Egypski auðkýfingurinn Al Fayed látinn Egypski auðkýfingurinn Mohamed Al Fayed, sem var meðal annars eigandi Harrods verslunarinnar og enska knattspyrnuliðslins Fulham FC, er látinn 94 ára að aldri. Al Fayed lætur lífið rétt rúmlega 26 árum eftir að sonur hans Dodi Fayed og Díana prinsessa fórust í bílslysi í París þann 31. ágúst 1997. Fayed hélt því fram að dauði þeirra hafi verið skipulagður af bresku leyniþjónustunni. 1.9.2023 21:57
„Það verður stormur um mestallt land“ Fyrsta haustlægðin fer yfir landið í kvöld og gular viðvaranir tóku víða gildi klukkan sjö. Björgunarsveitir hafa verið boðaðar út víða. 1.9.2023 21:15
Sóttu unglingsstrák í sjálfheldu í Eyrarhlíð Björgunarsveitir voru boðaðar út í dag vegna vegna unglingspilts, farþega af skemmtiferðaskipi sem var á Ísafirði, sem hafði klifið upp Eyrarhlíð og var kominn í sjálfheldu í Gleiðarhjalla. 1.9.2023 18:50
„Svona hús fer ekki í sölu á hverjum degi“ Hús Framsóknarflokksins að Hverfisgötu 33 hefur verið skráð á ný til sölu. Húsið, sem er í meirihlutaeigu flokksins, hefur verið falt í rúm fjögur ár. 31.8.2023 17:12
„Tekist að búa til kerfi sem mun vernda villta laxastofninn“ Framkvæmdastjóri Arctic fish segir villtum laxastofnum ekki stafa nein ógn af sjókvíaeldi. Laxveiðimenn segja stofninn ekki þola viðvarandi ágang eldislaxa. 31.8.2023 15:20
„Sit inni í bíl og horfi á þessa gaura labba aftan að honum“ Birgitta Líf Björnsdóttir og kærasti hennar Enok Vatnar Jónsson ræða árásina sem hann varð fyrir við Vínbúð ÁTVR á Dalvegi í Kópavogi í hlaðvarpsþættinum Betri helmingurinn. Birgittu grunar að árásarmennirnir tveir hafi elt þau að búðinni en kveðst ekki vita hvaðan árásin sé sprottin. 31.8.2023 14:45
Strokulax Arctic Fish sennilega borist í ár á Vestfjörðum Grunur er um að strokulax frá fiskeldisfyrirtækinu Arctic Fish hafi veiðst í nokkrum laxveiðiám á Vestfjörðum að undanförnu. Tvö göt fundust á kví fyrirtækisins í Patreksfirði fyrir rúmri viku. Matvælastofnun segir að sennilega sé ekki um stórt strok að ræða. 30.8.2023 15:19
Leita allra leiða til að halda dagskrá í óveðri Forsvarsmenn bæjarhátíðarinnar Ljósanætur í Reykjanesbæ leita nú allra leiða til að halda hátíðina samkvæmt dagskrá. Aftakaveðri er spáð næstu helgi þegar hátíðin fer fram. 30.8.2023 12:45
Verðbólgan aftur á uppleið Verðbólga mælist 7,7 prósent miðað við verðlag í ágúst og hækkar í fyrsta sinn milli mánaða eftir samfellda lækkun frá mælingu í apríl. 30.8.2023 09:21
Léleg afkoma í landbúnaði leiði til hærra verðs í haust Búist er við að verð á landbúnaðarvörum hækki enn meira í haust. Meginástæðan er léleg afkoma í landbúnaði en stýrivaxtahækkun bætir gráu ofan á svart. 28.8.2023 15:48