki haldinn í ár, frekar en fyrri ár frá því að mótið var blásið af vegna kórónaveiru árið 2020. Aðalritari hátíðarinnar segir skipuleggjendur hafa fundið sér önnur áhugamál. 13.7.2023 18:42
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum skoðum við aðstæður á gosstöðvunum á Reykjanesi en yfirvöld lokuðu gönguleiðum að þeim í dag vegna mikils hvassviðris og reyks frá gróðureldum. 13.7.2023 17:57
Samþykkja minni hækkun launa Laun borgarfulltrúa hækka um 2,5 prósent frá fyrsta júlí síðastliðnum, í stað 7,88 prósent samkvæmt þróun launavísitölu frá nóvember 2022 til maí 2023. Borgarstjóri mun einnig óska eftir sömu breytingum á sínum launum. 13.7.2023 17:54
Wagner hafi afhent Rússum þúsundir tonna af vopnum Varnamálaráðuneyti Rússa greinir frá því að Wagner málaliðahópurinn hafi afhent rússneska hernum mörg þúsund tonn af vopnum. Rússar vinna nú að því að ná Wagner hópnum endanlega á sitt vald. 12.7.2023 23:52
„Alltaf varanlegur skaði eftir hvern bruna“ „Mér finnst sorglegt að sjá hversu margir eru illa brenndir,“ segir Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir. Hún segir vaxandi tíðni vera á húðkrabbameini í heiminum, Ísland sé engin undantekning á því og minnir á mikilvægi þess að bera á sig sólarvörn. 12.7.2023 22:46