Ása Ninna datt um koll í beinni útsendingu Bráðfyndið atvik átti sér stað í beinni útsendingu Bakarísins á Bylgjunni í dag þegar Ása Ninna Pétursdóttir, annar þáttastjórnanda, ætlaði að fá sér sæti í stúdíóinu. Það fór ekki betur en svo að hún endaði kylliflöt á gólfinu. 17.2.2024 23:46
Eldri borgarar þurfa að bíða til mánudags eftir þjónustu vegna leka „Það gjörsamlega míglekur, fossaði bara úr loftinu,“ segir Ingheiður Brá Laxdal sem brá í brún við heimsókn sína í þjónustuíbúð við Grænumörk 1 á Selfossi. Eldri borgarar sem þar búa eru ósáttir við þjónustuna enda þurfa þeir að bíða fram yfir helgi eftir aðstoð við lekann. 17.2.2024 23:29
Ingibjörg Sólrún kemur Kristrúnu til varnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, kemur Kristrúnu Frostadóttur, núverandi formanni, til varnar í pistli á Facebook. Kristrún hefur mátt sæta gagnrýni vegna ummæla hennar um málefni innflytjenda og hælisleitenda. Ingibjörg segir vangaveltur Kristrúnar almennar og að grunnstefið hafi verið sanngirni, mannúð og sjálfbærni. 17.2.2024 22:32
VÆB og Aníta komust áfram í Söngvakeppninni Fyrra undanúrslitakvöld söngvakeppnis Ríkisútvarpsins fór fram í kvöld. Flytjendurnir VÆB og Aníta komust áfram og keppa í úrslitum keppninnar þann 2. mars næstkomandi. 17.2.2024 21:52
„Við getum því ekki einu sinni passað upp á þetta eina hlið“ Færsla Páls Magnússonar, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja, þar sem hann fjallar um aðkomu umsækjenda að alþjóðlegri vernd að hnífstunguáras, hefur vakið athygli. Hann segir málið skýrt dæmi um það óefni sem málaflokkur hælisleitenda og landamæravarsla sé kominn í. 17.2.2024 20:39
Leigubílstjóri City Taxi grunaður og tekinn úr umferð Leigubílstjórinn sem grunaður er um nauðgun í byrjun febrúar, var skráður hjá leigubílastöðinni City Taxi. Að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins er viðkomandi ekki lengur að keyra farþega. 17.2.2024 18:51
Ferskur andblær í hlustunarpartýi Ízleifs Beðið er eftir fyrstu plötu tónlistarmannsins Ízleifs með eftirvæntingu. Ízleifur, sem er bæði pródúsent og rappari, hélt hlustunarpartý fyrir vini og vandamenn í Þjóðleikhúsinu í vikunni. 15.2.2024 18:01
Alls kyns yfirlýsingar tengdar forsetaframboði Þjóðþekktir einstaklingar hafa gefið út ýmiss konar yfirlýsingar tengdar forsetaframboði eftir að Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands tilkynnti að hann muni ekki sækjast eftir endurkjöri. Dóri DNA fullyrðir að hann muni bjóða sig fram. 1.1.2024 16:39
Rýma tvo reiti á Seyðisfirði vegna snjóflóðahættu Tveir reitir hafa verið rýmdir á Seyðisfirði vegna snjóflóðahættu. Óvissustig er í gildi á Austfjörðum. 1.1.2024 16:04
„Verið velkomin á trúðasýninguna í vor“ Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hyggst ekki bjóða sig fram til forsetaembættisins að nýju. Sjöundi forseti Íslands verður því kjörinn í sumar. Sumir kvíða kosningunum en aðrir þakka Guðna fyrir síðastliðin tæp átta ár. 1.1.2024 14:07